Morgunblaðið - 28.04.1983, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1983
15
Gengið á
elskunni
Bókmenntír
Jóhann Hjálmarsson
Sjón:
SJÓNHVERFINGABÓKIN.
Teikningar eftir Daða Guðbjörnsson.
Medúsa 1983.
„Nú duga nefnilega ekki lengur
orð/ einsog höfuð, bíll, maríufisk-
ur,/ japanslilja, vegur, nótt, reyk-
elsi,/ tjörn, losti, jakkaföt, tón-
list/ og svo framvegis." Þannig
yrkir Sjón til elskunnar sinnar í
Sjónhverfingabókinni. En hvað
dugar þegar orðin skortir mátt?
Svarið er: „Nú vil ég ganga á þér.“
Enginn skyldi þó halda að Sig-
urjón geti ekki ort hugljúf ástar-
ljóð. Lítum til dæmis á eftirfar-
andi dæmi:
lH*gar þú liggur á maganum verður höfuð þitt
að kolkrabba og ég set á mig hanska úr
úlvaldaskinni og strýk niður eftir baki þínu
staðnæmist við þjóhnappana og kyssi þá fast
beld svo áfram niður lærin og uppgötva að
fætur þínir eru ósýnilegri en leður.
Sjón
Annað og skýrara dæmi um hið
súrrealíska myndmál sem Sjón
iðkar er þetta:
Dragðu djúpt að þér andann
og blástu svo hægt á maga minn
á honum geturðu séð þræl á hjóli
berja gluggarúðu með svipu
á stéttinni fyrir neðan er kona
hún býr til marhnút
úr ryki perlum og bréfræmum.
Dragðu djúpt að þér andann
og bíttu mig í magann.
Sjónhverfingabókin er aðeins
smákver með nokkrum sýnishorn-
um þess hvernig ungur maður nú
á tímum yrkir til elskunnar sinn-
ar, ljóðin eru einkaleg og eiginlega
sendibréf, meira að segja eitt
þeirra sett upp sem slíkt. Bókin er
prentuð á bleikan pappír eins og í
gamla daga þegar ástin var hvað
heitust. Rissmyndir eftir Daða
Guðbjörnsson, eins konar tilbrigði
við ástina, klæða ljóðin vel. Það er
ekki langt síðan Sjón sendi frá sér
ljóðabókina Reiðhjól blinda
mannsins, hann er afkastamikill,
en engu að síður vandvirkur og
töluvert agaður í skáldskap sínum.
Fyrirmyndir þessarar ljóðagerðar
eru ljóð genginna súrrealista sem
flestir gætu verið afar og langafar
Sjónar. Það kemur ekki að sök.
Minna má á að margir ungir mál-
arar leita fyrirmynda í verk ex-
pressjónista, semsagt lengra aftur
en Sjón og félagar hans í Medúsu.
Það er glettinn tónn í Sjón-
hverfingabókinni. Hún lýsir þeirri
reynslu að „þú ert orðabók/ yfir
öll orðin sem mig vantar".
Jóhann Hjálmarsson
Lanvdsins mesta úrvad af
heimsins vinsælustu bíltækjum
PIONEtJ
1UM Í U
HUOMBÆR
HLJOM*HEIMILIS*SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999