Morgunblaðið - 05.11.1983, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1983
ALLTAFÁ SUNNUDÖGUM
OG EFNISMEIRA BLAÐ!
Marteinn Lúter
Tröllaleikir
— leikbrúöur í lönó
Töluö orð veröa ekki aft-
ur tekin
— þingbréf Stefáns Friöbjarnarsonar
Richard Wagner
— óþokki — snillingur
Kristján söng eins og
engill
— rætt viö Björgvin Halldórsson
Áhorfendur verða oft
vitstola á knattspyrnu-
kappleikjum
Giftu þig aldrei þýzkum
prinsi
Sjávarútvegur í Kanada
— rætt við Vilhjálm Jónsson
Skrifað í skýin
— þáttur úr bók Jóhannesar Snorrason-
ar
Tel mig aðeins bundinn
af eigin samvizku
— rætt við Vaclav Havel
Gaukur á Stöng
— ný bjórstofa í bígerð í Fteykjavík
Pottarím um pylsugerö
Hræringur
Gárur — Á drottins degi
— Reykjavíkurbréf —
Velvakandi — Huqvekja
— Myndasögur — A förn-
um vegi — Útvarp &
sjónvarp
Sunnudagurinn byrjar á sídum Moggans
Sendiherra Líbýu við brottförina frá Grenada.
Sendiherrann — með handtösku — sést hér ásamt fjölskyldu sinni, en í fylgd með þeim eru þrír hermenn
úr fjölþjóðaliðinu, sem sótti inn í Grenada.
Sprengingin í Rangoon:
Telja sannað að N-Kóreu-
menn hafi verið að verki
Rangoon, Burma. 4. nóvember. AP.
STJORNVÖLD I Burma tilkynntu í
gær, að stjórnmálasambandi við
Norður-Kóreu hefði verið slitið og
sendiráðsfólk Burma í Pyongyang í
Norður-Kóreu myndi halda heim-
leiðis innan tveggja sólarhringa.
Astæðan væri sú, að sannað væri
óumdeilanlega, að útsendarar
Norður-Kóreustjórnar hefðu staðið
fyrir sprengingunni miklu í Burma á
dögunum, þar sem 21 maður lét liTið,
þar á meðal nokkrir suður-kóreskir
ráðherrar.
Það var ríkisútvarpið í Burma
sem las tíðindin fyrir alþjóð úr
fréttatilkynningu frá stjórnvöld-
um og kom fram „að ekki léki hinn
minnsti vafi á því“ að skæruliðar
frá Norður-Kóreu hefðu staðið á
bak við tilræðið, búið væri að
vinna úr öllum gögnum sem fyrir
lágu og yfirheyra tvo Norður-
Kóreumenn sem handteknir voru
skömmu eftir sprenginguna. Þeir
hafa játað að hafa verið viðriðnir
tilræðið, að sögn stjórnvalda.
Þriðji Norður-Kóreumaðurinn
sem hermenn Burmastjórnar
náðu, lést af skotsárum sem hann
hlaut. Einn fanganna spurði lög-
reglumann eitt sinn í miðri yfir-
heyrslunni hvort suður-kóreski
forsetinn væri látinn. Til þess að
„veiða" hann, svaraði lögreglu-
maðurinn að forsetinn væri al-
varlega slasaður. Viðbrögð fang-
ans voru á þá leið, að hann steytti
hnefa til himins og æpti: „Tilræðið
heppnaðist."
Stjórnmálasamband Burma og
Norður-Kóreu var náið, en Burma
heldur fram hlutleysi og hefur
haft stjórnmálasamband við bæði
kóresku ríkin.
í stuttu máli...
Bandaríkin:
Atvinnuleysi
fer minnkandi
Washington, 4. nóvember. AP.
ATVINNULEYSI minnkaði í
Bandaríkjunum f októbermánuði
en þá var það 8,8%, það minnsta
í 20 mánuði.
Kemur þetta fram í skýrslu
frá stjórnvöldum, sem segja,
að í mánuðinum hafi 320.000
manns bæst við á vinnumark-
aðinum og að í fyrsta sinn frá
því í mars í fyrra séu atvinnu-
leysingjar færri en 10 milljón-
ir. í október minnkaði atvinnu-
leysið um 0,5%, úr 9,3% í sept-
ember í 8,8% eins og fyrr sagði
en í júní var það 10%. Mest var
það 10,8% í desember í fyrra
en þá voru 12 milljónir manna
án atvinnu. Stöðugur uppgang-
ur hefur verið í bandarísku
efnahagslífi á þessu ári og all-
ar horfur á að hann haldi
áfram.
Kosningarnar í S-Afríku:
Varkár við-
brögð
Breta
Lundúnum, 4. nóvember. AP.
BRESK stjórnvöld fóru mjög
varlega í sakirnar varðandi
viðbrögð sín við úrslitum kosn-
inganna í Suður-Afríku í vikunni,
þar sem hluti íbúa landsins sem
ekki eru hvítir á hörund, fengu
takmörkuð pólitísk réttindi.
f tilkynningu sem breska
utanríkisráðuneytið sendi frá
sér sagði meðal annars, að lítið
væri um slík kosningaúrslit að
segja þar sem aðeins lítill hluti
þjóðarinnar hefði fengið að
leggja fram álit sitt og óskir.
Stóð jafnframt í tilkynning-
unni, að Bretar væntu þess að í
náinni framtíð myndi koma til
stjórnarskrárbreytinga í
Suður-Afríku sem kæmi öllum
landsmönnum til góða, en ekki
aðeins broti af þeim.
Kaþólska kirkjan í Nicaragua:
Segir sandinista
ofsækja kirkjuna
Managua, 4. nóvember. AP.
BISKUPAR kaþólsku kirkjunnar í Nicaragua ætla að ræða við stjórnvöld um þá
atburði um síðustu helgi þegar stuðningsmenn sandinista misþyrmdu biskupi og
prestum í átta kirkjum landsins. Stjórnvöld hafa ákveðið að flytja allt fólk frá
stærstu hafnarborg landsins vegna árása
Leiðtogar sandinista í Nicaragua
hafa farið fram á fund með biskup-
Zimbabwe:
Muzorewa í hung-
urverkfalli
llarare, Zimbabwe, 4. nóvember. AP.
ABEL Muzorewa, biskup og fyrrum
forsætisráðherra í Zimbabwe, sem ör-
yggislögregla Mugabe-stjórnarinnar
handtók sl. mánudag, er nú í hungur-
verkfalli í fangaklefa sfnum að því er
sonur hans segir.
í viðtali við fréttamann AP sagði
Philemon Muzorewa, sonur Abels
Muzorewa, að faðir sinn væri í hung-
urverkfalli og illa haldinn líkamlega.
Þrátt fyrir það hefðu yfirvöld neitað
honum um læknishjálp og ættingj-
um hans er bannað að heimsækja
hann. Mugabe hefur sakað Muzor-
ewa um undirróðursstarfsemi og að
hann hafi leitað jafnt á náðir Israela
sem Suður-Afríkumanna f tilraun-
um sínum til að steypa stjórnvöld-
um.
Séra Sithole, stofnandi Afríska
þjóðarflokksins, flokks Mugabes, lét
frá sér fara yfirlýsingu í dag þar
sem hann fordæmdi ríkisfjölmiðlana
í Zimbabwe og sakaði þá um að
„segja ekki sannleikann" um hand-
töku Muzorewa.
skæruliða á hana.
um kaþólsku kirkjunnar í landinu og
vilja þeir ræða um samskipti ríkis og
kirkju, sem stöðugt hafa farið versn-
andi. Er búist við, að fundurinn
verði á miðvikudag f næstu viku.
Prestar í Nicaragua hafa sakað
sandinista um vaxandi ofsóknir á
hendur trúnni og kirkjunni og neit-
uðu þess vegna að syngja messu sl.
miðvikudag, á allra sálna messu,
sem er stór dagur í lífi trúaðs fólk í
Rómönsku-Ameríku.
Hópar manna, stuðningsmenn
sandinistastjórnarinnar, réðust sl.
sunnudag á biskup og presta við átta
kirkjur í Nicaragua og misþyrmdu
þeim og sl. þriöjudag ráku sandinist-
ar úr landi tvo erlenda presta. Voru
þeir sakaðir um að hafa hvatt fólk til
að sinna ekki herkvaðningu og um
„stuðning við gagnbyltingarmenn
með því að hvetja stjórnvöld til að
eiga viðræður við þá“.
Stjórnvöld hafa ákveðið, að 26.000
íbúum Corinto, stærstu hafnarborg-
ar í Nicaragua, verði komið fyrir
annars staöar í landinu vegna árásar
skæruliða á borgina 11. október sl.
og vegna ótta við nýjar árásir. í
árásinni eyðiiögðu skæruliðar átta
stóra eldsneytisgeyma með 2,2 millj-
ónum gallona af bensfni og hefur
síðan verið mikiil eldsneytisskortur í
landinu.