Morgunblaðið - 01.03.1983, Blaðsíða 26
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. MARS 1983
LAGERINN
Smiðjuveg 54, Kópavogi
Fullt af nýjum, ódýrum fatnaöi
Þaö borgar sig aö koma viö á Smiöjuvegi 54
OPIÐ TIL 10 í KVÖLD
BOÐSBRÉF
BANNFÆRÐAR SKOÐANIR
Hannibal Valdimarsson, fyrrum forseti Alþýðusamhands íslands, varð áttræður
hinn 13. janúar sl. í tilefni þess hefur Alþýðusamband íslands haft forgöngu um
útgáfu bókar með efni eftir Hannibal sem hann hefur valiö sjálfur og nefnir
BANNFÆRÐAR SKOÐANIR. Ólafur Björnsson prófessor ritar inngang og
Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ formála.
ÁSKRIFTARKJÖR
Bókin mun aðeins fást í áskrift og verður verð hennar með söluskatti kr. 494,00.
Meðfylgjandi er áskriftarmiöi sem væntanlegir kaupendur eru beðnir að fylla út og
senda til Alþýðusambands fslands fyrir 15. marz nk. í pósthólf 5076 Reykjavik.
TABULA GRATULATORIA
(HEILLAÓSKASKRÁ)
Nöfn áskrifenda verða skráö fremst í bókina í sérstaka heillaóskaskrá, TABULA
GRATULATORIA, og því er nauösynlegt að þeir sem vilja gerast áskrifendur og fá
nöfn si'n skráð geri það sem allra fyrst.
ÁSKRIFTARMIÐI !
Ég undirrit.... óska hér meft eftir aft fá senda i póstkröfu samkvæmt tilbofti
Alþýftusambands Islands bók þá er þaft hefur haft forgöngu um að gefin verfti út
i' tilefni áttræftisafmælis Hannibals Valdimarssonar:
I
(NAFN) “
(HEIMILISFANC OC PÓSTNÚMER) — |
EINTAK/EINTÖK
Ef þér óskift eftir fleiru en einu eintaki, þá vinsamlegast setjift vifteigandi tölu
| ofan vift orftin EINTAK/ EINTÖK.
I---------------------------------------------------------J
f.h. Alþýðusambands Islands
Ásmundur Stcfánsson, forseti
Ávarp til kvenna í
Vestfjarðakjördæmi
— eftir Sigríði Auðuns
ÉG HEF verið að bíða eftir því að
einhver mér hæfari léti til sín
heyra um hina furðulegu af-
greiðslu kjördæmisráðs Sjálfstæð-
isflokks Vestfjarðakjördæmis.
Frú Sigurlaug Bjarnadóttir sat
á Alþingi fyrir kjördæmið um það
leyti sem kjördæmisráð sat á
rökstólum og raðaði niður á list-
ann, en sú furðulega óvild sem lýs-
ir sér í því, að henni er ekki boðið
sæti á framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins í kjördæminu, er óskilj-
anleg.
Sú móðgun, sem þessari merku
og mikilhæfu konu er þarna sýnd,
er til skammar fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn. í sæti frú Sigurlaugar er
settur ungur óreyndur maður, ný-
lega kominn frá námi. Gengið er
framhjá fjölmörgum mönnum,
sem hafa unnið Sjálfstæðisflokkn-
um ómetanlegt gagn um áraraðir.
Þetta á eftir að draga dilk á eft-
ir sér, ekki eingöngu í Vestfjarða-
kjördæmi, heldur víðar fyrir
flokkinn.
Nú er aðeins ein kona í öruggu
sæti fyrir Sjálfstæðisflokkinn, hin
mikilsvirta frú Ragnhildur Helga-
dóttir. Vonandi nær frú Salome
Þorkelsdóttir kosningu í prófkjör-
inu. Býður þetta ekki upp á, að
sjálfstæðiskonur efni til sérfram-
boðs?
Konur í Vestfjarðakjördæmi, ég
skora á ykkur að veita frú Sigur-
laugu Bjarnadóttur lið.
f hinum nýja matsölustað, Sælkeranum, sem Jón Hjaltason hyggst opna í
mars, verður notaður sérstakur ítalskur leirofn til pizzugerðarinnar. Myndin er
af einum slíkum.
Munum bjóða pizzur
án rafmagnsbragðs
— segir Jón Hjaltason, en hann hefur í undir-
búningi opnun tveggja veitingastaða í miðbænum
„ÞAÐ ER ekki búið að ganga endan-
lega frá samningum, en ef allt gengur
að óskum, munum við opna þcnnan
nýja veitingastað í maí,“ sagði Jón
Hjaltason í Óðali, en hann hefur í
hyggju að opna nýjan veitingasal í
kjallara Nýja bíós sem einkum verð-
ur nýttur til útleigu.
Staðurinn á að heita I kvosinni
og rúma 150 manns. Það er Haf-
steinn Gilsson sem verður fram-
kvæmdastjóri hins nýja staðar, en
fyrirtækið verður rekið án tengsla
við Óðal. í þessum sal hefur áður
verið rekin veitingaþjónusta, en
það var þegar Nýja bíó var opnað
árið 1920 og hét staðurinn þá Rós-
enberg-kjallarinn.
Þá sagði Jón að fyrirhugað væri
að opna nýjan matsölustað í hús-
næðinu þar sem Nessý var áður. Sá
staður á að heita Sælkerinn og er
stefnt að því að hann verði kominn
í gagnið þann 20. mars. Þar verður
m.a. boðið upp á italska rétti og er
hugmyndin að fá hingað ítalskan
kokk til að annast matseldina. Þá
hefur Jón keypt sérstakan ítalskan
leirofn til pizzugerðarinnar, „til að
geta boðið upp á sannítalska pizzu
og losna við rafmagnsbragðið",
eins og hann orðaði það.
Æ-
Ovenjulegt barnsfað-
ernismál í Garðinum
(iarói, 24. rebrúar.
NOKKUÐ óvenjulegt barnsfaftern-
ismál kom upp í Garðinum um síö-
ustu helgi. Það þarf að fara aftur til
ársins 1969 til að kynna sér mála-
vöxtu en þá fór knattspyrnufélagið
Víðir í keppnisferð til Færeyja. Þótti
þessi ferð takast mjög vel og virðist
sem hún liggi djúpt í hugskoti þátt-
takendanna og hefir hún mjög oft
borið á góma undanfarin ár.
Það var svo sl. laugardag að
hingað kom „færeysk" kona, Túr-
illa að nafni, og sagðist vera að
leita að föður frænku sinnar sem
ætti að ferma í vor. Sagðist hún
muna vel eftir Víðisliðinu. Þeir
hefðu verið siðprúðir og spilað
góða knattspyrnu alveg þangað til
verjan (vörnin) sprakk. Svo ein-
kennilega vildi til að margir af
Færeyjaförunum voru saman
komnir í samkomuhúsinu. Hún
rakti úr þeim garnirnar og eftir
drjúga stund hafði hún fundið
hinn eina rétta. Var það formaður
Víðis, Ingimundur Guðnason, en
hann sagði með blæbrigðum, sem
Túrillu likaði, „Áfram Víðir". Var
þá aðeins eftir að skoða á honum
hnén sem áttu að vera afar illa
sköpuð. Bað hún formanninn að
fara úr buxunum en þá tók eigin-
konan til sinna ráða og gamanið
fór að kárna.
Túrilla er reyndar úr leikflokkn-
um Ollen Dúllen Doff og til þess
að flækja málið ekki frekar þá
gerðist þetta á árshátíð Víðis. Þar
var hinn sívinnandi þjarkur Guð-
jón Guðmundsson kosinn knatt-
spyrnumaður ársins 1982 og
knattspyrnukona ársins Auður
Finnbogadóttir en hún er upp-
rennandi knattspyrnukona, leikur
miðvörð og hefir töluna 6 á bakinu
eins og það var orðað. Vilhjálmur
Einarsson var heiðraður fyrir að
ná 100 leikja markinu með meist-
araflokki.
Því má svo bæta við að uppá-
koma Túrillu þótti takast mjög vel
og höfðu einhverjir á orði að ein-
kennilegt væri samt að nokkrir úr
téðri Færeyjaför hefðu ekki mætt
á árshátíðina að þessu sinni. Þar
væru m.a. aðilar sem aldrei létu
sig vanta og er þar trúlega átt við
einn af okkar hreppsnefndar-
mönnum.
Arnór