Morgunblaðið - 21.07.1983, Síða 48
BÍLLINN
BlLASALA SIMI 79944 SMIOJUVEGI 4 KORAVOGI
HlRTÆKI &
FASTEIGNIR
Laugavegi 18 - Sími 25255
Seljum: íbúöarhúsnæöi, tyrirtæki,
verslanir og atvinnuhúsnæöi.
FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1983
Seyðisfjörður:
30 stiga
hiti
í gær
Seydiafirdi, 20. júlí.
ÞEGAR Seyðfirðingar vöknuðu
í morgun var hér rigningarvæta
og 8 stiga hiti og gekk svo til
fram undir hádegi, en þá stytti
upp og fór að hlýna verulega og
mældist hitinn þetta 22-25 stig
í forsælu. Sólin braust svo í
gegnum skýin um miðjan dag
og hlýnaði þá enn svo um mun-
aði. Er ekki fráleitt að ætla að
þegar heitast var hafi hitinn
verið þetta 28-30 stig.
Gífurlegur fjöldi fólks var hér
í bænum í dag, þar sem 700
manns komu með bílferjunni
Norröna og um 600 manns fóru
út með skipinu. Auk þessa var
fjöldi fólks að taka á móti eða
fylgja farþegum til skips. Allur
þessi fjöldi sameinaðist þeim
liðlega 1.000 íbúum sem Seyð-
isfjörð byggja og var gaman að
fylgjast með iðandi mannlífinu
sem setti svip sinn á bæinn
þennan fagra dag og kunnu víst
allir vel að meta veðurblíðuna,
léttir í klæðum og léttir í lund.
Það sem af er sumri hefur tíð-
arfarið hér verið með eindæm-
um gott, sólríkt og hlýtt og er
fólk orðið kaffibrúnt og sællegt
á svip.
Fréttaritari
■
Hrefnuskurdur á Brjánslæk
Hrefnuveiðarnar frá Brjánslæk á Barðaströnd hafa gengið afar illa
það sem af er vertíðinni í ár vegna stöðugrar vestanáttar og brælu á
miðunum. Hrefnubátarnir tveir, sem gerðir eru út frá Brjánslæk,
hafa veitt helmingi færri hrefnur en venjulega á þessum tíma. Mynd-
in var tekin aðfaranótt síðastliðins þriðjudags eftir að bátarnir
höfðu komið með fjórar hrefnur að Brjánslæk og starfsmenn Flóka
hf. unnu að því að skera dýrin. Þeir eru þarna að undirbúa drátt
einnar hrefnunnar upp í vinnslustöð Flóka hf.
Sjá einnig frásögn á bls. 34 í blaðinu í dag.
Auglýsing í Lögbirtingablaðinu:
SÍS-verksmiðjur
á nauðungaruppboð
Miklir erfiðleikar, en vanskilin hafa verið gerð upp,
Sigurður Friðriksson hjá Iðnaðardeild Sambandsins
segir
Sérstæd uppákoma
Morgunblaðið/Björn.
Ölafsvík, 20. júlf.
LEIKFLOKKURINN Svart og sykurlaust lék listir sínar á götum Ólafsvíkur
á mánudag í blíðskaparveðri.
Þessi sérstæða uppákoma þótti skemmtileg og vakti einstaka hrifningu
yngstu kynslóðarinnar. — Helgi
ÞRJÁR Sambandsverksmiðjur á Akureyri voru auglýstar til sölu á nauð-
ungaruppboði í Lögbirtingablaðinu þriðjudaginn 19. júlí, að kröfu Iðnlána-
sjóðs. Hér er um að ræða Fataverksmiðjuna Heklu, með tilheyrandi lóð og
mannvirkjum, verksmiðjuhús Gefjunar og Skinnaverksmiðjuna Iðunni,
með tilheyrandi lóð og mannvirkjum. í samtali við Morgunblaðið í gær
sagði Sigurður Friðriksson, aðstoðarframkvæmdastjóri Iðnaðardeildar SÍS,
að vanskilin hefðu nú verið gerð upp.
„Iðnaðardeild Sambandsins hef-
ur átt við gífurlega greiðsluerfið-
leika að etja, að vísu hefur
greiðslustaðan batnað að undan-
Cirkus Arena:
Enginn söluskattur
Í’IRKUS ARENA hefur fengið
söluskatt felldan niður af sýning-
um sínum og var ákvörðun um það
tekin í maímánuði síðastliðnum,
samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk hjá Höskuldi
Jónssyni, ráðuneytisstjóra í fjár-
málaráðuneytinu í gær.
Sagði Höskuldur að ekkert
nýtt væri í því máli. Heimildir
til niðurfellingar söluskatts á
sýningarstarfsemi allskonar
hefðu verið rýmkaðar á seinustu
mánuðum liðins árs og á fyrstu
mánuðum þessa árs. Til dæmis
hefði dávaldurinn Frisinette,
sem sýndi hér fyrir nokkru,
fengið söluskattinn felldan
niður.
„Sýningin sem þarna er á ferð-
inni er á lítinn hátt frábrugðin
þeim sýningaratriðum sem þar
voru á ferðinni og hafa oft verið
að undanförnu," sagði Höskuld-
ur. Sagði hann að söluskatts-
heimildin hefði verið rýmkuð í
tíð Ragnars Arnalds, fyrrver-
andi fjármálaráðherra.
Varðandi það hvort búið hefði
verið að gefa umboðsmanni
Cirkus Arena vilyrði fyrir niður-
fellingu söluskatts, sagði Hös-
kuldur, að umboðsmaður fjöl-
leikahússins hefði gengið á fund
fráfarandi fjármálaráðherra og
sent bréf I apríl eða maí og hefði
ákvörðun um niðurfellingu sölu-
skatts vegna sýninga Cirkus Ar-
ena verið tekin í maímánuði.
förnu með bættri afkomu fyrir-
tækisins, en á hinn bóginn er stað-
an alltaf erfiðust á þessum árs-
tíma vegna birgðasöfnunar," sagði
Sigurður. Hann sagði þessa
birgðasöfnun hafa verið hvað
mesta í skinnaiðnaði vegna þess,
að þar yrði að fjármagna öll gæru-
kaup á einu bretti. Þá væri sölu-
tími ullarinnar einkum síðari
hluti ársins. Þetta væri ástæða
þess að greiðslustaða fyrri hluta
ársins væri slæm. „En við erum I
skilum við stofnlánasjóði," sagði
Sigurður.
Hann sagði að horfurnar væru
mjög góðar í ullariðnaði en ekki
eins í skinnaiðnaði. Tískan hefði
þar haft sitt að segja, auk góðs
veðurfars og erfiðs efnahags-
ástands í Evrópu síðastliðinn vet-
ur. „Okkur hefur þó tekist að
mæta þessu með fullvinnslu
skinnanna hér heima, sem síðan
eru seld úr landi sem fullunninn
mokkaskinn eða fullunnar kápur,“
sagði Sigurður og nefndi til dæmis
stóran samning, sem gerður var á
dögunum, um sölu á 10 þús. kápum
til Sovétríkjanna. Hann bætti því
að lokum við, að í fataiðnaði, sem
er þriðja framleiðslueining Iðnað-
ardeildar SÍS, væru horfurnar
mjög slæmar. Þar er einvörðungu
framleitt fyrir innanlandsmarkað
og hefur iðnaðardeildin ekki farið
varhluta af þeim erfiðleikum sem
m.a. hafa lýst sér í því, að fjöldi
fyrirtækja hefur hætt starfsemi í
greininni á undanförnum misser-
Seiöarannsóknir
hefjast í ágúst
HINN árlegi seiöarannsóknarleiö-
angur Hafrannsóknastofnunar
hefst í upphafi næsta mánaöar.
Bjarni Sæmundsson og Hafþór
taka þátt í leiöangrinum og stendur
hann til loka ágústmánaöar.
Byggist leiðangurinn á rann-
sóknum á klaki og hvernig seið-
um fiskistofna við landið hefur
vegnað eftir hrygningu. Hafþór
kemur úr leigu frá Siglufirði um
mánaðamótin. Verður Hafþór i
rannsóknum á vegum stofnunar-
innar í einn og hálfan mánuð nú,
en ekki er til fé til frekara út-
halds hans.