Morgunblaðið - 15.06.1983, Síða 14
46 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1983
VÖLSUNGUR
Húsavík
Gunnar Straumland, 21
árs markvörður.
Einar Sigurjónsson, 28
ára varnarmaður.
i
Sigurgeir Stefánsson,
18 ára miðvallarleik-
maður.
Sigmundur Hreiðars-
son, 22 ára miðvallar-
leikmaður.
Haraldur Haraldsson,
17 ára markvörður.
Kristján Kristjánsson,
23 ára miðvallarleik-
maður.
Sigurður Illugason, 23
ára sóknarmaður.
Sveinn Freysson, 19 ára
varnarmaður.
Birgir Skúlason, 22 ára
varnarmaður.
»©•_______
Ástvaldur Jónasson, 21
árs sóknarmaður.
Olgeir Sigurðsson, 19
ára miðvallarleikmaður.
Pétur Pétursson, 23 ára
varnarmaður.
Guðni Arason, 24 ára
varnarmaður.
Jónas Hallgrímsson, 22
ára sóknarmaður.
Magnús Hreiðarsson,
25 ára liðsstjóri.
„Besta lið sem við
höfum haft í mörg ár“
„ÞETTA leggst alit alveg Ijómandi
vel í mig. Það er ekki hægt annað
en að vera bjartsýnn, við höfum
byrjað svo vel, í raun miklu betur
en ég þorði að vona,“ sagði for-
maður knattspyrnudeildar Völs-
ungs, Sigurður Pétursson, í sam-
tali við Mbl.
„Liðið sem við teflum fram í
sumar er það besta sem við höf-
um haft hér á Húsavík í mörg ár,
en ég trúi því nú samt ekki fyrr
en yfir lýkur að við siglum 1
gegnum deildina áfallalaust,
þrátt fyrir að okkur hafi gengið
vel í fyrstu leikjum okkar sem
voru gegn sterkari liðum deild-
arinnar."
Hvernig ganga peningamálin?
„Það er nú óttalegt strögl. Við
höfum fjármagnað þetta mest
með auglýsingaskrá og auglýs-
ingaspjöldum á vellinum, en það
hefur ekki gengið eins vel í ár og
undanfarin ár vegna erfiðleika
hjá fyrirtækjum. Við í stjórninni
Sigurður Þ. Pétursson,
formaður knattspyrnuráðs.
gerðum fjárhagsáætlun fyrst í
vor en hún er öll farin úr bönd-
um. Sem dæmi get ég nefnt að
flugmiðinn er orðinn hærri núna
en fjárhagsáætlun okkar gerði
ráð fyrir að hann yrði í haust, og
svona er um allt. Við fáum einn-
ig talsvert af fólki á völlinn eða
þetta 150—160 á hvern leik. Ef
framhald verður á velgengni
okkar, sem ég vona að verði, þá
held ég að fleiri komi á völlinn
og þá þurfum við ekki að kvíða
neinu hvað varðar fjárhaginn."
Viltu spá?
„Fram verður í fyrsta sæti,
KA í öðru og um þriðja sætið
berjast þrjú lið og treysti ég mér
ekki til að segja hver verður
ofaná í þeirri baráttu. Þessi lið
eru Völsungur, FH og KS. Ég vil
ekki spá lengra niður, það er
alltaf leiðinlegt að spá öðrum
óförum, auk þess sem við erum
búnir að falla svo oft sjálfir, og
finnst leiðinlegt, þá vil ég ekki
nokkru liði svo illt.“
sus
„Spilum einn
leik í einu“
„MIÐAÐ við þann árangur sem
við höfum náð í fyrstu leikjunum
teljum við að okkur sé alveg óhætt
að vera bjartsýnir,“ sögðu þjálfar-
ar Völsungs í stuttu viðtali við
Mbl., en þeir eru tveir sem þjálfa á
Húsavík í sumar, þeir Kristján
Olgeirsson og Helgi Helgason.
„Við erum með mjög jafnt lið,
sem er komið með talsverða
reynslu í annarri deild og styrk-
ur okkar felst aðallega í því
hversu jafnir leikmenn eru. Það
er vel hugsanlegt að við blöndum
okkur í baráttuna um annað
sætið, þó ógerningur sé að spá
fyrir um það svona snemma á
keppnistímabilinu. Annars telj-
um við að það sé ósköp lítið um
liðið hjá okkur að segja annað en
Kristján Olgeirsson, 22
ára þjálfari.
það, að við leikum aðeins einn
leik í einu og hugsum ekki um
annað á meðan, svo sjáum við
bara til hvernig þetta endar".
Viljið þið spá einhverju?
„Já, já, við erum með það al-
veg á hreinu hvernig lokastaðan
verður, en það er verst að við
erum ekki sammála um hana,
þannig að við verðum að fá að
spá hvor fyrir sig“. Það var gert
og hér er fyrst spá Helga:
Fram, KA, Fylkir, Völsungur,
FH, Njarðvík, Víðir, Siglufjörð-
ur, Reynir og Einherji.
En Kristján, hvernig verður
lokastaðan?
Fram, KA, Njarðvík, FH,
Völsungur, Víðir, Siglufjörður,
Fylkir, Einherji og Reynir.
sus
Helgi Helgason, 23 ára
þjálfari.
Björn Olgeirsson, 21 árs sóknarmaður, fyrirliði.
„Ánægöur ef við
fáum 20 stig“
„ÞETTA er nú ekki í fyrsta skiptið
sem við Völsungar byrjum svona
vel, þannig að ég er bara hæfilega
bjartsýnn á framhaldið. Þetta á
allt eftir að skýrast í næstu leikj-
um, en ég verð mjög ángægður ef
við náum 20 stigum, því það væri
stigamet hjá Völsungi í annarri
deild,“ sagði Björn Olgeirsson
fyrirliði Húsvfkinga í samtali við
Mbl.
Vilt þú spá einhverju?
„Mér finnst ekki ólíklegt að
Fram verði í fyrsta sæti, síðan
hef ég trú á að KA hafni í öðru
sæti, en um meira er erfitt að
spá.
Þó tel ég að Völsungur, FH og
Njarðvík komi til með að berjast
um þriðja sætið, en hverjir hafa
betur verður bara að koma í ljós
í haust. Um önnur sæti vil ég
engu spá“.
sus