Morgunblaðið - 29.11.1983, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 29.11.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1983 53 Pétur H. Blöndal kos- inn formaður Húseig- endafélags Reykjavíkur Á AÐALFUNDI Húseigendafélags Reykjavíkur þann 10. nóvember sl. spunnust miklar umræður um hin ýmsu hagsmunamál húseigenda og íbúðareigenda. Var það samdóma álit fundarmanna að félagið ætti í auknum mæli að beita sér í baráttu fyrir hagsmunum húseigenda, sem núna standa halloka gagnvart ásælni ríkisvalds og sveitarfélaga, fá ekki lífsnauðsynlega lánafyrir- greiðslu og eiga í miklum vandræð- um vegna viðgerða á leka- og alkalí- skemmdum. Aukin hagsmunabar- átta má þó ekki koma niður á bráð- nauðsynlegri ráðgjafa- og upplýs- ingastarfsemi félagsins að áliti fundarmanna. Þessar upplýsingar koma fram í frétt frá félaginu. í skýrslu stjórnar kom fram, að tæplega 600 aðilar hefðu leitað til lögfræðings félagsins á síðasta starfsári, en sú þjónusta er ókeyp- is fyrir félagsmenn. Helst er leitað til félagsins vegna vandamála í fjölbýlishúsum, en einnig komu til kasta félagsins mál vegna leigu- og fasteignaviðskipta. Dr. Pétur H. Blöndal var kosinn formaður félagsins, en aðrir í stjórn Alfreð Guðmundsson, Dr. Kristín Halla Jónsdóttir, Sigurður Helgi Guðjónsson og Sveinn Jónsson. Tríó John Scofields. Jazzvakning: Kunnir jazzleikarar með tónleika í Gamla bíói JAZZVAKNING efnir til tónleika í Gamla bíói hinn 5. desember næst- komandi, þar sem ein virtasta hljómsveit jazzheimsins mun leika, að því er segir í frétt sem Morgun- blaðinu hefur borizt frá Jazzvakn- ingu. Er það tríó gítarleikarans John Scofields, en með honum leika raf- bassaleikarinn Steve Swallow og trommuleikarinn Adam Nussbaum. í frétt Jazzvakningar segir með- al annars: John Scofield er í hópi helztu gítarleikara jazzins og hefur veg- ur hans farið ört vaxandi eftir að Miles Davis réð hann í hljómsveit sína, en hann er nú helsti einleik- ari Davis, einsog heyra má á nýj- ustu skífu Miles, Star People. Scofield var þó vel kynntur meðal jazzunnenda, áður en hann réðst til Davis. Hann hóf feril sinn sem rokkgítaristi, en eftir að hann lauk námi frá Berkeley hefur hann eingöngu leikið jazz. Hann réðst til Gerry Mulligans og lék m.a. með honum og Chet Baker á frægum Carnegie Hall-tónleikum sem CIT hefur gefið út á tveimur breiðskífum. í árslok 1974 tók hann sæti John Abercrombies í hljómsveit trommarans Billy Cobhams og lék með þeirri sveit í tvö ár (undir lokin nefndist hún George Duke-Billy Cobham band). Eftir það leysti hann Pat Metheny af hólmi í hljómsveit víbrafónleik- arans Gary Burtons, en áður hafði hann setið við hlið Philip Cather- ines og hljóðritað Three or Four Shades of Blues með Charles Mingus. Auk þess hefur Scofield hljóðritað með Niels-Henning 0rsted Pedersen, Lionel Hampton og gamla Kansas City-meistaran- um Jay McShann, en þar var hann í hópi sveiflusnillinga atborð við Dicky Wells og Buddy Tate. Allt frá 1977 hefur Scofield leik- ið með eigin hljómsveit jafnhliða starfi í hljómsveitum annarra og tríó það er hann kemur með hingað stofnaði hann árið 1980. Hefur tríóið gefið út þrjár breiðskífur: Bar Talk, Sinola og Out Like a Light. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um Steve Swallow. Um árabil hafa jazzgagnrýnendur kos- ið hann bezta rafbassaleikara heims og í maí sl. lék hann í Gamla bíói í kvartetti Gary Burt- ons og heillaði alla er á hlýddu. Adam Nussbaum er aftur á móti óþekktari, en hann er kraftmikill trommari af skóla Elvin Jones. Tónlist John Scofields er nú- tíma bebop, þar sem bæði bregður fyrir áhrifum frá sveiflu og rokki. Hann er mjög frjór, bæði sem tónskáld og einleikari, og stíll hans persónulegur. Það er engin tilviljun að jafn ólíkir tónlistar- menn og Lionel Hampton, Gary Burton, Charles Mingus, Niels- Henning, Gerry Mulligan og Miles Davis hafa keppzt við að bjóða honum að leika með sér. Hann býr nefnilega yfir þeim eiginleikum sem eru aðal hvers afburða jazz- leikara: mögnuðu hugmyndaflugi og sterkri sveiflu. Miðstjórn ASÍ: Samþykkir yfirlýsingu Evrópusam- bands verka- lýðsfélaga Á miðstjórnarfundi Alþýðusam- bands íslands 10. nóvember sl. var samþykkt yfirlýsing Evrópusam- bands verkalýósfélaga, ETUC, um samningaviðræóur Bandaríkja- manna og Sovétmanna í Genf um takmörkun meóaldrægra kjarnorku- vopna. I yfirlýsingunni segir m.a., að Evrópusamband verkalýðsfélaga, sem hefur innan sinna vébanda um 44 milljónir meðlima í Vest- ur-Evrópu, skori á ríkisstjórnir Bandaríkjanna og Sovétríkjanna að láta það tækifæri, sem Genf- arviðræðurnar eru, ekki ónotuð, heldur beina þróuninni inn á rétt- ar brautir, sem leiða til þess að gjöreyingarvopn verði eyðilögð. meö súkkulaöinu komin á alla útsölustaöi Þökkum stuðningínn Miðbær: Blóm og myndir, Laugavegi 53, — Dömugarðurinn, Aöalstræti, — Gleraugnaverslunin, Bankastræti 14, — Hamborg, Hafnarstræti og Klapparstíg, — Heimilistæki, Hafnarstræti, — Herragaröurinn, Aöalstræti, — Tízkuskemman, Laugavegi, — V.B.K. ritfangaverslun. Vesturbær: Hagabúöin, — Ragnarsbúö, Fálkagötu, — Skjólakjör. Austurbær: Austurbæjarapótek, — Blómabúöin Runni, Hrisateig, — Blómastofa Friðfinns, — Garösapótek, — Gunnar Ásgeirsson, Suöurlandsbraut, — Háaleitisapótek, — Heimilistæki, Sætúni, — Hekla hf. — Hlíöabakarí, — Ingþór Haraldsson, Ármúla, — J. Þorláksson & Norömann, Ármúla, — Kjötmiöstööin, — Lífeyrissjóöur Byggingarmanna, Suöurlandsbraut 30, — Rafvörur, Laugarnesvegi 52, — S.S. Austurveri, — Tómstundahúsiö, — Verslunin Rangá, Skipasundi, — Vogaver, Gnoöarvogi, — Örn og Örlygur, Síöumúla 11. Breiöholt: Straumnes, — Hólagaröur. Lionsklúbbar víðsvegar um landið sjá um dreifingu. Allur hagnaður rennur óskiptur til ýmissa góðgerðarmála. Lionsklúbburinn Freyr •*• KOMATSU Hjólaskóflur í öll verk Við getum nú afgreitt af lager KOMATSUí Belgíu margar mismunandi gerðir af hjólaskóflum með örskömmum fyrirvara. Fjölmargar gerðir og stærðir af skóflum, mismunandi dekk og annar aukabúnaður fáanlegur. Fullkomin varahluta- og viðhaldsþjónusta. KOMATSU á íslandi Hafið samband við sölumann véladeildar, sem BILABORG HF veitir fúslega allar nánari upplýsingar. véiadeiid Smiðshöföa 23. sím,; 81299

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.