Morgunblaðið - 28.04.1983, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1983
SÖLUmNING 5j)(jE FINNSK274-29.4
KYNNINGARVERÐ Tllír VÓRUKYNNINC
* y
ORÐSENDING TIL
FORELDRA I REYKJAVÍK
í þessari viku fá nemendur grunnskóla
í hendur bæklinginn:
Sumarstarf fyrir böm
og unglinga 1983
með upplýsingum um framboð á sumarstarfi
borgarstofnana og félaga í Reykjavík.
Foreldrar eru hvattir til að skoða
bæklinginn vandlega með börnum sínum
f11 ckiiWnrtf RfRf æskulýðsrAð
VjICOIICÍÍI BBB reykjavikur
: I ■ Fríkirkjuvegi 11
sumar.
„ÁSTÆÐAN fyrir því að við fáum
þessa viðurkenningu er mér að
mestu ókunn, en ég get ímyndað
mér að þær breytingar og sú upp-
bygging sem hér hefur farið fram,
eigi þar hlut að máli og auðvitað er
það fyrst og fremst starfsfólkið,
sem hefur unnið að henni, sem á
þessa viðurkenningu skilið," sagði
Kjartan Lárusson, forstjóri Ferða-
skrifstofu rfkisins, í samtali við
Morgunblaðið, en í febrúar síðast-
liðnum veitti Kjartan fyrir hönd
Ferðaskrifstofunnar móttöku við-
urkenningu sem blaðasamsteypan
Editorial Office á Spáni í samvinnu
við Fitur, samtök sem standa fyrir
alþjóðlegri ferðasölusýningu í
Madrid, veittu Ferðaskrifstofunni.
í sameiningu veita þessir aðilar
viðurkenningu fyrir „the most
outstanding" ferðaþjónustufyrir-
tæki í hverju landi og heitir viður-
kenningin International Award to
Tourist and Hotel Industry. Hafa
þeir veitt ein verðlaun til hvers
lands árlega og í ár eru löndin sem
þeir hafa veitt þessa viðurkenn-
ingu til milli 55 og 60. Þetta er í
fyrsta skipti sem þessi viðurkenn-
ing er veitt til íslands og í fyrsta
skipti sem íslenskum ferðaþjón-
ustuaðila er veitt viðurkenning
þessarar tegundar að því er Kjart-
an taldi.
Af aðilum í öðrum löndum sem
fengið hafa þessa viðurkenningu,
má nefna Disney World á Miami í
Bandaríkjunum, stærstu ferða-
skrifstofusamsteypuna í Sviss sem
heitir Kuoni, Club Mediterranee,
fyrirtæki sem mjög er þekkt í hin-
um frönskumælandi heimi og SAS
Royal Atlantic Hotel.
„Ég vona að þetta séu bara
fyrstu verðlaunin af mörgum sem
íslensk fyrirtæki fá í þessari þjón-
ustugrein, því að mín reynsla er sú
að fólki finnist það hafa unnið til
þeirra og það sem meira er, því
finnist að það verði að sanna að
það hafi unnið til þeirra, að það sé
sum sé mjög hvetjandi," sagði
Kjartan Lárusson að lokum.
MorfiibliM/Einil(L
Kjartan Lárusson, forstjóri Ferðaskrifstofu ríkisins, með viðurkenningar-
skjalið og gripinn sem fylgdi því.
Auglýsing frá
ríkisskattstjóra
Athygli framteljenda, sem létu af störfum vegna
aldurs á árinu 1982 eöa hyggjast láta af störfum
vegna aldurs á árinu 1983, er vakin á því aö meö
lögum nr. 21/1983 um breyting á lögum nr. 75/1981
um tekjuskatt og eignarskatt, er heimilaöur sérstakur
frádráttur frá tekjum hjá framangreindum framtelj-
endum.
Framteljandi hefur rétt til þessa frádráttar hafi hann
náö 60 ára aldri eöa öölast rétt til eftirlauna eöa
ellilífeyris úr lífeyrissjóöi á því tekjuári er hann telur
sig láta af störfum vegna aldurs.
Þar sem ákvæði 7. tl. 66. gr. laga nr. 75/1981 eru úr
gildi fallin þurfa allir þeir sem létu af störfum vegna
aldurs á árinu 1982 og sótt höföu um lækkun tekju-
skattsstofns skv. því lagaákvæöi aö endurnýja um-
sókn sína á sérstöku eyöublaöi (YFIRLÝSING OG
GREINARGERÐ vegna frádráttar skv. 9. tl. A-liðs 1.
mgr. 30. gr. laga nr. 75/1981 fyrir þá sem láta af
störfum vegna aldurs) ef þeir óska eftir frádrætti skv.
1. gr. laga nr. 21/1983.
Á þessu eyðublaði skal umsækjandi gefa yfirlýsingu
um þaö hvenær hann telji sig láta af störfum vegna
aldurs og gera jafnframt grein fyrir þeim tekjum sem
frádrátturinn skal miöast viö á framtali 1983, þ.e.a.s. á
þeim hluta tólf síðustu starfsmánaöa sem féll til á
árinu 1982.
Framteljandi sem lét af störfum vegna aldurs fyrir
árslok 1982 þarf aö fylla út greinargerö um þær
tekjur sem hann aflaöi frá 1. janúar 1982 til loka þess
dags þegar hann lét af störfum vegna aldurs á árinu
1982.
Athygli er vakin á því aö framteljandi sem hyggst láta
af störfum vegna aldurs fyrir lok ársins 1983 getur
sótt um þennan frádrátt á þessu ári, þ.e. framtali
1983. Hjá honum skiptist framangreindur frádráttur á
framtöl 1983 og 1984. Framteljandinn skal fylla út
greinargeröina þegar Ijóst er hvenær hann muni láta
af störfum vegna aldurs. í greinargeröinni þarf fram-
teljandi að gera grein fyrir þeim hluta tekna sinna á
árinu 1982 sem hann aflaði á þeim mánuöum ársins
1982 sem falla innan tólf mánaöa áöur en hann lét af
störfum vegna aldurs. Leyfist þá helmingur þessara
tekna til frádráttar í skattframtali hans 1983. Hann
þarf jafnframt aö gæta þess viö framtalsgerö 1984
aö senda inn sams konar greinargerö og gera þá
grein fyrir tekjum sínum frá 1. janúar 1983 þar til
hann lætur af störfum vegna aldurs.
Athygli skal vakin á því aö enda þótt frádráttur þessi
geti skipst á tvö skattframtöl kemur hann ekki til
greina nema einu sinni fyrir hvern mann.
Frádráttur þessi gildir jafnframt viö ákvöröun út-
svarsstofns viö álagningu útsvara.
Eyöublöö fást hjá skattstjórum og umboösmönnum
þeirra.
Reykjavík, 26. apríl 1983.
Ríkisskattstjóri.
Ferðaskrifstofa ríkisins
fær viðurkenningu frá Spáni