Morgunblaðið - 28.04.1983, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1983
Skoðanakönnun meðal framhaldsskólanema í Reykjavík:
85% neyta áfengis, 5,26%
hafa „sniffað" og um 14%
hafa neytt annarra vímuefna
UM 85% framhaldsskólanema í Reykjavík neytir áfengis, samkvæmt skoð-
anakönnun, sem nemendur í félagsfrædi við Menntaskólann við Hamrahlíð
hafa gengist fyrir meðal framhaldsskólanema í borginni. Af þeim 85%, sem
kváöust neyta áfengis, kváðust 19,79% drekka einu sinni í mánuði. 24,04%
segjast drekka tvisvar í mánuöi, 15,11% þrisvar sinnum, 9,36% vikulega,
31,27% segjast neyta áfengis „óreglulega" og 0,43% svöruðu ekki. Flestir
aðspurðra kváðust bæði drekka létt og sterk vín.
Innflutningur á kaffi
og sjónvörpum hefur
dregizt verulega saman
INNFLUTNINGUR á kaffi dróst saman um 23,3% á fyrstu
tveimur mánuðum ársins, þegar inn voru flutt 314,1 tonn, borið
saman við 409,8 tonn á sama tha í fyrra.
Verðmæti kaffiinnflutn-
ingsins fyrstu tvo mánuði
ársins var um 15,4 milljónir
króna, en til samanburðar
var verðmæti innflutnings-
ins liðlega 12 milljónir króna
á sama tíma í fyrra.
Innflutningur á litsjón-
vörpum dróst mikið saman á
fyrstu tveimur mánuðum
ársins, eða um liðlega 56%.
Inn voru flutt 665 tonn í ár,
borið saman við 1.518 tonn á
sama tíma í fyrra.
Verðmæti sjónvarpsinn-
flutningsins í ár er liðlega 3,8
milljónir króna, borið saman
við liðlega 5,1 milljón króna
á sama tíma í fyrra. Verð-
mætasamdrátturinn milli
ára er því liðlega 25,6%.
Jógúrt frá Húsavík
seld í Reykjavík:
Er 22,2%
ódýrari en
reykvísk
framleiðsla
í VERSLUNINNI Hagkaupum í
Reykjavík er nýlega farið að bjóða upp
á jógúrt í hálfs lítra umbúöum sem
framíeidd er í mjólkursamlaginu á
Húsavík og kostar hver hálfur lítri
22,10 krónur, en hver hálfur lítri sem
framleiddur er í Reykjavík og til sölu
er í versluninni kostar 27 krónur og er
því 22,2% dýrari, samkvæmt upplýs-
ingum sem Mbl. fékk hjá Ragnari
Haraldssyni, sölustjóra í Hagkaupum.
Haraldur Gíslason, mjólkursam-
lagsstjóri á Húsavík, sagði í samtali
við Mbl. að ástæðan fyrir þessum
verðmismun væri sú að mjólkur-
samlagið á Húsavík seldi sína jógúrt
í venjulegum mjólkurumbúðum, í
1 sömu könnun kom fram að
5,26% framhaldsskólanema hafa
„sniffað" af þynni, lími eða öðrum
slíkum efnum, en tæp 95% segjast
aldrei hafa reynt slíkt. Rösklega
14% segjast á hinn bóginn hafa
neytt annarra vímuefna, tæp 80%
segjast ekki hafa neytt annarra
vímuefna, og tæplega 6% að-
spurðra segjast hafa reynt vímu-
efni, en hafi hætt neyslu þeirra. —
Yfirgnæfandi meirihluti þeirra
sem reynt hefur önnur vímuefni
nefnir cannabisefni, eða 98,72%.
Flestir sögðust útvega sér vímu-
efni í gegnum félagsskap utan
skóla, eða 88,46%, um 4% sögðust
ná í efnin í skólanum. Flestir, eða
87,18% sögðu „auðvelt" að ná í
vímuefni, þ.e. flestir þeirra sem
reynt höfðu þessi vímuefni.
Skoðanakönnunin var unnin nú
í byrjun þessa árs, af þeim Agnari
Birgi Óskarssyni og Karli Steinari
Valssyni, nemendum við „sjálf-
stæðan áfanga í Félagsfræði" við
MH. Könnunin náði til nemenda
við MR, MS, Verslunarskólann,
Fjölbrautaskólann við Ármúla og
MH. Tekið var 15% úrtak úr skól-
unum, samtals 594 nemendur og
svaraði 551, eða 92,7%. Flestir
nemendurnir eru á aldrinum 16 til
19 ára. Lítill munur er á áfengis-
neyslu milli skóla skv. könnuninni,
frá 79,40% í MR upp í 90,50% í
MS.
Skeifukeppnin á Hólum
Á MÁNUDAGINN síðastliðinn var haldin að Bændaskólanum á Hólum
keppni um Morgunblaðsskeifuna. Er keppni þessi jafnframt hluti af
prófi nemenda sem stunda hrossarækt sem valgrein. Að þessu sinni
sigraði Sveinn Orri Vignisson á hesti sínum Gjafari sem er frá Ásmund-
arstöðum. Ásetuverðlaun Félags Tamningamanna hlaut Harpa Bald-
ursdóttir og Eiðfaxabikarinn sem er viðurkenning fyrir bestu umhirðu
hlaut Þorvarður Friðbjörnsson. Einnig var haldin gæðingakeppni fyrir
nemendur og starfsfólk staðarins og varð þar hlutskörpust Fluga frá
Sóleyjarbakka, eigandi Þórmundur Hjálmtýsson og knapi Sigurbjörn
Þórmundsson. Á myndinni sjáum við Svein Orra á Gjafari með verð-
launin. Nánar verður sagt frá Skeifukeppninni síðar. Ljósm. vk.
Starfsmaður Hagkaupa heldur á jóg-
úrt frá Reykjavík og Húsavfk, en verð-
munurinn á sama magni er 22,2%
Ljósm. Mbl. KÖE.
hálfs lítra pakkningu og notaði við
pökkunina sínar venjulegu vélar, en
hins vegar notuðu samlögin í
Reykjavík og á Akureyri sérstakar
pökkunarvélar og sérstakar umbúð-
ir og í því lægi verðmunurinn.
Sagði Haraldur að venjuleg
mjólkurferna væri mun ódýrari en
plastumbúðirnar. „Ég er fyrst og
fremst að búa til neysluvöru og ég
tel þetta miklu hagkvæmari vöru í
vörumarkaði svona pakkaða, heldur
en í dós sem er góður gúlsopi," sagði
Haraldur. „Við notum okkar mjólk-
urpökkunarvél við pökkun á öllum
okkar söluvörum og það kemur
þannig út að það er hagkvæmara en
að kaupa sérstakar vélar og sérstak-
ar umbúðir til þess að framleiða
þessa vöru,“ sagði Haraldur Gísla-
Launahækkun 1. júní
400—420 milljónir kr.
— Heildarlaun í landinu verða 2.400—2.520 milljónir á mánuði
HEILDARLAUN í landinu munu
hækka um á bilinu 400—420 millj-
ónir króna 1. júní nk., ef engar
aðgerðir verða í efnahagsmálum og
verðbætur á laun verða um 20%,
eins og Þjóðhagstofnun, Vinnuveit-
endasambands íslands og Félag ís-
lenzkra iðnrekenda hafa spáð.
Heildarlaun í landinu eru á bil-
inu 2.000—2.100 milljónir króna á
mánuði, eftir 14,74% verðbóta-
hækkun launa 1. marz sl. Þau
munu því ef að líkum lætur hækka
um 400—420 milljónir króna og
verða á bilinu 2.400—2.520 millj-
ónir króna eftir 1. júní nk.
Ef tekið er mið af verðbólguspá
Vinnuveitendasambands Islands,
sem gerir ráð fyrir liðlega 18%
hækkun verðbótavísitölu 1. sept-
ember nk., og er þá miðað við að
engar aðgerðir verði í efnahags-
málum, þá myndu almenn laun
hækka um á bilinu 430—450 millj-
ónir og verða á mánuði á bilinu
2.830—2.970 milljónir króna.
Skreiðarsalan
Innflutningsleyfi
fyrir 2.000 lestum
af skreið og hausum
Danskir og íslenskir vísindamenn:
Rannsaka orsakir heysýki
KtíMIÐ hefur í Ijós við rannsóknir íslenskra og danskra vísindamanna,
að sérstakar maurategundir geta verið valdar að heysýki (heymæði), sem
er ofnæmissjúkdómur, sem lengi hefur lagst á bændur hér á landi. í
danska blaðinu Sondags-Aktuelt er nýlega skýrt frá þessum rannsókn-
um, og þar sagt að heysýki sé útbreiddasti og alvarlegasti atvinnusjúk-
fsl
dómur meðal Islendinga.
Guðjón Magnússon aðstoðar-
landlæknir staðfesti í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi, að
heysýki væri alvarlegasti at-
vinnusjúkdómurinn hér á landi.
Unnið væri að þessum rannsókn-
um nú, og veittu Danir þar að-
stoð að ósk íslendinga. Meðal
annars væri unnið að blóðrann-
sóknum og könnunum á ofnæmi,
og á hvern hátt megi vinna
ónæmislyf úr maurunum, sem
ofnæminu valda. Sigurður
Richter dýrafræðingur, sem
unnið hefur að rannsóknum á
maurunum hér á landi, sagði
hafa komið í ljós að um væri að
ræða sömu maurategundir og
erlendis valda heysýki. Maurar
geta valdið bráðum sjúkdóms-
einkennum, en einnig orsakast
heysýki af gerlum og fleiri þátt-
um, og er þá ekki um eins bráð
einkenni að ræða. Sigurður sagði
rannsóknir meðal annars bein-
ast að því við hvaða skilyrði
maurar væru flestir í heyi, við
hvaða hitastig, árstíðir og í
hvernig verkuðu heyi. Sigurður
kvað margt benda til þess að
mest væri um maura í súrheyi,
öfugt við það sem áður var talið,
þegar ryk í þurrheyi var talið
hættulegast.
Smáajánnynd »f tveimur gerðum
maura, sem valdið geta beysýki. Nú er
unnið að rannsóknum á heysýki af fs-
lenskum og dönskum vísindamönnum,
en sjúkdómurinn er talinn alvarlegasti
atvinnusjúkdómurinn hér á landi.
„SKREIÐARSÖLUMÁLIN eru nú á
því stigi, að yfirvöld í Nígeríu eru
byrjuð að gefa út innflutningsleyfi
upp í þann kvóta, sem áætlaður var
fyrir innflutning fiskafurða á þessu
ári. Einn þeirra aðilja í Nígeríu, sem
fengið hafa innflutningsleyfi, hefur
leitað eftir skreið héðan og eitthvað
fleira gæti verið á döfinni, sem við
gætum átt aðgang að. Gallinn er
hins vegar sá, að erfitt er að fá við-
unandi bankaábyrgðir fyrir greiðslu.
Þær liggja ekki fyrir staðfestar af
Vesturlanda-bönkum og því ekki
mjög fýsilegar, en eins og ástandið
er, er ekki um annað að ræða en að
taka áhættu,“ sagði Magnús Frið-
geirsson, sölustjóri sjávarafurða-
deildar SÍS, í samtali við Morgun-
blaðið. v
Magnús sagði ennfremur, að
þessi leyfi næmu um fimmta hluta
innflutningskvótans og samsvör-
uðu því, að héðan færu um 1.000
lestir af skreið og 1.000 af hertum
hausum eða andvirði um 176 millj-
ónir króna. Sjávarafurðadeild SÍS
og Skreiðarsamlagið myndu
skipta þessum útflutningi jafnt á
milli sín.
Nú eru í landinu um 5.000 lestir
af hausum og 12.000 af skreið.
Sagði Magnús, að útflutningur
gæti hugsanlega hafizt í maílok.
Þar sem nánast ekkert væri nú
framleitt hér af skreið væru horf-
ur á því, að skreiðin yrði öll seld á
næsta ári. Ekki væri ljóst hvernig
skreiðarsala Norðmanna gengi nú.
Finnsk vöru-
sýning á
Loftleiðum
DAVÍÐ tíddsson borgarstjóri í
Reykjavík setti í gær vörusýningu á
Hótel Loftleiðum sem haldin er í
tengslum við Finnsku vikuna hér-
lendis. Við setninguna flutti Lauri
Prepula forstjóri utanríkisviðskipta-
samtaka Finna einnig ræðu.
Fimmtán finnsk fyrirtæki taka
þátt í sýningunni, en hún stendur
yfir fram á föstudagskvöld. Auk
þessara fyrirtækja taka átta
klæðaframleiðendur þátt í tísku-
sýningum sem haldnar verða í
tengslum við sýninguna.