Morgunblaðið - 07.05.1983, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 07.05.1983, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1983 Eika-Grill-rall ’83 „Spái óvæntum úrslitum“ — segir Omar Ragnarsson „Ég spái óvæntum úrslitum og skrýtinni röö. Sá sem tekur áhættu og sleppur í gegn, hann vinnur,“ sagði Ómar Ragnarsson aöspurður um hvernig honum litist á Eika grill-rallið, sem fram fer á Suðurnesjunum í dag. Verður það fyrsta rallið af fimm, sem er liður í íslandsmeistara- keppninni í rallakstri, en bræðurnir Ómar og Jón Ragnars- synir eru núverndi handhafar þess titils. Keppnin er skipu- lögð af Akstursíþróttafélagi Suðurnesja og bækistöð og upplýsingamiðstöð rallsins verður í Bárunni í Keflavík. Logi Einarsson og Ásgeir Sigurðsson náðu ððru sæti f síðasta ralli eftir skemmtilegan og góðan akstur. Hér sést Logi á æfingu fyrir Eika-Grill- rallið. Ljósm. Mbl. Gunnlaugur R. Alls verða eknir 270 km í rall- inu og þar af um 114 km á 14 sérleiðum. Tvær mjög erfiðar leiðir eru fyrri hluta dags, en þær eru um ísólfsskálaveg og Herdísarvík og gætu þessar leið- ir ráðið úrslitum. Allar leiðir eru mjög aðgengilegar fyrir áhorf- endur, og t.d. eftir hádegi er ekið á vegum meðfram Keflavíkur- veginum. Að sögn keppnisstjóra Eika gill-rallsins, Magnúsar Jenssonar, er áætlað að fyrsti bíll komi í mark kl. 17.10 við Báruna á Hringbraut í Keflavík. Það eru um tíu bílar, sem koma til með að bítast um verð- launasætin. Má segja að árang- urinn verði undir því kominn, hvort ökumenn aki djarft á ís- ólfsskálavegi, því það er lang ill- færasta leiðin ásamt Herdísar- vík. Morgunblaðið fékk umsagn- ir nokkurra af þeim keppendum, sem berjast munu um toppsætin. „Við ætlum að skemmta okkur og reyna að hafa gaman af þessu," sagði Ómar Ragnarsson, en ef að líkum lætur mun bróðir hans, Jón, vera á þeim buxunum að hleypa engum framúr Ren- ault þeirra og sigra. Aðal keppi- nautar þeirra bræðra á sl. ári, þeir Hafsteinn Hauksson og Birgir Viðar Halldórsson, munu aka Escort 1600 lánsbíl, sem er mjög slakur, en keppnisbíll þeirra félaga er úti í Englandi þar sem þeir keppa á honum f Skoska rallinu í júní. „Bíllinn er slappur, nánast fokheldur, við væntum einskis," sagði Birgir um þeirra eigin þátttöku. „Á meðan helv. beljan tollir undir mér, þá verð ég ofarlega," sagði Eiríkur Friðriksson, kampakátur, sem ekur best búna bíl rallsins ásamt Þráni Sverris- syni, Ford Escort 2000, knúnum 170 hestafla vél. Eíríkur, eða Eiki kokkur eins og hann er kall- aður, styrkir keppnina og verður af þeim sökum viðgerðarhlé við skyndibitastað hans í Gnoðar- vogi uppúr hádegi. „Við ætlum að halda aftur af okkur til að skapa jafnari keppni og brjóta ekki niður baráttuþrek andstæðinganna," sagði Bragi Guðmundsson kíminn um þátt- töku hans og Matthíasar Sverr- issonar á Lancer 1600. Bíll þeirra hentar mjög vel grófu leiðum rallsins. Toyota Corolla Halldórs Úlafarssonar skipar væntanlega eitt af efstu sætunum, en hann kvaðst stefna á eitt af fimm efstu sætunum. „Ég ætla mér að ná fyrsta sætinu og skæðustu keppinaut- arnir verða Ómar og Jón og stelpurnar," sagði ritstjóri tíma- ritsins Motorsport, Jón S. Hall- dórsson, sem ekur BMW 2002. Lét hann það jafnframt fljóta með að hann ætlaði að núlla flest allar leiðir rallsins, þ.e. fá engan refsitíma. Sigurvegarar síðasta ralls, þeir Jón Sigþórsson og Halldór Gíslason mæta að nýju á Lancer-num sínum, en að sögn Jóns verður möguleiki þeirra ekki mikill, en hann kvaðst aka eins og hann gæti, meira væri ekki hægt. „Við stefnum á verðlaunasæti," sagði Ævar Sigdórsson, en hann ásamt bróður sínum ekur SAAB 99. Lada-félagarnir Ævar Hjart- arson og Bergsveinn Ólafsson ætla að klára í þetta skiptið, en þeir hafa dottið út í tveim síð- ustu röllum. „Það verða engar gloríur í þetta skiptið," sagði Ævar. Logi Einarsson og Ásgeir Sigurðsson munu aka Escort 2000 geyst og ætlar Logi sér að narta í efsta sætið og spurningin er hvort honum tekst að koma sér þar endanlega fyrir þegar yf- ir lýkur. Alls munu um 20 keppnisbílar leggja af stað í Eika grill-rallið og þar á meðal verða tvær stúlk- ur, þær Kristín B. Garðarsdóttir og Kristín M. Guðnadóttir á BMW 202. Hyggjast þær slá karlmönnunum við og verður gaman að sjá hverjir þeirra falla í valinn! G.R. Tímasetning fyrsta bflsins á sér- leiðum: Njarðvík — Stapi kl. 7.21. Seltjörn — Motocrossbr. kl. 7.38 Reykjanes frá Höfnum kl. 8.15 ísólfsskálavegur kl. 9.03 Herdísarvík kl. 10.10 Gömlu kambarnir kl. 11.56 Kolviðarhóll kl. 12.38 Viðgerðarhlé í Eika grilli, Gnoð- arvogi um kl. 1 Hvassahraun I kl. 15.02 Hvassahraun II kl. 15.12 Stapi — Njarðvík kl. 15.33 Motocross — Seltjörn kl. 15.47 Reykjanesleið frá Grindavík kl. 16.22. Vélstjórafélag Islands ORLOFSHEIMILI Félagsmenn athugið: Umsóknarfrestur um dvöl í orlofshúsum félagsins aö Laugar- vatnl, á komandi sumri, er til 15. maí nk. Umsóknareyöublöö fást á skrifstofum félagsins í Reykjavík, Akureyri og Neskaupstaö. Ath. Vélstjórafélag íslands, Kvenfélagiö Keöjan og Sparisjóöur Vél- stjóra veröa meö sameiginlega útleigu á orlofshúsum í sumar. Orlofsheimilanefnd Vélstjórafélags íslands. Aðalskrifstofa: Borgartún 18 105 Reykjavík. Sími 91-29933. Norðurland: Brekkugata 4 600 Akureyri. Sími: 96-21870 Austfirðir: Hafnarbraut 16 740 Neskaupstaö. Sími: 97-7722. Enskur predikari til Grensáskirkju 8.—12. MAÍ kemur hingað til lands góður gestur. Er það sr. Michael Harper, vel þekktur rithöfundur, prédikari og prestur í ensku bisk- upakirkjunni. Sr. Michael Harper hefur verið einn aðalleiðtogi í kar- ismatisku vakningunni í Englandi frá því hún hófst þar. Hann stofnaði ásamt öðrum samtökin Fountain Trust, sem hefur gefið út tímaritið Renewal (vakning), auk þess bækur, plötur og kassettur. Sr. Michael Harper hefur skrif- að margar bækur, m.a. „Let my people grow“ og „Glory in the Church". Nokkrir bilblíulestrar eftir hann hafa verið þýddir á ís- lensku. Hann ferðast mikið, pré- dikar og flytur fyrirlestra og hann er nú að hefja prédikunarferð um norrænu löndin og byrjar hér. Hann mun prédika við tvær mess- ur í Grensáskirkju 8. maí og á samkomum dagana 9. og 10. maí. Auk þes mun hann hitta biskup að máli og hafa fund með prestum og guðfræðingum. Arkipelago Design Timo Sarpaneva Sýningunni lýkur í cfag Opiö til kl. 16. 5% sýningarafsláttur. T\SZ f/\ KRlSTJfln SIGCEIRSSOn HF. FlfiNSK 26.04—07 5. Laugavegi 13. Hlíír VORUKYNNING —

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.