Morgunblaðið - 07.05.1983, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 07.05.1983, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1983 Minning: Guðrún Gunnars- dóttir Hvolsvelli Fædd 5. maí 1958 Dáin 27. apríl 1983 Okkur langar að minnast ör- fáum orðum vinkonu okkar Guð- rúnar Gunnarsdóttur sem við í dag kveðjum hinstu kveðju. Við kynntumst Gullu fyrst á Laugarvatni en þar hóf hún nám við Menntaskólann haustið 1974. Strax tókum við skólafélagar hennar eftir henni, vegna prúð- mannlegrar framkomu og hennar hlýja viðmóts. Við nánari kynni kom í ljós að hún hafði góðan mann að geyma og var ávallt hægt að leita til hennar jafnt í gleði sem sorg. Á Laugarvatni kynntist Gulla Sig- urði Davíðssyni sem síðar varð unnusti hennar. Eftir Laugarvatnsveruna skildi leiðir um sinn, þar sem Gulla og Siggi fóru fyrst til Vestmennaeyja og síðan til náms í Reykjavík. Haustið 1982 fluttust þau svo til Hveragerðis en Siggi fór að kenna við Gagnfræðaskólann þar og endurnýjuðust þá kynni okkar. Gulla var þá búin að berjast við sjúkdóm sinn í rúmt ár og var að- dáunarverður sá styrkur sem þau sýndu í hinni erfiðu sjúkdómsbar- áttu allt þar til yfir lauk. Að leiðarlokum viljum við fá að þakka fyrir að hafa kynnst Gullu og átt hana að góðum vini. Elsku Siggi, Ása og Gunnar, við vottum ykkur og öðrum ástvinum okkar dýpstu samúð og biðjum góðan Guð að styrkja ykkur. Anna og Tóti Hún Guðrún er dáin. Hvílík harmafregn að svo ung kona í blóma lífsins skuli þurfa að kveðja eiginmann, foreldra og vini. Hví svo fljótt, spyrjum við, sem eftir stöndum. En Guð einn ræður og við lútum því. Guðrún var einkabarn foreldra sinna Ásu Guðmundsdóttur og Gunnars Guðjónssonar, æskuvina minna á Hvolsvelli. Hún ólst þar upp við mikið ástríki þeirra, á heimili þar sem fagrar listir og gott mannlíf sat í fyrirrúmi. Guðrún var einstök fyrirmynd- arstúlka, góðum gáfum gædd, fal- leg, skemmtileg og umfram allt hreinlynd og heilsteypt. Foreldr- um sínum var hún ávallt til sóma hvar sem leið hennar lá og vinum sínum öllum mikill gleðigjafi. Það er erfitt að sætta sig við þá staðreynd að fá ekki að hitta hana aftur í þessu lífi, en minningin er svo fögur og skilur svo mikið eftir hjá okkur, að ekkert fær því grandað. Fyrir fáum árum heimsótti Guðrún okkur norður til Akureyr- ar ásamt vinkonu sinni, Diddu. Það voru dýrðar dagar og fyrir þær stundir og ótal margt fleira vil ég þakka Guðrúnu. Hún var ein þeirra gersema, sem á vegi manns verða í þessu iífi. Hetjuleg barátta hennar er ógleymanleg öllum þeim sem vitni urðu að, er hinn skæði sjúkdómur heltók hana. Eiginmaður og for- eldrar gengu í gegnum mikla raun með henni og margsinnis var sig- urinn þeirra. En að Iokum varð ei við neitt ráðið og þessi yndislega kona varð að hverfa frá okkur svo alltof fljótt. Elsku Ása og Gunnar, Guð varðveiti ykkur í hinni djúpu sorg og megi minningin um ykkar góðu dóttur styrkja og verma um ókomna tíð. Ollum ástvinum hennar sendi ég innilegar samúð- arkveðjur. Birna Björnsdóttir Föstudaginn 29. apríl sl. lést í Landspítalanum í Reykjavík frænka mín, Guðrún Gunnars- dóttir frá Hvolsvelli. Andláts- fregn hennar kom ekki mjög á óvart, þar sem ljóst hafði verið um nokkurt skeið að hún fór halloka í baráttu við erfiðan sjúkdóm. Guð- rún átti ekki langt lífshlaup að baki, rétt tæpra 25 ára er hún hrifin brott úr þessum heimi. Maðurinn með ljáinn hefur að þessu sinni lagt að velli unga og fagra rós í blóma lífsins. Þessi sami sláttumaður hefur reyndar höggvið stór skörð í fjölskyldu Guðrúnar að undanförnu, því ekki eru nema tæpir þrír mánuðir síð- an Sigríður amma hennar lést eft- ir erfiða sjúkdómslegu og fyrir tveimur árum varð Hörður, móð- urbróðir hennar, bráðkvaddur rétt rúmlega fertugur að aldri. Guðrún var einkadóttir þeirra hjónanna Ásu Guðmundsdóttur frá Rangá í Djúpárhreppi og Gunnars Guðjónssonar frá Hall- geirsey í Landeyjum. Þau hjón, Ása og Gunnar, reistu sér hús og stofnuðu myndarlegt heimili að Vallarbraut 6 á Hvolsvelli. Kring- um húsið komu þau sér upp með dugnaði og atorku fallegum trjá- garði, einhverjum þeim fegursta sem ég hef augum litið. Þarna átti Guðrún heimili sitt allt fram á fullorðinsár. Skólagöngu sína hóf hún í barna- og gagnfræðaskólan- um á Hvolsvelli og sóttist henni námið vel, enda var hún góðum gáfum gædd. Eftir að hún hafði lokið landsprófi frá Hvolsskóla lá leið hennar í Menntaskólann að Laugarvatni og þaðan lauk hún stúdentsprófi vorið 1978. Að loknu stúdentsprófi fór hún til Vest- mannaeyja og þar byrjaði hún að búa með eftirlifandi eiginmanni sínum, Sigurði Davíðssyni frá Vestmannaeyjum. f Eyjum starf- aði hún á sjúkrahúsinu og sem fóstra á barnaheimili. En eftir um það bil ársdvöl í Vestmannaeyjum fluttu þau Sigurður og Guðrún til Reykjavíkur, þar sem hún hóf nám í Hjúkrunarskóla íslands. f Hjúkrunarskólanum hafði Guðrún lokið tveim vetrum af þrem er sjúkdómur sá er nú hefur dregið hana til dauða aftraði henni frá frekara námi. Ég man fyrst eftir þessari frænku minni með glókollinn í heimsókn hjá afa sínum og ömmu á Rangá. Það var þó ekki fyrr en allnokkrum árum síðar er ég bjó einn vetur á heimili fjölskyldunn- ar að Vallarbraut 6, að ég kynntist henni nánar. Tókst þá með okkur hin ágætasta vinátta og fór jafnan á með okkur sem bestu systkinum. Guðrún var traustur félagi, en ætíð var grunnt á glettninni og hún hafði ekkert á móti því að gera manni smá grikk, en gamanið var jafnan græskulaust. Eg minn- ist þessarar vetrardvalar með hlý- hug og þakklæti. Guðrún verður jarðsungin í dag, laugardaginn 7. maí, í Stórólfs- hvolskirkju. Um leið og ég þakka frænku samfylgdina vil ég votta foreldrum hennar þeim Ásu og Gunnari, eiginmanninum Sigurði og Guðrúnu ömmu hennar mína innilegustu samúð. Guðmundur Einarsson Sól er hnigin til viðar í ævi ungrar stúlku. Guðrún Gunnars- dóttir, hjúkrunarnemi, er látin, en hún lést í Landspítalanum 29. apr- íl síðastliðinn eftir langa og stranga sjúkdómslegu, langt fyrir aldur fram, og vantaði aðeins 6 daga upp á að ná 25 ára aldri. Með nokkrum orðum vildi ég minnast Guðrúnar og kveðja hana, en minningarnar um hana eru bjart- ar og ljúfar og hafa yfir sér heið- ríkju sem hvorki ber ský né skugga á. Guðrún var fædd 5. maí 1958 og eru foreldrar hennar Ása Guð- mundsdóttir frá Rangá og Gunnar Guðjónsson, trésmiður, frá Hall- geirsey í Austur-Landeyjum, en heimili þeirra er að Vallarbraut 6 á Hvolsveli. Á Hvolsvelli ólst Guð- rún upp við mikið ástríki foreldra sinna enda var hún einkabarn þeirra og komu fljótt í ljós hjá henni miklir hæfileikar, sem mest mega prýða eina stúlku, því að hún var falleg, góð og vel gefin bæði til munns og handa. Það var bjartan og fagran júní- dag 1978 að nokkrir nýstúdentar frá Laugarvatni komu saman á heimili mínu með systursyni mín- um, Sigurði Davíðssyni frá Vest- mannaeyjum, en Guðrún var ein í þeim hópi og Sigurður kynnti stúlkuna sína sem fallegustu stúlkuna á Laugarvatni.. Þetta var upphafið á kynnum okkar. Guðrún dvaldi síðan í Vestmannaeyjum á heimili systur minnar og mágs veturinn 1978—’79, en hún vann þá við Sjúkrahús Vestmannaeyja. Þar var hún elskuð og virt af öll- um, sem kynntust henni. Guðrún hóf nám við Hjúkrun- arskóla fslands haustið 1979 og hafði hún verið tvö ár við nám þegar hún veiktist af illkynja sjúkdómi, sem nú hefur dregið hana tii dauða. Þau Guðrún og Sigurður byrj- uðu búskap að Hraunbæ 34 um sumarið 1979, en síðastliðið haust fluttust þau til Hveragerðis þar sem Sigurður starfar sem kennari. Það var gaman að koma á heimili þeirra og sjá, hvað þau voru sam- taka og hamingjusöm. Framtíðin blasti við þessu unga fólki með óteljandi fyrirheitum. Guðrún var sannkölluð hetja og barðist við erfiðan sjúkdóm til hinstu stundar, sárþjáð, en kjark- urinn og dugnaður hennar voru óbilandi. Á Landspítalanum dvaldist hún síðustu mánuðina á deild 21A og naut þar einstakrar hjúkrunar af hendi hjúkrunarkvenna og alls starfsfólks sem jafnframt dáðist að andlegu þreki hennar og hug- arró, og eru öllu þessu fólki færðar hjartans þakkir. Missirinn er sár og mikill hjá okkur öllum, aðstandendum henn- ar, en sárastur hjá Sigurði, for- eldrum og aldraðri ömmu, Guð- rúnu á Hallgeirsey. Blessuð sé minningin um Guð- rúnu Gunnarsdóttur. Guð gefi ykkur öllum styrk í trúnni á hann sem lifir. Guðrún Margeirsdóttir Með örfáum orðum langar mig að minnast nemanda míns, Guð- rúnar Gunnarsdóttur frá Hvols- velli, sem andaðist 29. apríl sl., tæpra 25 ára að aldri. Sú fregn kom að vísu ekki á óvart. Síðustu misseri hafði hún háð hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm. Guðrún var fædd 5. maí 1958, einkabarn hjónanna Ásu Guð- mundsdóttur og Gunnars Guð- jónssonar á Hvolsvelli. Hún var í Menntaskólanum að Laugarvatni 4 vetur og lauk héðan stúdents- prófi vorið 1978. Hér var Guðrún allra eftirlæti, er henni kynntust. Hún var óvenju fögur og glæsileg ^ stúlka, kurteis og glaðlynd, góður og vaxandi námsmaður. Hér kynntist hún bekkjarbróður sín- um, Sigurði Davíðssyni úr Vest- mannaeyjum, miklum efnismanni og góðum dreng, nú kennara í Hveragerði. Þau felldu hugi sam- an og gengu í hjónaband. Bæði fóru þau í framhaldsnám, og lífið virtist brosa við þeim. „Reyr, stör sem rósir venar reiknar hann jafnfánýtt“, kvað Hallgrímur um hinn slynga sláttumann. Þótt erfitt sé að sætta sig við svo hart lögmál, má það vera nokkur raunabót að Guð- rún naut allrar þeirrar ástar og umhyggju, sem veitast mátti, bæði eiginmanns og foreldra, sem tóku sig upp frá störfum til að geta ver- ið sem næst henni síðustu mánuð- ina. Að ástvinum Guðrúnar er þyngri harmur kveðinn en nokkr- um orðum verði að komið. Við hjónin sendum þeim innilegar samúðarkveðjur og biðjum Guð að blessa þau og styrkja. Kristinn Kristmundsson { dag kveðjum við Gullu, bekkj- arfélga okkar frá Menntaskólan- um að Laugarvatni. Fyrstu kynni okkar af henni voru haustið 1974 þegar við komum þangað til náms. Þá fjóra vetur sem við vorum sam- ferða henni minnumst við hennar sem trausts og góðs félaga. Gulla varð brátt vinsæl og vel liðin vegna hlýs viðmóts óg hjálpsemi, sama hver í hlut átti. Gulla var rólynd að eðlisfari, en ákveðin við það sem hún tók sér fyrir hendur hvort sem um nám eða félagsstörf var að ræða. Að Laugarvatni kynntist hún unnusta sínum, Sig- urði Davíðssyni, bekkjarfélaga okkar og vini. Ári eftir stú- dentspróf fluttu þau til Reykjavík- ur og hófu þar nám. Gulla fór í hjúkrunarfræði, og lýsir það hug- arfari hennar betur en margt ann- að. f Reykjavík lágu leiðir flestra bekkjarfélaganna aftur saman. Kynntumst við þá enn betur gest- risni þeirra og ljúfmennsku á hlý- legu heimili þeirra. Það fékk mjög á okkur þegar við fréttum að Gulla ætti við alvarlegan sjúkdóm að stríða. En Gulla brást ekki kjarkur fremur en fyrr, heldur sýni aðdáunarverðan styrk og æðruleysi. Gulla og Siggi voru alla tíð mjög samrýnd og kom það ekki síst í ljós í veikindum hennar, þar sem hann, ásamt foreldrum henn- ar, stóðu við hlið hennar þar til yfir lauk. Okkur er öllum mjög mikil eftirsjá af Gullu, mikið og vandfyllt skarð er höggvið í hóp- inn við fráfall hennar. Við sendum Sigga og foreldrum Gullu okkar innilegustu samúðarkveðjur og megi minning hennar lifa. Samstúdentar frá Menntaskól- anum að Laugarvatni 1978. Gulla, vinkona okkar og fyrrum skólasystir, er látin, tæplega 25 ára að aldri. Hún var uppalin á Hvolsvelli, einkabarn foreldra sinna, Gunn- ars Guðjónssonar og Ásu Guð- mundsdóttur. Hún varð stúdent frá Menntaskólanum á Laugar- vatni 1978, þar kynntist hún manninum sínum, Sigurði Davíðs- syni kennara. Leiðir okkar og Gullu lágu sam- an haustið 1979 þegar við hófum nám í Hjúkrunarskóla Islands. Hún var góð námsmanneskja og var jafnan í hópi þeirra hæstu í bekknum. Við unnum saman af og til í verklega náminu og það var greinilegt að Gulla var efni í góð- an hjúkrunarfræðing, um það báru samskipti hennar við sjúkl- ingana best vitni. Hún hafði þá hlýju og umhyggjusemi til að bera sem þarf í þessu starfi. Það kom oft fyrir að sjúklingarnir báðu sérstaklega um hana. í lok 2. námsársins greindist sá sjúkdómur sem að lokum dró hana til dauða. Skyndilega snérist blað- ið við, hjúkrarinn var orðinn sjúklingur. Gulla kom fyrir sem róleg og hæglát manneskja, hlý og aðlað- andi, oftast var stutt í brosið og hláturinn. í erfiðleikum og mót- læti, eins og þeim sem á vegi hennar urðu, kemur oft best í ljós hvaða mann einstaklingurinn hef- ur að geyma. Hann bregst mis- jafnlega við og það er ekki ofsög- um sagt, að Gulla brást við eins og hetja. Hún tók því sem að höndum bar með einstöku raunsæi. Það sama má segja um Sigga, hann brást svo sannarlega ekki þegar á reyndi. Það skiptust á skin og skúrir þennan tíma sem veikindin stóðu yfir — vonir og vonbrigði og stöð- ug spenna. Þessa síðustu mánuði sýndi Gulla mikinn styrk og hafði sætt sig við hlutskipti sitt, að svo miklu leyti sem það er hægt. Auk Sigga stóðu foreldrar henn- ar og Gunna frænka eins og klett- ur við hlið hennar allan tímann og veittu henni ómetanlegan stuðn- ing. Einnig sýndi starfsfólk deild- ar 21-A á Landspftalanum ein- staka umhyggjusemi. Okkur sem ung erum, rétt hálfnuð með þrítugsaldurinn, finnst lífið vera rétt að byrja, það er svo ótalmargt sem við eigum ógert og dauðinn stendur okkur yfirleitt ekki nærri. Okkur finnst sjálfsagt að vera lifandi, heil heilsu og full starfsorku. Við leið- um yfirleitt ekki hugann að því, að þetta séu hugsanlega forréttindi. Dauði svo ungrar manneskju fær okkur til að hrökkva óþyrmilega við og það er erfitt að skilja til- ganginn. En staðreynd er staðreynd, við kveðjum Gullu og þökkum sam- verustundirnar. Við sendum ástvinum hennar innilegar samúðarkveðjur. Minn- ingin um hana lifir. Tóta og Palla Minning: Jóhanna Magnús- dóttir Svarfhóli Fædd 14. febiúar 1893 Dáin 26. aprfl 1983 Hún Jóhanna frænka er dáin. Ekki er það ætlun mín að rekja hér ætt hennar eða æviferil í þess- um fátæklegu orðum, heldur að þakka fyrir samverustundir þær er við áttum saman. Þessar sam- verustundir urðu þó flestar síð- ustu mánuði lífs hennar, þar sem spor okkar lágu saman. Jóhanna var þá orðin háöldruð og mikill sjúklingur. Best minnist ég ákveð- inna skoðana hennar á lífinu og tilverunni, kímnigáfunnar og viijastyrksins, sem kom svo vel í Ijós er henni tókst að komast á fætur eftir að hafa lamast af völd- um heilablóðfalls og það sem dýrmætara var, henni tókst að komast heim. Þar voru flestar hennar hugsanir. Hvernig fólkinu hennar liði og hvernig búskapur- inn gengi. Heima auðnaðist henni að dvelja nokkrar vikur áður en hún fékk áfall það, er varð þess valdandi að hún lagðist á sjúkra- hús og átti ekki afturkvæmt. Er ég minnist Jóhönnu fyrst var hún orðin eldri kona, hávaxin og bein í baki. Best sé ég hana fyrir mér klædda í íslenskan búning og bera hann með reisn og virðingu, en þannig mætti hún einatt á mannfagnaði. Einstakt var hve vel hún fylgdist með því sem gerðist í umhverfinu. Okkur barnabörnum bróður síns sýndi hún mikinn hlý- hug og áhuga á velferð okkar. Við hjónin viljum biðja algóðan Guð að blessa Jóhönnu frænku og alla hennar ástvini. í Guðs friði. Hulda Karlsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.