Morgunblaðið - 07.05.1983, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.05.1983, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1983 Tekinn med eitur á Hlemmi SÍÐASTLIÐINN fimmtudag var maöur handtekinn á Hlemmi, þar sem hann hafði í fórum sér þrjú meðalaglös með baneitruðu efni. Að sögn fíkniefnalögreglunnar er óttast að eitthvað af eitrinu hafi komizt í umferð og varar hún þá, sem kynnu að verða boðinn torkennilegur vökvi á glösum, við aö neyta hans. Maður þessi er að sögn lögregl- unnar þekktur fyrir að selja svikin fíkniefni, og var þetta í þriðja sinn á skömmum tíma, sem hann var handtekinn við þá iðju sína. Aðalfundur KEA: Hagnaður 1,8 milljónir kr. Akureyrí, 6. maí. AÐALFUNDUR Kaupfélags Eyfirðinga hófst í samkomuhúsinu í morgun, ekk- ert hefur orðið úr hinu árvissa „Kaup- félagshreti", sem bæjarbúar hafa haft í nimtingum að fylgi ætíð aðalfundi fé- lagsins, því gott veður hefur verið hér í dag, þó nokkuð hafi kólnað frá í gær. Rétt til fundarsetu á aðlafundin- um hafa 254 fulltrúar, þar af eru 116 frá Akureyri. Rekstrarhagnaður fé- lagsins á síðasta ári nam 1.831.000 krónum. Heildarvelta félagsins var krónur 1.222.7 milljónir á síðasta ári og hafði aukizt um 54% frá fyrra ári. Beinar launagreiðslur námu 148 milljónum króna, en 187,2 milljónum þegar samstarfsfyrirtæki félagsins eru tekin með í dæmið. Meðalstarfs- mannafjöldi KEA var á síðasta ári 1.003, en 1.219 þegar samstarfsfyr- irtækin eru meðtalin. G. BERG rnr- irafMOr m&m**»«****^^™^ *! * Hólabrekkuskóli vann Skólamót fjögurra grunnskóla í Breiðholti var hald- ið í gær í Breiðholtslauginni. Keppt var í bringu- og skriðsundi í tveimur flokkum, eldri og yngri flokki. Þetta er í fjórða skipti sem slíkt mót er haldið og hlýtur sá skóli farandbikar til varðveislu, sem flest stigin fær. Myndirnar sem RAX tók eru frá keppn- inni, en Hólabrekkuskóli bar sigur úr býtum að þessu sinni. Landsvirkjun heimil- uð 10% taxtahækkun Rafveitum heimilað að hækka um 14,2% og Hitaveitu Reykja- víkur að hækka um 32% Ríkisstjórnin hefur sam- þykkt að heimila Landsvirkj- un að hækka gjaldskrá sína um 10%, en fyrirtækið hafði óskað eftir 31% hækkun. Samþykktin er gerð sam- kvæmt tillögu þriggja manna ráðherranefndar, sem var skipuð í kjölfar þess, að ekki náðist samstaða um málið í ríkisstjórninni. Þá hefur ríkisstjórnin samþykkt að heimila rafveitum að hækka smásöluverð raforku um alit að 14,2% og er þá innifalin 10% hækkun á heildsöluverði Lands- virkjunar. Umsóknin hljóðaði upp á 23,5% hækkun, að viðbættum áhrifum af hækkun Landsvirkjun- Hitaveitu Reykjavíkur er heim- iluð 32% hækkun á gjaldskrá og flestar aðrar hitaveitur hækka á bilinu 20—30%, að því er segjr í frétt frá iðnaðarráðuneytinu. Hitaveita Reykjavíkur sótti 42% hækkun. Flutningar Hafskips jukust um 4% 1982 Hagnaður varð af rekstri félagsins á síðastliðnu ári Heildarilutningar Hafskips juk- ust um tæplega 4% í tonnum talið á síöasta iri, þegar alls voru flutt 170.000 tonn, borið saman við Verðlagsráð breytir um stefnu gagnvart SVR: Fallið frá kæru og samþykkt 20% hækkun án umsóknar Verðlagsráð sendi Davíð Oddssyni, borgarstjóra, bréf hinn 5. maí og tilkynnti honum að kæra ráðsins til rannsóknarlögreglu rfkisins vegna 25% hækkunar á fargjöldum strætisvagna Reykjavíkur 12. febrúar s.l., hefði verið dregin til baka og ákveðið hefði verið að fara ekki í lögbannsmál vegna þessarar hækkunar. Jafnframt samþykkti verðlagsráð á fundi sínum hinn 5. maí, að heimila strætisvögnum Reykjavíkur 20% hækkun á fargjöldum frá og með 6. maí, en borgaryfirvöld höfðu ekki sent verðlagsráði beiðni um þá hækkun. I bréfi sem Sveinn Björnsson, skrifstofustjóri viðskiptaráðu- neytisins og formaður verðlags- ráðs, ritaði borgarstjóra segir að samkomulag hafi ekki tekist milli borgaryfirvalda og ráðsins vegna 25% hækkunarinnar 12. febrúar. Við nánari athugun sé það hins vegar mat verðlagsráðs, að lög- bannsmálið sem hófst 19. janúar 1983 rnuni með fullnægjandi hætti skera úr um valdsvið verðlagsráðs hvað snertir verðlagningu á þjón- ustu SVR. Hinn 7. janúar 1983 ákvað Reykjavíkurborg án umsóknar til verðlagsráðs að fargjöld SVR skyldu hækkuð að meðaltali um 46.5%. Verðlagsráð krafðist lög- banns á þá ákvörðun. Borgarfógeti úrskurðaði lögbannið verðlagsráði í vil hinn 19. janúar, hækkunin var dregin til baka og nú er staðfest- ingarmál vegna lögbannsins til meðferðar hjá borgardómara. Á fundi verðlagsráðs 9. febrúar 1983 var samþykkt að veita Land- leiðum hf. og strætisvögnum Kópavogs heimild til 25% hækk- unar á fargjöldum. Hinn 12. febrúar hækkuðu fargjöld SVR jafn mikið án umsóknar til verð- lagsráðs og ákveðið var að ekki skyldu seld afsláttarkort. Hinn 2. mars krafðist verðlagsstofnun lögbannsaðgerða gegn borgaryf- irvöldum vegna hinnar „ólögmætu 25% hækkunar SVR hinn 12. febrúar sl. Jafnframt hefur stofn- unin ákveðið að kæra þessa hækk- un til rannsóknarlögreglu ríkisins, svo og 46,5% hækkunina frá 7. janúar sl. sem einnig er ólögmæt," eins og sagði í tilkynningu verð- lagsstofnunar 2. mars. Sagði stofnunin að með þessum aðgerð- um væri hún að „vernda almenn- ing“. Frá aðgerðunum hefur nú verið fallið og kæran til rannsókn- arlögreglunnar dregin til baka samhliða því sem verðlagsráð hef- ur látið tilkynna borgaryfirvöld- um að hækka megi strætisvagnaf- argjöld um 20% frá 6. maí 1983 án þess að um það hafi verið sótt. 164.000 tonn árið 1981, að sögn Páls Braga Kristjónssonar, fjár- málastjóra félagsins. Þá liggur fyrir, að hagnaður varð af rekstri Hafskips á síðasta ári. Páll Bragi sagði, að innflutn- ingur félagsins hefði aukizt um liðlega 8%, en hins vegar hefði orðið um 5% samdráttur í út- flutningi, sem er töluvert minna en nemur almennum útflutn- ingssamdrætti á síðasta ári. „Ástæðan fyrir því er sú, að við erum með stöðugri útflutning en aðrir eins og kísilgúr, en minna í sjávarafurðum," sagði Páll Bragi. Páll Bragi sagði ennfremur, að verðmætaaukning flutninganna væri í raun meiri, en tonnatalan segir til um. Hvað varðar árið í ár, sagði Páll Bragi að Hafskipsmenn væru tiltölulega ánægðir með út- komuna. Flutningarnir væru heldur meiri en þeir hefðu gert ráð fyrir. Hafskip er að meðaltali með 7 skip í rekstri, en Hafskip er með fastar áætlunarsiglingar til Norðurlandanna, Bretlands, meg- inlands Evrópu og til Bandaríkj-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.