Morgunblaðið - 07.05.1983, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1983
21
Alfreð Flóki opnar sýningu í Listmunahúsinu:
Ekki hægt að
smjaðra fyrir
fegurðinni
„Þú spyrd um konuna í myndum
mínum. Þetta er hin eilífa kona,
drifkraftur allra hluta og það dá-
samlegast sem til er á þessari
eymdarinnar jarðarkúlu."
Alfreð Flóki er kominn heim eft-
ir 8 mánaða dvöl í Kaupmanna-
höfn. Hann kemur ekki tómhent-
ur. í farteskinu eru 40 myndir,
flestar unnar í vetur. Þessar mynd-
ir eru nú komnar upp á veggi í
Listmunahúsinu, Lækjargötu 2,
þar sem Alfreð Flóki opnar sýn-
ingu klukkan tvö í dag. Blaðamað-
ur Mbl. hitti Flóka í vikunni þar
sem hann var að vinna við upp-
setningu myndanna í Listmuna-
húsinu. Konan skipar ennþá veg-
legan sess í myndum Flóka, dul-
úðleg og brjóstfogur, umlukin
slöngum, illfyglum og kynjaverum
af ýmsu tagi. Þessi fastheldni
Flóka á óvenjuleg mótíf gefur til-
efni til að spyrja hann hvort hann
meini eitthvað með myndum sín-
um.
„Ég hef alltaf verið bók-
menntalega sinnaður myndlist-
armaður. Ég vil gjarnan vikka út
sjóndeildarhring fólks. Það hef-
ur verið í tísku að afneita frá-
söguforminu í myndlist, en ef
maður gerir það er alveg eins
hægt að afskrifa meiripartinn af
heimslistinni. Ég fæ ómögulega
skilið hvernig hægt er að komast
hjá því að segja eitthvað með
mynd. Þó má kannski finna
eitthvað af hugsunarlausri
myndlist á þessum síðustu og
allraverstu tímum, en það er þá
einfaldlega vegna þess að þeir
menn sem hana skapa hugsa
ekki, hafa ekkert heilabú.
Hitt er annað mál að ég er
sjaldnast að segja einhverja
ákveðna sögu í myndum mínum,
frekar að gefa eins konar
stemmningu. Það er ákveðinn
hugmyndaheimur sem liggur að
baki myndunum, en þetta er
heimur sem ég get á engan máta
skilgreint. Ef ég gæti það væri
ég trúlega rithöfundur. Það má
kannski segja að ég sé að tjá það
í myndum mínum sem ég get
ekki tjáð í orðum. Svo er það
hvers og eins að túlka myndir
mínar eftir sínu höfði."
— Þetta er þá ekki gallharður
symbólismi? Táknar fuglinn,
slangan, eggið eða skrimslið ekk-
ert sérstakt?
„Jú, þetta eru tákn, þetta hef-
ur allt ákveðna merkingu í mín-
um huga, yfirleitt sömu merk-
ingu og finna má í goðsögum.
Eggformið er til dæmis tákn al-
LisUmaðtirinn með tveimur
mynda
sinna
af konunni eilffu.
Morgunblaöiö/Ólafur K. Magnússon.
heimsins, alls sem er. Það getur
verið fjöregg líka. Nú, Freud
gamli sagði að fuglinn, eða gogg-
urinn, væri reðurstákn. En fyrir
mér táknar hann meira hreyf-
ingu, umbreytingar. Þessi fugl er
til dæmis oft ég sjálfur, eins
konar umbreytt sjálfsmynd.
Eins eru allir gömlu ljótu karl-
arnir og skrímslin í myndum
mínum umformaðar sjálfsmynd-
ir. Ekki svo að skilja að ég hafi
svona lágar hugmyndir um sjálf-
an mig. Þvert á móti. En í þessu
kemur fram vanmáttur manns-
ins gagnvart fegurðinni, þú get-
ur aldrei smjaðrað fyrir fegurð-
inni, það verður að nauðga
henni!"
— ???
„Þú skilur ekki. Það er ekki
von, fegurðin er óskiljanleg. Að
minnsta kosti er ég ekki maður
til að skilgreina fegurðina, hvers
vegna eitt er fagurt og annað
ljótt. Ég veit það bara að konan
er það fegursta sem til er á kúl-
unni okkar."
í þessu hringir síminn. Flóki
mælir sér mót við einhvern
klukkan ellefu áregis daginn eft-
ir. Svo virðist sem viðmælandi
Flóka hafi samviskubit yfir því
að skjóta á stefnumóti á þessum
tíma dags, því Flóki segir: „Jú,
það er rétt, ég legg það ekki í
vana minn að rísa úr rekkju
fyrir hádegi, en það er allt í lagi
í katastrófu tilfellum." Þá minn-
ist blaðamaður þess að hafa lesið
viðtal við Flóka þar sem hann
sagðist vera nátthrafn.
„Já, ég fer normalt í bælið
fjögur, hálffimm á morgnana.
Og ég vinn mikið á nóttunni, sem
er kannski skýringin á þeirri
næturstemmningu sem ríkir í
flestum myndum mínum."
— Sumir mundu segja dulúð.
„Ef til vill. Ég hef alla tíð haft
mikinn áhuga á dulspeki, án þess
að ég hafi vérið að praktísera
slíka hluti.Ég hef meira lagt mig
eftir að stúdera sögu dulspekinn-
ar, og það fer ekki hjá því að
þess gæti ríkulega í verkum mín-
um.“
Það eru þrjú ár síðan Flóki
hélt síðast einkasýningu hér á
Fróni, en það var í Gallerí Djúp-
inu í febrúar 1980. En frá þess-
um tíma hefur hann haldið þrjár
einkasýningar í Danmörku, 1980
og ’81 í Galerie Passepartout í
Kaupmannahöfn, og 1982 í Gal-
erie Meyer í Esbjerg. Þá hefur
Flóki tekið þátt í fjölda samsýn-
inga á þessu tímabili.
— Ein spurning í lokin, Flóki.
Ertu hér aðeins um stundarsak-
ir, eða á að brenna hið fyrsta
aftur til Kaupmannahafnar?
„Ég er planlaus í augnablik-
inu.“
Sýning Flóka í Listmunahús-
inu stendur til 23. maí og er opin
um helgar frá 14 til 18, en virka
daga frá 10 til 18. Lokað mánu-
daga. gpa.
Má bjóða þér að reynsluaka
Við kynnum nýja og notaða
Toyota bíla á frábæru verði_
OPIÐ FRÁ KL. 10-16 í DAG.
• Sjón er sögu ríkari
• Reynsluakstur er enn betri
d\á^
ve\\a
TOYOTA
P. SAMÚELSSON & CO. HF.
UMBOÐIÐ
NÝBÝLAVEGI 8
KÓPAVOGI
SÍMI 44144