Morgunblaðið - 29.11.1983, Side 2

Morgunblaðið - 29.11.1983, Side 2
50 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1983 Steinar J. I.úrtvíksson Fimmtánda bindi Björg- unar- og sjó- slysasögu íslands BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlygur hf. hefur gefið út bókina „Þraut- góðir á raunastund" eftir Steinar J. Lúðvíksson. Bókin er 15. bindið í þessum mikla bókaflokki um björgunar- og sjóslysasögu Is- lands og fjallar hún um atburði áranna 1962 og 1963, en í fyrri bókum bókaflokksins hefur verið fjallað um atburði frá aldamótum 1900 fram til 1962, auk þess sem ein bókanna var helguð brautryðj- endum á sviði slysavarna á ís- landi. I frétt frá útgefanda segir: „í bókinni er getið margra sögulegra atburða er urðu á árunum sem bókin fjallar um. Þar er m.a. fjall- að um það er togarinn Elliði frá Siglufirði fórst út af Öndverðar- nesi í febrúar 1962, strandi vél- bátsins Hafþórs og frækilegri björgun áhafnar hans, strandi vélbátsins Helga Hjálmarssonar við Reykjanes, mannskaðaveðrinu í apríl 1963, björgun þýska togar- ans Trave við Vestmannaeyjar en káputeikning bókarinnar er unnin út frá þeim atburði. Allmargar ljósmyndir eru í bókinni m.a. af skipum og bátum sem koma við sögu.“ „Innlegg í baráttuna gegn kjarnorkuvopnum“ - segir P.C. Jersild um bók sína „Eftir flóðið‘% sem komin er út í íslenskri þýðingu Sænski rithöfundurinn Per Christian Jersild, sem var hérlendis á dögunum í boði Norræna hússins og Máls og menningar, er talinn einn af merkari núlifandi rithöfundum á Norðurlöndum. Fáir norrænir rithöf- undar eiga sér í dag stærri lesendahóp en hann. Jersild er læknir að mennt en hefur helgað sig ritstörfum undanfarin sex ár. Nýjasta bók hans, Eftir flóðið, er komin út hjá Máli og menn- ingu í þýðingu Njarðar P. Njarð- vík. Bókin kom út hjá Bonniers í Stokkhólmi í fyrra og varð mest selda bókin í Svíþjóð 1982; um áttatíu þúsund eintök seldust á fyrstu tveimur mánuðunum. Síð- an hefur hún komið út víðar á Norðurlöndum. Sagan gerist rúmlega 30 árum eftir gereyð- ingarstyrjöld. Aðalpersónan er ungur maður, sem fæðist skömmu eftir stóra stríðið. Segir frá nokkrum mánuðum í lífi hans í ómennskri veröld og bar- áttu þeirra fáu, sem enn tóra, fyrir lífi sínu í óbyggilegum heimi og frá „síðustu fjörbrotum deyjandi mannkyns. Bókin er óhugnanleg framtíðarsýn en jafnframt ógleymanlegt lista- verk,“ eins og segir í kynningu Máls og menningar. Blaðamaður Mbl. hitti Jersild að máli stuttlega áður en hann hélt af landi brott og spurði fyrst hvort líta ætti á söguna Eftir flóðið sem innlegg í þá friðarumræðu, sem nú væri efst á baugi. „Sagan er fyrst og fremst inn- legg í baráttuna gegn kjarnorku- vopnum," svaraði dr. Jersild. „Frið'ur er afstætt hugtak. Fyrir mér vakir aðallega að vekja at- hygli á kjarnorkuvopnaógninni en ekki að tala um friðarmálin almennt. Þá værum við komin út í aðra sálma.“ — Trúir þú því að við eigum eftir að horfa upp á kjarnorku- stríð? „Nei, því vil ég ekki trúa. Það hafa þó verið gerðar ýmsar at- huganir á möguleikum þess og í Svíþjóð telja menn almennt að líkurnar á kjarnorkustríði fyrir aldamót séu 50:50. Það er vita- skuld ágiskun, sem ekki er hægt að dæma um — það eina sem maður getur sagt er að það er ákveðin hætta fyrir hendi, hætta, sem ekki er hægt að láta sem vind um eyru þjóta. Það er erfitt að nefna tölur í þessu sam- bandi.“ — Eftir flóðið lýsir köldu og miskunnarlausu samfélagi, nán- ast tiifinningalausu. Erum við kannski á leið með að skapa slík samfélög á Norðurlöndum í dag? „Ja, ef kemur til kjarnorku- stríðs, þá held ég að samfélagið verði eins ogég hef lýst því í bók- inni. Reynsla okkar og rann- Morgunblaðid/Rax. Per ('hristian Jersild: Förum var- lega í að nota orð eins og lögreglu- ríki og einræði um Norðurlönd- in ... sóknir á meiriháttar náttúru- hamförum, flóðum og þess hátt- ar, hefur leitt ýmislegt í ljós um hvernig fólk bregst við slíkum ógnaratburðum ... Ef þú átt við hvort við séum á þessari leið án þess að komi til kjarnorkustyrj- aldar, þá held ég það ekki. Það hefur verið umræða í gangi í Svíþjóð að undanförnu um að samfélagið þar sé að verða eins- konar „1984“ en það tel ég að sé mjög ýkt. Maður skal fara var- lega í að nota orð eins og „lög- regluríki" og „einræði" um Norð- urlöndin. Það finnst mér rangt að gera. Víst er skrifræðið í Sví- þjóð mikið og erfitt að stýra því en það er langt í frá að þar sé ofríki." — En hefur ekki Svíþjóð sér- stöðu meðal Norðurlandanna — ég er að hugsa um það sem Dan- ir kalla „Forbuds-Sverige"? „Já, það er rétt en það á sér margar orsakir. Ein er sú, að í Svíþjóð er margra alda hefð fyrir skrifræði eða allt síðan á sextándu öld. Svo erum við mikl- ir móralistar, ekki satt? En ef maður getur ekki sætt sig við ýms vandamál í nútíma samfé- lagi, eins og t.d. drykkjusýki, þá verður að gera eitthvað í málinu. Þá geta boð okkar og bönn virst nokkuð undarleg. Maður getur hlegið að sænskri áfengismála- stefnu en þegar maður kemur til íslands má ekki drekka bjór og það getur líka þótt furðulegt, jafnvel þótt maður skilji hugs- unina á bak við þá afstöðu ykk- ar.“ — Ef við förum út í aðra sálma: hvernig er heilsufar bók- menntalífs ykkar í Svíþjóð? „Það hefur orðið nokkur breyting þar á. Undanfarin fimmtán ár hafa skáldsögur og leikbókmenntir mikið fjallað um pólitísk og félagsleg viðfangs- efni. Þetta hefur greinilega breyst nýverið, þannig að yngri rithöfundar eru farnir að skrifa um aðra hluti, ópólitíska." — Hefurðu haft tækifæri til að kynna þér íslenskar nútíma- bókmenntir? „Nei, ég veit afskaplega lítið um íslenskar bókmenntir. Það er fyrst og fremst vegna þess að ég get ekki lesið íslenskan texta. Ég reyni að fylgjast með í Dan- mörku og meðal sænskumælandi Finna, enda get ég lesið það, en íslensku get ég ekki lesið nema með miklum erfiðismunum." — Hvað ertu að fást við þessa dagana? „Nú skrifa ég leikhúsverk. Ég þarf að fara heim á morgun vegna þess að þar næsta verður frumsýndur eftir mig kabarett í Stokkhólmi." — Það er talsverður munur á kabarett og tortímingarsögu á borð við Eftir flóðið, ekki satt? „Jú, vissulega — en mér þykir gaman að fást við ný viðfangs- efni.“ Byltingarkenndar hugmyndir í landi sólarinnar: Hönnun á 500.000 manna „flotborg“ lokið i Japan Það kann að hljóma eins og hluti af vísindaskáldsögu, en allt frá því dr. Kiyohide Terai, einn færasti tæknifræðingur póst- og símamálastofnunarinnar í Japan, skýrði frá hugmynd sinni hefur síminn ekki stoppað hjá honum eitt augnablik. Hugmynd hans er enda óvenjuleg. Terai vill leysa fólksfjölgunarvandann, sem Jap- anir eiga við að glíma, með bygg- ingu flotborgar. I samvinnu við nokkra af helstu iðnjöfrum Japan hefur Terai lagt fram áætlun, sem miðar að byggingu flotborgar fyrir a.m.k. 500.000 manns. Hugmyndin er ekki einugis sú, að fólk eigi þar samastað, held- ur stundi þar og störf sín. Flotbórg þessi yrði tengd við land og stæði, þar sem dýpi er nú allt að 200 metrum. í hugmynd Terai er gert ráð fyrir að borgarstæðið verði 33 ferkílómetrar að flatarmáli. Kostnaður við byggingu borg- arinnar er áætlaður 4 milljarð- ar dollara, eða sem svarar 110 milljörðum íslenskra króna. Helmingur þess fjár er talinn munu fara í það eitt að koma fyrir um 10.000 stólpum, sem bera eiga borgina uppi. Tak- markið er, að byggingu borgar- innar verði Iokið innan áratug- ar. Þótt hugmynd Terai kunni að hljóma sem fjarstæðukennd voru starfsbræður hans svo hlynntir henni, að ekki hvarfl- aði annað að þeim en taka hann alvarlega. Þeir, sem þegar hafa ákveðið að leggja honum lið við framkvæmd hugmyndarinnar eru m.a. forstjóri Sony-raf- eindafyrirtækisins, Akio Mor- ita, og forstjóri NTT, Hisahi Shinto, auk fulltrúa ýmissa þekktra stórfyrirtækja, t.d. IBM. Útþensla iðnaðar í Japan hefur verið mjög ör á undan- förnum árum og landrými er því orðið af skornum skammti. Fólk hefur safnast saman á til- tölulega þröngu svæði á milli fjalls og fjöru frá Tókíó og allt til Osaka og skortur á landrými er orðinn tilfinnanlegur. í hugmynd Terai er gert ráð fyrir að hver fermetri í flot- borginni verði seldur iðnfyrir- tækjum á 4—8.000 dollara (110—220.000 ísl. krónur). Þessi verðhugmynd er talin óraun- hæf af mörgum, en Terai bend- ir á, að fyrirtæki þutfi í dag að greiða 2.500 dollara (tæpar 70.000 fsl. króna) fyrir hvern fermetra í úthverfum Tókíó. Að áratug liðnum muni þessi upp- hæð hafa tvöfaldast. Aukin- heldur muni nýting rýmis í flotborginni verða miklu betri en gerist á þurru landi, eða 100% í stað aðeins 40%. Á landi þurfi að hafa ákveðið rými á milli bygginga vegna eldhættu, svo og til að auðvelda flutning aðfanga og framleiðslu. Elds- voða segir Terai ekki verða neitt vandamál i flotborginni. Sjó er dælt upp og slökkvistarf því ákaflega auðvelt. Flotborgina hyggst Terai byggja á fjórum hæðum. Á efstu hæðinni verða bústaðir fólks, á næstu hæð fyrir neðan allt flutningskerfi borgarinnar, þá vinnustaðir og á neðstu hæð- inni verða leiðslur og lagnir, svo og rými fyrir sorp og annan úrgang. I fjarskiptum verður notast við nýjustu kapaltækni, en orku á að fá m.a. með nýtingu sjáv- arfalla svo og frá kjarnorku- veri, sem hugmyndin er að verði aðskilið frá sjálfri flot- borginni. Ekki aðeins er gert ráð fyrir fullkomnu flutnings- kerfi í þessari nýju borg, heldur er og ætlunin að þar verði flugvöllur, opinn allan sólar- hringinn. Þar eiga meira að segja hljóðfráar þotur að geta lent og hafið sig til flugs. Þótt borgin verði byggð á stólpum segir Terai hættuna á skemmdum af völdum jarð- skjálfta og annarra náttúru- hamfara verða sáralitla. Hver stólpi um sig verður búinn sér- stökum útbúnaði, sem gerir honum kleift að bregðast við með tilliti til aðstæðna. Tölvu- búnaður stýrir dælingu vatns inn í stólpana og út úr þeim aftur til þess að auka styrkleika þeirra eða minnka eftir því sem þurfa þykir. Komi til jarðskjálfta mun sérstakt viðvörunarkerfi fara af stað og allt vatn verður tæmt úr stólpunum og borginni þar með lyft upp upp af hafsbotni. Til þess að sjá við flóðbylgjun- um, sem oft fylgja í kjölfar skjálfta, verður nægilega miklu vatni hleypt inn í stólpana á ný til að þeir nemi við hafsbotn. Þannig eykst mótstöðuafl þeirra og þeir eru jafnframt betur undir það búnir að mæta flóðbylgju. íbúar flotborgarinnar munu ferðast á rafmagnsbílum innan borgarinnar og aka eftir sér- staklega hannaðri braut. Fjöldi bifreiðastæða verður við hverja götu flotborgarinnar og í hverju þeirra rafmagnstengill, þar sem hlaða má geyma bif- reiðanna að nýju. Hvort íbúar þessarar fram- tíðarborgar sætta sig við að geta ekki farið neitt út úr henni á bílum sínum og hvort verka- fólk sættir sig við hið ómann- úðlega umhverfi, sem því er ætlað á vinnustöðum sínum, er svo aftur á móti nokkuð, sem dr. Terai og fylgismenn hans virðast ekki hafa gefið gaum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.