Morgunblaðið - 07.05.1983, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 07.05.1983, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1983 15 stigin út úr málverki, festuleg og búin þeim glæsileik sem nauð- synlegur er. Það eina sem finna mætti að túlkun hennar er að á köflum talar hún oft lágt svo að röddin nær ekki nógu vel fram í salinn. Þetta er auðvitað aðeins tæknilegur galli sem auðvelt er að bæta úr. Steindór Hjörleifsson er venjulega í essinu sínu í skap- miklum og lifandi hlutverkum, en hér glímdi hann við persónu sem ekki fer mikið fyrir og stillir skap sitt meira en góðu hófi gegnir. Hinn kulnaða menning- armann á bak við gervið sýndi Steindór ágætlega, en ekki var ég alveg sáttur við persónugerðina því að einstaka sinnum brá fyrir stirðleika og jafnvel meiri utan- veltuhætti en gert er ráð fyrir. Þorsteinn Gunnarsson er með afbrigðum snjall leikari og túlk- un hans á H.C. Andersen var með ólíkindum. Hann var mjög líkur fyrirmyndinni eins og við þekkjum hana af myndum, en lagði á stöku stað of ríka áherslu á aulaskapinn. Þegar á heildina er litið var hér um mjög sann- færandi persónusköpun að ræða og fékk Þorsteinn greinilega hljómgrunn meðal áhorfenda. Á það skal minnt að þrátt fyrir daupurleik Úr lífi ánamaðkanna er verkið fyndið og skemmtilegt, oft á við besta gamanieik. Það var ekki síst Þorsteinn Gunn- arsson sem lét áhorfandann með- taka þessa hlið verksins. Margrét Ólafsdóttir er sú gamla, ávallt viðstödd, en ekki alltaf ljóst hvað hún er að gera þarna í hjólastólnum. Mátti hún ekki eins vakna til lífs í samræð- um Johanne Louise og Anders- ens? Þetta er líklega smekksat- riði, en vekur samt efasemdir. Leikmynd Steinþórs Sigurðs- sonar færir okkur heim gamlar stofur eins og þær hafa löngum verið verið í Kaupmannahöfn. Upphaf og lok verksins sem birt- ir eins og í fjarska fjölskyldu- málverk frá 1856 ber vitni mark- vissri samvinnu Steinþórs og Daníels Williamssonar sem er höfundur lýsingar. Þýðing Stefáns Baldurssonar var áheyrileg og leitaðist þýð- andi farsællega við að koma til skila sparimáli persónanna og því hversdagslega málfari sem þær grípa til þegar grímurnar falla og sársaukablettirnir af- hjúpast. Sýning Leikfélags Reykjavíkur á Úr lífi ánamaðkanna er einn mesti viðburður þessa leikárs og þótt lengra væri leitað. Eftir er aðeins að óska sýningunni lang- lífis og gleðjast yfir þeim metn- aði sem hún er dæmi um. Jóhann Hjálmarsson. Nú er einstakt tækifæri til að eignast nýjan BMW Við seljum síðustu bílana af BMW árgerð 1982 á ótrúlega hagstæðu verði BMW 315 BMW316 Verö nú kr. 264.500.- Annars kr. 305.000.- Verö nú kr. 291.000.- Annars kr. 353.000 - BMW 318 i BMW 320 Verö nú kr. 316.500.- Annars kr. 386.000.- Verö nú kr. 346.500.- Annars kr. 432.000.- BMW518 Verö nú kr. 347.000.- Annars kr. 415.000.- BMW 520 i Uppseldur Annars kr. 484.000.- Missið ekki af þessum hagstæðu kaupum, og tryggið ykkur bíl sem fyrst. Seljum nýja og notaða bíla laugardaga kl. 1-5. KON 11Ð OG REYNSLUAKIÐ BMW 518. KRISTINN GUDNASON Hl. SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633 VINNINGARNIR ERU ÞESS VIRÐI 4 TALBOT SAMBA SAMBA KOR LANGHOLTSKIRKJU

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.