Morgunblaðið - 29.11.1983, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 29.11.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1983 71 til Singapúr og yfir Syðra- Kínahaf. Það voru kolanámalög- in frá 1911 og endurbætur á þeim sem leiddu til þess að líðan og aðbúnaði námahestanna brá til hins betra. En allt tók þetta langan tíma. Það var ekki fyrr en 1949 að lögbundinn hámarks- vinnudagur var ákveðinn fyrir hestana og þá um leið húsbænd- ur þeirra, verkamennina sjálfa. -r Jafnvel enn í dag er notk- un hesta í námu bundin við- kvæmum tilfinningum, segir talsmaður kolafélagsins. — Það eitt að sjá námahest vekur margskonar tregablandnar minningar. En ef þú sýnir mönnum smáhest þrjá kíló- metra niðri í jörðinni með vagn í eftirdragi, verða þeir reiðir og mótmæla kröftuglega. Nú er svo komið, að hestarnir eru ekki látnir draga kol heldur ýmsan útbúnað og áhöld þar sem ekki svarar kostnaði að grípa til véltækninnar. Stærri smáhestar nú á dögum Á þeim tíma, er smáhestarnir drógu kolavagna um þrönga gangana, varð að nota smærri hesta en nú er gert. Flestir hest- anna, sem voru folar, voru hár- reyttir fyrir púlið í námunum, af hestasalanum. Stærð og þungi námahestanna nú til dags veldur því að þeir eru miklu kröftugri og megna að draga þunga burðarbjálka og námu- stoðir í afkimum þar sem vélar koma ekki að liði. Hestarnir koma sér líka vel þegar flytja skal burt ýmiss konar útbúnað úr námagöngum, þar sem starfsemi öll hefur lagzt niður. í Stóra-Bretlandi eru yngri hestar en fjögra vetra ekki sendir niður í námurnar. Lungu þeirra þurfa að vera vel þroskuð fyrir þá kraftraun sem er í því fólgin að lifa neðanjarðar í ein fimmtán, sextán ár. Brezka kolanámustjórnin við- urkennir fúslega að hestar séu notaðir í námum af hagkvæmni- ástæðum. Þeir, sem eru á móti notkun þeirra, halda því fram að það séu léleg rök. Þeir benda á að hver hestur útheimti þrjá menn: hestahirði, járningamann og aktygjasmið. Smáhestarnir eru heppilegir Þetta vilja námaverkamenn- irnir í Suður-Wales ekki heyra nefnt, að minnsta kosti ekki þeir sem vinna í nokkrum einkanám- um sem reknar eru þar. Flestar af þessum námum, eins og þær t.d. í Apntygaseg, í grennd við Pontypool í Gwent, eru námur sem ganga lárétt inn í fjallið en ekki lóðrétt niður. Þarna hæfa smáhestarnir vel, af því að þeir komast nær staðnum þar sem kolin eru brotin en vélknúnar grindur sem fara eftir járn- brautarteinum. Hvað sem því líður er úti sú tíð, þegar smáhestur dró áttatíu kolahlöss daglega eftir náma- göngunum, og hvert þeirra var hálf smálest. En þannig var það nú fram yfir árið 1950, og þá voru ellefu þúsund námahestar í Stóra-Bretlandi sem höfðu fimm daga viku og vinnudag sem var hálf sjöunda klukku- stund. Við lok þess áratugar, er nú stendur yfir, verða allir smá- hestarnir horfnir úr námunum. Löng hefð er þar með úr sög- unni. Við lestur þessarar greinar minnast margir gamlir íslend- ingar áreiðanlega með trega frísku folanna, sem sendir voru héðan í þúsundatali í kvalastað kolanámanna í Stóra-Bretlandi. — Sig.G. Frá fundinum á Hótel Sögu. Hundaræktarfélagið gerir tillögur um hundahald í Reykjavík Sunnudaginn 20. nóv. sl. var hald- inn almennur fundur á Hótel Sögu, Súlnasal. Til fundarins boðuöu Hundaræktarfélag íslands, Hunda- vinafélag íslands, Dýraspítali Wat- sons, Dýraverndunarfélag Reykja- víkur og Samband dýraverndunarfé- laga Islands. í frétt frá þessum aðilum segir: „Fundarefni var ófremdarástand í hundamálum í Reykjavík og kynn- ing Hundaræktarfélags ísíands á tillögum að reglum um leyfi til hundahalds í Reykjavík. Fundurinn var mjög fjölsóttur og hvert sæti í salnum skipað. Frummælendur voru: Guðrún Guðjohnsen form. Hundaræktar- félags íslands, Jón Kristjánsson stjórnarmaður í Hundaræktarfé- lagi fslands, Kristjana Samper form. Kópavogsdeiídar Hunda- ræktarfélags íslands, Jórunn Sör- ensen, form. Sambands dýra- verndunarfélaga íslands, og Stef- án Jónsson fyrrv. alþingismaður. Umræður voru miklar og mál- efnalegar og fundargestir á einu máli um að brýna nauðsyn bæri til að bæta núverandi ástand og leyfa hundahald í borginni með ákveðn- um skilyrðum. Borgin væri orðin eins og eyland, umkringd bæjar- félögum er leyfðu hundahald. Ekki yrði heldur lengur við það unað að íbúar borgarinnar yrðu fyrir ofsóknum af háifu yfirvalda fyrir það eitt að vilja eiga hund að fé- laga og vini. Þörfin fyrir hund er síst minni nú en áður með breytt- um þjóðfélagsaðstæðum. í lok fundarins var samþykkt eftirfarandi ályktun: Almennur fundur haldinn á Hótel Sögu sunnudaginn 20. nóv. 1983 fagnar þeirri endurskoðun á reglum um hundahald í Reykjavík sem nú stendur yfir. Hvetur fund- urinn borgarfulltrúa til þess að styðja þær hugmyndir sem settar hafa verið fram um að leyfa hundahald í borginni með ákveðn- um skilyrðum þannig að Reyk- víkingar hafi leyfi til hundahalds líkt og gerist í nágrannabyggðun- um. í því sambandi vísar fundur- inn til þeirrar tillögu sem stjórn Hundaræktarfélags íslands hefur gert til borgaryfirvalda um reglur fyrir hundahald í Reykjavík." Tillögur Hundaræktar- félags íslands Borgarstjórn Reykjavíkur veitir leyfi til hundahalds með eftirfar- andi skilyrðum: a) Hundurinn skal skráður hjá borgaryfirvöldum, svo og nafn eig- anda eða ábyrgðarmanns. b) Leyfishafi geri sér grein fyrir ábyrgð sinni gagnvart hundinum og umhverfi sínu og hafi náð lög- aldri. Eiganda er skylt að sækja námskeið varðandi meðhöndlun dýra. c) Skráningargjald sé kr. 2.000,- en árgjald kr. 500,- sem greiðist 1. mars ár hvert. Við greiðslu skal sýna hundahreinsunarvottorð og tryggingarskírteini. d) Hundurinn skal vera ábyrgð- artryggður hjá viðurkenndu tryggingarfélagi, skírteini skal sýnt við greiðslu hundagjalds. e) Hundurinn skal bera hálsól og númer svo unnt sé að rekja hann til eiganda. Lausan hund án merkis og ólar má taka í vörslu yfirvalda sem auglýsa hundinn eftir nánari reglum og skal hans vitjað innan 14 daga og hann leystur út gegn gjaldi. Verði hans ekki vitjað innan 14 daga frá aug- lýsingu, er heimilt að ráðstafa honum til ábyrgs heimilis eða af- Finnur Sigurjónsson bókavörður á Seltjarnarnesi í nýja bókasafninu, en húsnæðið er liðlega 400 fermetrar. Safnið var áður í 80 fermetra kjallara- húsnæði í Mýrarhúsaskóla. MorgunbiaAið/ öi.k.m. Seltjarnarnes: Bókasafnið í nýtt húsnæði Bókasafn Seltjarnarness hefur flutt í nýtt húsnæði að Melabraut 9, og er þar á efri hæð Heilsu- gæslustöðvarinnar. f frétt frá bæjarstjórninni á Seltjarnarnesi segir, að margs- konar nýmæli verði tekin upp í rekstri safnsins nú þegar flutt er í rúmgott húsnæði. Safnið mun taka upp bókmenntakynningar, sýningar ýmiss konar svo og margskonar starfsemi sem ekki hefur verið hægt að sinna til þessa vegna þröngs húsakosts. í desember mun safnið kynna sögu Framfarafélags Seltjarnar- ness, sem hefði orðið 100 ára í haust en það félag stofnaði m.a. bókasafnið 1885. lífa á mannúðlegan hátt. f) Hundurinn skal ætíð hafður í ól á götum borgarinnar, og almenn- ingsgörðum og varðar brot sekt- um. Lausa hunda sem eru merktir skal meðhöndla á sama hátt og ómerkta hunda, nema hafa skal upp á eiganda og honum gert að leysa út hundinn gegn áföllnum kostnaði. g) Hundurinn skal hreinsaður af innyflaormum á hverju ári eftir nánari fyrirmælum yfirvalda. Vottorð um hreinsun skal sýna við greiðslu hundagjalds og skal það eigi vera eldra en 3ja mánaða. h) Valdi hundur nágrönnum ónæði vegna hirðuleysis eiganda, er eiganda skylt að verða sér úti um fræðslu og lagfæra ástandið. Sé um ítrekað brot að ræða og orsökin sinnuleysi eiganda eru viðurlög sektir sem fara hækkandi við ítrekuð brot. i) Við ítrekuð brot á reglum þess- um, svo og ef eigandi eða ábyrgð- armaður hunds er ber að því að fara illa með hund sinn, getur borgarstjóri svipt viðkomandi leyfi til að halda hundinn. NÝ VERSLUN AÐ LAUGAVEGI 32 AÐALSTRÆTI 9 — SÍMI: 21785-27620 EN0UR 06 HENDUR 0PNAVIÐIAU6AVEG Allt það nýjasta úr tískuheimi barnanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.