Morgunblaðið - 07.05.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAl 1983
3
Antikuppboð
Klausturhóla:
Kista úr eigu
Brynjólfs Skál-
holtsbiskups
KISTA sem talin er hafa verið í
eigu Brynjólfs biskups Sveinsson-
ar í Skálholti, er meðal gripa sem
boðnir verða upp hjá Klausturhól-
um í dag. Brvnjólfur Sveinsson,
sem uppi var á árunum 1605 til
1675, er einn kunnasti biskup fs-
landssögunnar, kunnur kennimað-
ur og nú á dögum ekki síður
þekktur fyrir fjölskylduóhamingju
sína. Kistan, sem boðin verður upp
á morgun, hefur verið sýnd Nönnu
Hermannsson, safnverði í Árbæj-
arsafni, og hefur hún staðfest að
aldur hennar gæti verið réttur.
Kistan er nú í eigu Sigurðar
Skúlasonar magisters, og hefur
hann tekið saman eftirfarandi
um sögu hennar: „Þessa kistu
erfði ég undirritaður eftir föður
minn, Skúla Árnason lækni.
Hann var frá 1900 til 1921 hér-
aðslæknir í Grímsneshéraði með
aðsetri í Skálholti í Biskups-
tungum. Þar eignaðist hann
kistuna. Hann kvaðst hafa heyrt
að hún hefði verið í eigu Brynj-
ólfs Sveinssonar Skálholtsbisk-
ups, sem uppi var á árunum 1605
til 1675. Hafði faðir minn fyrir
satt að svo hefði verið og taldi
kistuna dýrgrip bæði fyrir al-
durs sakir og vegna þess að hún
hefði verið í eigu eins merkasta
biskups íslands bæði fyrr og síð-
ar.
Þetta vottast hér með.“
Uppboð Klausturhóla hefst
sem fyrr segir klukkan 15 á
morgun, sunnudag, og fer það
fram í húsnæði Klausturhóla við munir, teppi og ljósakronur,
Skólavörðustíg. Auk kistunnar gripir frá 18. og 19. öld mest-
verða boðin upp húsgögn, silfur- megnis.
Ljósm.: Ragnar Axelsson
Halldór Runólfsson, verslunarstjóri I Klausturhólum, við kistuna, sem
talin er vera úr eigu Brynjólfs biskups í Skálholti.
Ríkið tekur 317
millj. króna lán
UNDIRRITAÐIJR hefur verið í Reykjavík samningur um lán
til íslenzka ríkisins að fjárhæð 40 milljónir hollenzkra gyll-
ina, sem er jafnvirði um 317 milljóna króna, segir í frétt frá
fjármálaráðuneytinu.
Þar segir ennfremur, að lánið sé
tekið hjá tveimur hollenzkum
bönkum fyrir milligöngu Amro
Bank. Lánið er veitt til 10 ára, en
er afborgunarlaust fyrstu sex ár-
in. Vextir eru 87/s% og greiðast
árlega eftir á.
Lánsféð mun renna til fram-
kvæmda samkvæmt lánsfjárlög-
um. Lánssamninginn undirritaði
Ragnar Arnalds, fjármálaráð-
herra, fyrir hönd ríkissjóðs, en
Seðlabanki íslands annaðist und-
irbúning lántökunnar.
Á annað hundrað
útlendingar við
fiskvinnslu hér
NÚ HAFA Á annad hundrað útlendingar atvinnuleyfi hér á landi og er það
nokkru færra en undanfarin ár. Að sögn Óskars Hallgrímssonar hjá vinnu-
máladeild félagsmálaráðuneytisins eru flestir þeirra við fiskvinnslu. Sagði
hann, að þrátt fyrir nokkurt atvinnuleysi virtist mjög erfitt að fá landann til
að vinna þessi störf.
Sagði Oskar, að nokkur hreyfing
væri á þessu erlenda fólki og væri
það hér aðallega yfir vertíðarmán-
uðina. Atvinnuleyfin væru veitt til
þriggja mánaða í senn og flestir
fengju þau framlengd. Væru það
nær alltaf sömu staðirnir, sem
fengju erlent vinnuafl þar sem
fiskvinnslan gengi ekki án þess,
íslendingar fengjust ekki til vinnu
á þessum stöðum. Þessir staðir
væru aðallega á Snæfellsnesi,
Vestfjörðum og á Djúpavogi,
Hornafirði og í Vestmannaeyjum.
Áður en atvinnuleyfi væru veitt
fyrirtækjum vegna útlendinga
væri það skilyrði sett, að auglýst
væri eftir fólki innan lands og það
hefði sýnt sig, að þrátt fyrir skráð
atvinnuleysi hér væri ekki hægt
að fá fólk í þessi störf. Þess bæri
þó að geta að atvinnuleysi hér
væri aðallega skráð hjá fólki úr
öðrum atvinnugreinum.
Þá sagði Óskar að sú breyting
hefði orðið á hvað varðaði um-
sóknir fyrirtækja um atvinnuleyfi
fyrir útlendinga, að nú væru um-
sóknirnar nær eingöngu frá Sam-
bandsfyrirtækjum. Fyrirtæki inn-
an Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna hefðu sáralítið sótt um þessi
atvinnuleyfi nú.
Bretlandseyjar:
Hætta að flytja inn
íslenska kindalifur
*
Utflutningur nam áður 100 tonnum á ári
Veró á kindalifur 1 heildsölu hefur nú verió lækkaó um þriójung, til að
örva sölu hér innanlands í kjölfar þess að stærsta markaói Islendinga fyrir
lifur, Bretlandseyjum, hefur veriö lokaö. Á blaóamannafundi, sem Fram-
leiðsluráð landbúnaóarins boóaói til í gær, kom fram aó árleg sala á lifur til
Bretlands hefur numið um 100 tonnum. en heildarframleiósla nemur 300
tonnum á ári.
Ástæða þess að Bretlandseyja-
markaður hefur lokast eru þær, að
nú eru gerðar strangari kröfur til
heilbrigðiseftirlits en áður var.
Fundist hefur sjúkdómur í sauðfé,
sem spillir lifrinni, og þarf að gera
sérstakar rannsóknir á höfði slát-
urdýranna, til að komast að því
hvort skepnan hefur haft sjúk-
dóminn eða ekki. Þessar ráðstaf-
anir er erfitt að gera við slátrun á
íslensku sauðfé, vegna þess að hér
eru hausar nýttir í svið. Því hefur
ekki þótt unnt að fylgja þessum
kröfum Breta, en tekið var fram á
fundinum, að sannað þætti að
sjúkdóms þessa hefði aldrei orðið
vart í íslensku sauðfé, og talið
sannað að hann fyrirfyndist ekki
hérlendis.
Bretlandsmarkaðurinn var
langstærsti lifrarmarkaður fs-
lendinga. Eitthvað er selt af lifur
til Vestur-Þýskalands og Færeyja
og fleiri landa, en í mjög litlum
mæli. Því hafa nú verið gerðar
ráðstafanir til að auka neyslu inn-
anlands, meðal annars með því að
lækka verðið, en einnig með kynn-
ingarherferð, þar sem 1 senn er
vakin athygli á hollustu lifrar til
manneldis og fjölbreytilegum
matreiðsluaðferðum.
35 starfsmönnum
Sportvers sagt upp
„EINS og staöan er í dag og útlitið
framundan, sjáum við ekki aðra
leið fyrir fyrirtækiö, en aö hafa
lausa samninga viö starfsfólk frá
og meö 1. ágúst nk.,“ sagði Björn
Guömundsson, framkvæmdastjóri
Sportvers, í samtali viö Mbl.
„Við höfum því tekið þá óum-
flýjanlegu ákvörðun, að segja upp
öllu starfsfólki fataverksmiðju
fyrirtækisins, 35 samtals, frá og
með þessum tíma,“ sagði Björn
Guðmundsson ennfremur.
„Eins og gefur að skilja, er þessi
ákvörðun okkur forsvarsmönnum
fyrirtækisins mjög þungbær, en í
stöðunni er ekki um annað að
ræða. Hvað verður í framtíðinni
er annars ekkert hægt að fullyrða
um,“ sagði Björn Guðmundsson.
Björn Guðmundsson sagði að
Sportver myndi eftir sem áður
halda áfram rekstri verzlana
fyrirtækisins í Reykjavík, en þær
eru þrjár.
SAAB 900 GLE 40 "81
SAAB 99 GL 40 "82
OpiÓídqgtilkl4
SAAB-eigendurathugið, tökum þann gamla upp
í nýjan — eða seljum hann fyrir þig ef þú vilt
heldur. Mikil eftirspurn tryggir hagstæð skipti.
TÖGGURHE
SAAB
UMBOÐtÐ
BÍLDSHÖFPA 16, SÍMI 81530