Morgunblaðið - 16.12.1983, Side 9

Morgunblaðið - 16.12.1983, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1983 9 Hin nýbyggða brú yfir Laxá í Leirársvéit. Sláturhús Sláturfélags Suðurlands sést á bak við. Morgunbladid/HBj. Borgarfjörður: Syigrúm til aukinna vega- framkvæmda næsta sumar — vegna sparnaðar við útboð í haust Borgarnesi, 24. nóvember. BYGGINGU nýrrar brúar yfir Laxá f Leirársveit er lokið og hafin er undir- bygging vegarins frá Geldingaá, yfir Leirá og Laxá og suður fyrir Akranes- vegamót. Skóflan hf. á Akranesi, sem tók að sér vegarlagninguna fyrir 4.486 þúsund krónur sem er um 37% af kostnaðaráætlun vegagerðarinnar, hófst handa um fyrstu fram- kvæmdir i vikunni, að sögn Birgis Guðmundssonar, umdæmisverk- fræðings Vegagerðar ríkisins á Vesturlandi. Kostnaðaráætlun vegagerðarinnar hljóðaði upp á rúmar 12 milljónir. 15 aðilar buðu í verkið, 10 þeirra voru undir kostn- aðaráætlun og 3 þeirra voru undir 50% af kostnaðaráætlun, en Skófl- an hf. á Akranesi var lægstbjóðandi eins og áður sagði. Verkið felst í undirbyggingu vegarins frá Geld- ingaá, þar sem bundna slitlagið frá Borgarnesi endar, yfir Leirá, þar sem nýtt ræsi var byggt í sumar í stað gamallar brúar og Laxá, þar sem ný glæsileg brú var byggð í sumar en er ótengd, og allt suður fyrir Akranesvegamót að enda bundna slitlagskaflans frá Akra- nesi. Er þetta um 5 kílómetra veg- arkafli og sagði Birgir að vonast væri til að hægt verði að leggja bundið slitlag á hann næsta sumar, a.m.k. hluta hans. Takist það verð- ur vegurinn á milli Akraness og Borgarness, sem er um 35 kílómetra langur, allur með bundnu slitlagi. Aðspurður um hvað gert yrði við það fjármagn sem sparaðist með hagstæðri útkomu á þessu verki, sagði Birgir það vera Alþingis að ákveða slíkt, en Ijóst væri að hægt yrði að framkvæma meira á næsta ári af verkum sem á áætlun hefðu verið 1985. Hagnaðurinn kæmi þvi ekki fram að fullu fyrr en árið 1985. — HBj. CRANMID Laugavegur 17b. S. 12040 Björgunartæki til að ná mönnum út úr bílum, sem lent hafa í árekstri BJÖRGUNARTÆKI, ætluð til að bjarga fólki úr bílum, sem lent hafa í árekstri, eru nú fáanleg hér á landi. Fyrirtækið Pálmason & Valsson hf. á Klapparstíg 16 í Reykjavík hefur einkumboð fyrir björgunartæki frá hollenska fyrirtækinu V.B. Holmatro. Hermann Valsson, hjá Pálma- son & Valsson hf., sagði í spjalli við blm. Morgunblaðsins fyrir skömmu, að fyrirtækið hefði á boðstólum klippur, atgeira og tjakka. „Klippurnar gegna því hlutverki," sagði Hermann, „að klippa í sundur dyrapósta, gluggapósta, stýrisstöng eða gólfbita. Það tekur aðeins um fimm sekúndur að klippa hvern póst í sundur. Tjakkurinn, sem við höfum á boðstólum, hefur 10 tonna átak og hann getur rétt bílþök eða lyft þeim upp ef þau hafa lagst sarnan." Hermann sagði helsta kost þessara tækja vera þann, að þau ynnu hratt og hljóðlega, en um- fram allt örugglega. „Það hefur oft mjög slæm áhrif á mann, sem fastur er inni í bifreið, sem lent hefur í árekstri, ef mikil barsmíð og læti eru við að losa hann og bjarga honum," sagði Hermann. „En þannig vill oft fara, þegar notuð eru kúbein og járnsagir við björgunarstörf." Hermann Valsson gat þess að lokum að slökkviliðið í Reykja- vík hefði þegar fengið til sín at- geir og klippur og tjakkur væri væntanlegur til þess, nú á næst- unni. _»H\rande w-g-J ataö'e° ^\\ '!Í'uvS*'e*‘1ÍJÍc,\ p»ata9ern wnm\n ú' "» KA\taoóa ”V skttyfö' r U'O Ow twe v *v &&&&*** Sön9a"er Otan i \s\aod' saro1 dóroa V\ö»r tPlóö'T' Nýjar LP-plötur: 1. vinaælar plötur David Bowie - Ziggy Stardust (21p live) Genesis - Genesis Bara-flokkurinn - Gas Paul McCartney - Pipes Of Peace Mozzoforte - Yfirsýn Marc and the Mambas - Torment & Toreros Psychic TV - Dreams Less Sweet (Lp+ 12") Psychic TV - Force The Hand Of Chace The Jam - Snap 2. danatónlist ABC - Beauty Stab Duran Duran - Seven and the Ragged Tiger Gang Of 4 - Hard Maicolm McLaren - Duck Rock Milli tveggja elda New Order - Power, Corruption & Lies Rip Rig and Panic - Attitude Rolling Stones - Undercover Yello - Solid Pleasure/Claor Que Sl/ You Gotta Say Yeas 3. 12”45 rppm Cabaret Voltaire - Just Fascination Joy Division - Atomsphere Killlng Joke - Me Or You New Order - Blue Monday New Order - Confution Pil - This Is Not A Love Song Siouxsie and the Banshees — Dear Prudence 4. þungarokk (Heavy Metal) Cirith Ungol - Frost and Fire Iron Maiden - Piece of Mind/Klllers etc. Klss - Llck It Up/Dynasty/Unmasked Mötley Criie - Mötley Crue Rainbow - Bent Out Of Shape Saga - Heads Or Tales Ýmsir - Hardrock '83/U.S. Metal/ Metal Massacre 5 Reggae Black Uhuru — Black Sounds Of Freedom General Saint & Clint Eastwood — Two Bad D.J. Linton Kwesi Johnson — Force Of Victory Linton Kwesi Johnson — Bass Culture Bob Marley — Confrontation Michael Smith — Mi Cy-aan Believe It 6. Jazz Gary Burton Quartet — Plcture This Gary Burton Quartet — Easy As Pie Gary Burton Quartet/Steve Swallow — Hotel Hello 7. Pönk Anti-Nowhere League — Live In Yogoslavia Conflict — It's Time To See Who's Who Crass - Yea Sir I Will/Christ/Penis Envy/ Stations/Feeding + allir singlararnir Exploited — Punks Not Dead Flux Of Pink Indians — Strive To Survive (Frábær) Punk And Dlsorderly (Safnplata) Sex Pistols — Anarchy In The UK 12” Rudimentary Peni — Death Church (Frábær) Eigum aö sjálfaögðu allar (s- lenskar sem erlendar plötur sem skipta máli, bækur og tímarit. Hermann Valsson hjá Pálmason & Valsson hf., heldur hér á klippum eins og þeim, sem skýrt er frá ( fréttinni. Á myndinni sjást einnig tjakkur og atgeir, sem fáanlegir eru hjá sama fyrirtæki. Ný þjónusta Eimskips: Reglubundnir flutningar til og frá Borgarnesi Borfjarne.si, 12. desember. HF. EIMSKIPAFÉLAG fslands hef- ur ráðið umboðsmann í Borgarnesi og hefur nú hafið reglubundna flutn- inga á milli Borgarness og hinna ýmsu þjónustuborga fyrirtækisins um víða veröld. Þetta gerir Eimskip án þess að vera með siglingar til Borgarness, hér koma til sögunnar þær breytingar sem orðið hafa í starfsemi Eimskips sem og annarra skipafélaga með gámavæðingunni svokölluðu, þannig að skipafélögin sjá nú orðið ( auknura mæli um flutningaþjónustuna alla leið frá kaupanda til seljanda, þó yfir land sé að fara hluta leiðarinnar. f þessu tilviki hefur Eimskip samið við vöru- flutningafyrirtæki hér á staðnum sem sér um flutningana til og frá Reykjavík jafnóðum og skipin eru losuð eða lestuð. Borgarnes, og þá um leið hérað- ið allt, er fyrsti staðurinn hér á landi sem Eimskip kemur í sam- band við umheiminn á þennan hátt og kynntu nokkrir forráða- menn fyrirtækisins, Þórður Sverr- isson, fulltrúi framkvæmdastjóra flutnings- og markaðssviðs, Kjart- an Jónsson og Óskar V. Friðriks- son, þessa nýju þjónustu á fundi hér fyrir skömmu. Páll Guð- bjartsson, forstjóri Vírnets hf., er hinn nýi umboðsmaður Eimskips í Borgarnesi og fyrirtækið Steinar og Jóhann-vöruflutningar sem Halldór Gíslason rekur hefur tek- ið að sér flutningana til og frá Reykjavík. Sögðu Eimskipsmenn að þegar hefði orðið umtalsverð aukning á flutningum félagsins til Borgarness og héraðsins alls á þeim stutta tíma, sem liðinn væri síðan þetta nýja fyrirkomulag flutninganna var tekið upp og hefði nýbreytnin mælst vel fyrir. Þó sögðust þeir hafa áhuga á að flutningarnir myndu enn aukast, ekki síst útflutningur frá staðn- um. Eins og áður sagði eru vörur til Borgarfjarðar sem koma með skipum Eimskips að utan settar strax á flutningabíla og fluttar hingað uppeftir sama dag eða dag- inn eftir. Þær eru síðan geymdar hér í húsplássi sem umboðsmaður- inn hefur umráð yfir og þær leyst- ar þar út. Þetta fyrirkomulag get- ur sparað þeim aðilum sem flytja vörur þannig beint inn til landsins mikla snúninga og Reykjavíkur- ferðir, ekki síst ef frumvarp við- skiptaráðherra um heimild til að veita sparisjóðum leyfi til að versla með gjaldeyri nær fram að ganga og hægt verður að ganga frá þeirri hlið málanna hér í Sparisjóði Mýrasýslu. HBj. Rangt húsnúmer í FRÉTT í Morgunblaðinu í gær um opnun nýrrar verslunar, Búð- arkots, að Laugavegi 92, var hús- númerið vitlaust. Þar var sagt að versluninni væri í bakhúsi að Laugavegi 12. Verslunin er eins og áður sagði í húsi nr. 92, að húsa- baki við Stjörnubíó. Hársel f FRÉTT í Mbl. í gær um nýja hárgreiðslustofu að Tindaseli 3, í Breiðholti, misritaðist heiti stof- unnar. Stofan heitir Hársel og eru hlutaðeigendur beðnir velvirð- ingar á þessu ranghermi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.