Morgunblaðið - 28.04.1983, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1983 27
Minning:
Vilhelm Frímann
Frímannsson
Fæddur 21. september 1888
Dáinn 18. aprfl 1983
Frændi minn og móðurbróðir,
Vilhelm Frímann Frímannsson, er
látinn í hárri elli, 95 ára eða því
sem næst.
Frímann var fæddur á Eyrar-
bakka og voru foreldrar hans
Vilhelm Frímann Jónsson dag-
launamaður á Eyrarbakka og
kona hans Ingibjörg Jónsdóttir
frá Lunansholti í Landssveit, af
svokallaðri Víkingslækjarætt, en
bræður Frímanns voru að jafnaði
kenndir við Vindás i Landssveit.
Hjónaband Ingibjargar ömmu
varð ekki langt, en Frímann afi dó
sama árið og Vilhelm Frimann
fæddist.
Af Frímanni frænda mínum
segir ekki margt fyrr en árið 1903
að þá er hann í Reykjavík og fer
svo á vegum Gísla Jónssonar
verslunarstjóra (síðar í Borgar-
nesi hjá Bryde) til Víkur i Mýrdal
og síðar með honum til Borgar-
ness. Reyndist Gísli Frímanni
frænda mínum mikil hjálparhella
á báðum þessum stöðum.
Frímann frændi minn var mik-
ill hestamaður þegar hann var í
Borgarnesi og mun hann hafa
kynnst konuefni sínu á slíkum
ferðalögum, en hann giftist Mar-
gréti Runólfsdóttur frá Norðtungu
12. september 1915 og var brúð-
kaup þeirra haldið á heimili for-
eldra minna í Reykjavík.
Árið 1918, í nóvember, tók
frændi minn við umboði því er
faðir minn hafði haft fyrir Carl
Sæmundssen, en faðir minn lést í
spönsku veikinni. Flyst Frímann
frændi minn'til Reykjavíkur og
hefur búið þar siðan.
Fljótlega eftir að Frímann kom
til Reykjavíkur fór hann að hafa
afskipti af Flóabátnum Skyldi er
fór milli Borgarness og Reykjavík-
ur, síðan Suðurlandinu og Lax-
fossi til ársins 1944.
Það kom fljótlega í ljós að
frændi þótti ákaflega vandaður og
ábyggilegur maður. Tók hann að
sér afgreiðslu allmargra flutn-
ingabifreiða á árunum 1946 til
1955. Það ár tekur Frímann við
afgreiðslu Happdrættis Háskóla
íslands til ársins 1977 að sonur
hans, Frímann yngri, tók við um-
boðinu sem hann annast um enn-
Þá-
Eg hef hér að framan farið
fljótt yfir sögu og störf mikils at-
hafna- og heiðarleikamanns sem í
öllu mátti ekki vamm sitt vita og
starfaði í anda gamla skólans.
Þeim fer nú óðum fækkandi sem
starfa enn eftir þessum kenning-
um.
Heimili þeirra Frímanns og
Margrétar var annálað fyrir
snyrtimennsku, en á heimili
þeirra ílentist Borgnesingur,
Elísabet Helgadóttir, og dvaldi
hjá þeim um 50 ár. Ákaflega sam-
rýnd voru þau öll í því að gera
heimilið sem fallegast. Nú eru þau
öll horfin af sjónarsviðinu.
Með konu sinni Margréti eign-
aðist frændi minn þrjá syni, Ed-
vard f. 1917, Ragnar f. 1920, Vil-
helm Frímann f. 1930.
Frímann frændi minn kaus sér
að lifa hávaðalausu og kyrrlátu
lífi og ég held að hann hafi ekki
haft mikil afskipti af svokölluðum
félagsmálum. Hann mun þó hafa
verið félagi í Oddfellowreglunni.
Ég þakka frænda mínum fyrir
samfylgdina og sendi ástvinum
hans samúðarkveðjur.
Sigurður Jónsson
E 1600 SENDIBILL
Sérlega rúmgóður og þægilegur frambyggður sendibíll
með 1 tonns burðarþoli, byggður á sterkri grind og með
tvöföldum afturhjólum. Rúmar óvenju vel, þar sem gólf
hleðslurýmis er alveg slétt og án hjólaskála, hleðsludyr
eru á báðum hhðum og gafli. 1600 cc vél og 5 gíra kassi.
Verð kr: 217.000
Bankaborgið sem fyrst, til að tryggja tollgengi aprílmánaðar.
__________________________________________Verð miðast við gengisskráningu 25.4.'83
E 1600 PALLBILL Æk.
Pallbílsútgáfa af E1600 van hér til hhðar Sléttur pallur með
hleðsluhæð sem er aðeins 73 cm með skjólborð felld niður.
Verð kr: 182.700
B/LABORG HF.
Smiðshöfða 23, sími 812 99.
VirmuMamir frá
4 mismunandi gerðir af Mazdabíl-
um, sem eru tilvalin lausn á
flutningaþörfum flestra fyrirtækja
og einstaklinga.
B 1800 PICK UP
Léttur og hpur skúffubfll, sem ber 1 tonn. 5 gíra kassi og
1800 cc vél, sem er í senn aflmikil og sparneytin, þægileg still-
anleg sæti fyrir 2 farþega auk ökumanns. Margar gerðir af létt'-
um lausum húsum eru fáanlegar.
Verð kr: 205.000
323 SENDIBÍLL
Þetta er lokuð útgáfa af hinum geysivinsæla Mazda 323
station. Frá því að þessi bfll kom á markaðinn, þá
höfum við aldrei annað eftirspurn. Sparneytin 1300 cc
vél. Þetta er tilvalinn bfll fyrir sölumenn, við-
gerðar og þjónustumenn og aðra sem þurfa hpran og þæg-
ilegan bíl, sem samt ber ótrúlega mikið.
Verð kr: 168.800