Morgunblaðið - 28.07.1983, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1983
19
Sögulegt atvik á
listamarkaönum
Myndlíst
Bragi Ásgeirsson
Það skeði á málverkauppboði
hjá Sotheby-uppboðsfirmanu í
New York hinn 18. maí sl., að
boðnar voru upp myndir úr
safni iðnaðarfurstans H.O.
Havemeyer. Sá hafði á sínum
tíma haft hina nafntoguðu
listakonu, Mary Cassatt, sem
ráðgefanda við val mynda i safn
sitt. Ráð listakonunnar virðast
hafa dugað allvel því að safnið
fór á metupphæð. Þótt mynd-
irnar væru einungis 16 talsins
og allar undir meðalstærð seld-
ust þær fyrir upphæð, er sam-
tals nemur rúmlega 500 millj-
ónum ísl. króna. Hæst var boðið
í myndir Edgar Degas „L’Att-
ente“ (42,6x61 cm) pastel frá ca.
1882, er seldist á 3,7 milljónir
dollara, og Au Cafe-Consert:
„La Chanson du Chien", pastel
og gouache, máluð ca. 1875—’77,
er seldist á 3,4 milljónir dollara.
Þetta verð er algjört met
fyrir pastelmyndir Edgar Deg-
as (1834—1917) og fóru á tvö-
földu matsverði.
Til gamans má geta þess, að
hvor upphæðin mun duga til
kaupa á ca. 15—20 einbýlishús-
um af veglegustu gerð hér í
borg.
Það er sannarlega barist um
myndir meistaranna um þessar
mundir, en þess ber líka að geta
að aðsókn fer sívaxandi á söfn-
in, sem keppast auðvitað um að
geta boðið upp á sem áhrifmest-
ar myndir ...
Mynd Edgar Degas „L’Attente", er seldist á 3,7 milljónir dollara.
Frá uppboðinu hjá Sotheby f New York er mynd Degas „L’Attente” var
undir hamrinum.
Frá aöalfund-
um sýslunefnda
Austur- og Vestur-
Húnavatnssýslu
41. AÐALFUNDUR Sambands ís-
lenzkra rafveitna var haldinn á fsa-
firði 8.—9. sl. og sóttu hann 100 full-
trúar raforkufyrirtækja landsins og
fleiri aðilar segir í fréttatilkynningu
SÍR.
Meginefni fundarins var umræða.
Flutti Sigurður Lfndal prófessor
tölu um eignarrétt á landi og
orkulindum; en Tryggvi Sigur-
bjarnarson verkfræðingur og
Birgir Isleifur Gunnarsson stjórn-
armaður Landsvirkjunar fjölluðu
í sínum erindum um lagafrumvörp
um orkumál. Þá voru skipulags-
mál SÍR á dagsskrá fundarins.
Þar var einnig samþykkt að senda
iðnaðarráðuneytinu mótmæli
vegna „þeirrar ósamkvæmni, sem
fram hefur komið í aðgerðum
stjórnvalda, að taka fram í stjórn-
arsáttmála núvernandi ríkis-
stjórnar að gjaldskrá þjónustufyr-
irtækja skuli vera ákveðin af
sveitarfélögum og ákveða síðan
9,5% hækkun á raforkuverði til
allra rafveitna þegar þarfir þeirra
eru meiri hjá flestum en samt sem
áður mjög mismunandi."
Ennfremur var stjórn SfR kjör-
in og skipa hana: Aðalsteinn Guð-
johnsen, formaður, Halldór
Jónatansson, varaformaður, Garð-
ar Sigurjónsson, ritari, Kristján
Jónsson gjaldkeri, Jónas Guð-
laugsson og Sverrir Sveinsson.
Við bíðum þín við brúarsporðinn!
Nýja bensínstöðin okkar við Borgarfjarðarbrúna er á hárréttum stað.
Þú ekur um hlaðið hvort sem þú ert á norður- eða suðurleið.
bað er nóg af bílastæðum fyrir alla og fyrirmyndar þvottaplan.
Við bjóðum bensín, olíur, verkfæri, alls konar bifreiðavörur, gas, grillvörur og svo
auðvitað hressingu fyrir ökumenn, farþega og fótgangandi.
Við veitum þjónustu með bros á vör.
Shellstöðin Borgamesi