Morgunblaðið - 17.11.1983, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1983
33
Tomas ásamt fjölskyldu, Guðrúnu konu sinni og börnum, Margréti, Brandi og Klöru fyrir framan klasa af
kjöttómötum í gróðurhúsinu á Klöpp.
Tomas Luwig garðyrkjubóndi:
„Það er enn langur listi af
grænmeti, sem er ræktan-
legt hér á landi
ÞEGAR ekið er inn Reykholtsdal-
inn um gróðurhúsahverfið á
Kleppjárnsreykjum, er skilti við
heimreiðina heim að einu gróður-
húsabýlinu, sem vekur athygli. Þar
er auglýst til sölu „beefsteak“ og
„cherry“ tómatar. Venjulega held-
ur alþýða manna, að í gróðurhús-
um séu einungis ræktaðir tómatar
og gúrkur. Annað grænmeti, sem
krefst inniræktunar, hljóti að vera
innflutt og geti varla verið ræktað
hér á klakanum.
Því lék tíðindamanni Mbl. for-
vitni á, hvað þarna væri á ferð-
inni og hvort fleiri tegundir af
grænmeti sé unnt að rækta hér á
landi í viðbót við þær sem fyrir
eru. Var því gróðurhúsabóndinn,
Tomas Ludwig á Klöpp sóttur
heim. Hann var fyrst spurður
um afrakstur sumarsins og
hvernig gróðurhúsabændur og
garðyrkjubændur tækju svona
slæmu sumri.
„Búið að vera mjög slæmt.
Uppskeran er langt fyrir neðan í
meðalári. Ég hefi heyrt tölur frá
sumum, að uppskeran sé um
60%.
— Hvað með tryggingu ykkur
til handa til að bæta skaða i
svona árferði eða lán?
„Við erum nú komnir með
foktryggingu, sem ekki var áður,
ef rúður brotna í gróðurhúsum.
En fyrir skakkaföllum af þessu
tagi eru engar tryggingar. Talað
hefur verið um það, að einhver
hluti af tekjum okkar færi í það
að mynda sjóð til að mæta svona
skakkaföllum. En ekkert er þó
enn orðið ljóst í þeim efnum.
í sjálfu sér er ég heppinn. Er
með litla stöð með sumarblóm-
um, pottaplöntum ásamt
grænmetisrækt bæði inni og úti.
Þetta hefur bjargað okkur. Þarf
því ekki að treysta eingöngu á
útirækt.
Einnig tók ég eftir því að fólk
hafði minna af peningum á milli
handanna nú í upphafi sumars í
sambandi við kaup á sumar-
blómum. Efalaust hefur veðrið
spilað þar eitthvað inn í. En
þetta munar um 10—15% frá í
fyrra. Það er ekki minni vandi að
treysta á svona heimasölu held-
ur en verið væri einhvers staðar
á föstum launum.“
Kjöttómatar
— En svo við víkjum að þess-
um kjöttómötum.
„Já. Það var fyrir 4 árum að ég
fór að rækta eingöngu bufftóm-
ata eins og þeir kalla þá hjá
Sölufélaginu. Salan hefur aukizt
ár frá ári á þeim og nú á þessu
ári hafa bætzt við um
1000—1100 m2 þar sem þeir eru
ræktaðir."
— Að hvaða leyti eru þeir
frábrugðnir þessum venjulegu
tómötum, sem við þekkjum?
„Þeir eru stærri og umfram
allt þéttari í sér. Það er meiri
matur í þeim. Þeir geymast bet-
ur, sneiðin heldur sér vel, þótt
þunnt sé skorið. Menn, sem ekki
hafa getað borðað hina tómat-
ana, hafa getað notið þessara
ágætlega. Það er eitthvað við þá,
sem gerir það að verkum.
í upphafi voru þeir dýrari, þar
sem uppskeran er minni af
hverjum fermetra en hjá þeim
venjulegu."
— Er þá kílóið þyngra í kjöt-
tómötunum?
„Nei, ekki er það nú. En það
hefur sýnt sig, að það hefur
borgað sig að hafa þá samt sem
áður. Þeir hafa selzt betur og
þar með ekki farið í úrgang. Þeg-
ar allt kemur til alls, þá er þetta
svipuð útkoma og að vera með
venjulega, jafnvel þótt uppsker-
an sé minni af kjöttómötunum á
m .
— Svo ertu með einhverja
„cherry“-tómata?
„Þeir eru pínulitlir, á stærð
við kirsuber, og sætir á bragðið.
Eru yfirleitt notaðir á salatbari
og til skreytinga. Veitingastaðir
kaupa þá helst enn sem komið
er.
Ég var með 5 plöntur í ræktun
í fyrra og gekk sæmilega þá. En
nú er þetta allt öðruvísi vegna
sólarleysisins í sumar. Þessir
tómatar eru afarviðkvæmir fyrir
sólarleysi og ætli uppskeran
verði ekki um 50% af því, sem ég
bjóst við miðað við uppskeruna í
fyrra. Nú er ég með ræktun á
þeim á 50 m2, svo þetta er dálítil
skakkaföll í ofanálag við annað."
Lífið er mesta tilraunin
— En hvers vegna ertu þá að
þessum tilraunum?
„Þetta er mitt byrjunarsvar
við offramleiðslu á tómötum.
Það er langur listi af alls konar
grænmeti, sem má auðveldlega
rækta hér á landi, en hefur
hingað til verið flutt inn. Má þar
nefna ísbergssalat, blaðlauk og
belgbaunir, sem farið er að
rækta hér á landi. Það er verið
að flytja inn ísbergssalat í júní,
sem auðveldelga er unnt að
rækta í gróðurhúsum hér. Papr-
ika var svo til lítt ræktuð hér
fyrir nokkrum árum. Nú er nóg
af þeirri grænu á ákveðnu tíma-
bili. Vantar svolítið enn af þeirri
rauðu.
Ég tel vitaskuld, að það sé eins
gott að rækta þetta innan lands
eins og vera að flytja þetta inn.
Það sparar sitt fyrir þjóðina."
— Er fólk lengi að taka við
sér varðandi nýjungar?
„Það tekur sinn tíma fyrir fólk
að venjast þessu. En við sjáum
það, að ísbergssalat er flutt inn,
svo það eru nú þegar nokkrir
farnir að borða það. Ég sá fyrir
5—6 árum, að við notuðum að-
eins Vt af grænmetismagni því,
sem nágrannaþjóðirnar nota.
Það er því af nógu að taka.“
— En eru garðyrkjubændur
þá of fastheldnir á það að rækta
bara gúrkur og tómata í gróð-
urhúsunum?
„Ef verið er með nýja vöru á
markaðnum, þá er unnt að fá
það verð fyrir hana sem maður
vill. Síðan verður markaðurinn
að ráða um framhaldið. Ef við
erum ekki hálfdrættingar í
grænmetisáti á við aðrar þjóðir,
þá sjáum við að grænmetis-
bændur eru ekki of margir í
landinu. En þeir sem fyrir eru
mega ekki vera of fastheldnir á
það sem fyrir er. Þetta er þeirra
lifibrauð og því vilja þeir ekki
vera með neina tilraunastarf-
semi. En er ekki lífið að mestu
tilraun.
Hvað mig varðar, þá kem ég
frá Bandaríkjunum og var þar
fyrst auglýsingateiknari, en
sneri mér síðan að garðyrkju.
Eða eins og ljóðskáld hefur sagt:
„Vegurinn greinist í tvennt inni í
[gulum skógi.
Ég valdi þann, sem minna var troðinn
og það hefur skipt sköpum fyrir mig.“
- Pb-
GRÆNMETI
ÁGÖÐtJVGBÐI
rauö epli 35 kr.
gul epli 36 kr.
mandarínur 37 kr.
VörumarkaDurinn lil.
ÁRMÚLA 1a EIÐISTORG111
Velour-sloppar og innisett, frottesloppar og
bómullarnáttföt frá
Finnwear
tekin upp í dag.
GElSiIR