Morgunblaðið - 09.10.1983, Síða 47

Morgunblaðið - 09.10.1983, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1983 47 efni. Lá ekki f hlutarins eðli að þú hjálpaðir Saint Etienne við að vinna Evrópubikarinn? Michel Platini: „Jú, vissulega, hefði ég séð fram á að það væri möguleiki. Ég var hins vegar efins um að ég gæti náð frekari árangri með Saint Etienne og jafnframt öðrum liðum í Frakklandi. Reynd- ar var ástandið orðið frekar slæmt á tímabili, bæði almenningur og fjölmiðlar héldu mig það góðan að ég væri hafinn yfir öll félagslið og líka landsliðið. Allir væntu sífellt meira og meira af mér og undir lokin var mér orðið óbærilegt að standa mig gagnvart almenningi. Það sem áður hafði verið skemmt- un var farið að íþyngja mér.“ — Juventus tapaði tveimur fyrstu deildarleikjunum sínum sem varð til þess að ítölsku blöðin fóru að skrifa um erfiða tíma inn- an liðsins og jafnframt afbrýði- semi á milli þín og Paolo Rossi. Hve mikið var til í þessu? Michel Platini: „Um leið og Juv- entus tapar leik taka fjölmiðlar upp skrif sem þessi. Við vorum að- eins sentimetra frá sigri í Verona og Genoa, en blöðin reyndu i stað þess að segja frá því að skapa spennu á milli okkar Rossi aðeins til að selja fleiri eintök. Það voru engin vandamál innan liðsins og síst af öllu stóð eitthvert stríð á milli okkar Rossi. Öllum leik- mönnum Juventus kemur vel sam- an.“ — Þú áttir erfitt með að aðlaga þig að aðstæðum innan Juventus, ekki satt? Michel Platini: „Jú, enda er mik- ill munur á ítölskum og frönskum fótbolta. í Frakklandi fór maður inn á völlinn sem sóknarmaður með því markmiði að skora mörk, ingur í ítölsku liði? Nú er oftast litið á útlenda leikmenn sem frels- ara. Michel Platini: „Það er gífurlegt álag á erlendum leikmönnum og þegar við töpum eykst það um all- an helming. Bæði ég og Boniek höfum fengið að finna fyrir því. Blaðamenn hafa hins vegar fyrir reglu að endurgjalda okkur þau neikvæðu orð með því að hæla okkur þegar vel gengur og virðast engin takmörk vera fyrir hólinu, þegar þeir byrja — burtséð frá því hvernig við spilum, bara að leikur- inn vinnist. Það segir sig sjálft að það var erfitt fyrir okkur Boniek að ganga inn í Juventus, sérstak- lega þar sem valinn maður var í hverju rúmi. Við vissum reyndar ekkert um ítalskan fótbolta þá og gátum ekki búist við því að þeir tækju okkur opnum örmum. Einn- ig gat það hafa farið svo að við hreinlega pössuðum ekki inn í spil liðsins, og ef svo hefði verið hefð- um við ekki viljað vera þeir leik- menn er keyptir voru. En okkur hefur gengið vel, að vísu voru það okkur mikil von- brigði að vinna ekki Evrópukeppni meistaraliða á síðasta keppnis- tímabili. En nú erum við ákveðnir, við ætlum okkur mjög langt." — Það var vaninn hér áður fyrr að tveir æðstu menn Fiat, þeir Gi- anni og Umberto Agnelli, yfirgáfu Stadio Communale-völlinn fyrir leiktímann er Juventus var að spila. Þegar þú hafðir tryggt Juv- entus 1—0 sigur yfir AC Torino, hafði Gianni orð á þvf að þú spil- aðir eins og leikmaður frá annarri plánetu og sagðist ætla að horfa á sigra og gleðja almenning. A It- alíu er þessu öðruvísi háttað. Þar er markmiðið að tapa ekki og af- ieiðingin er sú að farið er hægar í hlutina og mikið lagt upp úr varn- arleik og þar er Juventus engin undantekning. Það þýddi að ég þurfti alltaf að hlaupa í vörn þeg- ar vissar aðstæður sköpuðust og vegna þessa varð ég ákaflega leið- ur. Juventus hafði borgað mikla peninga fyrir mig og notaði mig síðan ekki í samræmi við hæfi- leika mína. Ég gerði þjálfara mín- um, Giovanni Trappatoni, það ljóst að mjög erfitt væri fyrir mig að skora mörk, þegar ég þyrfti að vera svo oft á mínum eigin vall- arhelmingi. Hann skyldi mig og fól mér aðra stöðu á vellinum — sjálfum sér til bóta, félaginu, áhangendum þess og ekki síst mér, þar sem mér bar að blómgast inn- an liðsins." — Hvernig er að vera útlend- allan leikinn. Hvað vilt þú segja um þessi orð í þinn garð? Michel Platini: „Ég er vissulega ánægður með þetta hrós, og það hefur án efa komið sér vel. í sannleika sagt sýni ég ekki nema 30% getu minnar." — Af hverju? Michel Platini: „Ég er frekar illa haldinn af meiðslum er ég hlaut fyrir ári, og reyndar ætti að vera búið að skera mig upp vegna þeirra. Það gæti kostað að ég yrði frá í 4—5 mánuði, en slíkt get ég ekki boðið félaginu upp á. Ég vona að með tímanum batni mér, en sem stendur er ég í stöðugri með- ferð. { Frakklandi var tímabilið miklu stífara, hér hjá Juventus er farið frekar vægt í allar æfingar og aðeins er spilað einu sinni í viku ef frá eru taldar þær vikur sem spilað er í bikarkeppninni." Þýtt og endursagt. Glæsilegt úrval af myndum og plakötum með eða án ramma Margar stærðir. Kvikmyndaplaköt - Art Poster - vegg- og hurðamyndir OPIÐ: 9-12 og 13:30-18 LAUG. OG SUN. 13-16 MYNDIN Dalshrauni 13 S. 54171 / IKEA HÍNKÉTTINGAB. IELDHUSIÐ miöpunkt heimilisins Eldhúsiö er sá staöur hvers heimilis, þar sem hvað best þarf aö vanda til innréttinga. Skapa þarf fyrsta flokks vinnuaðstööu, gott og þægilegt geymslurými og útlit sem gleður augað. Allt þetta er haft í huga viö hönnun IKEA eldhúsinnréttinga. Úrvaliö er miðað viö að allir fái innréttingu viö sitt hæfi. IKEA gæðin eru þar sem annarsstaðar og verðið öllum viðráðanlegt. IKEA fram- leiðir einnig skemmtilegar baðherbergisinnréttingar, fataskápa og hillur. Allt á lager, engar afgreiðslutafir. Komið í eldhúsdeild IKEA,við aðstoðum ykkurvið valið, reiknum út nákvæmt verð og kynnum ykkur afborgunarskilmálana. í IKEA deildinni fáið þið Zanussi ísskápa og Rafha eldavélar. Biðjið um litprentaða IKEA eldhúsinnréttingabækinginn. Skeifunni15

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.