Morgunblaðið - 07.05.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.05.1983, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK 102. tbl. 70. árg. LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins Dæmigerður skoskur kastali. Dýrasta laxá í heimi? Inverness, Skotlandi, 6. maí. AP. LAXINN er víðar dýrseldur en á íslandi. Óðalseigandi nokkur og kastalaherra í Skotlandi, sem á dáiítinn árstubb, hefur nú aug- lýst veiðiréttinn til sölu og setur meira upp fyrir hann en hann getur hugsanlega fengið fyrir setrið sjálft og kastalann með öllum sínum mörgu herbergjum. Áin umrædda, Alnessá, er aðeins hálfur þriðji km á lengd og hefur aldrei gefið af sér meira en 90 laxa á ári. Þrátt fyrir það vill óðalseigandinn fá um 3.800.000 ísl. kr. fyrir veiði- réttinn á hvorum bakka eða hátt í átta milljónir fyrir ána. Ardross-kastali með 37 svefnherbergjum, 14 baðher- bergjum, kapellu, innisund- laug, 32 hekturum lands, veiði- húsi við ána, einnar hæðar sumarhúsi og ítölskum görð- um, er hins vegar metinn á tæpa hálfa þriðju milljón fsl. kr. „Sá, sem hefur áhuga á að verða kastalaherra í Skotlandi, getur látið þann draum rætast fyrir minni pening en kostar að kaupa litla íbúð í fínu hverfi í London," sagði Guy Galbraith, fasteignasalinn, sem er að reyna að koma kastalanum út. Dagbækur Hitlers: Pappírinn gerður eft- ir stríðið Koblenz, Vestur-Pýskalandi. 6. maí. AP. SÉRFRÆÐINGAR á vegum hins opinbera í Vestur-Þýskalandi hafa skýrt frá því, að dagbækurnar sem eignaðar hafa verið Adolf Hitler og birst hafa í vikuritinu Stern, séu falsaðar, á því sé enginn vafi. Rit- stjóri Stem, Henri Nannen, tjáði fréttamönnum fljótlega eftir yfir- lýsinguna, að ritið myndi umsvifa- laust hætta birtingu greinaflokka úr dagbókunum. „Við munum reyna að komast til botns í þessu svikamáli," sagði Nannen og bætti við að þetta væri reiðarslag fyrir blað- ið þar sem sérfræðingar þess hefðu gert allt sem í þeirra valdi stóð til að sanna ágæti bókanna. Hann lét þess ekki getið af hverjum bækurnar voru keyptar og sagði að hvatirnar að baki svikunum gætu vart verið af pólitískum toga spunnar. „Gróðasjónarmið þykir mér lík- legra," sagði Nannen. Hinir opinberu sérfræðingar gerðu efnafræðilegar rannsóknir á pappír bókanna, kápum, bandi og lími svo eitthvað sé nefnt. í ljós kom að allt var þetta fram- leitt á árunum eftir síðari heimsstyrjöldina. Þá væri inni- hald dagbókanna greinilega unnið meira og minna upp úr bók um Hitler, sem bókmennta- fræðingur að nafni Max Domar- us ritaði árið 1963. Töldu sér- fræðingarnir margt benda til þess að falsarinn hafi ritað bæk- urnar um 1964 eða skömmu þar á eftir. Arásarmálið í kirkjunni: Pólska kirkjan krefst opinberrar rannsóknar Varsjá, 6. maí. AP. Stjórnarmenn rómversk-kaþólsku I kirkjunar í Póllandi hafa krafíst | þess að opinber rannsókn fari fram á árás 10 til 15 óþekktra manna á verkamenn innan kirkjuveggja í Varsjá. Segja þeir það óheyrt áður að slíkt gerist og þó þeir hafi ekki nefnt pólsku lögregluna, var Ijóst að hún liggur undir grun um að hafa staðið fyrir ódæðinu þar sem fjórir verkamenn máttu þola miklar barsmíðar áður en ekið var með þá langt út fyrir Varsjá og þeim gert að ganga til baka. Kirkjuleiðtogi nokkur, sem óskaði ekki eftir að nafns síns yrði getið, sagði augljóst að stjórnvöld væru með þessu að reyna að breikka og dýpka gjána sem er milli kirkju og stjórnvalda. Því væri hægara um vik að hætta við komu Páls Páfa 16. júní ef það væri heppilegt fyrir stjórnvöld. Lögreglurannsókn leiddi ekkert í ljós í árásarmálinu, en sjónar- vottar tóku eftir því að árásar- mennirnir báru allir eins kylfur og a.m.k. einn þeirra var með I senditæki í höndunum. Auk þess | Njósnamál í París: Njósnaði fyrir A-Þýskaland l’aris, 6. m»i AP. VESTlIK-þýskur starfsmaður í þýsk/frönsku viðskiptafyrirtæki, hefur verið ákærður fyrir að hafa stolið hernaðarlega mikilvægum skjölum í franska hermálaráðu- neytinu og komið þeim í hendur Austu r-Þjóðverja. Hinn ákærði er 43 ára gamall maður að nafni Klaus Dieter Tscheu og er mál hans nátengt brottvikningu hinna 47 sovésku sendiráðsstarfsmanna í síðasta mánuði. Fregnir af þessu hafa verið óljósar enn sem komið er, ljóst er þó að tveir Frakkar eru einnig í haldi vegna þessa máls. var að sögn sjónarvotta óvenju- lega mikið af lögreglumönnum á sveimi í hverfinu. Pólska flokksdagblaðið Trybuna Ludu beindi spjótum sínum að Lech Walesa, leiðtoga Samstöðu. Var leiðarahöfundur blaðsins harðorður í garð Walesa og kallaði hann m. a. „lepp Vesturlanda" og „þrastarkríli sem heldur sig vera örn“. Speglaðist í greininni reiði yfirvalda yfir þeirri athygli sem Walesa vekur meðal vestrænna fréttamanna. í gær var hinn 29 ára gamli Ryszard Smagur til grafar borinn í stáliðnaðarborginni Nowa Huta. Smagur fannst slasaður á götu úti í borginni í kjölfar óeirða 1. mai síðast liðinn. Hann lést síðan, en lítið er vitað um hvernig dauða hans bar að. Hafi hann fallið fyrir hendi lögreglu eða hermanna, er hann 16. maðurinn sem lætur lífið með þeim hætti síðan herlög voru sett. Á þriðja þúsund manna voru viðstödd jarðarförina. Árangur Schultz í Miðausturlöndum: ísraelsþing samþykkti í „aÖalatriÖum“ tillöguna Jenísalem, 6. maí. ÍSRAELSKA þingið samþykkti í gær „í grundvallaratriðum“ til- lögur George P. Schultz um brott- för herja frá Líbanon. Þingfundur- inn stóð yfir í allmargar klukku- stundir og Ijóst er að mikil and- staða var um ýmsa þætti tillagn- anna. Svo fór þó að tillögurnarnar voru samþykktar, en þó með þeim fyrirvara að varpa þyfti Ijósi á „ýmsa stjórnmála- og öryggis- þætti“, eins og þingmenn komust að orði. Þrátt fyrir varfærnislegt orðalag þingmanna var Schultz Símamynd AP. Haim Herzog, hinn nýi forseti ísraels, sver embættiseið í ísraelska binginu í gær. Herzog er lengst til hægri, en lengst til vinstri er fráfarandi forseti, Ytzhak Navon. Á milli þeirra er Menachem Savidor. 'r. hinn ánægðasti með árangurinn og sagði hann marka „tímamót". Einn ísraelsku þingmannanna sagði að hann hefði ekki greitt tillögunum atkvæði sitt með glöðu geði, en hann tryði því þó ekki að fyrirvarar þeir sem þingið setti myndu tefja fram- göngu samþykktarinnar. Schultz sagði að nú yrði að fylgja málinu eftir og hann væri sæmilega bjartsýnn á, að byggja mætti brottflutning herjanna á samþykktinni. Hann er á förum til Jórdaníu og þaðan heldur hann til Sýrlands, en Sýrlend- ingar halda nú á lyklinpm að lausn málsins, að því að talið er. Óvíst er með öllu hvernig Sýr- lendingar taka í tillögurnar, en einn fyrirvari ísraelsmanna er að Sýrlendingar hverfi með her- lið sitt á brott frá Líbanon. Með því að samþykkja tillögur Schultz drógu ísraelsmenn mjög í land í kröfum sínum. Atvinnu- málaráðherrann, Aharon Uzan, sagði t. d. að ísraelsmenn hefðu ekki möguleika á betra sam- komulagi. 17 þingmenn greiddu tillögunum atkvæði sitt, en 2 á móti. Annar þeirra ar Ariel Sharon, ráðherra án embættis. Hann sagði í samtali við ísra- elska útvarpið að tillögurnar hefðu ekki fengið atkvæði sitt þar eð hann teldi þær ekki full- nægja öryggiskröfum Israels.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.