Morgunblaðið - 28.07.1983, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 28.07.1983, Qupperneq 39
fclk í fréttum MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1983 39 Áhuqamálið er aðeins eitt: Stjörnur ogaftur stjörnur Þeir þekkja hana á Kastrup- flugvelli og á fínustu hóteium Kaupmannahafnar, starfsmenn leikhúsanna kannast viö hana og miöasölustúlkurnar eiga hana fyrir vin. Margar stórstjörnur hafa líka hitt hana, sumar oftar en einu sinni og Lillian Thode finnst næstum sem hún þekki þær. Lillian Thode safnar eiginhand- aráritunum frægs fólks og á nú orðiö um 500 nöfn, bæöi landa sinna, Dana, og annarra stór- stjarna. Elizabeth Taylor, Harry Belafonte, Walt Disney, Abba, Lillian fékk leyfi til aö sitja inni í hlýjunni á Hotel Scandinavia meöan hún beiö eftir Rod Stew- art. Lillian meö Annifrid í Abba. Sammy Davis, Peter Ustinov, Sim- on & Garfunkel, Birgit Nllsson og margir aörir eru þarna á meöal og Lillian hefur oft beöiö klukku- stundum eöa jafnvel dögum sam- an á flugvellinum og í anddyri hót- elanna eftir því aö koma auga á þetta fræga fólk. Ef hún hefur heppnina meö sér fær hún eigin- handaráritun, kannski eina mynd, svo ekki sé nú talaö um smáspjall viö uppáhaldiö. Lillian gefur stjörnunum mis- jafna dóma. Þau í Abba voru „ægi- lega sæt“; John Denver var „ægi- lega fúll" yfir því aö fá ekki aö boröa matinn sinn í friði; Hinrik prins var „fínn“ en Margrét drottn- ing sagöi þvert nei. Drottning gefur ekki eiginhandaráritun. Drottning drottninganna í kvikmyndaheiminum, Elisabeth Taylor, sendi hins vega Lillian fal- legt bréf ásamt undirskrift sinni og er þaö einn af gimsteinunum í safninu. Lillian, sem er aöeins 21 árs gömul, hefur ekki hugmynd um hve miklum tíma og hve miklum peningum hún hefur eytt í þetta áhugamál sitt. Eitt áriö fór hún t.d. til London og gekk þar frá einu leikhúsinu til annars til aö reyna aö herja út eiginhandaráritun hjá sumu af þvt fólki, sem þekkt er úr breskum sjónvarpsþáttum. Á Kastrup-flugvelli meö Rod Stewart. Meö Lillian er vinkona hennar, Lene Nielsen, sem einnig safnar eiginhandaráritunum frægs fólks. COSPER — Ekki svona mikið vatn. Hafið þið gleymt því að ég kann ekki að synda? Sem dæmi um erilsaman en ánægjulegan dag má nefna þegar Rod Stewart kom til Kaupamanna- hafnar. Lillian tók daginn snemma og hjólaöi út á flugvöll þar sem hún beiö í þrjá tíma. Hún var hepp- in. Rokkstjarnan gaf henni eigin- handaráritun og leyföi henni aö taka mynd af sér. Síöan hjólaöl hún á eftir svörtu glæsikerrunni hans Rods inn á Hótel Scandin- avia, beið þar í tvo tíma og náöi aö koma auga á hann þegar hann yfirgaf hóteliö. Aö því búnu fór Lillian heim og aftur niöur á hótel og loksins alla leið út til Idræts- parken þar sem tónleikarnir fóru fram. Þaö var komið fram yfir miö- nætti þegar Lillian steig af hjólinu heima hjá sér, sæl og glöö yfir velheppnuðum degi. „Hvers vegna ég stend í þessu? Ja, mér finnst bara gaman aö því. Þetta er mitt áhugamál. Þaö er þó ekki svo aö mig dreymi um stjörn- urnar allar nætur, en hins vegar víla ég ekki fyrir mér að fara ofan um miöja nótt ef ég á von á árit- un,“ segir Lillian. 1 Ifrá MAASPHALT ÞAKPAPPI Hefur einstaka efnafræðilega eiginleika til að standast eyðingaröfl veðurs og aldurs. 2 gerðir, hagstætt verð. Höfum einnig fyrirliggjandi asfalt 110/30 á þök, og venjulegan þakpappa undir ál og stál. INNKAUP HE ÆGISGÖTU 7, REYKJAVlK - SlMI 22000 Citroén BX16TRS 90 hestöfl, 11,5 sek. í 100 km hraða og sigurvegari í sparaksturskeppni BIKR: Meðaleyosla 6,14 I á hundraðið. Citroén BX 16 TRS er í einu orði sagt stórkostlegur bíll. Þú verður helst að koma og kynnast honum af eigin raun. Við tökum uppí vel með farna, nýlega Citroén bíla. Við lánum 25% af kaupverði til 8 mánaða. Verð kr. 414.100.- Innifalið: Hlífðarpanna undir vél, skráning og ryðvörn. WM.G/obus? %2££ CITROÉN *

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.