Morgunblaðið - 29.11.1983, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1983
67
P. Orridge-hjónin gefin
saman að heiðnum sið
P. Orridge-hjónin, þau Genesis
og Paula, meðlimir bresku hljóm-
sveitarinnar Psyhcic TV, gerðu
það ekki endasleppt í fslandsdvöl-
inni, heldur bundu endahnútinn á
hana með því að vígjast til hjóna-
bands að fornum sið, íslenskum.
Það var að sjálfsögðu allsherjar-
goði Ásatrúarsafnaðarins, Svein-
björn Beinteinsson, sem fram-
kvæmdi athöfnina að Draghálsi í
Borgarfirði og bar viðstöddum
saman um að hún hefði farið hið
besta fram. Hljómsveitin Psychic
TV hélt sem kunnugt er tónleika
fyrir troðfullu húsi í Menntaskól-
anum við Hamrahlíð í síðustu
viku og var að vonum sæl með
undirtektirnar. Héðan hélt sveitin
síðan heim tii Bretlands. Psychic
TV er með þekktari og umdeildari
hljómsveitum þar úti um þessar
mundir, og hefur gefið út hljóm-
plötur, en tónleikarnir í Hamra-
hlíðinni voru fyrstu opinberu tón-
leikar þeirra.
Áfram skröltir hann þó
ÖRN og Örlygur hafa nú gefið út bók-
ina Áfram skröltir hann þó, Lífsævin-
týri Páls Arasonar, fjallabflstjóra.
Bókin er skrásett af Þorsteini
Matthíassyni.
f frétt fra forlaginu er bókinni
meðal annars lýst á eftirfarandi
hátt:
„Páll lagði ungur á öræfin á hest-
um sem þá voru „þarfasti þjónn-
inn“, en hann sá eins og fleiri að
tími bifreiðarinnar var að taka við
því hlutverki. Og upp var lagt og
haldið á slóðir útilegumannanna,
hvort heldur var Ódáðahraun eða
Sprengisandur, klöngrast yfir
óbrúaðar ár og straumharðar, úfið
hraun eða forarvilpur. Oft miðaði
hægt en aldrei var gefist upp og
þegar bifreiðirnar biluðu var gripið
til ótal ráða við að gera þær gang-
hæfar að nýju og þegar þær sátu
einhvers staðar fastar var gripið til
handaflsins við að koma þeim
áfram. Stundum átti það rækilega
við sem segir í þekktu gamankvæði
Ómars Ragnarssonar, að það hafi
verið þrjú hjól undir bílnum, en
áfram skrölti hann þó.
Páll Arason var einn af frum-
herjum í fjallaferðum og ferðamál-
um almennt. Ást hans á fegurð ör-
æfanna, kyrrð þeirra og mikilfeng-
leik átti sinn þátt í að knýja hann
til að ganga eða sigrast á viðfangs-
efnum, oft í hópi glaðværra vina.“
Áfram skröltir hann þó er skráð
af Þorsteini Matthíassyni. Bókin er
filmusett og prentuð í prentstofu
Guðmundar Benediktssonar en
bundin í Arnarfelli. Kápugerð ann-
aðist Sigurþór Jakobsson.
Allsherjargoóinn á Draghálsi, Sveinbjörn Beinteinsson, ásamt brúðhjónunum og frumburði þeirra, Caresse, að
lokinni athöfninni. (Ljósm. Haflifti.)
Fyrirliggjandi í birgðastöð
PRÓFÍL
PÍPUR
Stál 37. DIN 2394
□ [
□
[
][
] □ □□
Fjölmargir sverleikar. Lengd 6 m.
SINDRA
STALHF
Borgartúni 31 sími 27222
Húsbyggendur Byggingameistarar Húseigendur
Nýjung á íslandi
Betokem SUM Gólfílögn
Nú þarft þú ekki lengur aö bíöa í 5—6 daga eftir aö gólfílögnin þorni og þú getir haldiö áfram.
Meö því aö nota Betokem sjálfútjafnandi ílögn í gólfin getur þú unniö 5 daga, Betokem
gólfílögnin harðnar svo fljótt aó þú getur keyrt á gólfinu eftir 24 tíma.
SUM gólfílögn hefur veriö í þróun í Þýskalandi, Svíþjóö
og Noregi sl. 15 ár og hefur sýnt aö hún stenst fyllilega
allar þær gæöa-, þol- og styrkieikakröfur sem settar
voru í upphafi og síðar hafa komið fram. Það hefur
enda sýnt sig á söluþróuninni sl. 7 ár aö þarna er á
feröinni algjör bylting í gólfílögn, salan hefur nónast
þotið upp og ekki hefur veriö hægt að anna eftirspurn
fyrr en nú.
Betokem A/S í Noregi er leiðandi fyrirtæki í kemiskum
efnum fyrir steinsteypu. Þeir hafa leyst óteljandi
vandamál fyrir norskar steypustöðvar, rafmagsveiturn-
ar, vegagerðina, járnbrautirnar, og siðast en ekki síst
verkefni í sambandi viö oliuborpallana, þar sem þeir
þróuöu upp efni og aðferðir til aö gera steypu sveigj-
anlega.
Þeir hjá Betokem eru líka sérfræðingar í að leysa
allskonar vandamál meö gólf og efni sem mikiö mæöir
á.
Okkur er sönn ánægja að geta nú boðið
uppá þeirra efni og aðferðir hér á landi.
Fyrir þá sem vilja kynna sér nánar þær nýjungar sem
Betokem hefur uppá aö bjóöa verður fulltrúi frá þeim
hér á landi 5.—9. desember og gefur nánari upplýs-
ingar. Vinsamlegast hafiö samband viö okkur i síma
50538.
• Látiö okkur leysa
lekavandamálið í
eitt skipti fyrir öll
• Kemperol, Fillcoat,
Noxyde, ódýr en
góð lausná vanda-
málaþök
• Samskeytalaus
gúmmídúkur yfir
allt þakið
• Leitið nánari upp-
lýsinga
Murfill samskeita-
laus teyjanleg
klæóning á húsið
Algjör vatnsvörn
sem andar og
hleypir út raka,
harönar ekki og
hrekkur því ekki í
sundur.
Klæddu húsiö þitt
með Murfill og
sparaöu 50—60%
Fjölbreytt litaúrval
• Margar tegundir
slitlaga á gólf og
svalir
• Frábær efni og
vönduö vinna
tryggja gæöi og
endingu
$. Sigurósson hf.
Hafnarfiröi, sími 50538.