Morgunblaðið - 23.10.1983, Qupperneq 22
62
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1983
Séra Solveig Lára Guðmundsdóttir
Finnst þér þú þarfnast nýrra
krafta, nýrrar gleði og nýrra hug-
mynda? Gæti þér þótt gott að setjast
niður með góðu fólki, hlusta, syngja,
hugsa og spjalla um það, sem þú
heyrir? Dag hvern er kirkja okkar
að rétta okkur hjálparhönd til að
gera líf okkar svo sem við vildum að
það vsri, dag hvern er beðið og
starfað í söfnuðum okkar. Nú ætla
nokkur kristin félög innan kirkj-
unnar að halda samkomu í Reykja-
vík til að hvetja okkur til nánari og
dýpri umhugsunar um trú okkar.
I>að eru KFUM og K, kristniboðsfé-
lögin og kristilega skólahreyfingin.
Yfirskrift vikunnar er Kristsvakn-
ing ’83. Samkomur verða alla vik-
una, á hverju kvöldi klukkan 20.30,
að Amtmannsstíg 2b í húsi KFUM
og K. Við erum öll velkomin þang-
að, segja þau, sem standa fyrir sam-
komunum, og okkur hér á síðunni
finnst það notaleg tilfinning, sem
við vonum að ykkur finnist líka.
Hvað er vakning?
Helga Soffía Konráðsdóttir guð-
fræðinemi er ein í þeim hópi, sem
hefur undirbúið Kristsvakningu
'83. Við höldum upp í háskóla og
tökum hana tali uppi á kapellu-
lofti, kaffistofu guðfræðinema.
Samkomuvikan heitir Kristsvakn-
ing ’83. Hvað er vakning, Helga
Soffía?
Vakning er eitthvað kraftmikið,
eitthvað, sem vekur, ýtir við og
hreyfir. Ýmsar vakningar ganga
yfir þjóðfélagið núna, t.d. líkams-
ræktarvakning. En Kristsvakning
er öðru vísi. Það er hreyfing í
hugsun og lífi fólks — þegar það
fer að hugsa um Krist, spyrja
sjálft sig um afstöðu sína til hans
og um afstöðu sína til umhverfis-
ins og heimsins.
Helga Soffía Konráðsdóttir
Helga Soffía horfir hugsandi út
um gluggann. Við líka.
Útskýrðu þetta nánar.
Þetta er spurningin um tilgang
manns f lífinu, hvers vegna lifum
við og hvert er markmiðið. Margt í
lífinu og umhverfinu vekur mann
til umhugsunar, t.d. dauðsfall eða
einhver sérstök tfðindi. En
Kristsvakning hefur það að
markmiði að vekja til umhugsun-
ar um Krist.
Til hvaða umhugsunar um Krist?
Kristur ætti ekki að vera okkur
ókunnugt nafn í þjóðfélaginu. Það
er annað mál hvað mikið við hugs-
um um hann og kenningu hans.
Þegar við förum að spyrja spurn-
inga um Krist förum við að spyrja
um afstöðu sjálfra okkar.
Kapelluloftið fyllist af fólki,
sem talar um heima og geima,
ólíku fólki sjálfsagt og á ýmsum
aldri þótt allir eigi það sameigin-
legt að vera þarna á loftinu. Og við
hugsum til þeirra áhrifa, sem við
öll hljótum þó á einhvern máta að
hafa hvert á annað, og þess vegna
spyrjum við:
Hvernig getum við vaknað til nýrr-
ar umhugsunar um Krist, er það
undir sjálfum okkur komið eða ein-
hverju öðru?
Þegar þú vaknar til umhugsun-
ar og ferð að spyrja sjálfa þig og
aðra um Krist veit ég ekki hvort
þér finnst eitthvað merkilegt á
ferðinni. Það er eins misjafnt '
manneskjurnar eru margar,
velta fyrir sér sömu hlutunu, en
komast að ólíkum niðurstööum.
Hvaða niðurstöðu þú kemst að fer
m.a. eftir þvf hvernig boðskapur-
inn er framreiddur. Þú gætir t.d.
komizt að þeirri niðurstöðu að
Kristur hafi verið stórmerkur
uppreisnarforingi, sem hafi haft
vekjandi áhrif á fólk á sínum
tíma. En þú getur lfka komizt að
þeirri niðurstöðu þegar þú hugsar
um hann og það, sem hefur verið
skrifað um hann, að hann komi
sjálfri þér við f nútímanum, skipti
sköpum í lífi þfnu. Þú getur kom-
izt að þeirri niðurstöðu að það sé
undir sambandi þfnu við hann
komið hvort þú lifir lffi, sem þér
finnst fullnægjandi. Það, sem gild-
ir fyrst og fremst, er að vera ær-
legur við sjálfan sig.
Hver er Kristur þér?
Þetta er mikil spurning. Eg get
yfirleitt ekki hugsað mér að vera
án hans. En hvað þýðir það? Er
þetta ekki bara einhver merking-
arlaus setning að segja svona?
Þegar ég veit að ég er ekki ein að
takast á við lífið og tilveruna er ég
örugg. Mér finnst það gefa mér
rétt tengsl við lífið af því að minn
lífsskilningur er sá að til sé Guð,
sem birtist í Jesú Kristi. Allir
skapaðir hlutir velta á því.
Jísús Artslur
»on œannkgns -vötn þin
Hjálpar
þú
„Að vilja veitist mér auð-
velt, en ekki að framkvæma
hið góða. Hið góða, sem ég vil,
gjöri ég ekki, en hið vonda,
sem ég vil ekki, það gjöri ég.“
Hversu mörg okkar geta
ekki tekið undir þessi orð Páls
postula í Rómverjabréfinu.
Við, sem flest okkar eigum
svo annríkt — og höfum varla
tfma til að sinna okkar nán-
ustu — hvernig getum við
haft tíma til að hjálpa þeim,
sem sitja einmana og bíða?
Hugsaðu um það hvað tíminn
er óútreiknanlegur. Þú ert ef
til vill í kapphlaupi við hann
núna, en hversu lengi verður
þú það?
Lífsins gangur er að vaxa
upp og eiga sitt blómaskeið.
Þegar kvölda tekur og vinum
fer að fækka verður þú ef til
vill einmana — hver dagur
verður lengi að líða. Þú hefur
eflaust tekið eftir því, að oft
skortir virðingu gagnvart
til?
þeim sem eldri eru. Hvort
sem það er í daglegu lífi, í
strætisvögnum, samkomum
og jafnvel sjúkrahúsum —
þar verðum við eingöngu vör
við þetta virðingarleysi, þó
vissulega sé þar gott starf
unnið.
Gleymum því aldrei, að
gamla fólkið í kringum okkur
er oft tilfinningaríkir ein-
staklingar, sem hafa lifað
ólíkari tíma en við sem yngri
erum getum ímyndað okkur.
Af þeim getum við lært. Þeir
sem lífsreynsluna og árin
mörg hafa að baki ættu að
vera þeir sem við sýnum
mesta virðingu í þjóðfélaginu.
Þekkir þú ekki einhvern,
sem kominn er á efri ár, sem
þú gætir rétt hönd þína, þó
ekki væri nema stund í senn.
Þannig færir þú ljós inní lff
þeirra, sem þurfa á því að
halda. Þannig útbreiðir þú
fagnaðarerindið.
Biblíulestrar
vikuna 23.-29. október
Sunnudagur 23. okt.
Mánudagur 24. okt.
Þriðjudagur 25. okt.
Miðvikudagur 26. okt.
Fimmtudagur 27. okt.
Föstudagur 28. okt.
Laugardagur 29. okt.
Jóh. 4:34-42.
Op. Jóh. 1:9—20. Ásjóna hans var sem sólin
skínandi í mætti sínum.
Op. 2:1—7. Gjör iðrun og breyttu eins og
fyrrum.
Op. 2:8—11. Drottinn þekkir þrengingu vora
og fátækt.
Op. 2:12—17. Drottinn þekkir aðstöðu vora.
Op. 2:8—29. Haldið því, sem þér hafið,
þangað til ég kem.
Op. 3:1—6. Að kallast kristinn, en vera það
ekki.
„Minn matur er að gjöra vilja þess, sem sendi mig“
21. sunnudagur eftir trinitatis. Jóh. 4:34—42
{guóspjalli dagsins í dag segir Jesús, að
hans matur sé að gera vilja Guðs. Jesús er
korninn til að fullkomna verk Guðs. Og
verk hans tala — bera guði vitni og sjá:
uppskeran er tilbúin. Akrarnir eru hvítir.
Þessi orð Jesú segja okkur hver til-
gangur okkar er í lifinu. Við höfum verk
að vinna í ríki Guðs. Við höfum það
verkefni að bera honum vitnisburð, sem
sáði sæðinu helga fyrir okkur. Kristur
kom í þennan heim til að opinbera
okkur kærleika Guðs og hann segir:
„Því vatnið, sem ég gef honum, verður
í honum að lind, sem streymir fram til
eilífs lífs.“
Þannig á orð hans að vera eins og
frækorn, sem þér er gefið — þú ert hinn
frjói jarðvegur, sem berð því ávöxt. Þú
þarft ekki að bíða lengur. Uppskeran er
tilbúin. Þú getur hafist handa strax.
„Minn matur er að gera vilja þess,
sem sendi mig,“ segir Drottinn. I hans
fótspor göngum við til þeirra, sem van-
máttar eru — opinberum kærleika Guðs
— berum orði hans vitni í öllu okkar
daglega lífi.
Og árangurinn? Árangurinn leynir
sér ekki — ekki aðeins vegna vitnis-
burðar þíns — heldur vegna þess að
„vér höfum sjálfir heyrt hann og vitum,
að hann er sannarlega frelsari heims-
ins“.