Morgunblaðið - 29.11.1983, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1983
55
Bókmenntir
Sigurður Haukur Guðjónsson
Tobías og vinir hans
Höfundur: Magnea frá Kleifum.
Myndir: Sigrún Gidjárn.
Prentun: Prentsmiðjan Oddi hf.
Útgefandi: Iðunn.
Það var gaman að kynnast þess-
ari hugljúfu sögu og kemur þar
margt til. Fyrst skal nefnt, að hún
er mjög vel sögð, áður en þú veist
af eru Tobías, Tinna og Sighvatur
orðnir vinir þínir og af áhuga fylg-
ist þú með, er þau halda útí
sumarið.
Magnea frá Kleifum
Tobías og
vinir hans
Það má vel vera að það sé rétt
hjá strákunum í blokkinni, að far-
kostur þeirra þremenninga sé „...
drusla, ógeðslegasti, asnalegasti
kassabíll sem til er ...“, en samt
veitir hann þeim það skjól, er
okkur flest dreymir um, er staður,
þar sem vinátta og skilningur rík-
ir. Sighvatur er listmálari, er
hvergi á launaskrá, fráskilinn með
dótturina Tinnu á framfæri, og til
fararinnar hafa þau boðið Tobíasi,
öðrum móðurleysingjanum til.
Móðurleysingja, það er kannske of
mikið sagt, hann á móður, en hún
þurfti að velja milli hans og
þroska sinna eigin hæfileika, svo
að snáðinn er einn með föður. Sem
sagt hér er allt sem þarf til góðrar
sögu, að sænskri forskrift, og
meira að segja spýtukarlinum er
ekki gleymt.
Magnea fer ákaflega vel með
efni sitt, reynir að skilja lítinn
dreng með bægifót, lýsir þrá hans
eftir kærleika á þann hátt, að
gamall lesandi kemst við. Já, sam-
skiptum Sighvats og barnanna eru
meistaralega gerð skil, lýst hvern-
ig hann manar þau til að leita
fjársjóða í ljósuhlíðar lífsins. Öll
er sagan borin uppi af baráttu
milli rétts og rangs, svartur og
bjartur tefla, og bjartur hefir bet-
ur. Stundum fer höfundur á slík-
um kostum, að lengi man sá er les,
t.d. er sköpunarsaga Tinnu hreint
út sagt frábær, einhver sú snjall-
asta sem ég hefi séð. Myndir Sig-
rúnar eru góðar, líflegar, falla vel
að efni. Prentun og frágangur all-
ur útgáfunni til mikils sóma.
Ágæt, eiguleg bók, sem á það
skilið, að eftir henni sé tekið.
Einstakur hljóð-
færaleikari
Hljóm-
plotur
Finnbogi Marinósson
Stevie Ray Vaughan.
Texas Flood.
Epic — Steinar.
Ekki alls fyrir löngu benti vin-
ur minn mér á að út væri komin
„sóló“-plata með gítarleikaran-
um sem lék með David Bowie á
síðustu plötu hans „Let’s
Dance“. Sú heitir „Texas Flood"
og er meiriháttar.
Tónlistin er „Blús“ eins og
hann gerist bestur. Hann er mis-
hraður allt frá rólegum döprum
ljóðum til kraftmikilla,
skemmtilegra slagara. Allur
hljóðfæraleikur er frábær og þá
sér í lagi gítar-Stevie: Hann
syngur einnig og ferst það af-
bragðs vel úr hendi.
Það sniðugasta er hversu þétt
tónlistin hljómar þrátt fyrir að
hljóðfæraleikararnir séu einung-
is þrír. „Overdub" (öll hljóðfæri
tekin upp og síðan bætt inn í
eftir þörfum) er næsta lítið og er
það með ólíkindum. Jafnframt
þessu hljómar tónlistin eins og
best gerðist hér á blómaskeiði
blámans og fær platan því á sig
svip gamla tímans. Að minnsta
kosti hefur enginn, sem ég man
eftir, tekið upp plötu í jafn göml-
um hljóm hin seinni ár.
Á hlið eitt eru fimm lög. „Love
Struck Baby“ er frábær bláma-
rokkari. Laglínan er grípandi og
söngurinn fellur vel að henni.
Gítarinn ræður ferðinni og er
nýttur af eindæma kunnáttu og
leikni. Lag sem þetta hefði mátt
gera að enn einum hefðbundnum
blámarokkara en fjölhæfur og
hugmyndaríkur gítarleikur
þeytir laginu upp um mörg
gæðaþrep. „Pride and Joy“ er
rólegra en hefur allt til að bera
líkt og hið fyrsta. Titillag plöt-
unnar er dæmigerður blámi.
Rólegur söngur og gítar skiptast
á að leiða lagið, með dæmigerð-
um bassagangi sem spinnst ein-
földum trommuslætti. „Tell Me“
og „Testify“ eru bæði nokkuð
hraðari en hinn fyrri. „Tell Me“
grípur mann fljótt og vanti ein-
hvern lag til að komast í stuð þá
er þetta tilvalið. Það er hins veg-
ar hinn frábæri leikur sem
sendir „Testify" upp á toppinn
langt yfir uppáhaldslögin.
Seinni hliðin gefur hinni fyrri
ekkert eftir. „Roud Mood“ eitt af
þessu eindæma góðu lögum er
þar. Trommuspilið hratt og gít-
arinn fylgir eftir án nokkurra
mistaka, eins og snillingum er
einum lagið. Það er ekki alveg
rétt að „Mary Had A Little
Lamb“ sé uppáhaldið mitt, en
það sækir stöðugt á. Hreint
ótrúlega skemmtilegt, létt og
þægilegt. „Dirty Pool“ er dæmi-
gerður „Clapton“-slagari, að
hætti Stevie Ray. „I’m Cryin" og
„Lenny“ eru síðustu lög plötunn-
ar. Bæði afbragð.
„Texas Flood" er stórgóð og
hver og einn ætti að leita hana
uppi. Tvennt langar mig til að
minnast á að lokum. í fyrsta lagi
er það hlutverk hljóðstjórans
John Hammond. Sá er kominn af
léttasta skeiðinu, en mig grunar
að hann eigi stóran þátt í hversu
góð platan er. Hitt er síðan að
„Let’s Dance" breytir gjörsam-
lega um svip eftir að hafa hlust-
að á „Texas Flood" og ekki er sá
illilegri en hinn fyrri.
Tónlist: ★★★★★
Hljómgæði: ★★★★★
FM/AM.
Þú færist aldrei of mikiö
í fang sértu meö leikfang frá
Ingvari Helgasyni hf.
iri
nálgast
Vorum aö fá frábæra
sendingu af frönskum
gæöaleikföngum
og nú dugar ekki
aö drolla,
þvf jafnvel
heitar lummur
renna ekki
eins vel út.
27 ára reynsla hefur kennt okkur aö velja aöeins þaö besta. Við
einir bjóðum í heildsölu merki eins og „ SUPERJOUET — KIDDI-
KRAFT — NITTENDO — KNOOP — RICO — EKO — DEMUSA
og LONE STAR, auk ritfanga frá ASAHAI — og úrval gjafavara
— postulíns og kerta.
Hafið samband í síma 91-37710 eða komið og skoðið úrvalið.
INGVAR HELGASON HF.
VONARLANDI VIÐ SOGAVEG. SÍMI 37710.
LEIÐANDIFYRIRTÆKI
FIRMALOSS
GRENNINGARDUFTIÐ
* Kemur I stað má/tlðar/má/tlða
* Utiloka. megrunarþreytu þar eð næg vltamln. steme/m
og prótein fyrir þar/ir l/kamans eru / Firmaloss
* Fullgild. seðjandi og ófitandi nærmg
OG EINFALT ER ÞAÐ
Þú býrð þér til bragögóöan drykk meö súkkulaöibragöi
meö því aö hræra FIRMALOSS duftinu í glas af kaldri
mjólk/léttmjólk/undanrennu sem þú neytir í staöannarrar
fæöu einu sinni eöa tvisvar á dag - og aukakílóm renna
af þér
MFfíRUN ÁN MÆDU
Meö FIRMALOSS getur
þú haldið þér grönnum/
grannri án gremju.
Spyrjir þú þá sem reynt
hafa færðu
staðfestingu.
Og haldgóða
sönnun gefur
FIRMALOSS
grenningarfæðið
sjálft þegar þú
reynir það.
dir Ulendingaofl mi.ljónlr manna
an heim hafa nú sannreynt fl.ld.
kLOSS grenningardufts.ns .
unni viö aukakílóin.
Eðlileg leið til megrunar
Velkomin í sýningarsalinn
aö Dugguvogi 7, S: 30000
Verið velkomin í sýningarsal Vaxtarraektar-
innar I Dugguvogi 7. Þar gefst tækifæri á að
skoða og prófa mikið úrval WEIDER líkams-
ræktar- og æfingatækja, sem ætluöerufyr-
ir æfingasali og líkamsræktaraöstöðu fyrir-
tækja og stofnana.
tg þakka
FIRMALOSS
grennmgarduttmu
að ég ger haldið mér
grannri og hraustn
tn fyrirhatnar "
Marc.a Goebel
^ Sendiö mér tímaritið
Líkamsrækt og næringu^
ó kr. 65.00
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Útilíf, Glæsibæ.
Sportvöruverslanir
Ingólfs Óskarssonar.
Verslun
Vaxtarræktarinnar
Dugguvogi 7.
Hlíðasport, Akureyri.
PÖNTUNARSÍMI
35000
D Sendiö mér
_________pakka af
FIRMALOSS grenn-
ingarfæÖinu
á kr. 340.00 aö viö-
bættum send.kostn.
1 HEIMILI
1 STAOUR PÓSTNR.