Morgunblaðið - 01.03.1983, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. MARS 1983
45
velvak'andi
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Einn besti
virkjunar-
kosturinn
Athugasemd
við athugasemd
Pálmi Stefánsson, skrifar:
„Velvakandi.
Eg þakka Gísla Jónssyni, pró-
fessor fyrir athugasemdir hans
og vil um leið leiðrétta það sem
hann segir um raforkujafngildið.
Gísli telur „95 kWh allt of hátt“,
en „70—75 kWh nær lagi“.
Þetta er alfarið rangt. Hér hef-
ur „tölva" Háskólans illa brugð-
ist Gísla. Mér var kennt í skóla
að 860 kcal væru jöfn einni kWh
og að 2 rúmmetrar vatns og 45°
hitastigsmunur gerði sem næst
87.300 kcal eða 101,5 kWh (hér
hefði 40° hitastigsmunur nægt).
Á sama hátt gefa 13 lítrar olíu
miðað við 70% nýtni kyndingar
um 92 kWh.
í öllum þremur valkostunum
var átt við vatnskerfi og ekki þil-
ofna. Var því varfærnislega
áætluð nýtni rafkyndingar 95%,
sem auðvitað getur verið minni.
Stendur því óhögguð sú full-
yrðing mín að 95 kWh þurfi að
bera saman á móti 13 lítrum olíu
eða 2 rúmmetrum hitaveitu-
vatns.
Það er laukrétt hjá Gísla að
verðjöfnunargjald og söluskattur
er fellt niður af raforku til húsa-
hitunar. Sannleikurinn er nefni-
lega sá, að raforka til húshitunar
er seld á hlægilega lágu verði
miðað við verð á raforku til
heimilisnota. Ennfremur notar
húsahitun vatnið í fallvötnunum
þegar það er verðmætast og gerir
miklar kröfur til alls dreifikerf-
isins.
Þess var nýlega getið að 13%
húshitunar væru nú með raf-
magni. Þessi 13% nota álíka
mikið rafmagn og öll heimili
landsmanna samanlagt til heim-
ilisnotkunar.
Ef sú leið hefði verið valin að
stuðla að notkun varmadæla sem
nota um lA af raforku hefðbund-
innar húshitunar hefði mátt
spara a.m.k. helming þessarar
orku sem nú fer til húshitunar.
Þetta hefði getað orðið einn besti
virkjunarkosturinn."
fi
„Ég nefni aðeins tvö dæmi um óhóflega fjárfestingu; annars vegar hina
Seðlabankahöll sem kemur til með að rísa eins og ofmetnaðarsúla yfir
skuldþjakaðri þjóð; hins vegar okkar alltof stóra togarafiota, sem engan
veginn fær staðið undir sér og stuðlar m.a., meir en nokkuð annað, að
óhóflegu smáfiskadrápi — sem kannski er einn af meiri háttar atvinnu-
glæpum nútímans.“
Atkvæði, kjördæmi
og alþingismenn
Páll H. Arnason, Þórlaugar-
gerði, Vestmannaeyjum, skrifar:
„Vélvakandi.
Ég tel alveg sjálfsagt að allir
landsmenn, er hafa náð lögaldri
hafi jafnan kosningarétt, hvort
sem þeir búa á afskekktustu
stöðum, eða í hjörtum stórbæj-
anna. í samræmi við það tel ég
eðlilegast og raunar sjálfsagt, að
landið allt sé eitt kjördæmi.
í endurskoðaðri stjórnarskrá
okkar vil ég að settar verði fram
ákveðnar reglur um tölu alþing-
ismanna, í samræmi við íbúa-
fjölda þjóðarinnar á hverjum
tíma. Mér þætti hæfilegt að það
hlutfall væri einn alþingismaður
fyrir hverjar fimm þúsundir
íbúa. Nú eru landsmenn taldir
230 þúsundir og eftir þeirri reglu
ættu alþingismenn nú að vera 46
í stað 60. Og í allri lausunginni
og ráðleysinu virðist það helsta
ráðsnilldarúrræðið til samein-
ingar þingflokka, að fjölga þeim
enn.
Engum getur þó komið til hug-
ar, í alvöru, að störfum alþingis
aukist reisn með fjölgun þing-
manna, heldur mun málþóf og
málefnaleg grautargerð fara
vaxandi og er þó nóg fyrir af
sliku.
Það virðist líka viðurkennt að
fáum gangi mun betur að kom-
ast að málefnalegum niðurstöð-
um, en mörgum.
Ég geri hiklaust þá siðferð-
iskröfu til alþingismanna, að
þeir, hver og einn, séu sem
ábyrgðarmenn þjóðarbúsins í
. heild, og landsins alls, og til ystu
landhelgismiða, en alls ekki
hlutdrægir einstökum héruðum
eða kjördæmum. Slík hlut-
drægni leiðir óhjákvæmilega til
meiri eða minni héraðarígs og
hrossakaupa, jafnvel svo nálgast
fjárplógsstarfsemi sem oft leiðir
til alltof margra og dýrra fram-
kvæmda í einu, sem fjármagn
vantar svo til að koma eðlilega
áfram. Framkvæmdirnar standa
svo yfir óeðlilega langan tíma og
hlaða á sig kostnaði, en eru til
lítils eða einskis gagns. Og allt
þetta ýtir undir erlendar lántök-
ur, sem virðast framkvæmdar af
undraverðu kæruleysi.
Ég nefni aðeins tvö dæmi um
óhóflega fjárfestingu; annars
vegar hina fyrirhuguðu Seðla-
bankahöll sem kemur til með að
rísa eins og ofmetnaðarsúla yfir
skuldþjakaðri þjóð; hins vegar
okkar alltof stóra togaraflota,
sem engan veginn fær staðið
undir sér og stuðlar m.a., meir
en nokkuð annað, að óhóflegu
smáfiskadrápi — sem kannski er
einn af meiri háttar atvinnu-
glæpum nútímans.
GÆTUM TUNGUNNAR
Heyrsl hefur: Hann hlaut bæði verðlaunin.
Rétt væri: Hann hlaut hvortveggju verðlaunin.
(Ath.: verðlaun er ekki til í eintölu.) Bendum börnum á
þetta.
Við höfum opið
frá 8-18 á mánudögum,
þriðjudögum,
miðvikudögum,
fimmtudögum og
föstudögum.
Vöruafgreiðsla
innanlandsflugs Flugleiða á
Reykjavíkurflugvelli, verður lokuð um
helgar frá 1. marz.
Alla aðra daga opnum við kl. 8 og lokum
kl. 18.
Síminn okkar er 27933
FLUGLEIDIR
Gott fólk hjá traustu félagi
með upplyftingu
í skammdeginu
Hresstu upp
á útlitið
Er nú tekin aftur við rekstri á Snyrtistofunni Sælan,
Dúfnahólum 4.
Ég mun sem áður kappkosta að veita sem besta
þjónustu s.s. andlitsböð, húðhreinsanir,
handsnyrtingu, kvöldsnyrtingu, litanir, vaxmeðferð
á andlit og fætur.
Sértilboð
Fótaaðgerð aðeins kr. 150.-
Sólarlamparnir hjálpa ykkur að fá fallegan
hörundslit og slaka vel á fyrir vorið því það er
á næsta leiti.
Úrval af snyrtivörum: Lancome, Biotherm, Dior
og Margret Astor.
Dekraðu við sjálfa(an) þig.
Líttu við:
Fótaaðgerða-, snyrti- og Ijósastofan
c|?ÆÍW
Helga I»óra Jónsdóttir,
fótaaögerða- og snyrtifræöingur,
Dúfnahólum 4, sími 72226.