Morgunblaðið - 17.11.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1983
23
Merkur fornleifafundur í Dóminikanska lýðveldinu:
Fundu mannabein og húsa-
rústir frá tímum Kólumbusar
Isarxlla del Castillo, Dóminkanska lyovrldinu, 16. nóvember. AP.
FORNLEIFAFRÆÐINGAR, sem unnið hafa við uppgröft á
stað, þar sem talið er að Kólumbus hafi fyrst komið að landi í
nýja heiminum, hafa skýrt frá því að þeir hafi fundið bein
fyrstu nýlendubúanna í fornum grafreit. Jafnframt segjast
þeir hafa fundið rústir steinhúsa, þar sem m.a. er talið að
Kólumbus hafi sjálfur búið.
Grafreiturinn, þar sem einnig
hafa fundist bein indíána, fannst
í september í litlu þorpi, Isabella
del Castillo, á eynni Hispaniola.
Hún er ein eyjanna sem tilheyra
Dóminikanska lýðveldinu. Það
var hins vegar ekki fyrr en ný-
verið að mannabeinin komu í
ljós við uppgröftinn.
Hafa líkamsleifar 60—80
manna fundist á ferkílómetra
stóru svæði. Flestir eru taldir
hafa verið Spánverjar og mótast
sú afstaða af þeirri stellingu,
sem beinin fundust í; greipar
spenntar og höfuð vísar í vestur.
Þetta mun jafnframt fyrsti
grafreitur kristinna manna í
Ameríku.
Kólumbus stofnaði nýlendu á
eynni Hispaniola í annarri ferð
sinni árið 1493. Að sögn forn-
leifafræðinganna, sem að upp-
greftrinum vinna, virðast fyrstu
nýlendubúarnir hafa lifað fá-
breyttu lífi og lítil breyting hef-
ur orðið þar á allt fram á vora
daga. Á eynni búa nú um 300
manns og stunda aðallega fisk-
veiðar. Ekkert raf magn er t.d. að
hafa á eynni og ýmislegt annað,
sem þykir sjálfsagður hlutur í
nútímaþjóðfélagi, er þar með
öllu óþekkt.
Kristófer Kólumbus
Staðurinn, þar sem unnið er
að uppgreftrinum, er eyri á milli
tveggja áa. Segjast fornleifa-
fræðingarnir m.a. hafa fundið
rústir fimm steinhúsa, sem talin
eru vera þau fyrstu sem Spán-
verjar byggðu í Ameríku. Eitt
húsanna er talið hafa verið bú-
staður Kólumbusar sjálfs. Kól-
umbus hélt til á eynni í um eitt
ár, en sneri síðan heim á ný og
lagði upp í þriðju könnunarferð
sína. Þá er talið að rústir eins
hússins kunni eitt sinn að hafa
verið kirkja. Birgðageymsla
virðist hafa verið í einu húsanna
og eitt þeirra hefur líkast til ver-
ið notað sem vígi.
Stjórnmálamenn komu af og
til á þennan stað í tilefni Kól-
umbusardagsins, en rústirnar
voru endanlega jafnaðar við
jörðu árið 1950 að skipun ein-
ræðisherrans Rafel Trujillo. Vit-
að hefur verið um húsarústirnar
um langa hríð, en þær ekki verið
taldar gegna neinu sögulegu
mikilvægi. Við uppgröft forn-
leifafræðinganna þriggja hefur
annað komið í ljós.
Vaxandi andstaða almennings í Póllandi gegn fyrirhuguðum verðhækkunum:
Ólgan prófsteinn á styrk
nýju verkalýðsfélaganna
Varsja, 16. nóvember. AP.
FYRIRHUGAÐAR verðhækkanir
stjórnvalda í Póllandi á matvæl-
um í byrjun komandi árs eru
Samstöðu kærkomið tækifæri til
að sýna styrk sinn og jafnframt
prófsteinn á styrk hinna nýju
verkalýðsfélaga stjórnvalda. Til
þessa hefur alþýðan virst skeyt-
ingarlaus í garð þeirra.
Stjórnvöld tilkynntu fyrir
skemmstu, að verð á ýmsum nauð-
synjavörum myndi hækka um allt
að 20 af hundraði, en í síðustu
viku var látið að því liggja að
hækkanirnar yrðu á bilinu
10—15%. Stjórnvöld segjast ekki
taka endanlega ákvörðun fyrr en
að loknum viðræðum við alþýð-
una, en til þessa hafa engar slíkar
Lech Walesa með merki Samstöðu að baki sér.
viðræður farið fram.
Andstaða og reiði almennings
við þessar fyrirhuguðu hækkanir
fer stigvaxandi og sú staðreynd,
að verðbólga er um 30 af hundraði
verkar eins og bensín á logandi
eld. I ofanálag tóku yfirvöld upp
smjörskömmtun fyrr í þessum
mánuði og orðrómur er um að
sápa og önnur þvottaefni verði
skömmtuð innan skamms.
Samstaða hefur komist yfir ein-
tak af tilkynningu stjórnvalda um
verðhækkanirnar og hvetur nú
stuðningsmenn sína til þess að
efna til mótmælaaðgerða um land
allt, líkt og þær, sem leiddu til
stofnunar samtakanna 1980.
í tveggja síðna plaggi, sem vest-
rænir fréttamenn fengu frá Sam-
stöðu í dag, er skýrt frá áætlun
um fyrirhugaðar aðgerðir. Eru
þær með nokkuð öðru sniði en
venja hefur verið til. Er ætlunin
að virkja óánægju almennings
beinlinis til framdráttar Sam-
stöðu í verksmiðjum landsins.
„Taki hin nýju verkalýðsfélög
stjórnvalda ekki einhverja afstöðu
til verðhækkananna, og það ein-
dregna afstöðu gegn þeim, geta
þau bókað að hinir tiltölulega fáu
stuðningsmenn þeirra munu fljótt
týna tölunni," sagði pólskur blaða-
maður á fyrsta þingi starfsmanna
í léttiðnaði í Lodz í októberlok.
vj ^
*f l^
Veöur viöa um heim
Akureyri 5 léttskýjao
Amaterdam 7«ký|að
Aþena 18 »kýjaö
Bankok 32 »kýjao
Barcelona 18 skýjao
Beirtit 22 »kýjao
Bertín 5 h»iö«kirt
Bru**el 9 rigning
Buenos Airea 22 »kýjao
Chicago 7 ikýjað
Dublin 8 »kýjao
Feneyjar v»ntar
Frankfurt «1 »kýjao
Genf 4 skýjao
Hel«inki 1 sniókoma
Hong Kong 25 heio.kírt
Jerúaalem 17 heið»kirt
Jóhannesarborg 23 heioskirt
Kaupmannahöfn 8 »kýjao
Kairo 27 ikýjaö
La» Palmaa 21 «kýjaö
Lissabon 16 rigning
London 9 heiöakirt
La» Palmas 21 «kýjað
Lo» Angelea 25 akýjað
Madrid 13 rignmg
Malaga 18 »kýjað
Mallorca 20 »kýiað
Mexíkóborg 20 «kýjað
Miami 27 skýjaö
Montreal vantar
Mo«kva +1 »kýjaö
New York 10 rigning
NýjaDeli 27 heið«kírt
0*M 6 skýjað
Pari. 5 skýjað
Peking 3 heiöskírt
Parth 13 rigning
Reykjavík 6 *ký|aö
Rio de Janeiro 35 rignlng
Róm vantar
Stokkhólmur 3 skyjaö
Sydney 25 heiðskirt
Tókýó 17 heið«kírt
Vancouver vantar
Vínarborg +2 íkýjaö
Vinstriöfgamenn
að baki morðinu
Aþenu, 16. nóvember AP.
VINSTRISINNUÐ hryðjuverkasam
tök í Grikklandi kváðust í gær bera
ábyrgð á dauða bandaríska ofurst-
ans, sem myrtur var fyrir nokkrum
dögum ásamt grískum bílstjóra sín-
um.
ókunnur maður hringdi í gær á
ritstjórnarskrifstofur Aþenu-
blaðsins Eleftherotypia og sagði,
að samtökin „17. nóvember" hefðu
staðið fyrir morðunum. Sagði
maðurinn, að síðar myndu sam-
tökin senda frá sér yfirlýsingu þar
sem þau skýrðu nánar ástæðurnar
fyrir morðunum. Samtök með
sama nafni lýstu sig ábyrg fyrir
morði bandarísks leyniþjónustu-
manns árið 1975.
George Tsantes, 53 ára gamall
ofursti og ráðgjafi í bandaríska
sendiráðinu í Aþenu, var myrtur
þegar tveir menn á vélhjóli skutu
á bíl hans. Bílstjórinn, sem var
grískur, féll einnig. Mennirnir
komust síðan undan.
„17. nóvember" dregur nafn sitt
af þeim degi þegar gríska her-
stjórnin bældi niður á sínum tíma
mótmæli grískra stúdenta.
tlt
t t
Það hafa margir gert góð kaup nú þegar á splunku-
nýjum vörum í Markaðshúsinu, Sigtúni. Með þess-
ari auglýsingu erum við að minna á okkur og þær
geysigóðu vörur sem á boðstólum eru:
Karnabær, Belgjageröin (vinnuföt), Sportval (sportfatnaöur),
Bikarinn (sportfatnaöur), Henson (ípróttafatnaður), Utilíf (sport-
fatnaöur), Æsa (skartgripir), Assa (tízkuföt, barnaföt), S.K.
(sængurfatnaöur), Libra (fatnaöur), Gallerí Lækjartorg (hljóm-
plötur), Raftak (rafmagnsvörur), Lagerinn (fatn. á alla fjölskyld-
una), Tindastóll (S.H.-gluggatjaldaefni), G.M.-prjónagarn,
Prjónastofan Katla (ísl. prjónapeysur), K. Helgason (sælgæti),
M. Bergmann (sængurfatnaöur).
Þegar pú ert búin(n) aö verzla, sestu niöur í ró og næði á
kaffiteríunni.
Opid manud—fimmtud. kl. 12—16, föstud. 12—19, laugard. kl. 12—6.
MARKAÐSHÚSIÐ, SIGTÚNI 3, 2. HÆÐ.