Morgunblaðið - 19.10.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1983
55
Fagnað áformum um að
draga úr ríkisumsvifum
27. þing Sambands ungra sjálfstæft-
ismanna fagnar þeim umskiptum sem
orðið hafa í íslenskum stjómmálum
undanfarin misseri. Sameinaðir unnu
sjálfstæðismenn góða sigra í bæjar- og
sreitarstjórnakosningum vorið 1982 og
í Alþingiskosningum á sl. vori. Innri
erfiðleikar Sjálfstæðisflokksins eru að
baki og tilraunum vinstri aflanna til aö
kljúfa flokkinn hefur verið hnekkt.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur á ný for-
jstuhlutverki að gegna við að leiða
þjóðina út úr þeim ógöngum, sem
vinstri stefna undanfarinna ára hefur
leitt ta.
Núverandi ríkisstjórn tók við
völdum við erfiðari aðstæður en
nokkur stjórn á síðari tfmum. Ljóst
er að efnahagsstefna undanfarinna
ára ásamt ytri áföllum hefur komið
þjóðarbúinu á heljarþröm. Við
stjórnarskiptin var verðbólgan kom-
in á áður óþekkt stig, skuldasöfnun
við útlönd orðin geigvænleg og
stöðvun atvinnuvega þjóðarinnar og
þar með atvinnuleysi yfirvofandi.
Fyrstu aðgerðir ríkisstjórnarinn-
ar miðuðu að því að afstýra þessum
voða og undirbúa nýtt átak f sókn til
bættra lífskjara. Þessar aðgerðir og
efnahagsstefna stjórnarinnar f heild
er í raun úrslitatilraun til að brjót-
ast út úr þeim vítahring, sem efna-
hagsleg ringulreið undanfarinna ára
hefur skapað.
Ungir sjálfstæðismenn fagna því
að aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru
þegar teknar að bera árangur og að á
mörgum sviðum hefur nú orðið
greinileg stefnubreyting frá þvf sem
áður var. Verðbólgan er á hraðri
niðurleið, atvinnuöryggi hefur verið
tryggt, horfur eru á hallalausum
utanríkisviðskiptum og lögð hafa
verið drög að nýrri sókn í atvinnu-
málum. Fagna ber sérstaklega
áformum ríkisstjórnarinnar um að
draga úr ríkisumsvifum og selja
ríkisfyrirtæki, nýrri stóriðjustefnu
og þvf, að neitunarvaldi Alþýðu-
bandalagsins f mikilvægum fram-
faramálum skuli aflétt.
Þótt rfkisstjórninni hafi fyrstu
mánuðina tekist að ná nokkrum
árangri sem gefur góð fyrirheit, er
ljóstað stjórnarinnar bíða mörg og
erfið verkefni. Ríkisstjórnin hefur
ekki aðeins það hlutverk að vinna
bug á þeim erfiðleikum, sem þjóðar-
búið glímir nú við heldur jafnframt
að búa verulega f haginn fyrir kom-
andi kynslóðir. í því efni hafa
sjálfstæðismenn f ríkisstjórn sér-
stöku hlutverki að gegna til að
tryggja að staðinn sé vörður um ein-
staklingsfrelsi og atvinnufrelsi,
sveigt frá miðstýringu hins opinbera
á sem flestum sviðum og athafnaþrá
og hugvit einstaklinganna beislað til
hagsbóta fyrir landsmenn alla.
Sjálfstæðismönnum ber skylda til
að knýja á um nauðsynlegar grund-
vallarbreytingar í efnahagsskipan-
inni auk nauðsynlegra kerfisbreyt-
inga t.d. f heilbrigðis- og mennta-
málum. Tækifærið sem stjórnarað-
ildin veitir ber að nýta til að auka
frelsi hins almenna borgara til að
haga lífi sínu og starfi f samræmi
við eigin óskir og hagsmuni.
27. þing SUS lýsir yfir fyllsta
stuðningi við núverandi rfkisstjórn
og skorar á alla sjálfstæðismenn og
aðra stuðningsmenn stjórnarinnar
að fylkja sér um stefnu hennar á
þeim erfiðu en jafnframt örlagarfku
tímum sem framundan eru.
Þingfulltrúar að þingstörfum loknum.
Atvinnuþróun og hátækniiðnaður:
Tækifæri fyrir íslendinga að hasla
sér völl meðal þróuðustu ríkja
27. þing SUS vekur athygli á þeirri öru þróun, sem orðið hefur í rafeinda- og
öðrum hátækniiðnaði á undanförnum árum. Þingið bendir sérstaklega á ör-
tölvuna og þau áhrif sem hún hefur haft á atvinnulíf vestrænna þjóða, og á þá
möguleika, sem hún hefur haft fyrir atvinnulíf íslendinga, menntakerfi lands-
manna og víðar í samfélaginu. Þingið hvetur stjómvöld til að sýna framsýni í
þessum málum með það fyrir augum að beisla hina nýju þekkingu tii hagsbóta
fyrir alla þegna landsins. Hik getur haft mun alvarlegri afleiðingar i atvinnu-
málum, en markviss hagnýting hinnar nýju tækni. Margt bendir til þess að hér
sé um að ræða tækifæri fyrir Isiendinga til að hasla sér varanlegan völl meðal
þróuðustu ríkja heims.
Aukin notkun örtölva og há-
þróaðrar tækni mun hafa áhrif á
hæfni íslensks vinnuafls í framtíð-
inni. Minni þörf verður fyrir verk-
kunnáttu, en meiri þörf fyrir hug-
vit. Þetta mun hafa mikil áhrif á
þjálfunar- og endurmenntunarþörf
í ýmsum greinum atvinnulffsins.
Sérstaklega verður mikil eftir-
spurn eftir vel þjálfuðu starfsfólki
með sérþekkingu á örtölvum og
tölvutækni.
Hægt upplýsingaflæði stendur
nú góðu skipulagi fyrirtækja og
stofnana að ýmsu leyti fyrir þrif-
um. Örtölvutæknin og ný tækni við
upplýsingamiðlun mun bæta úr á
þessu sviði. Á undanförnum árum
hefur framleiðsla á þróuðum iðnað-
arvörum krafist umtalsverðrar
fjárfestingar í tækjum. Til þess að
vera samkeppnisfær hafa fyrirtæki
þurft að framleiða vörur í miklu
magni fyrir stóra markaði. Þetta
hefur leitt til þess, að þróaður iðn-
aður hefur fyrst og fremst byggst
upp á þéttbýlissvæðum. Þróun ör-
tölvunnar mun gera mögulega hag-
kvæma framleiðslu í litlu magni.
Aðlögunartími mun minnka vegna
aukinnar sjálfvirkni, sem mun gera
litlum fyrirtækjum kleift að fram-
leiða hagkvæmt margar mismun-
andi vörutegundir með sama
tækjabúnaði. Allt bendir því til
þess, að möguleiki verði að byggja
upp hátækniiðnað utan þéttbýlis-
svæða.
Örtölvutæknin mun auðvelda ís-
lenskum iðnaði að bæta gæði og
auka framleiðni og þannig opna Is-
lenskri iðnaðarvöru leiðina að nýj-
um mörkuðum jafnhliða því sem
sköpuð eru skilyrði fyrir þróun
sérhæfðs íslensks hátækniiðnaðar.
Þingið bendir á eftirfarandi leið-
ir til að hraða þróun hátækniiðnað-
ar á íslandi:
1. Á vegum hins opinbera og sam-
taka atvinnulífsins verði án taf-
ar hafið kynningarstarf á hinni
nýju tækni, afleiðingum hennar
og möguleikum. Fjölmiðlar og
skólar hafa þarna sérstöku hlut-
verki að gegna, sem og þeir aðil-
ar er annast upplýsingaþjónustu
fyrir starfandi iðnað. Sérstakt
átak verði gert til að auðvelda
starfandi fyrirtækjum að taka í
notkun hina nýju tækni.
2. í fræðslukerfinu og á vegum að-
ila er annast endurmenntun
verði lögð stóraukin áhersla á
kennslu um upplýsingaöflun, ör-
tölvur, tölvufræði og almenna
tækni. Einnig verði hafin
fræðsla um stofnun fyrirtækja.
3. Fjarskiptakerfi landsins verði
byggt upp þannig að möguleikar
örtölvutækninnar nýtist að
fullu. Tekin verði upp frjáls-
lyndari stefna hvað varðar teng-
ingu ýmissa tækja inn í fjar-
skiptakerfið. Jafnframt verði
einkafyrirtækjum gert kleift að
notfæra sér fjarskiptakerfið í
starfsemi sinni.
4. Endurskoða þarf gildandi lög
um atvinnustarfsemi með það
fyrir augum að þau hvetji til
tækniþróunar í uppbyggingu at-
vinnulífsins.
5. Á meðan hin nýja tækni er að
skjóta hér varanlegum rótum,
kann að vera nauðsynlegt að
beina miklu fjármagni I at-
vinnugreinar, þar sem hin nýja
tækni verður notuð. Kannað
verði hvort unnt sé að beita
skattareglum að hluta til I þessu
skyni. Jafnframt verði athugað-
ir möguleikar á samvinnu við
erlenda aðila á þessu sviði.
Ef vel tekst til má gera ráð fyrir
að innan 10 ára verði starfandi á
íslandi nokkur stór og fjölmörg
smærri fyrirtæki sem annars vegar
aðstoða íslensk fyrirtæki við
tækniuppbyggingu, en vinna hins
vegar á alþjóðlegum mörkuðum við
að selja þekkingu á því, hvernig
nota megi nútímatækni til þess að
bæta lífskjör. Opinber þjónusta á
Islandi verður virkari og hag-
kvæmari en víðast hvar annars
staðar. Mögulegt verður að byggja
upp fullkomnara og hagkvæmara
fræðslu- og heilsugæslukerfi hér á
landi en annars staðar vegna
smæðar landsins og góðrar al-
mennrar menntunar. Ef rétt verð-
ur á haldið ættu fyrirtæki í land-
búnaði, fiskveiðum, fiskeldi, ylrækt
og fiskiðnaði að verða meðal þeirra
fremstu í heimi í nýtingu þróaðrar
tækni I þessum greinum. Sama
ætti jafnframt að eiga við um sam-
göngufyrirtæki, sjúkrahús og
fræðslustofnanir. Jafnframt því að
vera útflytjendur á vörum gætu ís-
lendingar því orðið stórir útflytj-
endur þekkingar á þeim sviðum,
sem hér hafa verið nefnd.
27. þing SUS hvetur stjórnvöld
til að halda vöku sinni í þessu efni
og bendir að síðustu á nauðsyn þess
að frjálslynd stjórnmálaöfl með
Sjálfstæðisflokkinn í broddi fylk-
ingar hafi forystu um að marka
pólitíska stefnu í þessum mikil-
væga málaflokki.
27. þing SUS haldiA I Reykjavlk
23.—25. september 1983 hvetur til að f
öryggis- og varnarmálum íslands verði
fylgt stefnu er byggi á aukinni þátttöku
og fnimkvæði íslendinga í eigin öryggis-
og varnarmálum en það er skylda hvers
fullvalda ríkis að hafa forustu og frum-
kvæði i þeim efnum.
Með tilliti til þeirrar vaxandi hern-
Utanríkismál:
Sterk samstaða lýðræðisríkjanna
getur haldið aftur af alræðisöflunum
27. ÞING SUS haldið í Reykjavík
23.—25. sept. 1983 fagnar því að frum-
kvæði og forusta í utanrfkismálum
skuli nú vera í höndum sjálfstæð-
ismanna. Um leið er lokið neitunar-
valdi Alþýðubandalagsins í varnar- og
öryggismálum iandsins, sem staðið
hefur nú um árabil.
Utanríkisstefna Islands ræðst
eðlilega af hagsmunum þjóðarinnar.
Þeirra hagsmuna er og verður best
gætt með vinsamlegum og nánum
samskiptum við önnur lýðræðisríki,
jafnt á sviði viðskipta, stjórnmála,
menningar- sem og varnarmála.
Eitt mikilvægasta verkefni okkar
tfma er að tryggja friðinn. Um leið
og SUS lýsir yfir áhyggjum vegna
vaxandi vígbúnaðar í heiminum,
leggur það áherslu á, að friðsamar
þjóðir standi saman um þá stefnu,
er miði að þvf að letja hugsanlegan
árásaraðila frá áformum sfnum. Að-
eins sterk samstaða lýðræðisríkj-
anna innan Atlantshafsbandalags-
ins getur haldið aftur af alræðisöfl-
unum, sem annars svffast einskis og
virða að vettugi alþjóðasamninga.
Á síðustu árum hefur borið mjög
á hinum svokölluðu „friðarhreyfing-
um“ á Vesturlöndum, en þær hafa
margar hverjar boðað einfaldar
lausnir á flóknum málum, þ.á m.
einhliða afvopnun lýðræðisríkjanna,
þrátt fyrir að sagan sýni ótvfrætt að
slíkar aðgerðir auka ekki friðarlík-
ur; heldur þvert á móti. Barátta
„friðarhreyfinga" hefur nær ein-
göngu beinst gegn varnarviðbúnaði
Vesturlanda, en ekki gegn þeirri
gengdarlausu hernaðar- og ofbeld-
isstefnu, sem Sovétríkin hafa fram-
fylgt á umliðnum árum, með hörmu-
legum afleiðingum fyrir margar
þjóðir. Vilji menn koma í veg fyrir
styrjaldir duga slagorð, gönguferðir
og skrúðræður lftt. Ekki skal efast
um góðan ásetning margra er tekið
hafa þátt f starfi „friðarhreyf-
inganna" en því miður hafa þær ver-
ið notaðar f þágu alræðisaflanna.
Frjálsar friðarhreyfingar austan
járntjalds eru bannaðar og félögum
þeirra gert erfitt fyrir eða þeir
ofsóttir af þarlendum stjórnvöldum.
I þessu sambandi er vert að gefa
gaum þeirri staðreynd, að f alræð-
isríkjunum þekkist ekki virkt al-
menningsálit, líkt og gerist hér á
Vesturlöndum. Af þeirri ástæðu
geta valdhafar Sovétríkjanna og
annarra alræðisrikja framkvæmt
vígbúnaðar- og hernaðarstefnu sína
ótruflaðir af andsnúnu almennings-
áliti, og notfært sér um leið
frelsið á Vesturlðndum til þess að
dreifa þar óraunhæfum áróðri um
einhliða afvopnun Vesturlanda og
annað hernaðarstefnu sinni f hag.
SUS leggur því áherslu á það megin
sjónarmið Sjálfstæðisflokksins að
afvopnun verður að vera gagnkvæm
og framkvæmd undir traustu al-
þjóðlegu eftirliti. Að öðrum kosti er
hætt við litlum árangri enda eru
Sovétríkin kunn að því að þver-
brjóta gerða samninga hvenær sem
• •
Oryggis- og varnarmál:
Aukin ábyrgð og frum-
kvæði Islendinga sjálfra
aðarlegu og stjórnmálalegu ógnar sem
ísland býr við frá Sovétríkjunum, m.a.
vegna legu landsins, þá er nauðsynlegt
að hrinda í framkvæmd stefnu í ör-
yggis- og varnarmálum, sem byggir á
aukinni ábyrgð og frumkvæði íslend-
inga sjálfra í þessum málaflokkum.
Stefnu þar sem íslendingar meta
sjálfir varnarþörfina og gera tillögur
um varnir landsins og öryggismál f
samræmi við hana. Stefnu þar sem
fyrirkomulag varna landsins er metið
af okkur sjálfum f samvinnu við
bandalagsþjóðir okkar f Atlants-
hafsbandalaginu.
Með aukinni þátttöku (slendinga í
öryggis- og varnarmálum er fyrst og
fremst verið að hvetja til aukinna af-
skipta af fyrirkomulagi og stjórnun
varnar- og öryggismála landsins svo
og aukinnar virkni Islendinga f starfi
Atlantshafsbandalagsins, en ekki
stofnunar íslensks hers. '
27. þing SUS hvetur utanríkisráð-
herra til þess að hlutast til um að
þessari stefnu verði hrundið í fram-
kvæmd.
Frjálst
útvarp
27. ÞING SUS hvetur mennta-
málaráðherra til þess að leggja
fram nýtt frumvarp um frjálsan
útvarpsrekstur þegar á næsta
þingi.
Brýnt er að ríkiseinokunin verði
afnumin. Engin rök eru fyrir
frelsisskerðingu á þessu sviði fjöl-
miðlunar, fremur en til dæmis í
útgáfu blaða, bóka, tímarita eða
kvikmynda.
þeim býður svo við að horfa.
Gagnvart árásar- og útþenslu-
stefnu Sovétríkjanna þurfa Vestur-
landabúar að vera vel á verði, enda
virða þau á engan hátt hlutleysi og
sjálfsákvörðunarrétt þjóða, eins og
glöggt kemur fram í stefnu þeirra
gagnvart Pólverjum og innrás
þeirra í Afganistan undirstrikar svo
rækilega.
Islendingar hafa svo sem eðlilegt
er skipað sér í sveit með öðrum lýð-
ræðisþjóðum og ber því að leggja
sitt af mörkum til þess að fylking
lýðræðissinna í heiminum sé sterk
og órofa á viðsjárverðum tfmum.
27. þing SUS leggur sérstaka
áherslu á að virðing fyrir mannrétt-
indum hvarvetna og gagnkvæm
virðing milli hinna ólíku menning-
arsamfélaga er ein helsta undir-
staða þess að mannkynið geti séð
fram á bjartari framtíð. Vönduð
umfjöllun fjölmiðla og skóla lands-
ins á alþjóðlegum málefnum er því
mjög mikilvæg.