Morgunblaðið - 17.11.1983, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1983
Borg, Miklaholtshreppi:
Blíðviðrið nýtist
vel til framkvæmda
Borg, Miklaholtshreppi, 16. nóvember.
UNDANFARANDI daga hefur
veðurfar verið hér óvenju gott.
Logn og hlý veður, en suma daga
hefur þoka lagzt hér að. Eru þessir
dagar nú góð uppbót á þau hryss-
ingslegu veður, sem voru hér 16.
október og 6. nóvember síðastlið-
inn.
Gamalt mál segir að ef vetrar-
kálfurinn komi snemma, þá
muni góð veður verða um tíma á
eftir. Sannast það einmitt nú,
því undanfarandi dagar hafa
verið það góðir, að sumir dagar
ágústmánaðar voru ekki svona
mildir. Kemur þetta sér vel því
mikið hefur verið hér um úti-
húsabyggingar á liðnu sumri og
blíðviðri undanfarandi daga
hafa nýtzt vel til frágangs á
byggingum. Ekki virðist sam-
dráttur í byggingum á næsta ári.
Byggingafulltrúi tjáði mér að
búið væri að biðja um leyfi til
bygginga á 5 íbúðarhúsum og
ennfremur nokkrum búpenings-
húsum og heygeymslum.
fþróttahús Laugagerðisskóla er
nú orðið fokhelt, en óvíst er
hvort hægt verður að halda
áfram þeim framkvæmdum því
fjármagnskostnaður við bygg-
inguna er orðinn allverulegur.
Síðan snemma í sumar hefur
vinnuflokkur unnið við að
plægja niður streng vegna lagn-
inga á sjálfvirkum síma. Er búið
að grafa þennan streng heim á
alla bæi í Kolbeinsstaðahreppi,
Eyjahreppi, Miklaholtshreppi og
Staðarsveit. Vonir standa til, að
sjálfvirkur sími verði kominn á
alla þessa bæi fyrir áramót. Ef-
laust er gott að fá sjálfvirkan
síma, eykur það öryggi heimil-
anna á vissan hátt, en þó hygg
ég, að margir sjái eftir gamla
símanum að sumu leyti.
Heilsufar fólks og fénaðar
hefur verið í góðu lagi það sem
af er þessum vetri.
— Páll
...HALMÞERVIÐEFNIÐ!
Það fer fátt markvert framhjá fréttariturunum 110
sem halda þér og okkur við efnið frá degi til dag
með nýjum fréttum og fróðleik hvaðanæva af landi
s
inu.
Kannske verður þitt byggðarlag í sviðsljósinu á morgun.
Sérou þá blaðið?
Fylgstu með og fáðu Morgunblaðið í áskrift.
Fréttirfrá fyrstu hendi!
Landið þitt
fjórða bindi
LANDIÐ ÞITT, Island, fjórða
bindi eftir Þorstein Jósepsson og
Steindór Steindórsson, er komið
út hjá Bókaútgáfunni Örn og Ör-
lygur hf. Bókin er 280 blaðsíður og
í henni eru um 250 litmyndir af
landslagi, munum og minjum.
Þetta fjórða bindi tekur yfir
bókstafina S—T og er fyrsta upp-
sláttarorð þess t.d. Safamýri í
Rangárvallasýslu en hið síðasta
Tyrðilmýri í Norður-ísafjarðar-
sýslu.
Á bókarkápu er vitnað til um-
mæla Andrésar Kristjánssonar,
bókmenntagagnrýnanda, en hann
komst m.a. svo að orði um þennan
bókaflokk þegar fyrsta bindi hans
kom út: „Það er nú orðið sérstætt
ágætisverk, ein besta og traust-
asta brú í sambúð þjóðar og lands,
óbrotgjörn gjöf þessara tveggja
afreksmanna til þjóðar sinnar ...
þessi bók er á allan hátt öndvegis-
verk og eins konar sáttmálsörk
lands og þjóðar."
Helgi Magnússon BA sá um
undirbúning handrits til prentun-
ar svo sem hin þrjú fyrri bindin og
naut aðstoðar Ögmunds Helgason-
ar að þessu sinni. Auk þeirra hef-
ur fjöldi manna lagt verkinu lið,
segir í frétt frá útgefanda.
Landið þitt ísland er að öllu
leyti unnin hér á landi. Setning,
umbrot og filmuvinna var unnin
hjá prentstofu Guðmundar Bene-
diktssonar. Litgreiningar voru
gerðar hjá Prentmyndastofunni
Brautarholti 16 og hjá Myndamót-
um hf. í Morgunblaðshúsinu.
Prentun og band var unnið í
Prentsmiðjunni Odda hf.
Hönnun bókarinnar önnuðust
þeir Kristinn Sigurjónsson og Ör-
lygur Hálfdanarson og Kristinn
hafði jafnframt tæknilega umsjón
með höndum.
VR-fundur:
Tölur sner-
ust við
TÖLUR snerust við í frásögn af
fundi í Verslunarmannafélagi
Reykjavíkur um afgreiðslutíma
verslana, sem birtist ( blaðinu í
gær. Þar sagði að 72 atkvæðaseðl-
ar hefðu verið auðir og/ eða ógild-
ir. Það áttu að vera 27 og leiðrétt-
ist það hér með.