Morgunblaðið - 17.11.1983, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÖVEMBER 1983
t
Hjartkær systir mín,
ASTRID MARIE CHRISTENSEN,
lést i Herning 16. nóvember.
Karen Andrésdóttir.
t
Móöir okkar og tengdamóöir,
SIGRÍDUR ODDSDÓTTIR,
andaöist 16. nóvember aö Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund.
Lea Kristjénadóttir, Jónatan Guömundsson,
Hjörvar Kristjónsson,
Vilhelm Heiðar Lúövíksson, Kristín Pálsdóttir.
t
Útför eiginmanns míns,
SIGÞÓRS GUDMUNDAR GUÐMUNDSSONAR,
Hofsvallagötu 21, Reykjavfk,
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 17. nóvember kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Slysavarnafélag islands.
Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna,
Sigríöur Jónsdóttir.
t
Móöir mín og tengdamóöir,
ERLA HJÖRDÍS GÍSLADÓTTIR,
gjaldkeri,
lést í Landspítalanum aöfaranótt 16. nóvember.
Magnea Guómundsdóttir,
Kjartan Ólafsson.
t
Útför eiginkonu minnar, móöur, tengdamóöur, ömmu og lang-
ömmu,
JÓNÍNU BJARGAR BALDVINSDÓTTUR,
Fagrahvammi vió Keflavík,
fer fram frá Keflavikurkirkju föstudaginn 18. nóvember kl. 15.00.
Fyrir hönd vandamanna,
Jón Kristjánsson.
t
Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaðir og afi,
HELGI KRISTJÁNSSON,
húsasmíöameistari,
Lambastöóum, Seltjarnarnesi,
veröur jarösunginn frá Neskirkju mánudaginn 21. nóv. kl. 15.
Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlegast bent á Kíwanis-
klúbbinn Nes eöa aörar líknarstofnanir.
Katrín Magnúsdóttir, Viöar Helgason,
María og Björn Blöndal,
Guörún Helgadóttir, Þorgils Axelsson,
Jónína Helgadóttir, Sig. Hafsteinn Björnsson,
Magnús Helgason, Hildur Johnson
og barnabörn.
t
Móöir okkar, tengdamóöir og amma,
LAUFEY ÓSK BENEDIKTSDÓTTIR,
Arahólum 4, Reykjavík,
veröur jarösungin frá Fríkirkjunni fimmtudaginn 17. nóvember kl.
10.30.
Benedikt Sigurösson, Ingibjörg Þorkelsdóttir,
Grétar Sigurösson, Sigríöur Þóra Ingadóttir,
Erla S. Sigurðardóttir,
Haukur Sigurösson,
og barnabörn.
Lára Siggeirs
kaupkona - Minning
Fædd 26. maí 1897
Dáin 9. nóvember 1983
Að kvöldi hins 9. nóvember sl.
lézt kær föðursystir mín, Lára,
eftir stutta lej^u á sjúkrahúsi. Er
ég heyrði lát hennar, fannst mér
allt í einu lífið snauðara og tóm-
legra, sem kannske ekki er að
furða. Allt mitt líf hefur hún verið
einhvers staðar nærri og fært
birtu, yl og gleði í líf okkar sam-
ferðamanna sinna. Fórum við
systkinabörn hennar sízt varhluta
af því. Það er því með söknuði sem
hún er kvödd af stóru frændliði og
þakklæti í huga fyrir langa og
góða samfylgd.
Lára Siggeirs fæddist 26. maí
1897 í Reykjavík, dóttir hjónanna
Helgu Vigfúsdóttur og Siggeirs
Torfasonar, kaupmanns á Lauga-
vegi 13 í Reykjavík. Foreldrar
hennar giftust á Eyrarbakka, þar
sem Siggeir var bókhaldari við
Lefolii-verzlun, en fluttust nokkru
síðar til Þorlákshafnar, þar sem
Siggeir tók að sér forvstu við
verzlun Jóns Árnasonar. Árið 1894
fluttust þau alfarin til Reykjavík-
ur, þar sem Siggeir stofnaði verzl-
un sína. Lára var fjórða í röð 6
barna þeirra hjóna en hin eru:
Sigríður, f. 1891, d. 1979, giftist
Gunnari Sigurðssyni lögfræðingi
og alþingismanni frá Selalæk;
Tryggvi, verzlunarmaður, f. 1892,
d. 1967, giftur Láru Guðlaugsdótt-
ur; Kristján, húsgagnasmíða-
meistari, f. 1894, d. 1975, giftur
Ragnhildi Hjaltadóttur, Sylvía, f.
1898, giftist Jónasi Sveinssyni,
lækni, og Siggeir, f. 1902, en hann
fluttist til Kanada 1921, giftist
þarlendri konu og lézt 1945.
Heimilið á Laugavegi 13 var
mannmargt. Faðirinn rak um-
fangsmikla sveitaverzlun og móð-
irin starfaði mikið að félagsmál-
um og sat m.a. um árabil í stjórn
Kvenréttindafélags íslands sem
gjaldkeri og var ennfremur einn
af stofnendum Kvenfélags Frí-
kirkjusafnaðarins í Reykjavík.
Gestakomur voru óvenjumiklar.
Samheldni og glaðværð einkenndu
allt heimilislífið, og var gestum og
gangandi jafnan veitt af mikilli
rausn. Voru þau systkin tengd
sterkum böndum og kært með
þeim eins og bezt má vera. Af
þessum systkinahópi er nú yngsta
systirin, Sylvía, ein á lífi.
Ung að árum, eða hinn 8. febrú-
ar 1917, giftist Lára Herluf
Clausen, stórkaupmanni, syni
Holger Peter Clausen, kaupmanns
í Stykkishólmi og víðar, og konu
hans, Guðrúnar Þorkelsdóttur.
Reistu þau sér heimili í Reykjavík,
þar sem starfsvettvangur Herlufs
var. Heimili þeirra var glæsilegt
og þar var gestkvæmt. Lára og
Herluf eignuðust einn son, Holger
Peter, kaupmann, sem lézt um
aldur fram fyrir þremur árum.
Milli Láru og einkasonarins ríkti
mikið ástríki og þarf ekki að leiða
getum að því, hve sonarmissirinn
var henni þungbær. Holger giftist
Sólveigu Hermannsdóttur og eign-
uðust þau 3 börn: Láru, kaupkonu,
gift Árna Kristjánssyni, skip-
stjóra, Herluf, viðskiptafræðing,
hans kona er Elín Jónsdóttir, og
Guðrúnu, flugfreyju, gift Jóni
Antonssyni, tæknifræðingi.
Barnabarnabörn Láru eru 6 tals-
ins. Lára tók mikinn þátt í lífi
barnabarna sinna og milli þeirra
ríkti gagnkvæm vinátta, og barna-
barnabömin voru sólargeisli í lífi
hennar.
Lára og Herluf slitu samvistir
+
Sonur minn,
SKÚLI MAGNÚSSON,
Ballaré,
lést aö heimili sínu 8. þessa mánaöar. Kveöjuathöfn fer fram í
Fossvogskirkju föstudaginn 18. nóvember kl. 15.00.
Jaröarförin auglýst síöar.
Elínborg Guömundadóttir.
t
Eiginmaöur minn,
JÓHANN S. HANNESSON,
veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 18. nóvember kl.
15 e.h.
Blóm og kransar afþakkaöir en þeim sem vildu minnast hans er
bent á Hjartavernd.
Fyrir tiönd vandamanna,
Winaton Hanneaaon.
+
Þökkum inniiega auösýnda samúö og vináttu viö útför
ÞORGILS ÞORSTEINSSONAR,
Hjallabrekku 33,
Kópavogi.
Inga Róaa
Guóný S. Þorgiladóttir,
Guöný S. Þorgiladóttir,
Þórdía H. Þorgiladóttir,
Garöar G. Þorgilaaon,
Víkingur Þorgilaaon,
Inga Dóra Þorgiladóttir,
Ragnheiöur Þorgiladóttir,
Jóhanna Mj
Hallgrímadóttir,
Sigmundur Jónaaon,
Magnúa Magnúsaon,
Áata Halla Olafadóttir,
Guórún Árnadóttir,
og Sævar Þór.
Lokað
Skrifstofur fyrirtækisins veröa lokaöar eftir hádegi
föstudaginn 18. þ.m. vegna jaröarfarar
JÓHANNS S. HANNESSGNAR.
Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf.
árið 1937. Atvikin höguðu því svo,
að eftir að Lára varð ein, stóð
heimili hennar aðeins á tveimur
stöðum, Hverfisgötu 28 og Smiðju-
stíg 4, eða á sömu torfunni og hún
var uppalin á. Vildi hún hvergi
annars staðar vera, enda þótt hún
ætti sjálf íbúð í öðrum bæjar-
hluta. Sýnir það vel, hversu tengd
hún var foreldrum sínum og æsku-
heimili og lýsir nokkuð tryggð
hennar við ætt sína og uppruna.
Var unun að heyra hana segja frá
foreldrum sínum og leyndi sér þá
ekki hin mikla virðing, sem hún
bar fyrir þeim, enda naut hún
mikils ástríkis þeirra.
Vorið 1937 hélt Lára til Dan-
merkur þar sem hún lærði fram-
leiðslu regnhlífa. Eftir heimkom-
una stofnsetti hún fyrirtækið
Regnhlífabúðina, þar sem hún
seldi framleiðsluvörur sínar. Gat
hún sér gott orð hvar sem hún fór
sökum heiðarleika í viðskiptum og
orðheldni í hvívetna. Hún sagði
það oft við mig, að þessir eigin-
leikar hefðu verið í hávegum hafð-
ir á hennar æskuheimili og þannig
vildi hún sjálf vera. Lára rak
Regnhlífabúðina í um 40 ára skeið
af miklum myndarskap. Voru það
ófáar stúlkur, sem þar störfuðu og
bundust Láru vináttuböndum.
Lengst störfuðu þær saman Guð-
rún Þórðardóttir og hún, en hún
kom fyrst í vist til Láru haustið
1932 og starfaði síðan með stuttu
hléi með henni frá stofnun Regn-
hlífabúðarinnar og allt til þess
tíma, að Lára seldi fyrirtækið.
Hafði samstarfið því varað yfir 50
ár, og veit ég, að fáa mat Lára
meira en Guðrúnu Þórðardóttur.
Varla get ég minnzt Láru
frænku minnar, að ég geti ekki um
einn stóran þátt í lffi hennar, en
það er hversu mikla gleði hún
hafði af samskiptum við fólk. Hún
var „selskapsmanneskja". Hún
kunni að bjóða til mannfagnaðar
og hafa glatt i kringum sig en allt-
af gætti hún hófs í öllum hlutum.
Safnaðist um hana stór hópur
vina og vandamanna frá áratuga
löngum kynnum. Var þá setzt við
píanóið og tekið lagið, en Lára
hafði hlotið í vöggugjöf fagra
söngrödd.
Þar til nokkrum dögum fyrir
andlátið hélt Lára fullum andleg-
um kröftum og fylgdist vel með
öllu í okkar þjóðlífi. Hún varð
þeirrar gæfu aðnjótandi að njóta
góðrar heilsu alla sína ævi og
léttrar lundar, enda var hún síung
og falleg allt til hinztu stundar.
Á kveðjustundu þakka ég Láru
frænku minni samfylgdina og bið
henni Guðs blessunar. Hún var
trúuð kona og trúin gaf henni
styrk. Hafi hún þökk fyrir allt og
allt. Blessuð sé minning Láru Sig-
geirs.
Útför hennar verður gerð frá
Dómkirkjunni í dag kl. 15.
Hjalti Geir Kristjánsson
Leiðrétting
f minningargrein í blaðinu á
sunnudag misritaðist föðurnafn
Hrefnu Jóhannsdóttur, Ljósheim-
um 20, sem fædd var 2. júlí 1936 og
lést hér í Reykjavík 5. nóvember. I
greininni stóð að Hrefna væri Jó-
hannesdóttir. Um leið og þessi
misritun er leiðrétt, eru vanda-
menn hennar beðnir afsökunar á
þessum mistökum.
. /