Morgunblaðið - 28.04.1983, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1983
5
íslenzkur einleikari og frum
flutningur á íslenzku verki
Sinfónían í kvöld:
Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands í Háskólabóí i fimmtu-
dagskvöldið kemur verður íslenskur einleikari, Sigríður Vilhjálmsdóttir
óbóleikari og þar verður frumflutt íslenskt tónverk, „Friðarkall" eftir
Sigurð E. Garðarsson.
Sigríður mun leika óbókonsert
í C-dúr eftir Mozart sem er tal-
inn einn fegursti konsert sem
saminn hefur verið fyrir þetta
hljóðfæri og er hann mikið leik-
inn af færustu óbósnillingum. í
fyrsta og eina skiptið sem hann
hefur verið fluttur hér á Sin-
fóníutónleikum var einleikarinn
Leon Goossens. Sigríður Vil-
hjálmsdóttir lauk einleikara-
prófi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík 1974 en þar var
Kristján Stephensen hennar að-
alkennari. Síðan stundaði hún
nám í London, m.a. við Royal
College of Music og tók þaðan
lokapróf 1977. Þá var hún við
nám við Karajan-stofnunina í
Berlín, en þar var Lothar Koch,
sóló-óbóisti Berliner Philharm-
oniker aðalkennari hennar, en
hún lék um það leyti talsvert
með Berliner Philharmoniker og
þá undir stjórn stórstirna á borð
við Karajan, Böhm, Solti og
Abbado. Sigríður er nú 1. óbó-
leikari í rínlensku Fílharmoníu í
Koblenz.
Sigurður Garðarsson, sem hef-
ur meistarapróf í tónvísindum
frá háskólanum i Wisconsin í
Bandaríkjunum, hefur starfað
talsvert að tónsmíðum þó fátt
verka hans hafi enn heyrst hér á
landi. Tónverkið „Friðarkall"
var samið fyrir rúmum áratug
vestur í Bandaríkjunum og segir
höfundur það gert fyrir „áhrif
frá friðarhreyfingum og stúd-
entamótmælum gegn stríði í Ví-
etnam á sínum tíma. Lokaverkið
á tónleikunum verður svo sjötta
sinfónía Beethovens, Pastoral-
sinfónían. Stjórnandi tón-
leikanna verður aðalstjórnandi
hljómsveitarinnar Jean-Pierre
Jacquillat, en hann hefur að
undanförnu verið á hljómleika-
ferðalagi erlendis, en mun nú
stjórna þeim tónleikum sem eft-
ir eru á þessu starfsári.
(Frétutilkynning)
F-27 frá
Finnair í
stórskoðun
hjá Flug-
leiðum
Fokker-flugvél frá Finnair kemur
til Reykjavíkur um helgina í stór-
skoðun hjá Flugleiðum, samkvæmt
upplýsingum sem Morgunblaðið
fékk hjá Kristjáni Friðjénssyni í við-
haldsdeild Flugleiða.
„Þetta er önnur þeirra flugvéla
sem keyptar voru á sínum tíma
frá Suður-Kóreu og sett í stand
hér,“ sagði Kristján. Hann sagði
að hin Fokker-flugvélin hefði
komið í samskonar skoðun sl.
haust.
Kristján sagði að hér væri um
að ræða stærstu skoðun sem gerð
væri á Fokker F-27 flugvélum,
skoðun sem gerð væri eftir átta
þúsund flugstundir. Áætlað er að í
skoðunina fari um 10 þúsund
vinnustundir og að hún taki um
fimm vikur.
Norsku DBS reiöhjólin hafa^ um langt árabil
sannaö yfirburöi sína viö íslenskar aöstæöur.
Nú framleiöum viö íslensk DBS reiöhjól, sem slá
öllu við, sem áöur hefur þekkst.
Karlhjól — kvenhjól — 10 gíra — 5 gíra — 3ja
gíra — 2ja gíra — gíralaus, allt eftir þörfum
hvers og eins.
NÝ ÍSLENSK
FRAMLEIÐSLA
FALK