Morgunblaðið - 29.11.1983, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.11.1983, Blaðsíða 12
60 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1983 Sjötugur: Gunnar Friðriks son forstjóri f dag verður Gunnar Friðriks- son, forstjóri og fyrrverandi for- seti Slysavarnafélags íslands, sjötugur. Ekki ber hann aldurinn með sér, því enn er hann léttur í spori og starfar meira en fullan vinnudag. Hann hefur haft mikla ánægju af ferðalögum hér heima og er- lendis. Þótti honum nú kærkomið tækifæri að leggja land undir fót og kanna ókunnar slóðir. Brá hann sér nú til Austurlanda fjær og dvelur því erlendis á afmælis- daginn. Gunnar Friðriksson er fæddur 29. nóvember 1913, að Látrum í Aðalvík. Er hann sonur þeirra merkishjóna Friðriks Magnússon- ar, útvegsbónda í Aðalvík og Rannveigar Ásgeirsdóttur. Að Látrum í Aðalvík var mikil verstöð upp úr aldamótunum, Gunnar byrjaði því snemma að stunda sjómennsku með föður sín- um. En fljótlega gerðist hann sjálfstæður útgerðarmaður og mun þá hafa verið einn yngsti út- gerðarmaður landsins. Eftir að hann hafði rekið útgerð sína í skamman tíma, settist hann á skólabekk á ísafirði og lauk þar námi í gagnfræðaskólanum árið 1931. Eftir skólaveru Gunnars stund- aði hann jöfnum höndum útgerð og verslunarstörf. Verslunarstörf- in voru að verulegu leyti tengd sjávarútvegi, enda vissi hann þá að útveginn þyrfti að efla með nýrri tækni og meiri vélvæðingu. Þessi verslunarstarfsemi varð til þess að árið 1940 stofnaði Gunnar Vélasöluna hf., í félagi við Sæ- mund Stefánsson. Ráku þeir félagið sameiginlega í 20 ár, en þá yfirtók Gunnar Véla- söluna og rekur hana enn. Fyrirtækið hefur því starfað í 43 ár undir öruggri forystu Gunn- ars. Stærstu viðskipti Vélasölunn- ar hf., hafa verið á sviði sjávarút- vegsins. Hefur þar verið um að ræða allt frá minnstu skrúfum upp í stærstu togara landsins. Frá því að Gunnar hóf fyrst útgerð, hefur hann ávallt verið tengdur sjávarútvegi og aflað sér víðtækr- ar þekkingar á því sviði. Hann hefur sennilega flutt inn fleiri skip en nokkur annar, og fáir munu þeir útgerðarmenn, sem ekki þekkja Gunnar af hans frá- bæru störfum og hjálpsemi. Enda er svo, að viðskiptamenn hans verða ávallt hans bestu vinir, og tryggir viðskiptamenn. Þeir finna að hann leggur sig allan fram fyrir þá og sparar þá hvorki tíma né fyrirhöfn til að viðskiptin verði þeim sem hagstæðust. Eftir stríðið þurfti ríkisstjórnin að gera marga vöruskiptasamn- inga við Austur-Evrópu. Þá var ákveðið að stofna sérstakt inn- flutningsfyrirtæki, sem hlaut nafnið DESA. Þar hefur Gunnar verið framkvæmdastjóri frá upp- hafi og lengst af formaður. Vegna reynslu og þekkingar á viðskiptum við þessi lönd hefur viðskiptaráðherra fyrir hönd rík- isstjórnarinnar marg oft skipað hann í viðskiptanefndir, til að semja við stjórnvöld í þessum löndum um vöruskipti. Fyrir löngu er Gunnar orðinn þjóðkunnur maður fyrir félags- málastörf sín. Ber þar hæst hið mikla starf hans í þágu Slysa- varnafélags Islands um þrjá ára- tugi, þar af forseti félagsins í 22 ár. Undir hans forsæti byggði fé- lagið upp félagsaðstöðu og björg- unarstöð á Grandagarði, sem gerði félaginu m.a. kleift að sinna björgunarstörfum jafnt á sjó og landi. Þá hefur hann átt sæti í stjórn- um fjölda félaga og samtaka, eins og t.d. í Verslunarráði íslands, formaður um skeið í Bátafélaginu Björg, Lionsklúbbi Reykjavíkur og víðar. Þar sem Gunnar hefur lagt hönd að verki, hefur ávallt munað um hans framlag, enda víða sóst eftir hans starfskröftum. M.a. hef- ur oft verið leitað til hans um að vera á framboðslista til borgar- stjórnar eða Alþingis, en án árangurs. Árið. 1940 kvæntist Gunnar Unni Halldórsdóttur, en hún rek- ur ættir sínar austur á firði. Hafa þau hjónin verið samhent um að byggja upp hið indæla heimili á Hjarðarhaga, þar sem við hjónin höfum átt margar indælar stundir með þeim. Gunnar hefur haldið mikilli tryggð við Aðalvík. Hefur hann gert hús foreldra sinna að sumar- húsi sínu, og er það árviss ferð hjá þeim hjónum að fara vestur og njóta friðsældarinnar að Látrum, en þar lagðist öll byggð af fyrir nokkrum árum. Það hefur oft verið glatt á hjalla þegar Gunnar og Unnur hafa tekið á móti vinum sinum úr Aðalvík á hátíðarstund. Þá hefur Gunnar leikið á alls oddi, sem sannur ætt- arhöfðingi að vestan. Gunnar hefur frá fyrstu tíð haft mikinn áhuga á íþróttum og úti- veru. Leiðir okkar lágu fyrst sam- an í skíðaferðum í nágrenni borg- arinnar fyrir 40 árum síðan. Kom þá fram að hann var ágætur skíðamaður, en þá list hafði hann tileinkað sér á skólaárum sínum á ísafirði. Ávallt fór hann á hæsta tindinn og fór síðan í einu bruni niður, þótt við hin létum nægja, að vera neðar í hlíðinni og nær jafn- sléttu, að leika einfaldari listir skíðamennskunnar, sem þá var á gelgjuskeiði sínu hér. Síðan tók hestamennskan við hjá Gunnari. Fór hann þá víða um landið á gæðingum sínum. Sér- staklega er minnisstæð ferð með þeim hjónum og fleiri þekktum hestamönnum um Kjalveg þvert yfir landið. Þá átti Gunnar fágæt- an viljahest, er hann nefndi Gimstein. Kom þá berlega fram að Gunnar var mikill hestamaður og unni hesti sínum mikið. Enda fór svo að þegar farga varð Gimsteini, hætti hann í hestamennskunni. Þá hafa verið farnar margar ánægjulegar ferðir um Evrópu með þeim hjónum. Sú fyrsta var á ólympíuleikana í London 1948. Seinna var haldið til Róm, Aþenu og siglt um Eyjahafið til Rodos og Tyrklands. Slík ferð er eftirminni- leg í góðum vinahóp, sem hefur áhuga á að kynnast hámenningu liðinna alda. Þarna var Ólympíu- leikvangurinn frá 1896 skoðaður, svo og Akrapolis í allri sinni tign, en ferðin náði hámarki á hinni kunnu leiksýningu, þar sem Peri- kles er látinn tala úr klettaberg- inu um uppbyggingu Akrapolis og Aþenu fyrir um 2500 árum. Á árunum upp úr 1955 vann íþróttabandalag Reykjavíkur að því að byggð yrði sundlaug í Vest- urbænum. Var þá ákveðið af bandalaginu að hrinda af stað um- fangsmikilli fjáröflun til að tryggja stuðning borgarinnar við málefnið. Til að standa fyrir þess- ari fjáröflun var skipuð fjáröflun- arnefnd, þar sem Gunnar var skipaður formaður. Skipulagði hann þessa fjáröflun með þeim ágætum, að meira fé safnaðist en nokkurn grunaði. Varð söfnunar- féð sá aflgjafi, sem dugði til þess að borgarstjórnin brá við skjótt og hóf framkvæmdir við þennan heilsubrunn og Sundlaug Vestur- bæjar varð að staðreynd. Gunnar var mikill áhugamaður um þessar framkvæmdir og hefur verið einn af hinum ötulu sundlaugargestum, sem sækja þangað heilbrigði og þrótt með góðum sundspretti. Þá hefur Gunnar iðkað mikið golf á undanförnum árum og hef- ur mikla ánægju af þessari ágætu íþrótt og þeirri útiveru, sem henni er fylgjandi. Lengst af hefur Gunnar búið í Vesturbænum og er því kominn í tölu sannra Vesturbæinga. Sem slíkur hefur hann stutt „Vestur- bæjarlið" KR með ráðum og dáð. Sat hann meðal annars í hússtjórn félagsins um áratuga skeið. Gunnar er fróður um menn og málefni og kemur þá oft fram að hann er mikill ættfræðingur og á létt með að rekja ættir samferða- manna langt til baka. Hans stál- minni er þá oft undravert í þess- um efnum. Á þessum merkisdegi Gunnars vil ég þakka honum og konu hans, alla þá vináttu og stuðning sem þau hafa sýnt okkur. Góð vinátta, aðstoð og holl ráð eru mikils virði í önn dagsins, sem ég met og virði. Við Margrét færum Gunnari og allri fjölskyldunni okkar hugheilu árnaðaróskir á afmælisdaginn. Gísli Halldórsson Ég ætlaði varla að trúa því, þeg- ar mér var sagt, að minn góði vin- ur Gunnar Friðriksson væri orð- inn sjötíu ára. Tíminn er fugl, sem flýgur undarlega hratt. Það er ótrúlegt, að liðnir séu meira en fjórir áratugir frá því við hittumst fyrst hér í Reykjavík í byrjun síð- ari heimsstyrjaldarinnar. Ég var þá nýkominn til bæjarins eftir fimm ára veru á Ytra-Hvarfi í Svarfaðardal. Gunnar kom að vestan frá Látrum í Aðalvík, son- ur Friðriks Magnússonar, út- vegsbónda, og Rannveigar Ás- geirsdóttur. Forfeður hans höfðu búið að Látrum í marga ættliði. Líklega hefði hann einnig stundað sjóinn fyrir vestan, hefði faðir hans ekki tekið af honum loforð um að stunda ekki sjó, eftir að hafa misst syni sína tvo, en þeir fórust í mannskaðaveðri 15. des. 1924 með vélbátnum Leifi frá Isa- firði. Gunnar hafði komið suður nokkrum árum á undan mér, og árið 1940 kvæntist hann frænd- konu minni ágætri, Unni Hall- dórsdóttur Stefánssonar, sem var prestur á Kolfreyjustað í Fá- skrúðsfirði. Halldór afi minn bjó á Sandbrekku á Héraði, og þaðan kom Unnur. — Menn komu úr öll- um áttum í byrjun stríðs til hinn- ar ungu, vaxandi borgar, og mannlífið var litríkt og marg- slungið. Það varð mér ógleyman- leg reynsla að kynnast Gunnari Friðrikssyni. Hann er með greind- ustu mönnum, sem ég hef hitt. Allt fas hans vakti virðingu manna. Hann var frjálslegur í framgöngu og traustur og veitti mér sveitastrák að norðan innsýn inn í margvísleg málefni, sem voru mér framandi. I raun og veru var Gunnar engum manni líkur. Þótt hann væri ungur að árum, hafði hann ótrúlega lífsreynslu að baki. Menntun á þessum árum hlýtur að hafa verið betri en nú gerist, þótt skólagangan væri að- eins tveir vetur í gagnfræðaskóla á ísafirði. — Aðeins sautján ára að aldri var Gunnar kosinn full- trúi á Alþýðusambandsþing fyrir Verkalýðsfélag Sléttuhrepps. Inn- an við tvítugt var hann orðinn út- gerðarmaður, eigandi tveggja báta og hafði fiskverkun á Látrum og Hesteyri. Þeir eru hressir Vest- firðingar, djarfir menn og stór- huga, enda menntaðir af harðri lífsbaráttu. Gunnar Friðriksson varð far- sæll maður og komst vel áfram í höfuðborginni. Hann stofnaði Vélasöluna hf. strax árið 1940 og tók að flytja inn vélar og tækja- búnað til skipa. Síðan, eða árið 1955, hóf hann innflutning fiski- skipa og hefur flutt inn hálft ann- að hundrað skipa frá sjö löndum. Gunnar Friðriksson er þó kunn- ari fyrir störf sín að félagsmálum. Hann varð forseti Slysavarnafé- lags íslands árið 1960 og gegndi eigendur Leitið ekki langt yfir skammt vconKÖNNUN: novem»£5Í??- Umboð'O 5267 kr. sns.xiwi io 3249 kr. 2300 kr 241S><' ~3Sea.*o»r kr gílanaust 4015.10 kf' 3079.30 kr 1969.40kr. TKJ2. 70 kr_ 3027.00kr. fjóOrin 4579 kr. 5203 kr 2755 kr. 1719 kr. 3030 kr. ~3369kr »f.“rr^Ptn e\VlaÞÍ»'^aa6ymSÍrVara’ ^astvUren.umboöunun, Kappkostum ávallt að bjóða Lada-varahluti á sem lægstu verði. I Bifreiðar og Landbúnaðarvélar hf ■ -- Ija-Nir- o.i a c:_: oo cnn —3 Suðurlandsbraut 14 - Sími 38 600 því starfi í tuttugu og tvö ár, eða þar til á síðasta ári, en þá baðst hann undan endurkosningu. Áður sat Gunnar í stjórn féiagsins frá 1956. Það hafa orðið miklar mann- lífsbreytingar frá því í byrjun stríðs og lífshættir nú í flestu aðr- ir. En einhvern veginn finnst mér Gunnar hafa lítið breyst. Hann er enn vel skyggn á vandamál tím- ans, eins og hér áður fyrr, þegar hann ræddi við stórvin sinn, séra Sigurð Einarsson, skáld í Holti. Ég hef stundum rifjað það upp í huganum, hvernig þeir gerðu sér skynsamlega og raunsæja grein fyrir hlutum, sem menntamenn Évrópu skildu almennt ekki fyrr en tuttugu árum síðar. Nei, Gunn- ar hefur ekki breyst. Það er sama hvort ég hef hitt hann á Hjarð- arhaganum, London, Edinborg, Tenerife eða í hákarlshjallinum hans á Seltjarnarnesi (nú er víst búið að gadda þar bíslagið), alltaf hef ég hjá þeim hjónum mætt sömu hlýju og gestrisni. Gunnar Friðriksson hefur verið hamingjumaður í lífinu. Hann missti snemma löngun til að skipta sér af stjórnmálum. Hann skildi þá þversögn, að vald er veik- leiki. Hann ræktaði garðinn sinn og breytti remmu moldarinnar í góða ávexti. Hann er traustur maður í sveit dugmikillar kynslóð- ar, sem breytti frumstæðu þjóðfé- lagi í velferðarríki. Og hamingja hans er ekki síst fólgin í því að bera gæfu til að kasta út línu til meðbræðra sinna á erfiðum stundum. Ég flyt þér og þinni ágætu konu mínar innilegustu hamingjuóskir á þessum merku tímamótum. Og ég þakka ykkur vináttu ykkar á liðnum árum. Gunnar Dal I dag er Gunnar Friðriksson, forstjóri og fyrrverandi forseti Slysavarnafélags íslands, 70 ára, þótt ekki beri hann það með sér, svo hraustlegur og hress í bragði sem hann jafnan er. Á þessum af- mælisdegi er hann reyndar stadd- ur í öðru landi ásamt konu sinni í erindinum fyrirtækis síns við samningagerð vegna skipasmíði og sýnir það m.a. að lítið lát er á starfsþreki hans. Margs er að minnast á þessum tímamótum í lífi Gunnars, því maðurinn hefur verið með ólíkind- um atorkusamur og duglegur. Okkur, félögum hans í SVFÍ, eru auðvitað efst í huga frábær störf hans sem forseti félagsins í 22 ár. Það voru hins vegar „aðeins“ frí- stundastörf hans, en aðalstarf hans hefur verið á sviði viðskipta og innflutnings. Þar hefur hann átt ríkan þátt í hinni öru fram- þróun íslensks sjávarútvegs und- anfarna áratugi sem innflytjandi véla og fiskiskipa. Hann er einn þessara djörfu og framsæknu manna, sem eiga sinn stóra þátt í þeirri miklu umbyltingu, sem þjóðfélag okkar hefur tekið á þess- ari öld. Gunnar Friðriksson fæddist að Látrum í Aðalvík 29. nóvember 1913, en þar bjuggu foreldrar hans, Friðrik Magnússon og Rann- veig Ásgeirsdóttir. Friðrik var dugmikill útvegsbóndi og formað- ur, en útgerð var þá talsverð frá Aðalvík og byggð blómleg. Hóf Friðrik formennsku sína á sexær- ingi, en 1907 fékk hann vél í bát sinn og hófst þá vélabátaöld í Að- alvík. Hann var farsæll sjósóknari og m.a. má minnast hér, að hann var eigandi og formaður annars bátsins, sem bjargaði farþegum og áhöfn ms. Goðafoss, er skipið strandaði 30. nóvember 1916, þ.e. daginn eftir þriðja afmælisdag Gunnars. Gunnar ólst upp í Aðalvík við gott atlæti foreldra sinna. Þegar hann var nýorðinn 11 ára varð byggðin fyrir því þunga áfalli, að 7 menn, búandi þar, fórust með mb. Leifi frá ísafirði, þar á meðal tveir bræður Gunnars, Magnús og Brynjólfur. Má nærri geta hvílíkt áfall þetta var fyrir fjölskyldurn- ar og byggðarlagið. Gunnar hefur sagt, að þetta slys hafi ekki síst átt þátt í að móta afstöðu sína til

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.