Morgunblaðið - 28.07.1983, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1983
„íþróttin byggist á
því að nýta skilyrðin
og vera fljótur að því“
— rætt við Garðar Gíslason sem nýlega flaug svifflugu sinni rúma
250 km og setti innanlandsmet
INNANLANDSMET í langflugi á
svifflugu var sett sunnudaginn 17.
júlí sl. er Garðar Kíslason, tann-
laknir og svifflugmaður, flaug
250,2 km og bætti þar með eldra
innanlandsmet í svifflugi um rúma
66 km. Kldra metið átti Sigmundur
Andrésson, en hann setti það í júní
á þessu ári og hafði þá innan-
landsmet Þórðar Hafliðasonar í
langflugi staðið óhreyft í tæp 16 ár,
en Þórður flaug 172,5 km í ágúst
1%7. Sviffluga Garðars er af gerð-
inni LS3—17 og er að sögn kunn-
ugra hinn mesti kjörgripur og
munu svifflugur af þessari gerð
vera notaðar á hinum alvarlegri
mótum erlendis svo sem heims-
meistarakeppnum. Svifflugan hef-
ur 15 metra vænghaf en hægt er að
koma fyrir framlengingu á væng-
ina þannig að hún fái 17 metra
vænghaf og hefur hún þá renni-
gildið 1 á móti 45.
Upphaflega var flugáætlun
Garðars að fljúga frá Sand-
skeiði, og að Kirkjubæjar-
klaustri, þar sem stóð til að snúa
við og fljúga til baka að Sand-
skeiði. Með því að framfylgja
þessari áætlun hefði Garðari
tekist að fljúga um 340 km og
þar með tekist að fá þá gráðu
sem kallast Gull C, en þá viður-
kenningu öðlast þeir svifflug-
menn sem geta flogið 5 klst. þol-
flug, 300 km yfirlandsflug og
hækkað sig upp um 3.000 metra
eftir að hafa sleppt dráttartaug-
inni.
Garðari tókst ekki að ná þessu
takmarki að þessu sinni en tókst
samt að fljúga 250,2 km og þar
með lengra en áður hefur verið
gert hér á íslandi á svifflugu.
Morgunblaðið átti viðtal við
Garðar um flugferðina í tilefni
þessa afreks hans.
„Upphaflega stóð til með
þessu flugi að fljúga yfir 300 km
og ná þar með i Gull C,“ sagði
Garðar. „Það eru þrír íslend-
ingar sem hafa náð þessum
áfanga en þeir hafa allir flogið
yfirlandsflugið erlendis. Hér á
Islandi er mjög erfitt að ná þess-
um áfanga því til að geta flogið
yfir 300 km, þurfa menn að
fljúga í gegnum svo mörg mis-
munandi veðrasvæði og það ger-
ir þeim mjög erfitt fyrir. Þess
vegna hefur þetta aldrei verið
gert hér á landi.“
Fjallabylgja skilaði flug-
unni í 20 þús. feta hæð
Garðar var dreginn á loft við
Sandskeið um kl. 12.30 og sleppti
hann dráttartauginni í 600
metra flughæð yfir Sandskeiði.
„Þegar ég hafði verið dreginn á
loft þurfti ég að leita að upp-
streymi sem gæti skilað mér upp
í meiri hæð. Ég var svo heppinn
að finna hitauppstreymi, eftir
nokkra leit, sem gat skiiað mér
upp í fjallabylgju sem ég leitaði
að norðan við Hengil. Ein kúnst-
in við þessa íþrótt er að skilja
veðrið og vindana og þarna fann
ég fjallabylgju, sem skilaði mér
upp í 20 þúsund fet úr 8 þúsund
fetum. Það tók mig ekki nema
um 40 mínútur að klifra upp í
þessa hæð sem þýðir að ég hafi
hækkað mig um 300 fet á mín-
útu. Það er mjög skýtið að fljúga
á svona fjallabylgjum því það er
ekkert sem gefur til kynna að
maður sé að fljúga, einungis
mælarnir gefa til kynna að
svifflugan hækki sig. Hins vegar
er nauðsynlegt að hafa á sér súr-
efni þegar komið er upp í þetta
mikla hæð og ég hafði sett á mig
súrefnið í 13 þúsund feta hæð.
Birgðirnar sem ég hafði með-
ferðis af súrefni voru ekki mikl-
ar og það gekk ört á þær og því
veigraði ég mér við að fara
hærra, en það hefði vel verið
mögulegt því bylgjan var það
góð. Ég tók því þá ákvörðun að
renna mér austur og svífa austur
að Tindfjöllum þar sem ég bjóst
vð að finna nýja bylgju. Það tók
mig um 20 mínútur að svífa að
Tindfjöllum frá Hengli svo hrað-
inn hefur verið allmikill því það
er um 90 km vegalengd frá
Hengli að Tindfjöllum.
Ekki virðast vera rúmir 250 km á milli puttans og pennans. En hvað sem því
líöur þá flaug Garðar þar á milli og reyndist það 250,2 km leið. Mbl./Guðjón.
Garðar lenti á túninu ( Kvískerjum ( Öræfum og tóku þar á móti honum
bræðurnir Sigurður og Helgi Björnssynir. Félagi Garðars, Gunnar Arthurs-
son, sótti hann svo á flugvél sem þeir félagar eiga í sameiningu.
Ljósm. Gunnar Arthursson.
Garðar (svifflugu sinni yflr Eyjafjallajökli á leiðinni til baka eftir að dráttar-
taugin hafði slitnað milli hans og flugvélarinnar sem dró hann. Ómar Ragn-
arsson kom þar aðvífandi og tók þessa mynd.
Við Tindfjöll var bylgju að
finna eins og ég bjóst við en hún
var frekar dauf og lítið á henni
að græða. Ég hafði misst um 500
feta hæð við að renna mér frá
Hengli að Tindfjöllum og því var
ekki annað að gera en að finna
nýja bylgju og ákvað ég því að
fara austar og leita þar að betra
uppstreymi.
„Eins og aö horfa
á helviti“
Ég sveif því að Mýrdalsjökli
og norðan hans lenti ég í miklu
niðursteymi og missti um 2.000
fet á þremur mínútum. Þar fyrir
neðan var svo Mýrdalssandurinn
og þar skóf sandinn svo upp að
það var eins og að horfa á helvíti
fyrir neðan sig. Mér var hins
vegar vandi á höndum þar sem
ég var kominn í svona mikið
niðurstreymi og ég þurfti að
ákveða hvort halda skyldi áfram
eða snúa til baka til þess staðar
sem síðast fannst uppstreymi.
Ég ákvað samt að halda áfram
því ég taldi að þetta væri niður-
streymi sem sigldi í kjölfar upp-
streymis og sú ályktun mín
reyndist rétt. Við Torfajökul
kom ég í uppstreymi og á næstu
25 mínútum klifraði ég úr 12
þúsund feta hæð í 16.500 feta
hæð.
Þá tók ég þá ákvörðun, að í
stað þess að snúa við á Kirkju-
bæjarklaustri og fara til baka,
að reyna að komast eins langt
frá Sandskeiði og mögulegt væri.
Um kl. 15.15 var ég í 11 þúsund
fetum yfir Kirkjubæjarklaustri
og í stað þess að snúa við hélt ég
Tal og Romanishin flétta
Nýlega lauk í Jurmala í Sovét-
lýðveldinu Lettlandi öflugu alþjóð-
legu skákmóti þar sem sovézki
stórmeistarinn, Oleg Romanishin,
sigraði með yfirburðum. Hann
hlaut hvorki meira né minna en
ellefu vinninga af þrettán mögu-
legum og var heilum þremur vinn-
ingum á undan næsta manni. Rom-
anishin er afskaplega frumlegur
skákmaður og oft hefur hann farið
flatt á því að reyna að framkvæma
hið ómögulega. En þegar hann nær
sínu bezta teflir hann allra manna
bezt og á mótinu í Jurmala leyfði
hann sér aðeins að gera fjögur
jafntefli en vann níu skákir.
Úrslit mótsins urðu þessi: 1.
Romanishin (Sovétríkjunum) 11
v. af 13 mögulegum. 2. Chandler
(Nýja-Sjálandi) 8 v. 3. Gipslis
(Sovétríkjunum) 7xk v. 4. J. Fern-
andez (Spáni) 7 v. 5.-8. Klovan,
Tal, Lerner og A. Petrosjan (allir
Sovétríkjunum) 6'/fe v. 9. Garcia
Skák
Margeir Pétursson
(Kúbu) 6 v. 10.—12. Dizdar
(Júgóslavíu), Kengis og Vitolins
(Sovétr.) 5(4 v. 13,—14. Lanka
(Sovétr.) og Pytel (Póllandi)
4'/i v.
Mikhail Tal, fyrrum heims-
meistari, á við vanheilsu að
stríða um þessar mundir eins og
sézt á árangri hans. Hinn 23ja
ára gamli Murray Chandler, sem
nú er búsettur í Englandi, var
vinningi frá því að ná þriðja og
síðasta áfanga sínum að stór-
meistaratitli. Gipslis gerði ellefu
jafntefli og vann tvær skákir og
hlýtur að vera ánægður því
skákstíll hans er fram úr hófi
hógvær. Þessi frammistaða
dugði til að ná þriðja sæti.
Þótt árangur Mikhails Tal sé
langt frá því sem aðdáendur
hans ætlast til, sveik hann þá
ekki alveg og hristi fallega fléttu
fram úr erminni í skák sinni við
neðsta mann mótsins:
Hvítt: Pytel (Póllandi)
Svart: Tal (Sovétríkjunum)
Enski leikurinn
1. Rf3 - c5, 2. c4 — Rc6, 3. Rc3 —
g6, 4. e3 — d6, 5. d4 — Bg7, 6. d5
— Re5,
Þessi leikaðferð hefur löngum
verið talin gefa svörtum erfiða
stöðu, en í skákinni Keene-Van
der Wiel, Árhúsum í sumar, fékk
svartur vissa sóknarmöguleika
eftir 7. Rxe5 - Bxe5, 8. 0-0 -
Rf6.
7. Rd2 - f5, 8. Be2 - Rf6, 9. h3
— e6, 10. f4 - R(7, 11. dxe6 —
Bxe6, 12. Bf3?!
Korchnoi lék 12. g4 í skák
sinni við Fischer á millisvæða-
mótinu í Sousse 1967.
12. - 0-0, 13. (W) - Hb8, 14. a4 -
d5!, 15. cxd5 — Rxd5, 16. Rxd5 —
Bxd5, 17. e4?! — Be6, 18. Dc2
18. e5 hefði verið svarað með
18. - g6!
18. - Dh4, 19. Rb3 - fxe4, 20.
Bxe4
20. - Rg5!, 21. fxg5 - Hxfl+, 22.
Kxfl — Hf8+, 23. Bf3
Eða 23. Kgl - Del+, 24. Kh2
— Hfl og mátar.
23. — Bc4+ og hvítur gafst upp
því eftir 24. Kgl — Del+, 25. Kh2
— Be5+ blasir mátið við.
Tal
Hvítt: G. Garcia (Kúbu)
Svart: Romanishin (Sovétríkjun-
um)
Giiinfeldsvörn
1. d4 — Rf6, 2. c4 — g6, 3. Rc3 -
d5, 4. cxd5 — Rxd5, 5. e4 — Rxc3,
6. bxc3 - Bg7, 7. Rf3