Morgunblaðið - 29.11.1983, Side 28

Morgunblaðið - 29.11.1983, Side 28
76 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1983 fiefcMiw . Óska.r$>u enn e-ftlr £>t/I abfix. yei&L. dagsins"?" með afmælisdög- um ættingja hans. Rækjuveiðar á úthafinu og vinnslustöðvar í landi M.R.S. skrifar: „Velgengni rækjubáta á út- hafsveiði síðastliðið sumar hefur orðið ansi mörgum þrálátt um- hugsunarefni, bæði til sjós og lands. Og virðist þar mörgum von í skjótfengnum gróða. Það, sem fram hefur komið í út- varpi og blöðum undanfarna daga um umsókn tíu aðila til sjávarút- vegsráðuneytisins um leyfi sér til handa um uppsetningu rækju- vinnslustöðvar, er orsök þessarar greinar. Ég er of hræddur um, að áður- nefndir aðilar séu of skammsýnir, til þess að geta látið málið kyrrt bggja. Það er jú alveg rétt að rækju- veiði á úthafinu síðastliðið sumar gekk mjög vel, og jafnvel betur en bjartsýnustu menn þorðu að vona. En til þess að ástæða sé til þess að það þurfi að setja upp fleiri rækjuvinnslur má að mínu mati koma mikium mun meira magn af rækju í land, því þær verksmiðjur sem fyrir hendi eru í landinu geta bætt við sig umtaisverðu hráefni ef það á annað borð er til staðar. Þetta eitt útaf fyrir sig ætti kannski að nægja til þess að sýna fram á að uppsetning nýrra vinnslustöðva er óþörf í dag, og að mínu mati óarðbær fjárfesting fyrir þjóðfélagið í heild. En þar sem það hefir æði oft orðið raunin á hér á landi, að ef einhver vinnsla eða veiðiskapur hefur gengið vel þá hafa allir viljað í komast, og handagangurinn orðið það mikill að hvorki heilbrigð skynsemi né eðlileg stjórnun hefur þar nokkru mátt um þoka, og síðan allt endað með ósköpum. Nægir þar til að nefna síldina, loðnuna, nú þorsk- inn og jafnvel karfann. Eigum við virkilega að þurfa að bæta enn einu nafni við þennan miður fagra lista? Ég segi nei, það má ekki ske. Flestar þær rækjuverksmiðjur sem nú eru starfandi eru orðnar tíu ára eða meira, og voru því löngu byrjaðar vinnslu áður en út- hafsrækja kom til sögunnar, og þýðir það að þær byggja að stór- um hluta afkomu sína á innfjarða- rækju. Þær hafa getað og munu geta staðið af sér lélegan afla á úthafinu vegna þess. Þá á ég við að það sé ekki gefið mál að það sé ómælanlegt magn af rækju þarna úti, og að það geti brugðist, og þá sérstaklega ef það á að fara að bjarga flota landsmanna á þessum veiðum, þegar allt annað hefur brugðist. Og nú vil ég spyrja: Hvað á að gera við þær verksmiðjur sem þá verða nýbyggðar, og með skulda- bagga á bakinu? A að bæta þeim á lista með út- gerðar- og fiskvinnslufyrirtækjum sem nú þegar eru á hausnum og enginn veit hvað gera á við? Svari hver fyrir sig. Að lokum þetta: Ég vil biðja ráðamenn í sjávarútvegsráðuneyt- inu og fiskifræðinga og alla þá er þetta mál varðar að athuga mjög vel sinn gang og allar aðstæður í þessu máli, áður en til ákvarðana- töku kemur, svo að við getum kannski eftir nokkur ár sagt með sanni að velgengni rækjuveiða við ísland sé góðri stjórnun að þakka. Því það er von mín og ósk að það verði ennþá velgengni í rækjumál- um landsmanna eftir nokkur ár, en það verður það örugglega ekki nema gripið verði í taumana nú af þeim sem til þess hafa vald, enda mun sú hafa verið ætlunin með setningu laga um samræmdan afla og vinnslu sjávarafurða í maí 1976. Þó vil ég taka fram að á Aust- fjörðum, þar sem engin rækju- vinnsla er, en vart hefur orðið rækju, finnst mér öðru máli gegna um stofnun vinnslufyrirtækja heldur en á Norður- og Vestur- landi, þar sem nóg er af þeim fyrir, eins og áður er komið fram." Þessir hringdu . . . Vinnst ekkert við þessi gönuhlaup A.G. hringdi og hafði eftirfar- andi að segja: — Mig langar til að koma með uppástungu varð- andi gangbrautarljósin í Lækj- argötu. Ég held að það sé nauð- synlegt að koma þar upp hátal- arakerfi sem útvarpi í sífellu viðvörunarorðum til vegfarenda um að ana ekki yfir götuna á rauðu ljósi. En það er einmitt það sem fólk gerir; endilega skal það þurfa að hlaupa af stað. Þó vinnst ekkert við þessi gönu- hlaup, nema hvað þau setja ómenningarbrag á umgengnina þarna. Svo gætu óeinkennis- klæddir lögreglumenn haft eftir- lit með því, að farið yrði eftir ábendingunum í hátalarakerfinu og sektað hvern þann um t.d. 1.000 krónur sem út af brygði. Ætli ástandið tæki ekki skjótum breytingum til batnaðar? Ekki hægt að skila jólagjöfunum nema kassakvittun fylgi Helga Valsdóttir (3943-0088) hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Mig langar til að vekja athygli þeirra, sem ætla að kaupa jólagjafirnar í Mikla- garði, á því, að það er ekki hægt að skila þeim aftur, nema kassa- kvittunin fylgi með pökkunum. Fyrir helgi keypti amma nokkur föt á litla dömu, sem ég þekki; allt frá toppi til táar, m.a. kjól, sem reyndist of lítill. Þegar ég ætlaði að skila kjólnum eða skipta á honum, kom í ljós, að slíkt var ógjörningur skv. regl- um verslunarinnar, nema kass- akvittun fylgdi. Þetta kostaði ferð út á Seltjarnarnes til þess að ná í kvittunina. Ég spurði af- greiðslumanninn, sem var ósveigjanlegur eins og reglurnar, hvernig þeir ætluðu að fara að eftir jólin, þegar fólk streymdi að til að skipta á jólagjafavarn- ingi, en það var fátt um svör. Við vorum svo heppin, að kassakvitt- unin fannst eftir nokkra leit, en sjálfsagt hefur bensínkostnaður- inn slagað hátt upp í kjólverðið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.