Morgunblaðið - 07.05.1983, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1983
c )W3 Unlvtfnl Pmi tywálciH Sml
„H\/e ofi Hef ég scx<yt þér setja. &klcl
lcxppirncir upp d. borðiö ?“
Así er ...
io é
... að eífira eiw-
hvern sem hœgt er
aö líta upp til.
TM Raq. U.S. P»t. Ott -aB rlQhts rasarvad
•1982 Loa Angalaa Tlmaa Syndicale
InnbroLsþjófur? — Sæktu ’eiði-
jakkann skotbeltið og tvíhleypuna!
Kr þér það á móti skapi að ég fari á
bingókvöld?
Skaðlegri en jafnvel
verstu málfræðivillur
Frumstæð hugsunarvilla
(iuAmundur Magnúmon. umsjón-
I armaður Helgar-Timans, skrifar
| 26. aprfl:
Að mér er vikið i nafnlausu
I hréfi f Velvakanda þnðjudaginn
| 26. april sl. t»ar segir orðrétt
.önnur villa, reyndar ein af
I þúsund ( löngum greinaflokki, var
f Timanum á sunnudaginn, þar
I sem Guðmundur Magnússon, sem
I stundum skrifar i Velvakanda, var
lað halda þvf fram að „Félag Ný-
l»orsteinn Guðjónsson skrifar 1.
maí:
„í einni málsgrein
sá ég aldregi
fleiri falska stafi.
Guðmundur Magnússon hjá
Helgartímanum, sem heldur að ég
skrifi nafnlaus bréf, segist í Vel-
vakanda 30. apríl hafa skrifað í
blað sitt á þessa leið:
„Helgi heitinn Pjeturs (svo)
gerði hinar reyfaralegustu upp-
götvanir um eðli lífsins í draum-
um sínum, og m.a. á þeim grund-
velli hefur Félag Nýalssinna reist
kenningar sínar um lífsambönd
við aðrar stjörnur." Félagið er
höfundur kenninganna. Sú er full-
yrðing Guðmundar Magnússonar,
og hann hefur margendurtekið
hana, sífellt með sömu orðum, hér
og þar, svo að hann hlýtur að vera
í meira lagi ánægður með hana.
Enda segir hann nú: „Þessi setn-
ing er góð og gild íslenzka" (!). —
Það er bezt að vera ekki að fara út
í málfræðilega smámuni eins og
þá, að tilvitnun hans í heild kall-
ast málsgrein en ekki setning. En
hitt er alvarlegra, að greinarhöf-
undur virðist ekki hafa minnstu
hugmynd um hvað vísindaleg og
heimspekileg kenning er eða
hvernig hún verður til.
En um náttúruvísindamann
þann „heitinn", sem greinarhöf-
undur nefnir — en kann þó ekki að
stafsetja nafn hans rétt — segir
hann að sá hafi „gert uppgötvanir
í draumum sínum". Sú er hin önn-
ur fullyrðing ritstjórans, og hún
býsna athyglisverð. Lengra kemst
hann varla með það að sanna, að
hann hefur aldrei lesið, eða a.m.k.
enga tilraun gert til að skilja það,
sem hann þykist þó bær að dæma
og skrifa um. — Hvernig skyldi þá
vera með aðrar vísindauppgötvan-
ir sama náttúrufræðings, eins og
t.d. þá, að verulegur hluti af
bergstafla íslands er frá ísalda-
tímabilinu og að ísaldirnar voru
margar en ekki ein? Voru þær
„gerðar í draumi" — eða hvað? —
Þessi undirstöðuuppgötvun í
jarðfræði íslands, eins manns
verk, var gerð með samskonar
hugarstarfi, samanburði og grein-
ingu og uppgötvun sama manns
um eðli drauma síðar. Og henni
hefur hingað til ekki verið hrundið
með „reyfaralegum" sleggjudóm-
um.
Einn af beztu kostum íslenzk-
unnar er sá, hve auðveldlega hún
kemur upp um það, ef röng og
óvönduð hugsun býr að baki orð-
unum. Menn ættu að æfa sig í að
taka eftir þessu, með fullri gát og
dómgreind. En skóladæmi um
þess konar hugsanavillur, sem eru
skaðlegri en jafnvel verstu mál-
fræðivillur, er hin margtilvitnaða
eftirlætismálsgrein ritstjóra
Helgartímans."
Látum Smokie-
hneykslið ekki
endurtaka sig
Gamall poppari skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Ég var að lesa það í blöðunum,
að listahátíðarnefnd væri að at-
huga möguleika á að fá Duran
Duran, Iron Maiden eða The Shad-
ows á næstu listahátíð. Ér er alveg
gáttaður. Á að fara að endurtaka
Smokie-hneykslið? Er listahátíð-
arnefnd búin að gleyma upphaf-
legum tilgangi listahátíðar?
Það skal tekið fram, að ég hef
enga fordóma gagnvart þeim
hljómsveitum, sem nefndar hafa
verið hér að framan. Þær geta
Frank Zappa
Bruce Springsteen
bara á engan hátt talist verðugir
fulltrúar popptónlistar ársins
1984. Langt í frá. Engin þessara
hljómsveita nær því að vera virt
og vinsæl á breiðum grundvelli né
heldur að hún spili dæmigerða
nútímamúsfk. Duran Duran og
The Shadows spila 25 ára gamalt
skallapopp og Iron Maiden spila
15 ára gamalt bárujárnsrokk.
Ef listahátíðarnefnd hefur
áhuga á pottþéttu poppnúmeri, þá
Askorun
Nökkvi Elíasson, Sauðárkróki,
skrifar:
„Ég ætla mér að ítreka áskorun
þá er birtist i Velvakanda síðast-
liðinn laugardag, frá stuðnings-
mönnum hljómsveitarinnar „Iron
Maiden" til listahátíðarnefndar,
þess efnis að fyrmefnd hljómsveit
komi hingað til lands sumarið ’84.
Hvernig væri nú að gera okkur
þungarokkurum einhverntíma til
geðs? Ég veit ekki til þess að
þungarokk hafi verið spilað opin-
berlega hér á landi (nema þá helst
David Bowie
getur hún valið á milli snill-
inganna David Bowie, Brian Eno,
Kraftwerk, Peter Gabriel, Frank
Zappa, Bruce Springsteen,
Manfred Mann og jafnvel Lindsay
Cooper. Það mætti líka gefa gaum
að uppgangi reggae-tónlistarinn-
ar. I því sambandi dettur mér
helst í hug Black Uhuru og Linton
Kwesi Johnson.
Að lokum langar mig að geta
þess, aö listahátíðarnefnd hefur
oft tekist vel upp við val á poppt-
ónlistarmönnum. Má þar benda á
Led Zeppelin 1970, Clash 1980 og
Human League 1982. Þessar
hljómsveitir voru allar verðugir
fulltrúar síns tíma, þótt það megi
e.t.v. til sanns vegar færa, að Ego
hafi verið miklu betri en Human
League í Höllinni.
Smokie-hneykslið var hins veg-
ar ægilegustu mistök, sem lista-
hátíðarnefnd hefur lent í. Látum
slíkt ekki endurtaka sig.“
ítrekuð
f útvarpi) sfðan Deep Purple heim-
sótti okkur árið 1972. Eða hvað?“