Morgunblaðið - 02.09.1983, Page 1
72 SIÐUR
199. tbl. 70. árg.
FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Rússar skjóta niður
þotu með 269 manns
*
Atta orrustuþotur eltu vélina í 2V2 tíma
áður en „skotmarkinu var eytt“ —
Gífurleg reiði víða um lönd — Banda-
ríkjamenn hafa fjarskipti sovésku
flugmannanna á segulbandi
Washinfpon, Seoul, 1. september. AP.
GÍFURLEG reiði ríkir nú víða um lönd eftir að George
Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, skýrði frá því í dag,
að óyggjandi sannanir væru fyrir, að Sovétmenn hefðu skotið
niður suður-kóreanska farþegaþotu af gerðinni Boeing-747,
sem hvarf af ratsjárskermum yfir Japanshafi í gær. 269
manns af ýmsu þjóðerni voru með vélinni og sagði Shultz, að
allir hefðu farist. Búist er við, að Bandaríkjastjórn muni
krefjast fundar í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna vegna
þessa alvarlega máis.
George Shultz, utanríkisráð-
herra, sagði á blaðamannafundin-
um, að suður-kóreska Jumbo-
þotan, sem hefði verið á leið frá
Anchorage í Alaska til Seoul í
Suður-Kóreu, hefði villst af leið
inn í sovéska lofthelgi við
Kamtchaka-skaga. Hefðu Sovét-
menn fylgst með ferðum hennar í
tvo og hálfan tíma og sent alls
átta orrustuþotur af gerðinni
MIG-23 og SU-15 á eftir henni.
Þegar farþegaþotan var komin
framhjá Sakalin-eyju og inn yfir
Japanshaf hefði einn sovésku flug-
mannanna tilkynnt, að hann hefði
„skotið eldflaug að vélinni" og að
„skotmarkinu hefði verið eytt“.
Klukkutíma síðar tilkynnti annar
sovéskur flugmaður um olíuflekk
á sjónum þar sem vélin hrapaði.
Sagði Shultz, að Bandarfkjamenn
hefðu óyggjandi sannanir í hönd-
unum, segulbönd með samtölum
sovésku flugmannanna við stjórn-
stöð í landi.
Shultz sagði, að ekkert benti til,
að sovésku flugmennirnir hefðu
reynt að vara flugmenn Jumbo-
þotunnar við. Þegar eldflauginni
var skotið, var sovéska orrustu-
þotan svo nálægt, að ekki hefði átt
að fara á milli mála, að þarna var
farþegaflugvél á ferðinni.
Ronald Reagan, Bandaríkjafor-
seti, hefur falið Shultz að krefjast
„tafarlausrar og fullkominnar
skýringar" Sovétmanna á þessum
atburði og sagði Larry Speakes,
talsmaður forsetans, að Banda-
ríkjastjórn hefði einnig f huga
önnur og alvarlegri viðbrögð
vegna þessa máls.
Með Jumbo-þotunni voru 269
manns, 240 farþegar og 29 manna
áhöfn. 81 farþegi var frá Suður-
Kóreu, 22 Japanir, 30 Bandaríkja-
menn, a.m.k. tveir Kanadamenn,
einn Svíi og 70 af öðrum þjóðern-
um. f hópi Bandaríkjamannanna
var fulltrúadeildarþingmaðurinn
Lawrence McDonald, demókrati
frá Georgia.
Mikil viðbrögð hafa orðið við
þessum atburði víða um heim, sér-
staklega í Suður-Kóreu og Banda-
rikjunum. Forystumenn á Banda-
ríkjaþingi hafa hvatt til refsiað-
gerða vegna þessa „óskiljanlega og
hryllilega" verknaðar en viðbrögð
Sovétmanna hafa verið undarleg
svo ekki sé meira sagt. Fyrst sagði
Tass-fréttastofan frá því, að
suður-kóreanskrar flugvélar væri
saknað, seinna, eftir að fyrstu
fréttir komu um að Sovétmenn
hefðu skotið hana niður, sögðust
þeir ekkert vita um hana en loks-
ins sögðu þeir „óþekkta" flugvél
hafa rofið sovéska lofthelgi tvisv-
ar. Hefðu orrustuþotur verið send-
ar til að hjálpa henni að lenda en
þotan hefði haldið sínu striki og
horfið á braut.
Sjá ennfremur kort og frek-
ari fréttir á bls. 22 og 23.
AP
SYSTUR Lee Chul-Kyu, farþega með suður-kóreönsku Jumbo-þotunni, bresta í grát þegar talsmaður Suður-Kóreu-
stjórnar tilkynnir, að „vissa sé fyrir“ að vélin hafl verið skotin niður. Áður hafði hann sagt aðstandendum
farþeganna, að vélin hefði lent á Sakalin-eyju.
Shamir var valinn
eftirmaður Begins
Tel Aviv, I. september. AP.
YITZHAK Shamir, utanríkisráð-
herra ísraels, varð fyrir valinu sem
forsætisráðherraefni Herut-flokks-
ins í atkvæðagreiðslu, sem fram
fór á milli hans og David Levy,
aðstoðarforsætisráðherra. Hlaut
Shamir 473 atkvæði en Levy 302.
Yitzhak Shamir er 68 ára gam-
all, innflytjandi frá Marokkó, fyrr-
um skæruliðaforingi og leyniþjón-
ustumaður. Ef hann verður forsæt-
isráðherra, eins og líkur eru á, er
búist við að hann haldi áfram
harðri stefnu Begins, sem þeir
mótuðu á þeim dögum þegar þeir
börðust saman fyrir sjálfstæði
fsraels.
Þótt Shamir hafi borið sigur
úr býtum, er ekki þar með sagt,
að forsætisráðherrastólnum
verði skotið undir hann umyrða-
laust því að afsögn Begins hefur
veikt mjög þau bönd, sem bundu
stjórnarflokkana saman. Verka-
mannaflokkurinn rær nú t.d. að
því öllum árum, að fá suma
flokkana til liðs við sig og mynda
nýja samsteypustjórn.
Hér til vinstri er mynd af Boeing 747 Jumbo-þotu frá suður-kóreanska flug-
félaginu, en þad var sams konar flugvél, sem Sovétmenn skutu niður yfir
Japanshafi með 269 manns innanborðs. Fyrir ofan er sovésk orrustuþota af
gerðinni SU-15, en það var frá slíkri flugvél, sem eldflauginni var skotið.