Morgunblaðið - 07.05.1983, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.05.1983, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1983 wlver verður valin Föstudaginn 13. maí ferfram í Broadway kynning á þeim stúlkum sem taka þátt í keppninni um titilinn fegurðardrottning íslands, en val á henni mun fara fram á sama stað þann 20. maí nœstkomandi. 10 stúlkur hafa verið valdar til að taka þátt i keppninni og munu þær komafram í síðkjólum og á baðfötum þann 13. og svara spurningum sem dómnefndin leggur fyrir þœr, en dómnefndina skipa Ásdís Eva Hannesdóttir, Brynja Nordquist, Friðþjófur Helgason, Hanna Frímannsdóttir, Henný Hermannsdóttir, Ölafur Laufdal og Ólafur Stephensen. Heiðar Jónsson snyrtir hefur umsjón með útliti stúlknanna og verður kynnir bœði kvöldin. Blm. Mbl. leit inn á œfingu í Broadway fyrir skömmu og bað stúlkurnar að segja nokkur deili á sér, hvernig þær hefðu verið valdar í keppnina og hvaða skoðun þœr hefðu almennt á fegurðarsamkeppnum og birtast svör fimm þátttakendanna í blaðinu í dag ásamt myndum, en hinar koma á morgun. „Hef gaman af að vera innan um fólk“ „Ég er fædd 17. maí 1965 í Reykjavík, fluttist 7 ára gömul í Garðabæinn og ólst þar upp,“ sagði Lilja Hrönn Hauksdóttir en hún hefur starf sem auglýsingastjóri hjá Frjálsu framtaki frá því í nóvember sl. „Það hafði einhver bent á mig og Heiðar Jónsson hringdi í mig og spurði hvort ég vildi koma í keppnina." Helstu áhugamál? „Ég stunda skíðaíþróttina, heimsæki vini og kunningja, hef gaman af því að vera innan um fólk og svo hef ég mikinn áhuga á hestum og hundum þó ég eigi enga sjálf. Hvernig keppnin leggst í mig? Bara vel, mér finnst gaman að taka þátt í þessu." „Mér finnst gaman að takaþátt íþessu“ „Ég er ánægð með að taka þátt í þessari keppni, og mér finnst að allar stúlkur sem fá svona tækifæri eigi að notfæra sér það.“ Kristín Ingvadótt- ir er 22 ára Reykvíkingur, fædd 11. febrúar 1961 og vinnur nú sem ritari hjá Tryggingamiðstöðinni. Kristín er einn af meðlimum í samtökunum Model 79, og meðal áhugamála hennar er skíðaíþróttin, tískusýningar og lestur bóka. „Keppnin leggst mjög vel í mig, mér finnst gaman að taka þátt í þessu, en það skiptir ekki öllu máli hver vinnur."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.