Morgunblaðið - 29.11.1983, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1983
77
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Væri ekki mannúðlegra að
aflífa hestana hér heima?
Margrét Hjálmtýsdóttir skrifar:
„Velvakandi!
Fréttin í Morgunblaðinu 23. nóv.
um umræður um sölu hrossa til
slátrunar í Hollandi finnst mér
ógeðsleg. Hesturinn, sem löngum
var kallaður þarfasti þjónn
mannsins, er eins og allir vita
tryggur sínum heimahögum og
vitur skepna. Væri ekki mannúð-
legra að aflífa hestana hér heima
og senda Hollendingum skrokk-
ana, heldur en að stafla dýrunum
hundruðum saman í skip, þar sem
þeir hrekjast dögum saman,
kannski sjóveikir og angistarfull-
ir, til að verða deyddir í framandi
landi? Og við hvernig aðstæður? verknaði ekki sorglega fengnir í dýraverndarfélögum og hesta-
Verður ágóðinn af slíkum blóðpeningar? Hvað segja félagar mannafélögum um þetta?“
Linton Kwesi Johnson
Linton Kwesi
á trygga
aðdáendur
hér á landi
- en þeir komast ekki
allir á tónleikana
Elísabet Ólafsdóttir og Kristín
Þorsteinsdóttir skrifa:
„Velvakandi.
Við ætlum að byrja á því að
þakka Peter O’Peach fyrir mjög
góða grein í dálkum þínum á
þriðjudag (22. nóv.). Við erum al-
veg vissar um að Linton Kwesi Jo-
hnson á trygga aðdáendur hér á
landi. Og enn fleiri vilja sjá þenn-
an sögufræga tónlistarmann og
ljóðskáld, en eru ekki allir yfir 18
ára aldri og komast því ekki í Sig-
tún.
Við leyfum okkur því að koma
með þá tillögu, að aldurstakmark
verði lækkað, allavega niður í 16
ára aldur.
Með fyrirfram þökk, ef eitthvað
verður gert í málinu. Sjáumst von-
andi á tónleikunum."
Skrifið eða
hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til að
skrifa þættinum um hvaðeina, sem
hugur þeirra stendur til — eða
hringja milli kl. 11 og 12, mánudaga
til föstudaga, ef þeir koma því ekki
við að skrifa. Meðal efnis, sem vel
er þegið, eru ábendingar og orða-
skipti, fyrirspurnir og frásagnir,
auk pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en nðfn,
nafnnúmer og heimilisföng verða
að fylgja öllu efni til þáttarins, þó
að höfundar óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina því til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér i
dálkunum.
Því böli get-
um við
L.H. skrifar:
„Hjartans þakkir til land-
búnaðarráðherra, Jóns Helga-
sonar, og fjármálaráðherra,
Alberts Guðmundssonar, fyrir
að mótmæla því í útvarpi í
kvöld, að bjór verði leyfður á
afstýrt
íslandi.
Ef sala á bjór yrði leyfð hér
á landi, yrði það mikil þjóðar-
ógæfa. Því böli getum við af-
stýrt.
Þökk fyrir birtinguna."
Hvað á að gera
við alla bflstjórana?
Sigríður Auðuns, Dunhaga
13, skrifar:
„Sjálfstæðisfólk varð fyrir
vonbrigðum, þegar Matthías
Bjarnason fékk sér bíl fyir lít-
inn pening.
Margir vonuðu, að fram-
sóknarráðherrarnir yrðu látn-
ir einir um slíka verslun, nú á
þessum erfiðu tímum.
Ráðherrann segir, að hann
vilji gjarnan aka bíl sínum
sjálfur. En hvað á þá að gera
við alla bílstjórana, sem aka
ráðherrabílunum. Þeir eru
sagðir orðnir fleiri en ráðherr-
arnir og hafa engin smánar-
laun; eru sagðir hafa 40 þús.
kr. á mánuði."
Vísa vikunnar
Ég veró að segja eins og er,
alveg gengur fram af mér;
stelpur tvær með bera bossa
brjóstum framan í mig hossa.
Ég geysa út úr Glæsibæ,
í grimman lögfræðing mér næ
og kæri.
En get ekki hætt að hugsa um þessi læri.
Hákur
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Hann hægði á hlaupunum en stöðvaði þó
ekki.
Rétt væri; ... stöðvaðist þó ekki.
Eða: ... nam þó ekki staðar.
Sjúkranuddstofa
Hilke Hubert
Hverfisgötu 39
Opið kl. 8.00—18.30
mánudaga til föstudaga.
Tímapantanir í síma 13680 kl. 13.00—18.00.
IplkRip^m
unga fólkic
biður um!
• * 8 s
'an
5s
5<. ?S. i
□ Hvað segja popp-
stjörnurnar?
OHvaða plötur eru
bestar?
□Hvaðer skallapopp?
Fl°>'ar 'toJS,Ss Cu"nar
ÞessUfnspurningumogótatöðrumsvarar
ÆSKAN
83 «S-9/qh ,60'6?.
38
8;
'5?
,JS(i ro.
?4 'aór
Ha,"aó,Gun
_______
0r> bls
Hamar og sög
er ekkinóg
NEMA ÞÚ VEUIR RÉTTA EFNIÐ^
Vegg- og loftklæðning ,
í glæsilegu úrvali
úr eik, aski, beiki, gullálmi, furu,
antikeik, mahogany, palesander og
10 tegundir til viðbótar.
Vsrð frá afteins kr. 75 pr m’.
BJORNINN HF
Skulatuni 4 - Simi 25150 - Reykjavík
4?
wgpssmiifetfr
Gódan daginn!