Morgunblaðið - 07.05.1983, Side 32

Morgunblaðið - 07.05.1983, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1983 ðllu góðu fólki skylt að styrkja gott málefni SATT (Samband alþýðutón- skálda og tónlistarmanna) hefur efnt til sýningar á myndlist t sam- bandi við kaup á húsnæöi að Vitastíg 3 hér í borg. Það er ætlun þessa félagsskapar, aö þar veröi bækistöð fyrir starfsemi þess, og til að létta á húsakaupunum, hafa tónlistarmennirnir fengið nokkra myndlistarmenn til liðs við sig. Er meiningin aö helmingur andvirö- is seldra mynda á sýningu þeirri sem nú stendur í Gallerí Lækjar- torgi renni til fyrrnefndra húsa- kaupa. Hér er því um samvinnu aö ræða milli tveggja listgreina, og er þaö í sjálfu sér ánægjulegt. Greiösluskilmálar eru viö allra hæfi á þessari sýningu, og ættu menn að notfæra sér þau góðu boð, sem þarna standa opin. All- ar myndirnar eru til sölu og einn- ig er eftirprentun númeruð og árituð, sem gildir einnig sem happdrætti og er vinningur myndverk eftir einn af þeim, sem sýna. Þarna eru margir listamenn meö verk sín, og kennir þar margra grasa. Grafík, vatnslitamyndir, teikningar, olíumálverk o.fl. Ég nefni hér aöeins örfá nöfn þeirra sem þekktastir eru: Ditere Roth, Sigríður Björnsdóttir, Jóhann G. Jóhannsson, Hringur Jóhannes- son, Tarnus Einar Hákonarson og Haukur Halldórsson. Marga fleiri mátti upp telja, en látum þetta nægja. Séð veröur af þessari upp- talningu, aö þarna er nokkuö ósamstæöur hópur á ferö, og auö- vitað getur ekki annaö átt sér staö, þar sem svo ólík llstaverk eru hengd í ekki stærra húsplássi en Gallerí Lækjartog er. En hver am- ast viö slíku, þegar um er að ræða gott málefni, sem margir taka höndum saman um? Þaö er oft þungur róðurinn hjá listamönnum meö aö koma sér — segir Valtýr Pétursson, myndlistargagn rýnandi Morgun blaðsins, um sýningu SATT í Gallery Lækjartorgi upp bækistöðvum, og vonandi ber þessi tilraun nokkurn árangur. Menn ættu að muna eftir því starfi, sem listamenn leggja í þjóölíflö og einnig gera sér grein fyrir, að oft á tíöum fá þeir lítiö eöa ekkert fyrir framlag sitt. Það er því skylt öllu góöu fólki aö styrkja gott málefni, ekki hvaö síst þegar skapandi kraftar eiga í hlut, og ég er viss um, aö margir eiga eftir aö leggja sitt af mörkum, þegar þeir gera sér Ijóst, hvert starf allir skapandi listamenn stunda í þágu almenn- ings. Þaö gefst nú gott tækifæri til aö sýna hug sinn i sambandi viö þessa sýningu er nú stendur i Gall- erí Lækjartorgi. Plakatið sem gefið hefur verið út í tilefni sýningarinnar. BARA-Flokkurinn var frábær í Klúbbnum — hljómsveitin þrýstir á nafnbótina „besta sveit landsins“ Þaö er orðið langt síðan maður hefur skemmt sér jafn konung- lega á tónieikum og með BARA- flokknum frá Akureyri í Klúbbn- um fyrir tveimur vikum. Skýringin á drætti umfjöllunar um tónleik- ana er sú, að umsjónarmaður síö- unnar var í viku erlendis og því ekki hægt að skýra frá þessum merka viðburði fyrr en nú. Vart veröur ofsögum sagt, aö BARA-flokkurinn hefur aldrei verið betri. Kemur þar aö mati Járnsíö- unnar einkum tvennt til. Annars vegar hefur söngur Ásgelrs Jóns- sonar tekiö miklum framförum og var hann þó góður fyrir, og hitt er stökkbreyting í gítarleik Þórs Freyssonar. Sannast sagna kom hann mér hvaö eftir annaö stór- kostlega á óvart á tónleikunum í Klúbbnum. Kannski hefur hann alltaf getaö þetta strákurinn, en ef svo er þá var helvíti Ijótt af honum aö leyna þessu svo lengi, sem raun ber vitni. Ekki er neinum blöðum um þaö aö fletta, aö tónlist BARA-flokks- ins hefur tekiö ansi miklum breyt- ingum. Kom þaö best í Ijós þegar gömlu góöu lögin voru látin fljóta meö inn á milli annarra nýrri. Þá veröur því ekki neitað, aö tónlistin sver sig í síauknum mæli í ætt viö tónlist David Bowies og kannski var þaö einvöröungu til þess aö taka af öll tvímæli um slíkt, aö hljómsveitin lék iagiö Jean Genie undir lokin. Hvaö sem hver segir, þá voru þetta frábærir tónleikar Noröanmannanna og sándið hjá Bjarna var afbragð þótt sjálfur segi hann þaö hafa veriö enn betra kvöldiö áður á Borginni. Q4U lék á undan BARA- flokknum en áhorfendur voru telj- andi á fingrum annarrar handar þegar sveitin hóf leik sinn. Frammistaöa hljómsveitarinnar þetta kvöld sannfæröi mig enn frekar um ágæti hennar og Ellý undirstrikaöi einnig, að án hennar væri hljómsveitin ekki mjög beys- in. Söngur hennar mjög skemmti- legur og blæbrigöaríkur og hún notar ekki neina effekta til aö koma sínu á framfæri. Þaö var nokkuö, sem mig óraöi ekki fyrir. — SSv. BARA-flokkurinn sýndi sínar allra bestu hliðar í Klúbbnum fyrir hálfum mánuði. Megas alias Magnúa Þór Jónsson ésamt frauku sinni. Meistari Megas vaknar til lífsins á nýjan leik Meistari Megas hefur ekki látið á sér kræla um margra ára skeið, enda haldið sig fjarri glys og glaumi tónlistarlífsins að mestu. Aödáendur hans geta nú fariö aö búa sig undir glaðning af hans hálfu, því hann kemur fram á sólóplötu Tolla Morthens, sem ráðgert er að komi út einhvern tíma á næstu vikum. Ef marka má þau lög, sem Járnsíöan hefur fengiö aö heyra meö Megasi, hefur hann engu gleymt og skilar sínu óborganlega eins og hans er von og vísa. Þá hefur Járnsíöan einnig fregnað, aö Megas kunni aö skjóta upp kollin- um á nýrri sólóplötu Bubba Morth- ens, sem kemur út innan skamms, en slíkt hefur ekki veriö staöfest. Einar í kreistingssólói á Melarokki. Einar Jónsson gengurí Start-flokkurinn hefur á ferli sínum orðið fyrir nokkrum breyt- ingum og nú hefur enn nýr meö- limur gengið til liðs viö sveitina. Eðvarð Lárusson, fyrrum gítar- leikari Skagasveitarinnar Tíbrár, hefur nú sagt skiliö við Pétur Kristjánsson og co., og hyggst hvíla sig um stund. I hans staö hefur Einar Jónsson, fyrrum driffjööur í Þrumuvagnin- Start um, verið ráðinn. Einar hefur haft hljótt um sig allt frá því Þrumu- vagninn missti öll hjólin undan sér í haust, en ekki setiö aögeröarlaus. Tímann hefur hann notaö til upptöku á eigin efni og hefur Járnsíöan fengiö aö heyra hvaö er á feröinni. Er ekki ofsagt, aö þar sé á feröinni verulega athyglisvert efni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.