Morgunblaðið - 28.07.1983, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1983
3
Jóhann Valbjörn Ólafsson
von á, og kom mér hreint ekkert á
óvart," sagði Stefán Már Ingólfs-
son, kennari, og bætti því við að
þeir hefðu ekki verið lægri né
hærri en venjulega.
Líst vel á þá
Arndísi Arnórsdóttur nema,
leist bara vel á skattana sína en
kvaðst ekki hafa verið búin að
gera sér neinar hugmyndir um þá
áður. Hún sagðist búast við svip-
uðum sköttum næsta ár, þar sem
hún hyggst halda áfram námi.
Eðlilegir
„Ég tel skattana í ár vera mjög
eðlilega, og er bara töluvert
ánægður með mína, enda svipaðir
Guðbjörg Jónsdóttir
og ég átti von á. Þetta er hlutur
sem maður verður að sætta sig
við,“ sagði Jóhann Valbjörn
Ólafsson, lögregluþjónn, er Morg-
unblaðsmenn menn trufluðu hann
við störf sín í Aðalstrætinu.
Hrifin af sköttunum
„Þetta voru góðir skattar og ég
er mjög hrifin af þeim,“ sagði
Guðbjörg Jónsdóttir verkakona, í
samtali við Mbl., og sagðist ekki
hafa átt von á svo lágum sköttum
sem nú. Hún vildi þó engu spá um
skattana næsta ár, en sjálfsagt
vonast hún, og eflaust fleiri eftir
því að skattarnir næsta ár verði
viðráðanlegir.
Islenskir aðalverktakar með hæst
álögð gjöld félaga á landinu:
Framkvæmdir á síð-
asta ári jukust um 100%
— segir Thor Ó. Thors framkvæmdastjóri
„SANNAST sagna hef ég ekki feng-
ið skattscöilinn ennþá. Eg sá þessa
tölu að vísu í blöðunum í morgun, en
skattseðill hefur ekki borist okkur
ennþá og ég get ekki sagt um þetta
neitt fyrr en ég hef fengið hann í
hendur og áttað mig á því hvernig
þessi niðurstaða er fengin.
Mér finnst þetta nokkuð há tala
og vil fá tækifæri til að bera hana
undir endurskoðanda fyrirtækis-
ins,“ sagði Thor Ó. Thors, fram-
kvæmdastjóri íslenskra aðal-
verktaka, en fslenskir aðalverk-
takar fá hæst álögð gjöld ís-
lenskra fyrirtækja eða rúmar 62,5
milijónir króna. Til samanburðar
er Samband íslenskra samvinnu-
félaga með í samtals álögð gjöld
rúmar 30 milljónir.
Aðspurður um skýringu á þess-
um háu gjöldum sagði Thor, að
hún gæti meðal annars verið sú að
framkvæmdir íslenskra aðal-
verktaka síðastliðið ár hefðu verið
miklar, raunar aldrei áður verið
meiri, hefðu aukist um um það bil
100%. Veltan á síðasta ári hefði
verið 34 milljónir dollara. Hækk-
un gjalda á milli ára gæti því að
hluta til verið eðlileg. Útlit væri
fyrir að framkvæmdir á vegum ís-
lenskra aðalverktaka á þessu ári
yrðu ekki minni.
Skákmótið í
Gausdal hafið
„ÞAÐ VERÐUR að segjast eins og
er, að okkur íslendingunum hefur
ekki gengið nógu vel í mótinu
fram til þessa," sagði Margeir Pét-
ursson, skákmeistari, í samtali við
Morgunblaðið í gær, en hann teflir
ásamt Hilmari Karlssyni á alþjóð-
legu skákmóti í Noregi sem nefn-
ist „Gausdals Young Masters".
Eftir fjórar umferðir eru þeir
Margeir og Hilmar með 2 vinninga
hvor, en Svíinn Bator er efstur
með 4 vinninga.
ísafjörður:
Ú t hafsr ækj u v eið-
in gengur vel
„Úthafsrækjuveiðin hefur gengiö
ágætlega í sumar, en hún er heldur
tregari um þessar mundir en fyrr í
sumar,“ sagði Theodór Norðkvist,
framkvæmdastjóri Rækjuverksmiðj-
unnar O.N. Olsen hf. á ísafirði, í
samtali við Mbl.
„Nú koma þeir 25—30 bátar er
stunda veiðarnar flestir annars
staðar frá með 4—6 tonn, en höfðu
landað 10—12 tonnum áður. En
við gerum okkur vonir um að veið-
in glæðist á ný í ágúst, enda hefur
sá mánuður oft reynst góður,"
sagði Theodór. Hann sagði enn-
fremur að nú væru allar 7 rækju-
verksmiðjurnar við ísafjarðardjúp
starfræktar, en hann ræki ekki
minni til þess að það hefði gerst
áður á þessum tíma. Því væri ljóst
að veiðarnar hefðu gengið talsvert
betur í sumar en í fyrra og væri
vonast til þess að stóru bátarnir
gætu verið við úthafsrækjuveiðar
fram í október.
„Þessi góða veiði hefur verið
mikil búbót fyrir plássið og er at-
vinnuástand gott. Hins vegar má
ekki hleypa of mörgum bátum á
rækjumiðin sökum hættu á of-
veiði, en við treystum fiskifræð-
ingum til að hafa eftirlit með veið-
unum,“ sagði Theodór. Hann bætti
því við að í Bandaríkjunum hefðu
rækjumið verið eyðilögð með of-
veiði og því yrði að fara varlega
hér.
11 milljóna aðstöðugjald Tónlistarfélagsins:
Hlýtur að vera
misskilningur
— segir framkvæmdastjóri félagsins
„Þetta virðist nú vera ansi broslegt í
fyrstu. Þó gott sé að vera milli þessara
ágætu félaga, þá er hér er um algeran
misskilning að ræða, það hljóta að vera
einhver mistök í þessu,“ sagði Haukur
Gröndal, framkvæmdastjóri Tónlistar-
félagsins í samtali við Morgunblaðið í
gær, en Tónlistarfélagið er annað hæst
í álögðum aðstöðugjöldum lögaðila f
Reykjavík, fær í aðstöðugjald rúmar 11
milljónir króna. Fyrir ofan er Samband
íslenskra samvinnufélaga með um 15
milljónir og næst á eftir Tónlistarfélag-
inu koma Flugleiðir með tæpar 7 millj-
ónir.
Haukur sagðist hafa verið að
reyna að ná í varaformann félagsins,
Ólaf Þorgrímsson, en hann er í
sumarfríi. Málið væri í athugun, en
þarna hlyti að vera um misskilning
að ræða. „Þetta getur ekki verið.
Starfsemi Tónlistarfélagsins er fólg-
in í því að vera með tónleikahald yfir
vetrarmánuðina, tíu talsins, og það
er menningarstarfsemi sem gefur
ekki af sér neinar tekjur. Svo á Tón-
listarfélagið Tónabíó og Tónlistar-
skólann í Reykjavík og það er nú
eins og allir vita að það gengur ekki
vel hjá bíóunum. Við hljótum því að
kæra þetta,“ sagði Haukur ennfrem-
ur.
Útgerðarmaður efstur
HÉR koma hæstu einstaklingar og
fyrirtæki í skattumdæmi Vesturlands,
en ekki tókst að afla upplýsinga um
þá í gær.
Hæstu einstaklingar: kr.
1. Zophanias Cecilsson, útgerðarmaður
í Grundarfirði 702.355.000
2. Stefán Sigurkarlsson, apótekari,
Akranesi 552.929.000
3. Guðrún Ásmundsdóttir, kaupkona,
Akranesi 504.827.000
4. Ása Björnsdóttir,
Hvítárvöllum 458.668.000
5. Bragi Níelsson, læknir,
Akranesi 350.999.000
Hæstu fyrirtæki: millj.
1. Kaupfélag Borgfirðinga,
Borgarnesi 4.611.232
2. Olíustöðin, Hvalfirði 4.136.542
3. Haraldur Böðvarsson og Co.,
Akranesi 2.046.341
4. Hvalur hf., Hvalfirði 1.856.052
MorgunblaAift/ Ól.K.Mag.
Það hefur ekki oft gerst
sunnanlands í sumar að
lögreglumenn hafi unnið
störf sín jafn fáklæddir og
þessi lögreglumaður í mið-
bænum í Reykjavík í gær.
KVÚLDSÝNING
fimmludatp
Nú breytum vid til og höldum bílasýningu
til klukkan lOíkvöld. __
SÝN UM‘.
I notaðabi Ma2da
GiæsUegt unrdbí n . ffled 6
bflUtnða 'tevrga°3á hagstæðUVeI '
rnánaða anyiy Arg Ekmn
PICKUP
29 er Því
iseldur)
Árg
Gerð 83
929 Station beinskiptur 82
929 LTD 4ra Y ^„^ptur 82
929 SDX 4ra V inskiptur 82
929 LTD 2|a dyra o
626 1600 4ra dyra 62
323 Saloon 4ra dyra -81
323 GT 3ia dyra '80
626 1600 4ra dyra
ERurn
8000
7000
9900
19000
19000
36000
26000
37000
i26 1600 4ra
SZSáiQHI
fÍ"öshölða23 s.m. 812 9
Fólksbíll/Stationbíll
Nýr framdrifinn MAZDA 626
5 dyra Hatchback
margfaldur verðlaunabíll.
Vél 102 höDIN
Vidbragd 0-100 km 10.4 sek
Vindstudull: 0.35
Farangursgeymsla: 600 lítrar
m/mðurfeUdu aftursæti
Ðensineydsla: 6.3 L/100 km á 90 km hrada