Morgunblaðið - 07.05.1983, Page 24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1983
25
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1983
Lltgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 210 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 18 kr. eintakiö.
Hættuboðar
í sjávarútvegi
Sjávarútvegur, veiðar og
vinnsla, hafa verið burð-
arásinn í útflutningsfram-
leiðslu, þjóðartekjum og
lífskjörum okkar. Það er því
fullkomið alvörumál þegar
þessi undirstöðugrein steytir
á skeri rekstrarlegrar
kreppu, vegna veiðisam-
dráttar, óhagstæðari afla-
samsetningar og stjórnsýs-
lulegra aðstæðna og mistaka
í þjóðarbúskapnum.
Samdráttur sjávarvöru-
framleiðslu var 13% á sl. ári.
— Heildarfiskafli varð ekki
nema 766 þúsund tonn sam-
anborið við 1.435 þúsund
tonn árið 1981, sem að vísu
var metár frá upphafi vega,
bæði að því er botnfisk- og
þorskafla varðar. Talið er að
þjóðartekjur á mann hafi
minnkað um 3.3% 1982 og
ekki horfir björgulegar á líð-
andi ári.
í tonnum talið hefur heild-
arafli íslendinga ekki verið
minni en á sl. ári síðan 1972.
Munar þar mestu um loðn-
una, sem engin kom á land
1982, en loðnuaflinn var 640
þúsund tonn 1981. Þorskafl-
inn í fyrra var 373 þúsund
tonn samanborið við 462 þús-
und tonn árið áður.
Vetrarvertíð, sem nú er að
ljúka, hefur verið með allak-
asta móti. Hvarvetna hefur
vertíðin brugðizt nema í
Vestmannaeyjum, þar sem
hún er nær meðallagi. Afla-
samsetning er áfram óhag-
stæð. Taprekstur útvegsins,
sem lengi hefur verið vanda-
mál, er að þróast í illleysan-
legan hnút, sem versnar dag
frá degi. Hann er eitt af
mýmörgum óleystum vanda-
málum, sem taka þarf á fyrr
en síðar. Skuldastaða út-
vegsins hjá ýmsum þjón-
ustugreinum hefur og keðju-
verkandi áhrif.
Engin leið er að fullyrða
um, hvort þorskstofninn sé
að fara sömu leið og síldin og
loðnan, sem vógu þungt í
þjóðarbúskap íslendinga
fyrr á tíð. Vonandi reynast
aðrar skýringar á aflasam-
drætti réttari. Hörður Jóns-
son, skipstjóri á aflahæsta
vertíðarbátnum í Vest-
mannaeyjum segist ekki
svartsýnn á framtíð þorsks-
ins. Áður hafi komið lélegar
vertíðir, en fiskurrnn jafnan
bætt um betur á ný. Aðrir
telja að stefni í óefni með
þennan þýðingarmesta
nytjafisk okkar. Allavega er
meira en tímabært að
staldra við og gera sér grein
fyrir stöðu mála: hvern veg
megi samræma veiðisókn
flotans og veiðiþol nytja-
fiska, þann veg, að þeir nái
eðlilegri stofnstærð og geti
gefið hámarksnýtingu, án
þess að gengið sé á höfuð-
stólinn.
Það er gjarnan talað um
tvö lífbelti í þjóðarbúskap
okkar, sem rísi undir at-
vinnu og afkomu fólks og
efnahagslegu sjálfstæði
þjóðarinnar: hið ytra lífbelti,
þ.e. miðin og nytjafiskana,
og hið innra lífbelti, þ.e.
gróðurbeltið umhverfis há-
lendið og búvöruframleiðsl-
una. Bæði þessi lífbelti, fisk-
stofnarnir og gróðurmoldin,
hafa nýtingarmörk, sem ekki
má yfir fara, ef hyggindi
eiga að ráða ferð, og ef þessi
kynslóð á að skila lífsmögu-
leikum í landinu óskemmd-
um til framtíðarinnar.
Við eigum hinsvegar auð-
lind sem er verulega van-
nýtt: orkuna í fallvötnum og
jarðvarma. Nú þegar hundr-
uð íslendinga, sem starfað
hafa erlendis, leita aftur
heim, þar sem atvinnusam-
dráttur er farinn að segja til
sín, og sýnt er að vöxtur
þjóðarinnar kallar á tuttugu
til þrjátíu þúsund ný störf
fyrir lok þessa áratugar, má
öllum vera ljóst, hve alvarleg
sú vanrækslusynd stjórn-
valda er, að hafa ekki notað
„hin glötuðu ár“ frá 1978 til
að byggja upp nýjan orku-
iðnað. Við eigum einnig
stóra möguleika í fiskeldi,
sem þegar hefur gefið góða
raun. Efalaust eigum við
ýmsa möguleika á fleiri svið-
um, en hér á við sem víðar,
að sveltur sitjandi kráka en
fljúgandi fær. Það þarf að
skapa atvinnuvegunum, al-
mennt, rekstrar- og vaxtar-
möguleika, en svelta ekki
„mjókurkýrnar" til dauða
eins og stefnir í að óbreyttu.
Sjávarútvegurinn er og
verður um fyrirsjáanlega
framtíð einn af helztu
hornsteinum lífskjara og
mannlífs í þessu landi. Það
skiptir því öllu máli fyrir
lífskjör fólks í þessu landi að
málefnum hans verði betur
sinnt en verið hefur nú um
sinn. Og kjarnaatriðið er að
nýta fiskistofnana af hygg-
indum og hagsýni, þann veg,
að sú líftrygging þjóðarinn-
ar, sem þeir eru, verði varð-
veitt til langrar framtíðar —
en ekki glutrað niður í gæfu-
leysi.
„Ekki vald,
heldur trú“
Ávarp biskups íslands, herra Péturs Sigur-
geirssonar í tilefni af bænadegi Þjóðkirkjunnar
Hinn irlegi bænadagur þjóðkirkjunnar er i morgun, sunnudaginn 8.
maí. Biskup Islands, herra Pétur Sigurgeirsson, hefur þess vegna skrifað
sóknarprestum og söfnuðum og kynnt bænarefni dagsins. Fer bréf bisk-
ups hér i eftir.
Bænadagurinn, 5. sunnudagur
eftir páska, er að þessu sinni 8.
maí nk. Að venju er deginum
ætlað sérstakt bænarefni, og
hefi ég ákveðið, að það skuli vera
bæn postulanna, er þeir báðu
Drottinn og sögðu: Auk oss trú
(Lúk. 17:5).
Svo fremi að lærisveinar Jesú
hafi á hérvistardögum hans haft
ástæðu til að biðja þeirrar bæn-
ar, er þörfin síst minni hjá
okkur. Við þekkjum vantrú
okkar og veikleika. Það sama
fann séra Hallgrímur Pétursson,
þegar hann kvað: Víst er ég veik-
ur að trúa ... og hann sagði í
Passíusálmunum:
Sé eg þig sæll Jesú,
svo sem álengdar nú,
von mína’ og veika trú
við bið ég hressir þú.
í nafni Jesú beinum við trú-
arsjón okkar til Guðs, gjafara
allra góðra hluta. „Megi hann
gefa yður af ríkidómi dýrðar
sinnar að styrkjast fyrir anda
sinn að krafti hið innra með yð-
ur, til þess að Kristur megi fyrir
trúna búa í hjörtum yðar og þér
verða rótfestir og grundvallaðir í
kærleika." (Ef. 3:16.17).
Kristur kennir, að trú okkar
þótt lítil sé, eigi í sér vöxtinn
eins og mustarðskornið. Þannig
predikaði Jón Vídalín: „Veik trú
er líka trú, einn eldneisti er þó
eldur, ein lítil perla glansar svo
sem perla, eins skín ein veik trú
í augum Guðs svo skært svo sem
þó hún væri sterkari, því að trú-
in er aldrei vort verk, heldur
hans anda.“
Á Lúthersári erum við hvött
til þess að ieggja áherslu á gildi
trúarinnar. Við eigum siðbótar-
manninum Marteini Lúther
mikið að þakka. Siðbótin var
trúarleg vakning, sem tók af öll
tvímæli um það, að trúin er full-
gild til sáluhjálpar. Þannig vitj-
ar Guð manna og þjóða. Með
trúnni hefur hann „reist oss
horn hjálpræðis" (Lúk. 1:69)
„Með hjartanu er trúað til rétt-
lætis." (Róm. 10:10)
Trúin er sterkasta aflið sem til
er í heiminum. Það sem í svip
kann að sýnast gersamlega
ómögulegt, verður mögulegt, ef
það er nálgast í trú. Við þurfum
að snúa okkur af öllu hjarta til
Drottins. Grundvöllur alls vel-
farnaðar er andlegs eðlis. Þjóð,
sem lifir um efni fram læknar
ekki efnahagsvanda sinn fyrr en
henni lærist að leita fyrst guðs-
ríkis, þar sem ávextir andans
vaxa: „Kærleiki, gleði, friður,
langlyndi, gæska, góðvild,
trúmennska, hógværð og bind-
Pétur Sigurgeirsson
indi.“ (Gal. 5:22) Hlutverk bæna-
dagsins er samstilling þjóðar-
innar í trú og bæn. „Tilbiðjið
þann, sem gjört hefur himininn
og jörðina og hafið og uppsprett-
ur vatnanna." (Opb. 14:7)
Fyrir um það bil fjórum ára-
tugum sagði þáverandi forseti
Lútherska heimssambandsins,
dr. Franklin Clark Fry: „Ef
heimurinn vildi nú einu sinni
staldra við og hyggja að, hvað
safnar okkur saman í órofa
heild, gætum við kennt mann-
heimi lærdóm, sem mestu máli
skiptir, en sem hvorki blóðsút-
hellingar eða gullnámur hafa
getað opnað augu manna fyrir.
Sá lærdómur hljóðar svo: Hið
eina, sem sameinar mannkyn í
eitt bræðralag, er ekki vald, held-
ur trú.“
Trúin sem frelsar og sameinar
er bænaefni okkar og þá bæn
skulum við biðja með postulun-
um, er þeir sögðu við Drottin:
Auk oss trú.
Næstu fregna að vænta
í lok þingflokksfund-
ar Sjálfstæðisflokksins
í GÆR VAR liðin ein vika frá því
forseti íslands fól Geir Hallgrímssyni
stjórnarmyndunarumboðið. Hann
hefur þessa viku átt viðræður við full-
trúa allra stjórnmálasamtakanna og
síðustu fjóra daga hefur hann, ásamt
þeim Lárusi Jónssyni og Matthíasi Á.
Mathiesen, fundað daglega um hugs-
anleg efnahagsúrræði með þremur
forustumönnum Framsóknarflokks-
ins. Viðmælendur blaðsins sem til
þekkja tclja að mjög hafi dregið sam-
an með aðilum í viðræðum þessum og
merkja það helst af því, að Geir Hall-
grímsson hóf í gær viðræður við full-
trúa launþegahreyfingarinnar og
heldur þeim áfram í dag. Steingrímur
Hermannsson lýsti því yfir í lok við-
ræðufundarins í gær, að hann myndi
einnig ræða við fulltrúa launþega-
hreyfingarinnar í dag. Þeir Geir og
Steingrímur sögðu einnig, að þeir
myndu ræða saman á ný í dag til
frekari ráðagerða, þó ekki væru
formleg fundahöld ákveðin.
I þingflokkum Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks eru, sam-
kvæmt heimildum Mbl., skiptar
skoðanir um hvaða stjórnmálaöfl
eigi að taka við stjórnun þjóðar-
skútunnar. Þó telja ýmsir að varla
séu betri leiðir finnanlegar en sam-
stjórn þessara tveggja flokka, mið-
að við núverandi aðstæður. Margir
leggja nokkuð kapp á að fá Alþýðu-
flokkinn með til samstarfs. Geir
Hallgrímsson mun ræða við Kjart-
an árdegis. Óljóst er um afstöðu
þingmanna Alþýðuflokks, þó mun
þeim finnast þeir hafa verið utan
ríkisstjórnar of lengi og einnig sjá
þeir fram á sáralítil áhrif sem lítill
þingflokkur í stjórnarandstöðu.
Næstu fregna af gangi mála
verður að vænta í lok þingflokks-
fundar Sjálfstæðisflokksins, þar
sem ákvörðun á að taka um fram-
gang stjórnarmyndunarviðræðn-
anna. Þingmenn Framsóknarflokks
bíða í viðbragðsstöðu, en Stein-
grímur Hermannsson sagði í gær
að þingflokkurinn yrði kallaður til
fundar um leið og tilefni gæfist til.
Viðmælendur Mbl. úr hópi þing-
manna flokkanna tveggja voru
flestir á einu máli um það í gær-
kvöldi að framgangur mála nú um
helgina myndi skýra nokkuð stöðu
mála.
Aprflmánuður ann-
ar kaldasti á öldinni
APRÍLMÁNUÐUR var kaldari um allt land, en í meðalári sam-
kvæmt upplýsingum sem Morgunblaöið fékk hjá Veðurstofunni í
gær. Meðalhitinn í Reykjavík reyndist vera 4-0.1 stig, sem er 3.2
stigum kaldara en meðalhiti aprílmánaðar áranna 1931—60, en við
það tímabil er miðað. Frá 1881 að mælingar hófust hefur aprflmán-
uður aðeins einu sinni verið kaldari, en það var árið 1917. Árið 1910
var meðalhitinn svipaður og í ár.
Á Akureyri var meðalhitinn
+2.1, sem er 3,7 stigum undir með-
allagi og þar hefur ekki verið jafn
kalt síðan árið 1953, en sveiflur í
vorhita eru meiri norðanlands en
sunnan. Á Höfn í Hornafirði var
meðalhitinn 0.2 stig, sem er 2.6
undir meðallagi og á Hveravöllum
var meðalhiti aprílmánaðar +7.3
stig, sem er það kaidasta sem
mælst hefur síðan mælingar hóf-
ust þar 1965.
Úrkoman í Reykjavík í apríl var
32 millimetrar, sem er 40% minna
en í meðalári, en fyrir norðan var
hún 50% umfram meðallag, á Ak-
ureyri 49 millimetrar. Á Hvera-
völlum var úrkoman 9 mm og á
Höfn í Hornafirði 26 mm, sem er
hvort tveggja verulega undir með-
allagi.
Sólskinsstundir í apríl voru 172
í Reykjavík, 115 á Akureyri og 161
á Hveravöllum og er það alls stað-
ar sólríkara en í meðalári.
Eitt einkenni aprílmánaðar veð-
urfarslega séð, voru snjóþyngslin
fyrir norðan. Var það einkum í
sveitunum austan Skagafjarðar og
á Ströndum.
Strákarnir með undirskriftalistann. Taldir frá vinstri: Sigtryggur Klemens
Hjartar, Stefán Hand, Stefán Jóhann, Ingimar Kristinn Jónsson og Kristófer
Rabasca. Tvo vantar i myndina, Harald Hansen Guðmundsson og Ingólf
Örn Guðmundsson. Morgunblaðií/ köe.
6. bekkur í Melaskóla:
Safnar undirskriftum
gegn sölu á tóbaki
til barna og unglinga
„VIÐ ERUM AÐ þessu til þess að draga ur reykingum," sögöu fimm
strákar úr 6. bekk Melaskólans í Reykjavík, sem heimsóttu ritstjórn
Morgunblaðsins á fimmtudaginn, með undirskriftalista, þar sem
skorað er ríkisstjórn og Alþingi að tóbak verði ekki selt unglingum
innan 16 ára aldurs og í öðru lagi
búðartíma og sölustöðum fækkað.
„Við útbjuggum þetta eyðublað í
skólanum í gær og viljum þakka
kenaranum okkar, Ragnheiði
Jónsdóttur, fyrir hjálpina, sem og
skrifstofustúlkunr.i í skólanum. I
dag göngum við í fyrirtæki og hús
og söfnum undirskriftum og ef
fólk vill fá svona undirskriftablöð
að tóbak verði ekki selt nema á
með áskoruninni, getur það nálg-
ast þau hjá skólastjóranum í
Melaskóla, Inga Kristjánssyni.
Okkur hefur verið tekið mjög vel
nema í undantekningartiífellum
og við vonum að Island verði
reyklaust land árið 2.000,“ sögðu
þeir um leið og þeir kvöddu.
Verkfall boðað í Nausti vegna
breytts fyrirkomulags vínsölu
Hagræðing sem hefur enga tekjurýrnun í för með sér, segir eigandi hússins
Félag framreiðslumanna hefur
boðað verkfall í Naustinu frá klukk-
an 12 á hádegi laugardaginn 14.
þessa mánaðar vegna deilu, sem
snýst um fyrirkomulag áfengisaf-
greiðslu. Félagið telur kjarasamn-
inga framrciðslumanna hafa verið
brotna og nýja fyrirkomulagið hafa í
för með sér tekjurýrnun, en Ómar
Hallsson eigandi Nausts kvað hér
aðeins um hagræðingaratriði að
ræða er hefði enga kjararýrnun í för
með sér.
„Ég er að athuga minn gang og
hlýt að hafa eitthvað svar við
þessari verkfallsboðun," sagði
Ómar. „Við hjónin erum bæði
framreiðslumenn og gætum raun-
ar rekið húsið og verið með að-
stoðarfólk í vinnu. Hér er aðeins
um hagræðingaratriði að ræða,
breytt fyrirkomulag sem tekið
hefur verið upp alls staðar í heim-
inum. Ef eitthvað væri ætti salan
að aukast vegna hagræðingarinn-
ar og þar með tekjur þjónanna.
Þeir fá eftir sem áður sitt
þjónustugjald af sölunni. Það
fyrirkomulag sem ég er að taka
upp er til dæmis fyrir hendi á
Arnarhóli, þar á húsið allt vínið
en ekki þjónarnir. Einnig hefur
þetta fyrirkomulag verið á Hótel
Sögu í rúman áratug," sagði
Ómar.
Samkvæmt upplýsingum Ólafs
Sveinssonar hjá Félagi fram-
reiðslumanna snýst deilan í
Nausti um fyrirkomulag áfengis-
sölu til matargesta. Hingað til
hefur sá háttur verið hafður á, að
húsið hefur selt heilar flöskur til
þjónanna, sem síðan hafi selt gest-
um sjússa. Eigendur Nausts hafi
hins vegar fyrirvaralaust sett upp
svokallað vínbuffet, þar sem þjón-
arnir fái sjússana afgreidda frá
húsinu, en selji þá ekki lengur
sjálfir. Hér væri um brot á samn-
ingum að ræða og kjararýrnun,
þar sem þjónarnir verði af rýrn-
unarhlutfalli, sem nú komi í hlut
hússins.
Fjölskyldan frá Falklandseyjum á hlaðinu i Akri.
MorgunblaÖid/ Björn Valdimarsson.
Landslagið svipað
og á Falklandseyjum
Blönduósi, 5. maí.
EINS OG sagt hefur verið í frétt-
um, fluttu hingað nýlega til lands-
ins hjónin Margrét og Dannis
Humphreys frá Falklandseyjum.
Þau gátu ekki sætt sig við hernað-
arástandið á eyjunum sem rfkt hef-
ur frá lokum stríðsins milli Breta
og Argentínumanna.
Það hlýtur að hafa sín áhrif á
átján hundruð manna samfélag
þegar þangað koma fjögur þús-
und hermenn, allt daglegt lif
gengur úr skorðum, eyjarnar eru
ekki þær sömu og áður.
Margrét og Dennis Humph-
reys unnu á búi sem taldi þrjátíu
og átta þúsund fjár en fóru það-
an um miðjan marsmánuð og
komu hingað 17. april eftir
stutta viðdvöl hjá ættingjum
sínum í Bretlandi.
Þau þurftu ekki að bíða lengi
eftir að fá starf hér á landi.
Pálmi Jónsson landbúnaðar-
ráðherra vistaði þau á býli sínu
að Akri í Torfulækjarhreppi i
Austur-Húnavatnssýslu.
Fréttaritari Mbl. á Blönduósi
átti leið hjá Akri i vikunni sem
leið og notaði tækifærið til að
bjóða hjónin velkomin til lands-
ins.
Dennis var önnum kafinn við
að sinna rollunum enda sauð-
burður að hefjast. Hann gaf sér
samt tíma til að rabba ögn við
fréttaritara, og konan hans
Margrét líka.
Ástæðan fyrir því að þau leit-
uðu sér starfa hér á landi er ein-
faldlega sú að Dennis hafði um
langt skeið átt pennavin hér á
landi og þau hjónin töldu sig
— segja þau Denis
og Margrét Hump-
hreys, vinnufóik á
Akri í Torfa-
lækjarhreppi
hafa kynnst landinu nokkuð vel
af lýsingu pennavinarins. Þeim
fannst ísland vera fýsilegur
kostur eftir að þau höfðu ákveðið
að flytjast á brott frá Falklands-
eyjum.
Um framtíð byggðarinnar á
Falklandseyjum héldu þau hjón-
in að margir ættu eftir að flytja
þaðan, flýja óvissuna. Hins veg-
ar væri nú farið að reyna að
telja Breta á að flytja til Falk-
landseyja og væru undirtektir á
Bretlandseyjum nokkuð góðar.
Margrét og Dennis eru bæði
fædd og uppalin í Englandi en
settust að á Falklandseyjum,
Dennis fyrir hálfu sjöunda ári
en Margrét bjó þar í hálft þriðja
ár.
En hvernig líst þeim nú á
landið?
„Ágætlega," segja hjónin.
„Landslagið er ekki ósvipað því
sem við áttum að venjast á Falk-
landseyjum. Við komum hingað
norður á föstudaginn var og
okkur sýnist starfið hér á Akri
henta okkur.
En við eigum alveg eftir að
kynnast landi og þjóð og hinni
íslensku veðráttu, svo það er
kannski fullsnemmt að fullyrða
of mikið nú. Auk þess eigum við
eftir að átta okkur á tungunni.
Okkur er sagt að málið sé frekar
erfitt. Auðvitað höfum við lært
einstaka orð en málfræðin er
okkur lokuð bók.“
Er mikill munur á landbúnað-
inum hér og á Falklandseyjum?
„í stórum dráttum er þetta
ekki ólíkt. Að vísu eru búin mun
stærri á Falklandseyjum. Meðal-
bú þar telur um fjörutíu þúsund
fjár. Og ég hef unnið við bú sem
hafði hátt í þrjú hundruð þúsund
fjár. Þarna suður frá eru hestar
mikið brúkaðir við bústörfin og
það er óhemju vinna að sinna
svona stórum býlum. Reyndar
þarf ekki að setja á hús á Falk-
landseyjum, veturnir eru það
mildir. Allir sauðir eru hvítir og
allir kollóttir líka, ólíkt því sem
hér er.“
Aðspurð sögðu þau Dennis og
Margrét að fjárbúskapur væri
eina útflutningsgrein eyja-
skeggja. Kjötið er allt flutt til
Bretlands en ullin hefur ekkert
verið unnin fram að þessu, en
það er eitthvað að breytast núna.
Eyjaskeggjar eru einnig með
alhliða búskap, en aðeins til að
fullnægja innanlandsþörfinni.
Til dæmis nautgriparækt og
jarðyrkju og afurðirnar eru mik-
ið til fullunnar heima á búunum.
Áður en fréttaritari kvaddi
þessi viðkunnanlegu hjón, sagði
Dennis, að þrátt fyrir að hér
væri svalara en á Falklandseyj-
um, væru húsin þó miklu hlýrri.
„Eitthvað annað en illa kynnt
timburhúsin á Falklandseyjum."
- BV
Þegar vínbuffetið var tekið í
notkun á þriðjudag gengu þjón-
arnir sex í Nausti út, og hafa síðan
reynt að mæta til vinnu, en ekki
verið ljáð máls á því að þeir ynnu
samkvæmt eldra kerfinu, þ.e. þeir
keyptu flöskur af húsinu og af-
greiddu sjálfir sjússana, skv. upp-
lýsingum Ólafs Sveinssonar.
Ólafur sagði verkfall hafa í för
með sér að staðnum yrði lokað,
þar sem félagar í Félagi fram-
leiðslumanna ættu forgangsrétt
að allri vinnu í Nausti, og einnig
væru hugsanleg samúðarverkföll
hjá Félagi starfsfólks veitinga-
húsa og hjá matreiðslumönnum.
„Þetta sýnist kannski ekki stór-
mál, en er það samt fyrir okkur.
Þetta er prófmál á það hvort
framreiðslumenn fái að lifa eða
ekki, hvort hundsa eigi okkar rétt-
indi og samningsgerð," sagði ólaf-
ur.
Ákvörðun um verkfallsboðun
var tekin á fundi trúnaðarmanna-
ráðs Félags framreiðslumanna. í
bréfi sem eigendum Nausts, ríkis-
sáttasemjara og ASÍ, var ritað
eftir fundinn, segir að Naust sé
ekki í Sambandi veitinga- og gisti-
húsa og hafi Félag framreiðslum-
anna ekki gert kjarasamning
vegna félagsmanna sinna sem
vinna hjá Nausti hf. Allar sam-
ningaviðræður við eigendur
Nausts hafi reynst árangurslausar
og verkfallsboðun því óhjákvæmi-
leg til að knýja á um lausn kjara-
deilunnar.
Tvö skip
seldu erlend-
is í vikunni
TVÖ ÍSLENZK flskiskip seldu afla
sinn erlendis í þessari viku. Fyrir-
hugað er aö 5 skip selji erlendis í
næstu viku.
Á mánudaginn seldi Jón Kjart-
ansson SU 172,8 lestir í Cuxhaven.
Heildarverð var 2.624.700 krónur,
meðalverð 15,19. Á fimmtudag og
föstudag seldi Vigri RE 305 lestir í
Cuxhaven. Heildarverð var
4.409.900 krónur, meðalverð 14,46.