Morgunblaðið - 28.07.1983, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1983
17
áfram í því skyni að fá sem
mesta vegalengd frá Sandskeiði.
Þá fór hins vegar að síga á
ógæfuhliðina og ég tók að missa
hæð. Þá sá ég bylgjuský við
Skaftárjökul og ákvað að reyna
að komast í það uppstreymi sem
þar var að finna. Til þess að
komast þangað þurfti ég að
fljúga upp í vindinn um 25 km
leið. Gekk það ljómandi vel, en
íþróttin byggist á því að nýta
skilyrðin og vera fljótur að því.
Leitað að lendingarstað
Við Skaftárjökui fann ég svo
uppstreymi eins og mig hafði
grunað og tókst mér að klifra
upp í 10 þúsund feta hæð og
komast jafnframt austur að
Skeiðarárjökli. Þaðan sveif ég
síðan austur að Öræfajökli og
þegar þangað kom var hæðin
orðin um 4.000 fet því ég hafði
lent í niðurstreymi af jöklinum.
Þegar kom fram fyrir Oræfajök-
ul lenti ég í ókyrru lofti en þarna
var gífurlegt niðurstreymi en
einnig mikið uppstreymi. Þegar
kom að Fagurhólsmýri var hæð-
in ekki nema 3.000 fet og því
freistandi að lenda á flugveilin-
um sem þar er. Ég flaug samt
áfram og lenti í hitauppstreymi
sem kom mér upp í 4.000 fet á
nýjan leik og jafnframt 15 km til
viðbótar. Þegar hér var komið
sögu ákvað ég að velja mér góða
grasflöt til að lenda á í stað þess
að freista þess að halda áfram.
Ég gaf mér góðan tíma til að
velja lendingarstaðinn og lenti
loks kl. 16.40 á Kvískerjum í Ör-
æfum. Þar tóku þeir sem þar
búa, þeir Sigurður og Helgi
Björnssynir, á móti mér og
kváðu það ekki sjaldgæft að fá
flugvélar til lendingar á túnið
hjá sér. Þeir voru einnig strax
með á nótunum með að þarna
hefði verið sett met því þeir
sögðu við mig að nú hefði ég
slegið met Sigmundar.
Þar dvaldi ég síðan þar til fé-
lagi minn, Gunnar Arthursson,
kom á flugvél í því skyni að
draga mig til baka.
Það má segja að yfirlandsflug
sem þetta sé miklu meira en það
eitt að fljúga sem lengst frá upp-
hafspunktinum. Þegar maður er
lentur er bæði eftir að koma
sjálfum sér heim og svifflugunni
og því er gott að eiga góða að. Ég
held líka að mér sé óhætt að full-
yrða að ekki vanti velvildar-
menn. Bæði er það að félagar
mínir í Svifflugfélaginu og fjöl-
skylda mín hafa stutt mig og
hvatt og það væri ómögulegt að
standa í þessu án þess að hljóta
uppörvun," sagði Garðar.
Á hæðarmet einnig
Garðar setti einnig annað met
í svifflugi í mánuðinum. Hann
setti hæðarmet í flugi fjölsæta
svifflugu, fimmtudaginn 14. júlí
ásamt Jóni Kristni Snæhólm.
Þeir flugu tveggja sæta svifflugu
upp í 4.800 metra hæð. Garðar
sagði að upphaflega hefði verið
lagt upp í þetta flug í gamni.
„Við ákváðum að setja hæðar-
met á fjölsæta svifflogu og viss-
um að það yrði alveg sama
hversu hátt við færum, við
fengjum það skráð sem met. Það
vill nefnilega þannig til að ekki
hefur verið skráð neitt hæðar-
met í slíku flugi hér á landi.
Hins vegar vildi svo skemmti-
lega til að við Jón náðum þetta
mikilli hæð. Við höfðum ekki
reiknað með að ná svona hátt og
vorum því ekki með súrefni með
okkur. Það er þó sennilegt að
ekki hafi verið flogið hærra í
fjölsæta svifflugu hér á landi.
Það er hins vegar rétt að taka
það fram að þetta hæðarmet
okkar Jóns hefur ekki enn fengið
staðfestingu Svifflugsnefndar
Flugmálafélags íslands, en það
væri gaman ef af því yrði,“ sagði
Garðar Gislason, innanlands-
methafi í langflugi á svifflugu,
að lokum.
— kjs.
Tilbúinn að fara í loftið. Methafinn gefur sér samt tíma til að láta smella af
sér einni mynd áður en haldið er af stað. Ljósm. Mbl./Guðjón.
Romainshin
Þessi leikmáti hefur reynst
hvítum vel undanfarin ár og hef-
ur leitt til þess að margir Grun-
felds-sinnar hafa leitað á önnur
mið.
7. — c5, 8. Be3 — Da5, 9. Dd2 —
0-0, 10. Hbl — Rd7,11. Bd3 — b6,
12. (H) - Bb7, 13. Hb5?
Upphafið á vafasömum peða-
veiðum. Eðlilegra var 13. Hfcl.
13. — Da4, 14. dxc5 — Hfd8!, 15.
Hdl — Bc6, 16. Hb4? — Bxc3!, 17.
Dcx3 — Dxdl+, 18. Bfl — bxc5,
19. Bh6 — RI6, 20. Dxc5 — Bxe4,
21. Dxe7 - Bxf3, 22. gxf3
111 nauðsyn. Ef 22. Dxf6 þá
Dxfl — og mátar.
22. — I)d6, 23. Bf8 — Dxe7, 24.
Bxe7 — Rd5, 25. Hb7 — Rxe7, 26.
Hxe7 og hvítur gafst upp án þess
að bíða eftir svari hvíts.
Vinsælustu bíltæki í heimi
1
■ '*M wm
*✓
KP4230 útvarpskassettutæki. FM/MW/LW.
PNS truflanaeyðir. Spilar báðum megin.
ATSC öryggiskerfi „Loudness” 6,5w.
Verðkr. 8.470.
KP3230 útvarpskassettutæki. Sambyggt,
FM/AM/LW. Hraðspólun í báðar áttir. Sjálf-
virk endurspilun.
Verðkr. 7.110.
KE4300 útvarpskassettutæki. FM/MW/LW.
Fast stöðvaval. ARC kerfi stjómar móttöku-
styrk. Spilar báðum megin. „Loudness”. 6,5
w. Verð kr. 12.230.
KE7800 útvarpskassettutæki. FM/MW/LW.
Fast stöðvaval. Lagaleitari. Spilar báöum
megin. ATSC öryggiskerfi. „Loudness”. 6,5 w.
Verðkr. 10.510.
BP320 kraftmagnari 2 x 20 w.
Verð kr. 2.300.
BP720 sambyggður kraftmagnari og tónjafn-
ari. 60—10.000 Hz. 20 w. „Echo”.
Verðkr. 7.290.
KP707G „Component”.
„Metal, Dolby” kassettutæki.
Tveir tónstillitakkar. „Loud-
ness”.
Verðkr. 9.660.
GM120 „Component”. 2x60 w
magnari. 30—30.000 Hz. Bjögun
0,4%.
Verð kr. 6.280.
TS-106 hátalarar, innfelldir, 20
w. Passa í flestar gerðir bif-
reiða.
Verð kr. 1.760 parið.
TS1611 hátalarar, niðurfelldir
„Coaxial”. Tvöfaldir.
Verðkr. 1.060.
KP313G „Component". „Metal
Dolby” kassettutæki. Tveir
tónstillitakkar. „Loudness”.
Sjálfvirkur lagaleitari.
Verðkr. 8.720.
«1
' GEX 63 útvarpskassettutæki.
FM/AM/LW. Tölvustýrður
móttakari. Fast stöðvaval.
APC móttökustyrksjafnari.
Verðkr. 11.080.
TSM 2 hátíðnihátalarar, still-
anlegir. Má líma á mælaborð.
450—20.000 Hz. 20 w.
Verðkr. 930.
GM4 „Component”. 2x20 w
magnari. 30—30.000 Hz. Bjögim
0,06%.
Verðkr. 2.780.
CD 5 tónjafnari, 7 banda. Jafn-
vægisstillir á 2 magnara og 4
hátalara. 60—10.000 Hz.
Verðkr. 4.790.
TS1644 hátalarar, niðurfelldir,
tvöfaldir, „Coaxial”. Sérstak-
lega þunnir (4 sm). 20—20.000
Hz. 25 w.
Verðkr. 1.810.
TS 2000 hátalarar „Cross-
Axial”, þrefaldir. Niðurfelldir.
30—21.000 Hz. 60 w.
Verðkr. 4.110.
TS 202 hátalarar, innfelldir,
tvöfaldir 20—20.000 Hz. 60 w.
Verðkr. 3.570.