Morgunblaðið - 21.07.1983, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1983
Bylting með tilkomu Compact Disc, nýju hljómplötunnar:
Loks hægt að njóta hljóm-
gæða tuttugustu aldarinnar
HÉR á eftir fer úrdráttur úr bréfi frá lesanda, sem birtist í aprflhefti
breska tímaritsins Hi-Fi News & Record Review, þar sem r«ett er um
hina nýju tegund hljómplatna, Compact Disc. Þessi nýja tegund platna
hefur enn ekki fengid viðunandi nafn á íslensku. Til glöggvunar skal þess
þó getið, að hljómplötur þessar eru notaðar í hina nýju lasergeisla-plötu-
spilara, sem kynntir voru á almennum markaði snemma á árinu og hafa
hlotið mikið lof gagnrýnenda.
„Þar sem ég hef lesið svo
margt um kosti og galla hinnar
nýju tegundar hljómplötu,
Compact Disc, í fræðiritum um
hljómburðartækni finnst mér
rétt að láta skoðun mína sem
lesanda í ljósi.
Ég er fyllilega sammála því
sem sagt hefur verið, að hin nýja
tegund platna skilar fyllilega
því, sem á hana er sett óháð því
hvort um góða eða slæma frum-
upptöku hefur verið að ræða.
Aðalágreiningsefnið virðist vera
hvaða tegund hljóðnema er not-
uð við upptökuna.
Annað atriði, sem rétt er að
vekja athygli á, er hljómburður
þessara nýju platna, sem sagt
hefur minna mjög á þann hljóm-
burð sem er í Festival Hall.
Þessi tiltekna tónleikahöll er
hins vegar búin sérhönnuðum og
óekta endurvarpsbúnaði. Gripið
hefur verið til svipaðs ráðs í
Barbican-menningarmiðstöðinni
til þess að bæta hljómburðinn.
Hvar er eiginlega orðið hægt að
njóta „ómengaðs" hljómburðar í
þessu landi?
Það er viðurkennd staðreynd,
að hin venjulega svarta hljóm-
plata, sem notuð er í dag, skilar
lélegri hljómi en er að finna á
frumupptökunni. Sérfræðingar
sérritanna um hljómburðar-
tækni virðast aftur á móti sam-
mála um, að nánast sé útilokað
að heyra muninn á hljómgæðum
frumupptökunnar og hinnar
nýju Compact Disc-plötu.
Við allar upptökur er gerður
samanburður á frumupptökunni
og því, sem síðan skilar sér í
bestu greiningartækjum hljóð-
versins. Munurinn er iðulega
óverulegur. Við digital-upptöku
er útilokað að heyra muninn.
Þessi röksemd kemur þv< ekki
heim og saman við þann mál-
flutning, að muninn á upptökun-
um megi rekja til hljóðnemanna,
sem notaðir eru við upptökurn-
ar. Vissulega gefa digital-
upptökur þá nákvæmni í hljóm-
burði, sem hingað til hefur
reynst ógjörningur að ná fram.
Mér leikur því hugur á að vita til
hvaða bragða framleiðendur há-
talara hafa gripið til þess að
bæta upp missi vissra „toppa“ í
tónlistinni. Nú þegar digital-
tæknin hefur rutt sér til rúms
kemur í ljós, að hátalararnir
skila allt of hvellum hljómi.
Kannsi er það svo, að með digi-
tal-tækninni hefur loks tekist að
ná til fullnustu hljómi sin-
fóníuhljómsveitar tuttugustu
aldarinnar með öllum sínum
blæbrigðum.
Félagar mínir og ég bíðum
spenntir eftir framvindu mála
með Compact Disc-plötuna. Al-
menningi mun þá loks gefast
kostur á að hlýða á hin sönnu
tóngæði upptaka nútímans, rétt
eins og hann væri með frum-
upptökuna í segulbandinu sínu í
dagstofunni.
Hinn nýi lasergeisla-plötuspilari
og Compact Disc-hljómplatan.
KVÖLDSÝNING
fimmtudag
Nú breytum við til og höldum bílasýningu
til klukkan 10 í kvöld.
fÝJA BÍLA:
tezda323
,„„626
(MAZDA 929 erþvt
miður uppseldur)
SÝNUM:
i kiOTAÍ
Uiv ,
notaðabila- Mda
mánaðaábyrgSogahagsi
rnau Ara Ekmn
Árg
Gerð '83
626 1600 4ra dyra ð2
323 Saloon 4ra dyra -ð1
323 GT 3|a dyra go
626 1600 4ra dyra
Ekinn
8000
7000
9900
19000
19000
36000
26000
37000
í26 Ibuu —“
verð notaðra
BÍLABOfíGHF
5r,iðshötða 23 sm«
Fólksbíll/Stationbíll
Nýr framdrifinn MAZDA 626
5 dyra Hatchback
margfaldur verðlaunabíll.
Vél 102 hóDIN
Vidbragð: 0-100 km 10 4 sek
Vindstuðuil: 0.35
Farangursgeymsla 600 litrar
m/niðurfelldu aftursæti
Bensineyðsla: 6.3 L/100 km á 90 km hrada
Hestamót Geysis:
Stúlkurnar voru
atkvæðamiklar í
unglingakeppninni
Hestar
Valdimar Kristinsson
HELGINA 9.—10. júlí hélt hesta-
mannafélagið Geysir í Rangárvalla-
sýslu sitt árlega hestamannamót.
Agætis veður var báða dagana og
þátttaka góð.
Að sögn forráðamanna mótsins
tókst mótið vel í alla staði og at-
hygli vakti hversu margir þátttak-
endur voru í unglingakeppninni.
Eins og einkunnir bera með sér
voru gæðingar í B-flokki mjög
góðir og A-flokks hestar svona í
meðallagi. í kappreiðum var
árangur frekar slakur á lands-
mælikvarða en góður miðað við að
aðeins mættu innanfélagshestar
til leiks.
Úrslit urðu sem hér segir:
A flokkur gæðinga:
1. Sproti frá Ási, Hegranesi, eigandi
Dofri Eysteinsson, knapi Páll B.
Pálsson, einkunn 8,06.
2. Harpa frá Kúskerpi, eigandi og
knapi Þormar Andrésson, einkunn
8,01.
3. Nanna frá Heilu, eigandi Lárus Jón-
asson, knapi Páll B. Pálsson, ein-
kunn 7,96.
B-flokkur gæóinga:
1. Skjóni frá Ey, eigandi Gunnar
Karlsson, knapi Trausti Þór Guð-
mundsson, einkunn 8,52.
Snækollur Þorvaldar Ágústssonar varð í þriðja sæti í B-flokki gæðinga með
8,40 í einkunn. Það er Þorvaldur sem situr hestinn.