Morgunblaðið - 17.11.1983, Síða 5

Morgunblaðið - 17.11.1983, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1983 5 Ósviknir OACHSTEIN með tvöföldum saumum, nlö-sterkum gúmmlsóla, vatnsþéttrl reimingu. Framleiddlr I Austurrlkl og sórstaklega geróir fyrir mlkiö áiag og erflóar aóstæóur. Sántis kr. 2.015 (38—47). Gaisberg kr. 1.323 (36—47). Achensee kr. 1.323 (36—46). Sotty kr. 1.697 (36—46). Flims kr. 1.526 (36—46). Retz kr. 807 (36—46). Retz Kinder kr. 677 (30—35). PÓSTSENDUM SAMDÆGURS. FÁLKINN SUÐURLANDSBRAUT 8 SlMI 84670 Hollenskur, franskur, ítalskur og enskur fatnaður nýkominn Sitt lítiö af hvorju Littu inn Austurstrœti 22 GARBO Fjallaskór Achensee Softy Rotz Sinfóníuhljómsveitin frumflytur verk eftir Leif Þórarinsson: „ÞEIR segja þaö strákarnir í Sin- fóníunni að það sé mikil haust- stemmning í verkinu. Sem er svo- lítið skrítið, því ég vann frumdrög- in suður á Ítalíu í sumar, í 40 stiga hita. En það er kannski heimþrá- in.“ Það er Leifur Þórarinsson tónskáld sem á þessi orð, en í Sólskinskveðj- ur frá Balí í GÓÐUM fagnaði 120 fslendinga sendir heimsreisuklúbbur Útsýnar sólskinskveðjur frá draumaeyjunni Balí. Slíka fegurð hafa víðforlustu menn í hópnum ekki áður augum litið. Ferðin hingað um Bangkok hefur öll verið ævintýri líkust og ótrúlegri en orð fá lýst. Á (ostudag hefst ferðin til baka með þriggja daga viðdvöl í Singapore. Við gefum hér út frétta- blað heimsreisuklúbbsins „Vitann" með helstu fréttum frá íslandi og ann- ars staðar úr heiminum, ásamt ýmsu skemmtiefni og frásögnum af gam- ansömum atvikum í þessari drauma- ferð. Heilsufar er gott, veðurfar dás- amlegt. Hitinn hefur verið 29 til 34 stig. Almenn gleði og hrifning ríkti í allri ferðinni. Komum heim til fs- lands að kvöldi 24. nóvember. Kær- ar kveðjur frá þátttakendum í heimsreisu fjögur. (Frétutilk;nning frá Útsýn) kvöld, fimmtudagskvöld, frumflyt- ur Sinfóníuhljómsveit íslands nýtt verk eftir Leif í Háskólabíói, Haustspil, sem hann byrjaði á í sumar á Ítalíu, en lauk við hér heima í haust. „Ég fór til Ítalíu í sumar til að vinna að óperu fyrir óperuna í Helsinki í Finnlandi, sem ég þarf að ljúka fyrir næsta vor. En það sóttu að mér ýmsar hugmyndir að hljómsveitarverki sem ég festi á blað og vann síðan end- anlega úr hér heima í haust. Það stóð til að Sinfónían flytti verk sem ég samdi í fyrravetur á þessum tónleikum nú, en mér hentaði betur að frumflytja Haustspilið og fór fram á það við stjórnandann að skipta. Það er Páll P. Pálsson, sem stjórnar tónleikunum í kvöld, en þetta er fjórða verkið eftir Leif sem hann frumflytur. „Þetta verk Leifs er mjög fagmanna- lega skrifað," sagði Páll, „enda er Leifur sannkallaður „sinfón- íker“ — hann veit hvernig á að skrifa fyrir hljómsveit. Vinnan frá minni hendi er því fyrst og fremst spurning um túlkun, að koma réttri stemmningu til skila. Þessi tónlist er fremur kyrrlát og líðandi, en þó er í henni nokkur þungi. Sannkölluð haustkyrrð." Verkið tekur um 15 mínútur í flutningi, og sagði Leifur að þótt það gæti fyllilega staðið eitt sér, væri hann með áform um að gera það seinna að einum þætti í stærri sinfóníu. Tvö önnur verk eru á efnisskrá tónleikanna í kvöld. Á eftir Haustspili kemur Flautukonsert eftir Jacques Ibert, en tónleikun- um lýkur með Sinfóníu nr. 5 í d-moll op. 107 eftir Mendels- sohn. Manuela Wiesler leikur ein- leik, en hún er sérstaklega kom- in hingað til lands nú til að taka þátt í þessum tónleikum. Hún hefur nýlega verið á ferðalagi um Evrópu með sex slagverks- mönnum og strax í fyrramálið fer hún til Malmö, þar sem hún býr nú, en þar heldur hún ein- leikstónleika á laugardaginn. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30. Fékk hugmyndina að Haustspilinu í 40 stiga hita

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.