Morgunblaðið - 28.07.1983, Page 35

Morgunblaðið - 28.07.1983, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1983 35 Gunnar Pálmi Björns- son — Minningarorð Fæddur 23. janúar 1924. Dáinn 18. júlí 1983. Hve óvænt og sláandi kom sú fregn, að vinur minn, Gunnar Pálmi Björnsson væri látinn mánudagsmorgunir.n þann 18. júlí. Við höfðum verið saman mest allan sunnudaginn áður, eins og flesta frídaga undanfarin ár. Leiðir okkar lágu saman fyrir sex árum vegna sameiginlegs áhuga á smábátaútgerð. Það var mér ómetanlegt að verða aðnjót- andi leiðbeininga svo reynds sjó- manns sem Gunnar var, þar sem ég var algjör byrjandi í öllu því sem laut að sjómennsku og með- ferð báta. Gunnar var fæddur á ólafsfirði 23. janúar 1924, sonur hjónanna Þorbjargar Björnsdóttur og Björns Pálma Sigurðssonar. Var hann næst yngstur fimm systkina. Gunnar var gæfumaður í einka- lífi sínu. Árið 1948 kvæntist hann eftirlifandi konu sinni Guðrúnu Matthildi Valhjálmsdóttur. í fyrstu settu þau saman bú á Olafsfirði, þar sem Gunnar stund- aði sjómennsku og útgerð ásamt bróður sínum Sigurbirni. Og var alla tíð kært með þeim bræðrum. Árið 1966 flyst Gunnar til Reykjavíkur til æskustöðva eig- inkonu sinnar. Þau hjón eiga eina dóttur barna, Matthildi Þorbjörgu, sem nemur sáifræði við Háskóia íslands. Hennar maður er Örn S. Einars- son. Eiga þau eina dóttur, Guð- rúnu Matthildi, sem var auga- steinn afa síns og ömmu. Gunnar var einstakur heimilisfaðir. Heim- ili hans og Guðrúnar að Brávalia- götu 18 var einstaklega hlýlegt og aðlaðandi og var gott að 'neim- sækja þau hjón þar. Gunnar var maður trúaður og einstaklega elskulegur í allri umgengni. Á annan áratug vann hann hjá sama fyrirtæki í Reykjavík, en flestum frístundum sinum varði hann við aðaláhugamál sitt sem snerist um sjóinn og siglingar. En nú kemur Gunnar aldrei aftur að landi, þeim dómi verðum við vinir hans að hlíta. Hann hefur nú náð höfn á annarri strönd. Þar veit ég að hann hefur átt góða heimvon. Með þessum fátæklegu kveðju- orðum vil ég þakka Gunnari fyrir allt það liðna og spyr um leið, því var hann kvaddur burt svo fljótt? Ég votta fjölskyldu hans dýpstu samúð. Haraldur Karlsson. Frændi okkar, Gunnar Pálmi Björnsson, Brávallagötu 18, Reykjavík, lést 18. júlí sl. 59 ára að aldri og fer útför hans fram í dag. Gunnar fæddist 23. janúar 1924 að Miðhúsum í ólafsfirði og voru foreldrar hans hjónin Þorbjörg Björnsdóttir, ættuð frá Hvammi við Hofsós, og Björn Sigurðsson frá Ólafsfirði. Gunnar var næst- yngstur fimm barna þeirra, en elst var Sigrún, sem dó á fyrsta ári, þá Sigurbjörn sem búsettur er í Ólafsfirði, Halldóra, lést árið 1978, var búsett í Ólafsfirði, og Ásta sem nú býr á Akureyri. Eins og þá var ungra manna háttur í sjávarplássum hóf Gunn- ar snemma að stunda störf tengd sjónum, annað þekktist vart þegar tilskyldu námi lauk. Árið 1948 kvæntist Gunnar Guðrúnu Vilhjálmsdóttur, ættaðri úr Reykjavík, og settust þau að í ólafsfirði. Þau eignuðust eina dóttur, Matthildi Þorbjörgu, f. 1959, sem gift er Erni Einarssyni og eiga þau þriggja ára gamla dóttur, Guðrúnu Matthildi. Um langt árabil rak Gunnar út- gerð í félagi við Sigurbjörn bróður sinn og fleiri. Áttu þeir ýmsa báta, m.a. Sæfara og Freyju og var Gunnar jafnan formaður. Síðustu árin sín í óiafsfirði reri Gunnar einn á trillu og aflaði oftast vel, enda fiskimaður af lífi og sál. Til þeirra Gunnars og Guðrúnar við Áðalgötuna lágu oft leiðir okkar. Þar var okkur alltaf vel tekið, margt að sjá sem gladdi augað og ýmsu vikið að okkur sem við kunnum vel að meta. Þar var lítill, en fallegur trjágarður sem gaf umhverfinu svip og vissan ævintýraljóma í okkar augum. Alltaf fannst okkur mikil reisn yf- ir þessu heimili meðan það stóð i Ólafsfirði. Sama má segja um heimili þeirra og viðmót allt er þau settust að í Reykjavík árið 1966. Þangað leituðum við er við vorum þar við nám eða störf. f Reykjavík hóf Gunnar strax störf hjá Lýsi hf. og starfaði þar til dauðadags. Ekki rauf hann tengslin við heimabyggðina eða uppruna sinn þótt hann flyttist til Reykjavíkur, því margar voru ferðirnar norður á sumrin. Þá var gjarnan róið á gamalkunnug mið á Héðinsfirði eða annars staðar við Eyjafjörð. Ekki lét hann sér það nægja, heldur eignaðist eigin bát og gerði út á ýsu í „Bugtinni" í fríum sínum og rótfiskaði sem fyrr. Þannig var það til hinstu stundar. Genginn er nú góður maður og gegn langi, um aldur fram. Hann hlaut í veganesti skyldurækni og ríka sjálfsbjargarviðleitni og ræktaði með sér trú á allt sem gott er. Slíkir menn hljóta að eiga góða heimkomu. Við minnumst frænda okkar með eftirsjá en jafnframt með hlýju, og biðjum Guð að styrkja Guðrúnu, dóttur, tengdason og barnabarn í sorg þeirra. Systkinabörn. Birting afmœlis- og minningargreina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða aö berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frum- ort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. NI55AN ÖLLUM ÖÐRUM FRAMAR Nissan Cherry 1500 GL 5 dyra. Gerðu bestu bílakaupin Líttu á staðreyndirnar Við bárum saman verð svolítið sportlegra bíla með vélarstærðinni 1300 cc. - 1600 cc. og með fimm gíra gírkassa þar sem það fékkst. (Samanburður gerður 11.7. 83) Alfasud 1500cc. 5 yíra. 4radvra, kt\ 310.000.00 Ford Escorí lóOOcc, 5 gíra, 3jadvra. kr. 420-430.000.00 Honda Civic S I335cc, 5 gíra, 3jadyra, kr. 293.000.01) Mazda323 I500cc, 5 gíra, 3jadvra, kr. 272.000.00 Mitsubishi Cordia SR I600cc, 4ra eíra. 3ja dvra. kr. WÆ0.00 Toyota Tercel I300cc, 5 gíra. 3jadvra. kr. 275.000.00 Volvo 343 I400cc, 4ra gíra, 3ja dvra, kr. 346.000.00 OG LOKS Á LANGBESTA VERÐINU NISSAN CHERRY 1500cc, 5 gíra, 3ja dyra á aðeins kr. 257.000.00 Samt er CHERR Yríkulega búinn. Hann er t.d. með snúningshraða- mæli, lituðu gleri, útvarpi, skottlok, bensínlok og báða afturglugga má opna úr ökumannssæti, veltistýri, rafmagnsklukku, hitaðri afturrúðu með rúðuþurrku og rúðusprautu, 6-12 sekúndna stillan- legum biðtíma á þurrkum, framhjóladrifi, 84ra hestafla vél og margt margt fleira. Munið bílasýningar okkar um helgar kl. 2-5. Tökum allar gerðir eldri bifreiða upp í nýjar VERIÐ ÓHRÆDD VIÐ AÐ GERA SAMANBURÐ - ÞAÐ ERUM VIÐ NIS5AIM LANG-LANG MEST FYRIR PENINGANA INGVAR HELGASON sim,3356o SÝNINGARSALURINN /RAU ÐAGERÐI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.