Morgunblaðið - 28.07.1983, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1983
Síríus
- þótt annað bregðist
jmqi s SflÐflafls
Hreint súkkulaði fyrirsælkera
Fjölskyldulíf
á Keflavíkur-
flugvelli
HVERNIG ætli það sé að búa á afmörkuðum skika í ókunnugu
landi með takmarkað ferðafrelsi og tengjast jafnvel starfi sem
valdið hefur deilum meðal heimamanna? Þessar spurningar lögðum
við fyrir 4 bandarískar konur sem búa á Keflavíkurvelli, og eru allar
giftar mönnum sem á einhvern hátt tengjast varnarliðinu.
Fyrsta konan, sem Mbl. hafði
tal af, heitir Teresa Donehue
Quimby, en maður hennar rekur
ýmsa klúbba og veitingastaði fyrir
bandarísku hermennina, s.s.
Foringjaklúbbinn (The Officers’
Club). Teresa fluttist hingað fyrir
rúmu ári ásamt manni sínum og
syni, en nú eiga þau einnig 9 mán-
aða gamla dóttur sem fæddist á
íslandi.
„Hef lært mikid
á dvöl minni hér“
„Ég hef lært mikið á dvöl minni
hér og aðlagast íslenskum aðstæð-
um, en hefðirðu talað við mig fyrir
sex mánuðum hefði hljóðið verið
annað,“ sagði hún, en bætti því við
að enn væru nokkrir þættir dag-
legs lífs hér sem hún ætti í erfið-
leikum með að sætta sig við,
þ.á m. veðrið, og þá sérstaklega
rokið sem Suðurnesjamenn fá
sennilegast vænan skammt af.
Teresa er fædd og uppalin í
Suður-Karólínuríki og flutningur-
inn til íslands var fyrsta ferðin
hennar að heiman. „í fyrstu var ég
fremur neikvæð og gekk erfiðlega
að aðlaga mig, en fljótlega sá ég
að það væri miklum mun auðveld-
ara að gera það besta úr hlutunum
hér með jákvæðu hugarfari og eft-
ir að ég gerði það upp við mig,
hefur lífið gengið ágætlega og
okkur líður mjög vel hérna." Varð-
andi samskipti sín við íslendinga,
sagðist Teresa sækjast eftir öllum
tækifærum til að kynnast heima-
mönnum og kvað þau hjónin fara
oft á veitingastaði í Reykjavík og
jafnvel á skemmtistaði. „íslend-
ingar eru mjög hreinskilnir og ég
er enn að venjast þeim eiginleika,
og þegar þeir drekka, láta þeir allt
flakka." Annars sagðist hún ekki
fá eins mörg tækifæri til að kynn-
ast íslendingum og hún vildi, en
sagði þó að þau hefðu eignast
nokkra islenska vini.
„Þegar ég kom, var ég ákveðin í
að læra íslensku, en ég missti af
báðum námskeiðunum sem haldin
Morgunbl.: Þór ÖlifsMon.
Sigurvegari í SE-flokki varð Svavar Magnússon á bifreiðinni Camaro árgerð
1969. Hér stendur hann ásamt börnum sínum við fararskjóta sinn.
Keppt í öll-
um flokkum
— í annarri kvartmflukeppni sumarsins
ÖNNUR kvartmflukeppni sum-
arsins var haldin á kvartmflu-
brautinni sunnan Hafnarfjarðar á
laugardaginn. Keppt var í öllum
flokkum og var fjöldi farartækja
mættur til leiks.
í flokki götubfla (SE flokkur)
sigraði Svavar Magnússon á
327cc Camaro en annar varð Ás-
geir Ásgeirsson á Barracuda 340
cc.
í keppni í Standard-flokki
varð Gunnlaugur Emilsson
hlutskarpastur en hann ók 440
Charger. Annar varð Lórens
Þorgeirsson á Camaro 350. í
MS-flokki sigraði Ásmundur
Guðmundsson en hann ók á 440
Challanger og í öðru sæti varð
Örn Jóhannsson á 327 Nova.
Þá var einnig keppni í mót-
orhjólaflokki og sigraði í þeim
flokki Jón Halldórsson á Susuki
RM 500 en annar varð Guðberg-
ur Guðbergsson, en vélfákur
hans var einnig af gerðinni Sus-
uki RM 500.