Morgunblaðið - 28.07.1983, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1983
29
Guðmundína Kristjáns-
dóttir — Minning
Fædd 18. febrúar 1903.
Dáin 12. júlí 1983.
Mig langar að minnast elsku-
legrar mágkonu minnar, Guð-
mundínu Kristjánsdóttur, með
nokkrum fátæklegum orðum. Ég
mun ávallt minnast hennar með
hlýhug, hún var mér einlægt svo
góð frá því að ég kynntist henni
fyrst er ég kom til Hólmavíkur
1937. Þá bjó hún sem ekkja á
Innra-Ósi við Steingrímsfjörð og
bróðir minn var starfandi hjá
henni. Hún hafði misst fyrri mann
sinn, Ingimund Magnússon frá
Hólum, eftir nokkurra ára sam-
búð.
Meðan Guðmundína bjó tók hún
oft börn til sumardvalar. öll
kunnu þau vel við sig hjá henni og
dvöldu mörg fleiri en eitt sumar,
en ég ætla að nefna sérstaklega
eitt þeirra. Guðmundínu var annt
um að láta því barni líða vel því að
sú stúlka var bæði mállaus og
heyrnarlaus. Se'inna sá ég mynd af
henni með barnið í fanginu. Ég
horfði lengi á myndina. í svip
Guðmundínu mátti lesa mikinn
kærleika og öryggi.
Guðmundína giftist bróður mín-
um, Sigurði Tryggva Arasyni, 10.
janúar 1946. Þegar þau ákváðu að
hætta búskap og flytja frá ósi,
voru þau í fyrstu óákveðin hvert
halda skyldi. Dreymir þá Guð-
mundínu að tengdamóðir hennar
komi til sín og segi: „Ég þarf ekki
að biðja þig fyrir Sigga minn. Þú
hefur tekið ákvörðun með hann.
En mig langar að biðja þig fyrir
hana Sillu mína, hún á svo erfitt."
Þetta varð til þess að þau fluttu til
Hafnarfjarðar og byggðu hús sitt
þar í næsta nágrenni við Sillu.
Silla, systir okkar Sigurðar, átti
tveggja ára barn, var nýbúin að
eignast tvíbura og var ekki vel
hraust. Guðmundína og Sigurður
voru þar um sumarið, Guðmund-
ína hjálpaði Sillu og allt fór vel.
Síðan hélst alltaf mikill vinskapur
á milli þeirra og Silla sagði oft við
mig: „Mikið þykir mér vænt um
hana Guðmundfnu. Hún hefur
alltaf verið mér og börnunum
mínum svo góð.“ Börnum hennar
þótti líka öllum vænt um hana, og
hélst sú vinátta til dauðadags.
Mágur minn, Ólafur Bergsveins-
son, sem var vinnupiltur á Stað í
Steingrímsfirði frá ellefu til fjór-
tán ára aldurs, hefur sagt mér frá
því, að hann var oft sendur þaðan
til Hólmavíkur, og þá lá leiðin um
hlaðið á ósi. Þar var honum jafn-
an vel tekið, og fékk hann bæði
mat og drykk. Drengir á þessum
aldri eru oft svangir, og hann
hlakkaði til að koma þangað, sagði
að þar byggju góðu konurnar,
Guðmundína og Sigurlína, móðir
hennar. Síðan hefur honum ávallt
verið hlýtt til þeirra.
Einnig vil ég minnast þess, að
þegar faðir minn var orðinn gam-
all og blindur, tóku þau hjónin,
ELDRI
BORQARAR
EIN VIKA
BROTTFOR 3. AGUST
Guðmundína og Sigurður, hann til
sín og var hann hjá þeim í nokkur
ár. Hann á sex dætur og engin
dóttirin hefði reynst honum betur
en tengdadóttirin, hún var honum
svo góð í alla staði, enda bar hann
mikla virðingu fyrir henni og þótti
mikið vænt um hana.
Síðasta ár Guðmundinu var
heilsan mjög slæm, en hún þráði
það mest að vera heima. Bróðir
minn reyndi að sinna henni eins
og hann gat, og hún var ánægð
með allt sem hann gerði. Var mik-
ill kærleikur á milli þeirra, enda
var samkomulagið alltaf gott. Síð-
ustu vikur ævi sinnar var Guð-
mundína á Sankti Jósefsspítala í
Hafnarfirði, og var Sigurður hjá
henni allar stundir sem hann gat
því við komið. Ég heimsótti Guð-
mundínu á spítalann viku áður en
hún dó. Þá spurði ég hana hvort ég
gæti eitthvað gert fyrir hana. Hún
kvað nei við því og sagði: „Hér eru
allir góðir við mig og allt gert
fyrir mig sem hægt er, og mér líð-
ur vel.“ Þannig var Guðmundína,
fórnfús og þakklát hetja fram á
síðustu stundu.
Sigurður saknar hennar sárt, og
ég bið Guð að styrkja hann, systur
hennar og aðra ættingja og vini.
Guð blessi minningu Guðmund-
FARARSTJÓRI SÉRA SIGURÐUR HELGI GUÐMUNDSSON -
ÍSLENSKUR HJÚKRUNARFRÆÐINGUR ER MEÐ í FÖRINNI
GUÐNI GUÐMUNDSSON orgelleikari
verður einnig með, öllum til skemmtunar
og á heimleið slæst RÓBERT ARNFINNSSON í hópinn
með skemmtiefni í fórum sínum.___________
Siglt verður með ms Eddu frá Reykjavík
á miðvikudagskvöldi og komið til Newcastle
á laugardagsmorgni.
Þaðan verður ekið í hópferðabíl
um fögur og fræg héruð til Edinborgar.
Fólki gefst kostur á að versla í Princes Street,
kvöldið er frjálst og um nóttina er gist
á afbragðs góðu hóteli.
Á sunnudag eru skoðaðir sögufrægir kastalar
og merkir staðir, en síðan ekið til Newcastle
og aftur er kvöldið frjálst og gist
á góðu hóteli í Newcastle.
Á mánudagsmorgni bíða bílarnir
aftur við hóteldyrnar og flytja hópinn um borð.
Þar hreiðra allir um sig aftur og
njóta siglingarinnar heim.
ínu. Björg Aradóttir. Öllum er frjáls þátttaka í þessari ferð
og verðið er kr. 8.800.
Innifalið: Allar ferðir og gisting sem og morgunverður og kvöldverður í Edinborg og Newcastle.
36TTT Afbragðs góð greiðslukjör
AUGLÝSINGASTOFA MYNDAMÓTAHF FARSKIP gengi 29.7 '83 AÐALSTRÆTI 7 REYKJAVÍK SÍMI 2 5166 5
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Staða yfirlögreglu-
þjóns
hér viö embættiö, er laus til umsóknar. Um-
sóknir skulu sendast til skrifstofu minnar og
hafa borist mér fyrir 25. ágúst nk.
Lögreglustjórinn á Keflavíkurflugvelli,
22. júlí 1983.
Kennarar
Nú er tækifæri fyrir hjón sem kenna bæöi að
ráöa sig aö Heimavistarskólanum á Brúarási
á Fljótsdalshéraöi. Ný íbúö. Sími um Foss-
velli.
Verkamenn
Vanir verkamenn í byggingarvinnu óskast í
langtímavinnu.
Upplýsingar í síma 45305 e.h. í dag og á
morgun.
Kranamaður
Hagvirki óskar aö ráöa vanan kranamann á
byggingarkrana viö Sultartanga í 4—5 vikur.
Vaktavinna.
Upplýsingar í síma 53999.
Starfsmann
Okkur vantar vanan starfsmann til afleysinga
í sumar á Linoterm-innskriftarborö.
Prentsmiöjan Hólar hf.,
Seltjarnarnesi, sími 28266.
Verkstjóri
Óskum eftir að ráöa verkstjóra í málmiðnað-
ardeild. Einnig óskum viö eftir aö ráöa
járnsmið og rafvirkja (svein). Upplýsingar
gefur Gunnar í síma 95-4128 á daginn og
95-4545 á kvöldin.
Vélsmiöja Húnvetninga á Blönduósi.
I