Morgunblaðið - 29.11.1983, Side 30
78 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1983
Landsfundur Alþýðubandalagsins ...
Þingmenn flytji tillögu
á Alþingi gegn herskyldu
LANDSFIJNDUR Alþýðubandalags-
ins samþykkti tillögu þess efnis að
þingmönnum flokksins er falið að
flytja á Alþingi tillögu þess efnis að
hver og einn hafi rétt tii aö neita að
gegna herskyldu. Tiliagan var sam-
þykkt samhljóða.
Tillagan var flutt af nokkrum
ungum Alþýðubandalagsmönnum
og fól í sér hvatningu til þing-
manna flokksins um að ná sam-
komulagi við þingmenn annarra
flokka um stuðning við þau mann-
réttindi á alþjóðvettvangi, að hver
og einn hafi rétt til að neita að
gegna herskyldu. Tillagan var síð-
an til umfjöllunar í alls-
herjarnefnd. Þar var hún endur-
orðuð og síðan samþykkt af fund-
inum svohljóðandi: „ Landsfundur
Abl. felur þingmönnum flokksins
að flytja á Alþingi tillögur til
stuðnings við þau mannréttindi,
að hver og einn hafi rétt til að
neita að gegna herskyldu af trúar-
legum, tilfinningalegum eða öðr-
um hugmyndafræðilegum ástæð-
um.“
Fyrsti „sérgreindi" hópurinn
stofnaður á landsfundinum
FYRSTI „sérgreindi“ hópurinn sem
æskti inngöngu í Alþýðubandalagið
eftir að ný lög um starfsemi flokks-
ins tóku gildi var stofnaður á þeim
sama landsfundi, en það eru Samtök
áhugamanna um landbúnaðarmál.
Stofnendur voru formenn kjördæm-
issamtaka flokksins og formaður
Neytendafélags Reykjavíkur.
Frá þessu var skýrt af fundar-
stjóra landsfundarins, Helga Selj-
an. Hann sagði einnig að annað
félag, „Gránuféiagið", hefði sótt
um inngöngu í flokkinn, en Baldur
Óskarsson framkvæmdastjóri Al-
þýðubandalagsins sagði í samtali
við blm. Mbl. í gær, að þar væri
um misskilning að ræða. Fundar-
stjóri hefði fengið í hendur miða
sem hann og vinur hans, Guð-
mundur Birkir, hefur verið að
senda sín á milli á fundinum. Á
miðanum hefðu þeir í gamni verið
að velta því upp að „Gránufélag-
ið“, sem Baldur sagði ekki til
nema í orði, yrði fyrst félaga til að
sækja um inngöngu eftir laga-
breytingarnar.
Tillögu um jöfnun atkvæðis
réttar vísað frá
TILLÖGU um jöfnun atkvæðisréttar
sem tveir landsfundarfulltrúar fluttu
á landsfundi Alþýðubandalagsins
um helgina var vísað frá með öllum
greiddum atkvæðum gegn tveimur
samkvæmt tillögu þar að lútandi frá
allsherjarnefnd landsfundarins.
Flutningsmenn tillögunnar voru
Arthur Morthens og Guðmundur
Árni Sigurðsson, en hún var svo-
hljóðandi: „Landsfundur AB skor-
ar á þingflokk AB að beita sér
fyrir jöfnun atkvæðisréttar í land-
inu. Fundurinn leggur áherslu á
að þær breytingar sem gera þarf á
lögum og stjórnarskrá verði sam-
þykktar fyrir næstu alþingiskosn-
ingar.“
I rökstuðningi allsherjarnefnd-
ar fyrir því að tillögunni skyidi
vísað frá er m.a. vísað til sam-
þykktar flokksráðsfundar á árinu
1981, þar sem segir m.a.: „Kosn-
ingaréttur verði jafnaður eftir
búsetu þannig að náist a.m.k.
sama hlutfall milli kjördæma og
gilti eftir kjördæmabreytinguna
árið 1959.“
Fréttir frá fyrstu hendi!
„Framtíð án fjötra“ verði kjörorð
sveitarstjórnarmanna innan flokks
- sagði Logi Kristjánsson bæjarstjóri á Neskaupstað
„VIÐ höfum átt í stöðugri baráttu
fyrir okkar málum og mér datt í hug
að kjörorð landsfundarins, „Framtíð
án fjötra“, yrði næsta kjörorð okkar
sveitarstjórnarmanna innan flokks-
ins,“ sagði Logi Kristjánsson bæjar-
stjóri á Neskaupstað m.a. í umfjöll-
un um tillögu um sveitarstjórnarmál-
efni á landfundinum um helgina. Sló
í brýnu milli sveitarstjórnarmanna
og þingmanna vegna tillögunnar,
sem Skúli Alexandersson alþingis-
maður flutti frávísunartillögu við.
Allsherjarnefnd landsfundarins
vann tillöguna og lagði fyrir fund-
inn. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir
að sveitarfélögin hafi sem víðtæk-
ast sjálfsforræði. Þá segir í tillög-
unni: „Landsfundur Alþýðubanda-
lagsins er þeirrar skoðunar að eigi
sveitarfélögin að geta rækt hlut-
verk sitt þurfi að vinna markvisst
að stækkun þeirra." Einnig er sagt
að löngu sé tímabært að sveitar-
félögum verði sett fastákveðin
tímamörk, t.d. eitt til tvö kjör-
tímabil til að ganga til frjálsrar
sameiningar þar sem minnstu
stjórnsýslueiningar verði ekki
undir 400 íbúum að jafnaði. Einn-
ig er fjallað um aö sýslumörkum
verði breytt og að sýslunefndir
verði lagðar niður.
Skúli Alexandersson lýsti sig
andvígan tillögunni og flutti til-
lögu um að vísa henni til ráð-
stefnu um sveitarstjórnarmál og
miðstjórnar. Sveitarstjórnarmenn
lýstu furðu sinni á afstöðu þing-
manna og var Logi Kristjánsson
bæjarstjóri á Neskaupstað m.a.
þungorður í garð flokksbræðra
sinna. Sagðist hann vægast sagt
undrandi á að lenda í þessari and-
stöðu við þingflokkinn og sagðist
vænta þess að fá stuðning flokks-
félaga sinn til að ályktunin yrði
samþykkt. ólafur Ragnar Gríms-
son greip fram í fyrir Loga í miðri
ræðu og spurði: „Má ég spyrja. Er-
uð þið þá að leggja til um leið að
einn þriðji hluti sveitarstjórna í
landinu verði lagður niður?" Logi
svaraði: „Það er ekki verið að
leggja neitt til. Það er verið að efla
sveitarfélögin þannig, að þau verði
fær um að leysa þau félagslegu
verkefni sem þeim ber að gera.“
Hlaut Logi mikið klapp fundar-
manna fyrir ræðu sína, en í henni
benti hann þingmönnunum einnig
á að nýverið hefði verið samþykkt-
ur sáttmáli um sveitarstjórnar-
mál á vegum Evrópuráðsins og að-
eins smáhluti þeirra samþykkta
kæmi fram í tillögunni á fundin-
um.
Frávísunartillaga Skúla kom
síðan til atkvæða og var hún sam-
þykkt með 54 atkvæðum gegn 43.
Eftir að tillögunni var vísað frá
var samþykkt önnur tillaga sam-
hljóða þess efnis að landsfundur-
inn telji að efla þurfi samvinnu
sveitarstjórnarmanna flokksins
og marka stefnu hans í sveitar-
stjórnarmálum. Framkvæmda-
stjórn flokksins er og hvött til að
koma á ráðstefnu um sveitar-
stjórnarmál, þar sem m.a. verði
rætt um stofnun formlegs sveit-
arstjórnarmannaráðs Alþýðu-
bandalagsins. Jafnframt er fram-
kvæmdastjórninni falið að beita
sér fyrir fundum sveitarstjórn-
armanna Alþýðubandalagsins i
tengslum við ráðstefnur á vegum
flokksins og Sambands íslenskra
sveitarfélaga.
Eggjasölutillögunni
vísað til miðstjórnar
- Súrt að ekki skuli tekið á neinum atvinnumálum, sagði Ásmundur Stefánsson
„MKR finnst það súrt að við göng-
um af þessum fundi án þess að það
sé tekið á neinum atvinnumálum yf-
irleitt. Það er búið að klippa allt út
úr sjávarútvegskaflanum, þannig að
það stendur ekki einu sinni eftir að
við höfum tekið eftir því að hér er
aflabrestur og ýmislegt annað að í
þjófélaginu," sagði Ásmundur Stef-
ánsson, forseti ASÍ, m.a. í rökstuðn-
ingi sínum fyrir því að tillaga um
sölueinokun á eggjum, kjúklinga- og
svínakjöti yrði samþykkt á lands-
fundinum. Allsherjarnefnd sem fjall-
aði um tillöguna lagði til að henni
yrði vísað til miðstjórnar og var sú
tillaga samþykkt með 57 atkvæðum
gegn 34.
Flutningsmenn tillögunnar auk
Ásmundar voru Jóhannes Gunn-
arsson og nokkrir forustumenn úr
verkalýðshreyfingunni, en i tillög-
unni er mótmælt hugmyndum um
framleiðslu- og sölueinokun á
eggjum, kjúklinga- og svínakjöti,
sem Framleiðsluráð landbúnaðar-
ins er sagt hafa sett fram með
stuðningi landbúnaðarráðherra.
Segir að slík einokun sé skaðleg
bæði fyrir neytendur og íslenska
bændastétt þar sem hún hindri
eðlilega framleiðsluþróun.
Andmælendur tillögunnar
bentu m.a. á að tillaga sama efnis
hefði verið til umfjöllunar á
landsfundi Sjálfstæðisflokksins,
en meðmælendur sögðu að Al-
þýðubandalagið mætti ekki láta
Sjálfstæðisflokkinn ákveða gjörð-
ir sínar, því síður láta hægri öfl-
unum eftir hugtakið frelsi. Þor-
grímur Starri var einn andmæl-
enda tillögunnar og sagði hann
m.a.: „Ég óska verkalýðshreyfing-
unni og þá sérstaklega Ásmundi
Stefánssyni til hamingju með það
að eiga þessa dýrðarinnar ríkis-
stjórn í landinu, sem gætir svona
sérstaklega vel að hag neytenda.
Ég lýsi því yfir sem mínu stefnu-
markandi atriði að koma á hinu
frjálsa markaðskerfi í einu og
öllu. Það er grunntónninn í því að
vera á móti þessu eggjadreif-
ingarkerfi. Ef þetta er það sem
verkalýðshreyfingin er að óska sér
til hagsbóta ætti hún að fá sér-
staka rödd hjá Sjálfstæðisflokkn-
um og jafnvel eiga fulltrúa á
landsfundi þeirra."
Fyrirliggjandi í birgðastöð
Stál 37.2 og 42 DIN 17100
Þykktir 2-50 mm.Ýmsar stæröir, m.a.
1000x2000 mm
1500x3000 mm
1500x5000 mm
SINDRA
1500x6000 mm
1800x6000 mm
2000x6000 mm
STALHR
Ðorgartúni 31 sími 27222
Nefndalaun ekki
í flokkssjóði
í UMFJÖLLUN um ný lög Alþýdu-
bandalagsins á landsfundinum um
helgina kom m.a. fram tillaga frá
Þorbirni Broddasyni þess efnis, að
ákvæðið um að miðstjórn geti ákveð-
ið að nokkur hluti launa flokks-
manna, sem sitja í launuðum nefnd-
um á vegum flokksins, renni í
flokkssjóði, yrði fellt niður. Tillagan
var samþykkt með 76 atkvæðum
gegn 61.
I rökstuðningi sínum með tillög-
unni sagði Þorbjörn m.a. að laga-
ákvæði þetta væri ekkert annað en
viðurkenning á því að Alþýðu-
bandalagið úthluti bitlingum. Þá
væri þetta niðurlægjandi fyrir þá
sem störfuðu í nefndum og mætti
skilja svo, að Alþýðubandalagið
áliti að nefndarmenn ynnu ekki
fyrir þessum launum sínum. Þá
sagðist hann hafa kannað málið á
flokksskrifstofunni og fengið upp-
lýst, að Alþýðubandalagið fengi
aðeins par tugi þúsunda króna á
þennan hátt og það hlyti að vera
unnt að ná þeim úr vösum flokks-
manna á annan hátt.
Tillaga Þorbjörns var síðan
samþykkt með 76 atkvæðum gegn
61, eins og fyrr segir.
fMörgiwáMaMfo
Metsölubiadá hveijum degi!