Morgunblaðið - 28.04.1983, Síða 21

Morgunblaðið - 28.04.1983, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1983 21 Hjólreiðadag- ur í Grindavík (•rindavík, 11. apríl. LAUGARDAGURINN 9. april sl. var hjólreiöadagur JC í Grindavík. Til- gangur dagsins var að auka þekkingu harna og unglinga á umferðarlögum bóklega og verklega, einnig að auka á leikni þeirra á reiðhjólum með hjól- reiðaþrautum. Fyrir hádegi fór fram hjólaskoð- un, en eftir hádegi var keppt í góð- akstri á götum bæjarins og reið- hjólaþrautum. Þátttakendum var skipt niður í þrjá aldursflokka og flokk léttra bifhjóla. Stigahæsti einstaklingur keppninnar varð Birgir Reynisson og fékk hann veglegan farandbikar til varðveislu, sem klúbburinn Ör- uggur Akstur á Suðurnesjum gaf til keppninnar. Allir þátttakendur fengu viðurkenningu og veggspjald frá JC Grindavík. Þátttaka var mjög góð eða 145 börn og unglingar, og kunnu þau greinilega vel að meta framtakið. Við framkvæmd þennan dag naut JC Grindavík aðstoðar lögreglu og fólks úr foreldrafélagi og kennara- félagi Grunnskóla Grindavíkur. Guðfinnur Breytingar á stjórn Sjúkraliða- félagsins AÐALFUNDUR Sjúkraliðafélags íslands var haldinn laugardaginn 16. apríl 1983. Breytingar urðu í stjórn félagsins. Formaður var kjörin Margrét S. Einarsdóttir. Aðrir í stjórn eru: Hulda S. Ólafsdóttir, Guðrún Guð- mundsdóttir, Halldóra Lárus-w dóttir, Sólveig Hervarðsdóttir, Valdís Þórðardóttir, Dagbjört Mikaelsdóttir, Valgerður Gísla- dóttir og Þórdís Davíðsdóttir. HONDA CtyiC 1983 RÚMGÓÐUR OG SPARNEYTINN FJÖLSKYLDUBÍLL BÚINN ÝMSUM KOSTUM DÝRARI BÍLA OG AÐ SJALF- SÖGÐU MEÐ FRAMHJÓLADRIFI. . . , . GERIÐ GÓÐ KAUP Á APRÍLGENGI. VerO fra Kr. ZoZ.UUO,- Genfl' 5-4-,83- ___________________________HONDA Á ÍSLANDI - VATNAGÖRDUM 24 - SÍMI 38772 Bör í Keflavík BÖR Börsson, ærslaleikrit samið upp úr skáldsögu Falkberget, virðist enn eiga hljómgrunn hér á landi, ef marka má viðtökur áhorfenda í Stapa á frumsýningu Leikfélags Keflavíkur á sunnudaginn 10. apríl. Mjög oft var leikendum klappað lof í lófa og húsið glumdi af hlátrasköll- um. Sýningin er mannmörg og hér enginn kostur að lýsa frammistöðu allra leikendanna. í höfuðatriðum gekk sýningin hratt og misfellulaust. Það fer ekki á milli mála að Sigrún Valbergsdóttir hefur leyst verk sitt sem leikstjóri frábærlega vel af hendi. Aðalhlutverkið Bör leikur Jó- hannes Kjartansson. Framganga hans var örugg. 1 túlkun Jóhannesar er Bör glysgjarn, spaugilegur fugl, sem alltaf flýtur þegar aðrir sökkva. Gamla Bör leikur Þór Gils Helgason og bætir hann einni medalíu við í safn sitt. Þór er reyndasti leikand- inn í þessari sýningu. O.G. Hansen sýsluskrifari er í góðum höndum Arna Margeirssonar og minnist ég ekki að hafa séð Árna sýna slíka takta í leik, sem hann gerir þarna. Halla Sverrisdóttir er hin tælandi gleðikona Lára ísaksen. Mótpólar hennar eru fröken Finkel leikin af Unni Þórhallsdóttur og Jósefína, en með hennar hlutverk fer Sigrún Guð- mundsdóttir. Þá er vert að geta Gísla Gunnarssonar og Guðfinns Kristjáns- sonar í hlutverkum Óla í Fitjakoti og Nielsar á Furuvöllum. Ég vil svo að endingu þakka leik- stjóranum og því unga fólki, sem að sýningunni stendur fyrir ágæta skemmtun. Þetta var meðal betri frumsýninga hér á Suðurnesjum. Hilmar Jónsson U-BIX90 Smávaxna eftirherman Þó U-BIX 90 sé minnsta eftirherman í U-BIX fjölskyldunni hefur hun alls enga minnimáttarkennd, enda óvenju hæfileikarík og stórhuga eftirherma. Einstaklingar og fyrirtæki sem til hennar þekkja láta heldur ekki á sér standa og pantanir streyma inn. __ . , ° _ ------------- Verð kr. 61.650.- SKRIFSTOFUVÉLAR H.F. Sýna Blessað barnalán á Hofsósi Hofsósi, 14. apríl. LEIKFÉLAG Hofsóss hefur nú að und- anförnu sýnt leikrit Kjartans Ragn- arssonar „Blessað barnalán" við ágæt- ar undirtektir í félagsheimilinu Höfða- borg. Æfingar hófust í febrúar og hefur Rósa Þorsteinsdóttir annast leik- stjórn en alls eru um 20 manns sem á einn eða annan hátt hafa unnið að undirbúningi vegna þessarar upp- færslu. Allir sem taka þátt í upp- færslunni eru heimamenn hér á staðnum eða búa í nágrenninu. Ákveðið hefur verið að sýna leik- ritið víðar. M.a. var leikritið sýnt í Varmahlíð, Siglufi rði, Hvamms- tanga og Blönduósi. Er vonandi að sem flestir sjái sér fært að sjá Blessað barnalán í upp- færslu Leikfélagsins á Hofsósi, því vel hefur tekist til með hlutverka- skipan, sviðið er gott og efni leikrits- ins alveg afbragð. Ófeigur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.